Vísir - 24.11.1926, Side 2

Vísir - 24.11.1926, Side 2
VÍSIR Biðjið um Glenora hveiiið þá lálð þér íyrsta flokks vöru fyrir sannejarnt verð. Símskeyti Khöfn, 23. nóv. FB. Merkileg samþykt um Bretland og nýlendur þess. Símað er frá London, að sam- þykt hafi verið á ráðstefnu þeirri, sem allir forsætisráð- herrar Bretaveldis sitja nú í London, yfirlýsing, sem er við- urkenning á því, að nýlendurn- ar séu jafnréttháar Englandi. Yfirlýsingin var samþykt ein- um rómi. Blöðin í Englandi eru ánægð yfir því, að yfirlýsingin var samþykt,og líta svo á, að hún muni verða rikisheildinni til styrktar. Herbúnaður ríkisvarðliðsins í J?ýskalandi. Símað er frá Berlín, að jafn- aðarmenn ásaki ríkisstjórnina um aðgerðarleysi gagnvart óleyfilegum herbúnáði rikis- varnarliðsins. Telja þeir aðgerð- arleysi stjórnarinnar sérstak- lega vítavert eins og sakir standa, þvi að nú er verið að gera samningatilraunir til þess að koma þvi til leiðar, að pjóða- bandalaginu verði falið eftirlit með þýskum hermálum, en framkoma stjörnarinnar gæti hæglega orðið samningatilraun- unum til spillis. frá Uistur-jsfeiitliiifn. FB, 23.-24. nóv. Fyrirlestur um íslandsferð liefir síra Ragnar E. Kvaran haldið í \Vinnipeg og víðar, við mikla aðsókn. Prófessor Skúli. Johnson. Hann hefir verið skipaður aðstoðarprófessor í fornmálun- um við Manitoba-háskólann, í stað prófessors H. J. Tracy, sem fluttist til Queen’s háskólans. — Sem stendur er Skúli Johnson forseti tungumáladeildarinnar (dean of arts) við Wesley Coll- ege. Hefir hann gegnt því siðan 1920, en þá tók hann við þvi af prófessor W. T. Allison. Hann hefir verið i skólaráðinu við Wesley College siðan árið 1915 og kom þá frá St. Johns Tecnic- al Scliool. Árið 1917 var hann skipaður prófessor í fornmál- unum við Wesley College. Auk þess hefir hann skipað próf'- essorseinbæltið í íslensku við Manitobaliáskólann síðan 1915, og verið prófdómari hins opin- bera við íslensku og fornmála- próf við háskólann síðan 1915. — Prófessor Johnson er fædd- ur í Hlíð á Vatnsnesi í Húna- vatnssýslu 6. sept. 1888. For- eldrar hans voru Sveinn óðals- bóndi Jónsson, er þar bjó, og kona hans Kristín Sigurðardótt- ir frá Flatnefsstöðum á Vatns- nesi í sömu sýslu. Fluttust þau hjón vestur um haf í júli 1889. — Skúli er framúrskarandi námsmaður og hlaut Rhodes- verðlaun fyrstur íslendinga. — Fór hann þá til Oxford, eins og lög gera ráð fyrir, og inn- ritaðist við Oriel College og las fornmálin, sögu og heimspeki. Hann kom frá Oxford 1913, en lauk siðan B, A. prófi (Bachelor of Arts) og því næst meistara- prófi. / (Hkr.). pórstína Jackson hefir skrifað hvatrfíngargrein í íslensku blöðin i Wínnipeg um að styrkja islenskar konur til þess að koma upp kvennaheim- ili hér í Reykjavík. —' Hefir þórstina á hendi sölu hlutabréfa Kvennaheimilisins þar vestra. v Mannalát. p. 3. okt. andaðst í borginni Lincoln í Nebraska merk kona islensk, Kristrún Jónsdóttir Johnson. Maður hennar, Jónas Johnson, var látinn áður. Voru þau hjón meðal fyrstu íslend- inganna, sem fluttust vestur. p. 8. ágúst andaðist vestra frii Herdís Benjamínsson, Einars- dóttir Árnasonar, frá Kalmans- tungu og Guðriinar Magnús- dóttur frá Fljótstungu í Hvítár- síðu. Jósef liét maður Herdís- ar, Benjamínsson, porbergsson- ar frá Sporði í Víðidal. pau hjón fluttust vestur um haf 1887. Lejkfélag Reykjavíknr og leikdómendur. Fyrir stuttu var þess getiö sem merkisviöburðar í hinu ágæta enska tímariti „Review of Re- views“, aö „Þrettándakvöld" Shakespeares liefði Veriö leikið í höfuöborg íslands. Englendingum mun hafa þótt það tíðindi, að svo lítil þjóð og afskekt, sem íslend- iugar eru, skyldi hafa menning og manndáð til að færast slíkt stór- virki í fang, og leysa það þar að auki ágætlega af hendi. Mönnum ætti að skiljast af þessu hve þýðingarmikið start Leikfélagsins er,'að það er ekki einungis íbúum höfuðborgarinnar 'til menningarauka, heldur líkavel til þess falliö, aö gera öllu land- inu sóma út á við. I’að niá ætla, að lesendur enska tímaritsins, sem um var getið, geri sér í hugarlund, að íslend- ingar eigi sér lítið leikhús, sem sé óskabarn þjóðarinnar, að lands- fólkið glæði áhuga leikendanna fyrir leiklistinni, með því að létta starf þeirra á allan hátt. Kinn- roðalaust getum vér varla sagt úllendingum það sanna um þetta mál. Leikfélagið hefir altaf átt erfitt uppdráttar. Lítinn styrk hefir það þegið af ríkinu. — Það hefir lif- að einungis sökum áhuga og hæfileika einstakra manna. Nú er leikhúsmálið þó loks komið á ]>ann rekspöl, að vænta má, að læss verði ekki langt að bíða, að Þjóöleikhúsið verði reist; þar með ætti mestu fjárhagsörðugleikunum að vera létt af félaginu. — En það er ekki nóg. Leikfélagiö hef- ir ekki efst á blaði þá ósk, að verða fyrirtæki, sem ber sig fjár- hagslega. Fyrst og fremst vill það verða sannkölluð menningarstofn- un, og því marki getur það ekki náð, nema því að eins, að sam- bandið milli áhorfenda og leikara verði miklum mun næmara en nú er. Séð frá því sjónarmiði á Leik- félagið enn við mikla örðugleika að etja, þar sem er skilningsleysi fjöldans og- tómlæti þeirra, sem ættu að kunna að meta starf'fé- lagsins. Það er leitt til þess að vita, að cnn hefir varla komið fram leik- umtal, sem falið hefír x sér veru- lega gagnrýni, né boríð vott um sómasamlega þroskaða smekkvísi eöa skilning á leiklist. Verst af öllu er, að þó að flestum sé þetta ljóst,þá er ekkert að gert.Hvar eru listamennirnir og bókmentafræð- ingarnir ? Hvar eru lærdómsmenn- irnir, sem svo oft haft reynt aö glæða áhuga manna fyrir þjóð- niálum og listum ? Hvers vegna þegja þeir um íslenska l'eíklist? Ritstjórum blaðanna skifst vafa- laust, að blaðaumtal um sjónleika ætti eingöngu að vera starf þar til hæfra manna. — Hvers vegna kasta þeir þá höndunum aö- vali manna til þess starfa? II. Hinn kornungi fonnaður Leik- félagsins, Indriði Waage, er gæddur ótvíræðum leikarahæfi- leikum og brennandi áhuga. — L'ndir stjórn hans hefir meðferð leikaranna á hlutverkunum orðið öruggari eri áður var„ þegar einn eða tveir af bestu leikurunum oft og einatt báru leikana upþi, en öll smærri hlutyerk vortt í höndum viðvaninga, sem lítillar tilsagnar nutu. — Indriða hefir skilist, að eitt illa leikið smáhlutverk getur rofið samræmið í leik og dreift áhrifunum. Sjónleikar þeir, sem hann hefir stjórnað, sýna ljóslega, aö hann hefir gert sér mikið far um að gera leikana jafnbetri i meðferð og íastar skoröaða en áð- ur var. f sjónleik þeim eftir Pirandello, sem leikinn er um þessar mundir, Icóma leikstjórahæfileikar Indriða mjög greinilega í Ijós. — Notkun ljóssins, svipbreytingar og hlátur leikaranna, selii eru áhorfendur á leiksviðinu, stilling hraðans - alt ber þetta vott um næman skiln- ing hans á því, að hægt er aö láta sniáu atriðin jafnt þeim stóru sýna ']iað, sem í leiknum býr. —. Það væri ekki fráleitt að segja, að Indriði í rnörgu minni allmikið á „expressionistisku" leikstjórana þýsku, og er þá ekki leiðum að UPPBOÐIÐ heldux* áfram í dag* Jóh. ólaísson & Co. iíiaöOöoíiooooísawöíieöíissísoooíSíXJíSíiociíiCioottoaíiíicxiOíiGattíSíKíöqs I TOBLERl | fæst hvarvetna. I Ö 1 XSOCÍCSCSOCÍCSCCiCJCÍÖCÍCSCÍCSCiCSCÍCÍCÍCÍCÍCXXXÍOCÍCiCiCSCÍCÍCSCÍCSCÍCSÍÍCSCÍCSCiCSCÍCÍCÍCSCSClC líkja'st. — Þaðy sem þó er mest um vert, er, að Indriði er bæði frumlegur og sjálfstæður sem leik- stjóri. Þessar framfarir í íeikstjórri eru svo miklar, og svo merkilegur þáttur í sögu íslenskrar leiklistar, að maður skyldi ætla, að þeim hefði verið haldið mjög á lofti. Sú hefir þó ekki orðið raunin á. Varla er hægt að segja, að sést hafi grein í blaði eða tímariti, þar sem Indriða og flokki hans hefir verið þakkað maklega híð frá- murfalega óeigingjarna starf þeirra í þágu íslenskrar listar. Hvergi hefir þess verið minst sérstaklega, að Leikfélagið ■ nú gefur mönnum kost á, að kynnast lielstu nýungunum í erlendum leikritaskáldskap. Það má svo að orði kveða, að það, sem leikhúsið hér býður áhorfendum sínum jafn- ist fyllilega á við það, sem leik- húsin í stórborgunum sýna. Er sérstaklega vert að veita því eftir- tekt, að vali leikrita ekki er hag- að eftir smekk fjöldans og ósk. Þeir sjónleikar, sem. fól’kið helst vill sjá, gamanleikarnir fjörugu og viðburðaríku, sjást sjaldan nú orðið. — Indriði velur leikritin alveg án tillits til þess, hvort þau eru vel til þess fallin, að bæta fjárhag félagsins. — Hann fer einungis eftir smekk sínum og skynsemi, enda er það álit margra, að val leikrita til hvers leiktíma- biís sé betur gert af einum manrii, sem vel hefir vit á, en mörgum, því þar verður líka að gæta fyl«ta samræmís. Á sama Iiátt og þaö getur ekkí kallast æskílegt, að á- horfendum sje boðið of inikið létt- meti, eins má ekki iþjmgja þeim með altof mörgum terskildum sjónleikum III. Þegar einhver húsamáfarinn ut- an af landi hefir sýnt handavinnu sína í höfuðborginni, hlaupa lista- menn og aðrir upp til handa og fóta, og skrifa fram og aftur um ágæti hans, en þó leikaraflokkur- inn sýni bæjarbúum sanna leik- list, þá er þess ekki minst opin- beríega á annan hátt, en í blaða- umtölum, sem vanalega erti skyn- semislaust hjal. Umtölin eru oftast i sama tón, þægileg í garð leikaranna, eins og þau væru skrifuð í þakklætisskyni fyrir aðgöngumiðana, sem blöðun- ttm eru sendir. Aldrei virðist rieitt í meðferð leikaranna <á hlutverk- unum hafa hrifið þá, sem umtöl- in skrifa, verulega, nje heldur sært þá svo, að þeir finrii ástæðu til að vanda duglega um við leikarana. Þá sjaldan hirtingarvendinum hef- ir verið veifað, þá hefir hann ekki hití. Verst af öllu er þó, að aldrei er reynt að benda leikurunum á, hvernig þeir ættu að bæta úr því, sem aflaga fer hjá þeim. Ppjói&anámskeid. Eins og áður auglýsl, er nú prjónanámskeiðiðbyrjaÖ og held- ur áfram fyrst um sinn til áramóta. Námskeiðinu stjórnar eins og að undanförnu frú Valgerður Gisladóttir frá Mosfelli. Kenslugjald kr. 50,00 fyrir þær konur er eiga vélar frá mér, eða hugsa sér að kaupa þær. Hver nemandi fær 120 tíma kenslu. Leggur til verkefnið og á vinnu sína sjálfur. Hinar velþektu og viðurkendu „Claes“-prjónavélar sem allar hafa hinn vandaða viðauka, nú fyrirliggjandi i þremur stærð- um. Sérlega vel lagaðar fyrir íslenskt band. Verð og gæði þola allan samanburð. Nánari upplýsingar um námskeiðið og prjónavélarnar fást i verslun undirritaðs. f* J/ii ‘Liídu’ijfi:ltuiicn

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.