Vísir - 07.01.1927, Síða 3
vísir
SAGAN
iœst á algr. Visís og kostar
kr. 4,50.
leggja fram þá fórn. Voru rist-
ar lengjur af fótleggjum hans
■og varð pilturinn græddur að
fullu. — Árið 1885 var uppreisn
Indíána og kynblendinga i vest-
urhluta Canada og var sú upp-
reisn bæld niður með hervaldi.
<Gengu þá nokkurir Islendingar
í herþjónustu og var Andrés
■einn á meðal þeirra.
Jarðarför Andrésar fór fram
í Árborg að viðstöddu fjöl-
anenni.
írlenðir faraedsslar.
Á síöustu árum hafa erlendir
íarandsalar mjög tekiS a'S venja
komur sínar hingaö til lands. Fara
þeir í hópatali kringum landiö, og
-er altalaö, að þeim gangi vel, aö
koma varningi sínum út. Er þaö
taliö ekki ótítt, aö farandsali selji
varning fyrir 40000—70000 kr. í
•einni hringferS. 'Farandsalar þess-
ir eru þvi orönir allskæöir keppi-
nautar hinna íslensku heildversl-
ana og því eölilega litnir óhýrum
augum af þeim.
í 1. gr. laga nr. 78, 1907, um
farandsala og umboössala, er svo
tilskiliö, aö farandsalar og um-
boðssalar, sem ekki hafa fast að-
setur hér á landi, skuli leysa leyfis-
bréf hjá lögreglustjóra, þar sem
þeir stíga á land, áöur en þeir
byrja atvinnurekstur sinn. Gildir
leyfiö til eins árs frá dagsetning-
ardegi, og ber lögreglustjórum að
hafa eftirlit með því, að farand-
salar leysi þessi bréf. Þeir rita
■einnig sýningarvottorð á bréf
þessi, þegar þess er óskað. Gjald
þetta er nú 500 krónur með stimp-
ilgjaldi,j fyrir leyfisbréfið sjálft,
Óg auk þess 50 krónur fyrir hvert
verslunarhús, er þeir reka erindi
fyrir.
Eins og gefur að skilja, er lög-
reglustjórum það afarerfitt eða
jafnvel tíðum ómögulegt, að hafa
vandlega gætur á því, að enginn
farandsali ferðist um og bjóði
varning sinn án leyfisbréfs, en í
annan stað ófært, að menn s'mokki
sér undan lögboðnum gjöldum,
ekki síst þegar það eru einu gjöld-
in, er þeir greiða fyrir þau hlunn-
indi að fá að reka atvinnu hér á
landi. Kaupmennirnir, sem varn-
ingurinn er boðinn, eru þeir, sem
best tök hafa á því, að koma því
til leiðar, að þessum lögum verði
blýtt, og ættu þeir því að gera
það að venju, að panta ekki vörur
hjá farandsölum, néma þeir sýni
skilriki fyrir því, að þeir hafi
greitt hin lögboðnu gjöld. Vill
Verslunarráðið skora á kaupmenn
að vera lögreglustjórum til þð-
stoðar í þessu og tilkynna þeim,
ef þeir verða þess varir, að far-
andsalir ferðist hér um án leyfis.
(Verslunartíðindi).
Jarðarför
Jóns Þórðarsonar, rennismiös,
fór fram 5. þ. m., og voru marg-
ir viðstaddir af ýmsum stéttum.
— Húskveðju flutti síra Friðrik
Hallgrímsson, en sira Árni Sig-
urðsson talaði í fríkirkjunni. —
Nokkrir iðnaðarmenn og vinir
hins látna báru kistuna í kirkju
og kirkjugarð. En úr kirkjunni
báru hana menn úr Oddfellows-
reglunni. — Kistan var fagurlega
steind, í líkingu við marmara.
Hafði Eiríkur, sonur Jóns heit-
ins, hinn listfengi málari, málað
hana. — Við útförina voru sung-
in kveðjuljóð, er orkt hafði Pétur
Pálsson. A.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 1 st., Vestm,-
eyjum 1, Isafirði -4- 2, Akureyri
i: Seyðisfirði I, Grindavík 2,
Stykkishólmi -4- 1, Grímsstöðum
-4- 3, Raufarl>öfn 1, (engin skeyti
írá Hólum í Hornafirði, Angmag-
salik og Kaupmannahöfn), Fær-
eyjuhi 3, Utsira 1, Tynemouth 5,
Hjaltlandi 4, Jan Mayen -4- 4 st.
— Mestur hiti hér í gær 5 st.,
minstur -4- 1 st. Úrkoma 0,8 mm.
Djúp loftvægislægð við Suður-
Grænland, á austurleið. Hægur
vestan í Norðursjónum. — Horf-
ur: Suðvesturland og Faxaflóit I
dag hvass suðaustan. Rigning. I
nótt sennilega hvass suðaustan.
Breiðafjörður og Vestfirðir: I dag
vaxandi suðaustan átt. Snjókoma.
í nótt allhvass suðaustan. Hláku-
veður. Norðurland, norðausturland
og Austfirðir: í dag suðlæg átt.
I nótt allhvass suðaustan. Hlálcu-
veður. Suðausturland: í dag vax-
andi suðlæg átt. I nótt: Hvass
sunnan. Rigning.
Björgúlfur A. ólafsson,
læknir, tekur á móti sjúklingum
á Laugaveg 10, uppi, kl. 11—12
cg 3—4. Sími 1221. — Heimasími
1127.
Útflutningur
ísl. afurða í desember nam
4.147.280 kr., samkvæmt skýrslu
Gengisnefndar. — Allur ársút-
flutningurinn 1926 nam 47.884.000
seðlakrónum, og verður það x
gullkrónum 39.095.130. — Árið
1925 varð útflutningurinn samtals
70.780.000 seðlakx-ónur, sem eftir
jxáverandi gengi jafngilti 50.500.-
000 gullkrónum.
Fiskbirgðir 1. jan.
Talning á fiskbirgðum mun
bráðlega væntanleg frá fiskimats-
mönnunum, en eftir þeim gögn-
tnn, sem nú liggja fyrir, verður
bráðabirgðaútreikningur þannig:
Birgðir 1. des....103.880 skpd.
Afli í des.....ca. 600 —.
Útflutt í des...... 35-350 —
Bii-gðir 1. jan. __ 69.130 —
Umsóknir
um styrk úr „Sáttmálasjóði“ x
Kaupmannahöfn, eiga að vera
komnar til stjómar sjóðsins í síð-
asta lagi I. mars næstkomandi, 20
þús. kr. verður úthlutað úr sjóðn-
unx. Hlutverk sjóðsins, samkvæmt
skipulagsskránni, er í fyrsta lagi
að efla andlegt samband og sam-
vinnu milli Islands og Danmerkui',
í öðru lagi að styrkja íslensk vís-
indi og rannsóknir og í þriðja lagi
að styrkja íslendinga til náms.
Umsónkum urn styrk úr sjóðnum
verða að fylgja nákvæmar upplýs-
ingar um umsækjanda. Umsóknir
skal senda til: „Bestyrelsen for
Dansk-islandsk Forbundsfond,
Kristiansgade 12, Köbenhavn."
ísfiskssala.
Þessi skip hafa selt afla sinn
Englandi í gær og fyrradag:
.eilcnir fyrir 2072 st.pd., Geir fyr-
• 1550 st.pd., Belgaum fyrir 1866
st.pd. og Eiríkur i-auði fyrir 2100
sterlingspund.
„Farfuglafundur“
verðu| annað kvöld (8. jan.)
kl. 8)4 í Iðnó. Þar verður flutt
erindi, og skírteini fyrir gestamót-
ið afhent. Allir ungmennafélagar,
sem staddir eru í bænum, eru vel-
komnir, meðan húsrúm leyfir.
Esperanto-námskeiS
Ölafs Þ. Kristjánssonar hefst
eftir nokkra daga, eins og auglýst
hefir verið hér í blaðinu, og biður
hann væntanlega nemendur aö
mæta til viðtals kl. 8 í kveld í
Barnaskólanum.
Hjúskapur.
I London gengu nýlega í hjóna-
band ungfrú Þorbjörg Sigmunds-
dóttir (fósturdóttir Ottó Tulinius-
ar kaupmanns) og Mr. Barret.
Brúðhjónin eru nú á ferð um
Frakkland og ítalíu.
Trúlofanir.
29. desember síöastl. opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Kristín Frið-
riksdóttir frá Siglufirði, og Guðm.
H. Einarsson, Grundarstíg 11.
Ennfremur hafa nýlega birt trú-
lofun sína ungfrú Einara Jónsdótt-
ir frá Kirkjubæ í Húnavatnssýslu,
til heimilis á Laugaveg 50, og
Kristinn Helgason, vélasmiöur,
Framnesvegi 1.
Skxili fógeti
kom frá Englandi í gær, og var
með mikinn póstflutning, sem ann-
ars hefði mátt bíða lengi enn.
Arinbjöm hersir
kom af veiðum í morgun.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 25 kr. frá S. K.,
10 kr. frá Keflvíkingi.
Gjöf
til görnlu konunnar i Bjarna-
borg, afhent Vísi: 10 kr. frá ó-
nefndum.
Gjafir
til íólksins á Steinum, afhentar
\risi: 10 kr. frá T. B., 7 kr. frá
L. R., 5 kr. frá Þ. G., 10 kr. frá G.
Mín árlega
Gengi erlendrar myntar.
Sterlingspund ......... kr.
100 kr. dapskar ....
100 —• sænskar
100 —• norSkar ,..«.
Dollar ..............
100 frankar franskir ...
100 — belgiskir
100 —• svissn. .
100 lirur •.
100 pesetar .....,.____ •—
ioo gyllini ......------ —
100 möi-k þýsk (gull) —
stendur yfir írá 6.-16. þ. m»
Hér er sérstaklegt gott tækiiæri
til að gera góð innkanp.
Eg leyfi mér að vekja athygli viðskiftavina minna á því, aö
eg hefi að eins haft eina útsölu á ári, og þess vegna hefir útsala
min altaf haft margt gott að bjóða, og rná hér nefna:
Mörg hundruð metra af morgunkjólaefni, að eins i kr. hi., í kjót-
inn frá kr. 2.50—3.00.
Frottetau, hefir kostað kr. 6.50, nú 2 kr. meterinn.
Sængurdúkur, einbreiður, áður kr. 3.50, nú aö eiris 1.50.
Flauel, rautt, grátt og brúnt kr. 3.90 mtr.
Herra-sportbuxur, svartar og hvitköflóttar, áður kr. 26.00, nú 12.00.
Ágætir alhör damask borðdúkar á kr. 8.50 og 10.00.
Dömu-rykfrakkar, nokkuð stór nr., áður 100.00, nú 45.00 og 50.00,
Dömu-vetrarkápur, alt sem eftir er verður nú selt fyrir gjafverÖ.
Til dæmis úlsterar, sterlrir og góðir, að eins 25 krónur.
Kápur, sem hafa kostað 185.00, seljast nú fyrir 85 kr. — Hér er
um óheyrilega lágt verð að ræða.
Dívanteppi, mjög þykk og góð, hafa kostað 45 kr., seljast fyrír
að eins 25 krónur,
Regnhlífar, það sem eftir er, með löngu skafti, nú að eins kr. í$
til 8, hafa kostað 20 til 26 kr. stk.
Karlmannapeysur, þykkar, dökkbláar, áður 24 kr., nú 12 krónur,
langt undir innkaupsverði.
Undirkjólar og hvít skjört, áður kr. 8.00, nú kr. 4.00, langt undír
innkaupsveröi.
Bamasokkar, svartir, þykkir, úr ull, á 1—8 ára, kosta, hvaða stærð
sem er, að eins 1 kr. parið.
Dömusokkar, mislitir og röndóttir, úr ísgarni, sem hafa kostað
kr. 5.50, seljast nú fyrir að eins 2 krónur parið. — Þessir
sokkar eru afar hentugir, sterkir og góðir.
Drengjasvuntur, nokkuð stór nr., að eins kr. 1.50 stykkiö.
Telpusvxmtur, dökkar, kr. 3.00.
Bama-ullarlegghlífar, lítil númer, að eins 1 kr. parið.
Drengjahúfur, til að bretta niður, 0.75.
Gardínutau, hvítt og crem., frá 1.50 mtr. tvíbreiður.
Karlmannaflibbar, nr. 38, 41 og 42, að eins 50 aura stykkið.
Breiðar broderingar i bamakjóla, hafa kostað kr. 4.85, seljast nu
fyrir kr. 2.50.
22.15
121.70
122.07
116.35
4-56 H
18.19
I2-75
88.36
20.57
70.71
182.98
108.50
Allar vörur með 10°|o afslætti
þessa daga.
Reynið og þér munið sannfærast um
að hép er um verulega vepðlækkun
að ræða.
Sv. Jael Henningsen.
Sími 623.
Austurstræti 70