Vísir - 10.06.1927, Blaðsíða 3

Vísir - 10.06.1927, Blaðsíða 3
VISIR Gaman og alvara. Bréf úr sveit. —o— III 3. april. Eg hefi séð þess getið í blöð- unum, að nokkur brögð muni vera að drykkjuskap í liöfuð- staðnum, smyglarar sé þar margir, en leynisalar og bingg- arar á bverju strái. það verður vaíalaust erfitt verk, að lialda uppi bannlögum á íslandi, svo að nokkur mjuid sé á. Strand- lengjan er mikil og mun trauðla verða varin til lilítar fvrir á- gengni smyglara. — Má þvi jafnan búast við, að eitthvað af úfengi flytjist til landsins með ólöglegum bætti og verði drukk- ið af landsmönnum. Eg var mótfallinn setning bannlaganna í öndverðu, en þó er eg hvergi nærri viss um, að eg mundi greiða atkvæði með afnámi þeirra nú. — Hins vegar þekki eg ýmsa bindindismenn, sem ólmir vildu fá lögin í upp- hafi, en eru nú mjög á tveim áttum mn það, hvort halda skuli þeim framveg'is eða ekki. J>etta eru mestmegnis eða nær eingöngu menn úr kaupstöðum landsins og þó einkurn Reykvík- ingar ýmsir, sem eg hefi kynni eða spurnir af. — peir telja sig vera að hneigjast til þeirrar skoðunar, að bannið liafi ger- samlega mistekist. Bera þeir , fram ýmsar ástæður, sem að því liggi, en ekki verða þær raktar hér. — Sannleikurinn mun vera sá, að bannmenn í kaupstöðum og kauptúnum hafi yfirleitt orðið fyrir vonbrigð- lim um framkvæmd laganna af yfirvalda hálfu og trúi því laust, að sú „kynslóð“ fari mik- ið batnandi hér eftir. — Mun og lítil ástæða til fagurra vona x þeim efnum. — Lögreglustjór- ar landsins og önnur yfirvöld flest voru mjög á móti banninu, þegar það var sett og eru það enn. — Og þvi var það sjálfsagt meðfram, að framkvæmd lag- ;anna liktist „vetlingatökum“ eða því, sem gert er með hang- andi hendi. En þetta horfir alt öðruvísi við úti um sveitir landsins. — Hér um sveitir var drykkju- :skapur töluvert almennur. áður en bannlögin gengu í gildi, en hafði þó farið þverrandi liin síðustu árin. — Samt voru til þeir menn, ekki all-fáir, sem á- vait drukku sig fulla, er þeir fóru i kaupstað, og kaupstaðar- ferðirnar voru býsna margax’. — Síðan bannlögin voru sett, eiga þessir menn miklu sjaldn- ar erindi í kaupstaðinn, en halda sig heima við störf sín og vegnar langt um betur. Og þó að þeir geti einhvernveginn herjað út „bragð“, þegar þeir fara með ullina eða í sláturtíð- ínni á haustin, þá er þetta svo lítið og óverulegt, að þeir finna varla á sér, auk lxeldur meira. •— Og þeir eru búnir með drop- ann löngu áður en þeir koma heim til sín, svo að konan og börnin hafa ekkert af þessu að segja. — Áður var það oft svo, að drykkjumannskonan beið með óró og kviða, er bóndinn var að heirnan, þvi að altaf gat viljað til að lxann dytti af baki og slasaðist, týndi farangrinum að rneira eða minna leyti eða lenti í deilum og ryskingum við granna sinn eða aðra. Og loks var það ekki fátítt, að þessir ölvuðu menn hefðu alt „á horn- um sér“ þegar lieim kom og stóð þá skylduliði og öðru heimafólki ótti og ófriður af þeirn. —• En nú er þetta alt úr’ sögunni og menn kunna því yfirleitt vel. peir fara betur með efni sín og tíma og verða sér aldrei til skammar vegna ölæðis. petta er mikil franxför og mestmegn- is bannlögunum að þakka. — Væri tappinn tekinn úr aftur, gæti hæglega farið svo, að drykkj uskapur magnaðist á ný, þvi að ekki liefi eg trú á því, að lystin sé þorrin með öllu. pá eru réttirnar á haustin. Nú er af sú tíðin, er fleslar smá- erjur voru jafnaðar í réttunum við fyllirí, kjaftshögg og áflog. Nú kemur það tæplega fyrir, að rin sjáist á nokkurum rnanni i í’éttum hér um slóðii’, en áður var réttafyllirí talið álíka sjálf- sagt og töðugjöldin. — Stund- um gat það komið fyrir i mínu ungdæmi, að rétta-fylliríið yrði nokkuð svakalegt og er mér rnargt minnisstætt frá þeim ár- um. Sumir voru altaf „góðir við vin“, sem kallað var, sí-kátir, laun-drjúgir og blíðir, kystu alt og föðmuðu, bæði menn og liesta, og voru i sjöunda himni, þangað til þeir ultu útaf. Aðrir voru miklir á lofti, rosafengnir og vondir, hvað lítið sem út af bar. purfti þá einatt litið til, að hleypa öllu í bál og blossa, er slikir menn áttu hlut að máli. Gátu hæglega margir dregist í áflogin og orðið heil þvaga áð- ur en' lyki. - Gæti eg sagt marg- ar sögur af réttatuski og rysk- ingum, ef eg kærði mig um, en læt mér þó nægja að fara með eina og kemur hún í næsta bréfi. Fimleikasýning leikfimisflokka I. R. undir stjórn Bjöms Jakobssonar fór frarn i gærkveldi, eins og ráð- gert var, að viðstöddu afar- miklu fjölmenni. Flokkarnir bjuggust í leikfim- ishúsi Mentaskólans og gengu þaðan við liljóðfæraslátt um götur bæjarins suður á íþrótta- völl, en þar var fyrir fjöldi fólks. Forseti í. S. I. úvarpaði flokkinn og þakkaði honum framkomuna í Noregi og var floklxnum tekið með miklum fagnaðarlátum. pá hófust sýningarnar og kom kvennaflokkurinn fyrst fram, var hinum ágætu iþrótt- um hans tekið af fögnuði og hrifningu, sem vænta mátti. Siðan sýndu karlmennirnir sin- ar iþróttir og var þeim ekki sið- ur vel fagnað. Sýningarnar stóðu um liálfa aðra klukkustund og hafði hald- ist logn og blíða á meðan. Munu menn 6jaldan hafa farið ánægð- ari lieim af íþróttavellinum en í þetta sinn. 1 Bæjarfréttir Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 9 st., Vest- mannaeyjum 9, Isafirði 10, Ak- ureyri 10, Seyðisfirði 4, Grinda- vík 13, Stykkishólmi 11, Gríms- stöðum 5, Raufarhöfn 7, Hólum í Hornafii'ði 10, pórsliöfn i Fær- eyjum 4, (engin skeyti frá Ang'- magsalik og Kaupmannahöfn), Utsira 4, Tynemouth 8, Hjalt- andi 4, Jan Mayen fi’ost 1 st. Mestur hiti hér í gær 14 st., minstur 6 st. — Yfirlit: Hæð fyrir vestan land. Alldjúp lægð norður af Færeyjum á suður leið. Horfur: Suðvesturland og Faxaflói: I dag og i nótt norð- anátt og þurt veður. Breiða- 'jörður, Vestfirðir og Noi’ður- land: I dag og í nótt liæg norð- anátt. purt veður. Norðaustur- land og Austfirðir: Stormfregn. í dag hvass á norðan. Skúraveð- ur. í nótt allhvass norðan. Suð- austurland: I dag og í nótt norð- anátt. Sumstaðar allhvass. Úr- komulaust víðast hvar. Mislingar eru á Goðafossi, sem nú er á leið hingað norðan um land frá útlöndum. — Reynt verður að stemma stigu fyi'ir útbreiðslu veikinnar og er þess einkanlega þöi’f nú vegna kíghóstans, því að ef báðar þessar sóttir fara saxnan má ætla, að þær verði mjög skæðar. Einar Einarsson, skipstjóri, Vitastig 10, vai’ð fyrir því slysi að fótbrotna um siðustu helgi. Athugasemd. Með opnu bréfi frá 20. mai þ. á. er svo fyrir mælt, að „al- mennar óhlutbundnar kosning- ar skuli fara fram laugardaginn 9. júlí næstkomandi“. Allir virð- ast gera ráð fyrir, að sama dag verði kosið hér i Reykjavík, en 2. gr. laga nr. 11 frá 18. maí 1920 segir: „Alþingiskosningar í Reykjavik skulu vera hlut- bundnar.“ Opna bréfið frá 20. maí þ. á. nær því eigi til kosn- inganna í Reykjavík. Hvar eru fjrirmælin um kosningarnar i Reykjavík? Kjósandi. Félag víðvarpsnotenda heldur fund í kveld kl. 8% í Bárunni, uppi, eins og auglýst hefir verið. Skýrt verður frá undirtektum þingsins undir beiðni félagsins, og er mjög nauðsynlegt að félagar fjöl- menni á fundinn. Guðm. G. Hagalín rith. er nýkominn frá Noregi á- samt fjölskyldu sinni. Fyrir þrem árum fór hann utan og settist að í Voss. Ári síðar réð- ist hann í þjónustu norsku ungmennafélaganna og ferðað- ist veturinn eftir unx f jölmarg- ar bygðir vestanfjalls og flutti rúml. 250 erindi um ísland og ísl. menningu. Síðastliðinn vet- ur ferðaðist hann einkum aust- anfjalls og um sunnanverðan Noreg og flutti nál. 200 erindi. Norsk blöð ljúka miklu lofsorði á þessa starfsemi og telja Haga- TILBOÐ óskast í að grafa fyrir og gera undirstöðu undir olíugeyma við Skerjafjörð. Nánari upplýsingar Iijá H. Benediktsson & Go. og verða væntanleg tilboð opnuð þann 13. þ. m kl. 10 f. h. Siflí lerlllr til tlirlir-Siáiar. E.s. U N I O N fermir fisk til Bilbao 17.—25. þ. m. í Reykjavík og öðrum höfnum við Faxaflóa og í Vest- mannaeyjumi. — Flutningur tilkynnist sem fyrst. — Er til viðtals daglega í Hafnarstræti 17 og heima, Grund- arstíg 4. — Sími 2174. Rain Siguvðsson skipstjóri. lín snjallan fyrirlesara. Auk þessa hefir Hagalhi skrifað sæg af greinum i norsk blöð um ís- lensk málefni og liefir rekið er- indi vort með röggsemd og ein- Ul'ð. Með þessum fyrirlestrum sín- urn og blaðaski'ifum hefir Haga- lín unnið þjóð sinni liið mesta nytsemdarverk og væri nxikils um vert, að aðrir íslendingar, sem til þess eru færir, fetuðu i spor hans og liéldu áfram upp- lýsingarstarfsemi hans á Norð- urlöndum og fæi’ðu einnig út kvíarnar, einkunx til Englands og pýskajands. — Á sunnudag- inn ætlar Guðmundur að flytja erindi í Nýja Bíó og segir þar ýmislegt frá Noregi. Má eflaust vænta góðrar skemtunar. L. Á Elliheimilinu Grund getur garnall maður fengið heimilisvist, sé hann fær um að hirða 2 kýr og lxjálpa til við fleiri heimilisstörf. Nánar eftir samkomulagi við forstöðu- nefndina. Sigurbjörn Á. Gíslason. Einar Hjaltested syngur í Nýja Bíó i kveld kl. 714 með aðstoð Emils Tliorodd- sen. Fánadagurinn 12. júní verður hátíðlegur haldinn á Álafossi, með íþróttasýningum og ræðum. par verður þá vigð sundlaug, stór og vönduð, og má ætla, að margir fari héðan úr bænum til þess að sækja þessa skemtun, sem vel er vandað til. Kelvin, skemtibáturinn, fer nú tvær ferðir daglega til Viðeyjar. Sjá augl. SkemtiferS er ákveðin héðan úr bænum í næstu viku austur að Geysi, Gullfossi og Hvitárvatni. — Sjá augl. í blaðinu i dag. CÍOCOQaOQOOQQQQOOCX)OOQQQQO( ljósmyndavélar. Nýjar birgðir. Lægst verð. Sportvörnhús Reykjavíkur. (Einar Björnsson.) aOQQQQQQQQQQQQQQQOQQQQOQQO vörur til Víkur, Skaftáróss og fleiri liafna á suðurströnd landsins. Moritz W. Biering er fimtugur i dag. Úti-samsöngur. Karlakór K. F. U. M. ráðgerir að syngja á j IþróttavellinuiB næstkomandi sunnudag, ef gott verður veður. — Ágóðanum af söngskenxtan þessari verður varið til styrktar 9 ínanna’ flokki þektra íþróttamanna héð- an úr bænum, sem ætla að sækja alheims-íþróttamót inn- an K. F. U. M., sem haldið verð- ur í Kaupmannahöfn í júlímán- uði í sumar. Er það í fyrsta skifti, sem íþróttamenn héðan sækja slík mót. Nánara verður þessa getið hér i blaðinu á morgun. Bro, aukaskip Eimskipafélagsins, kom liingað i gær og tekur hér vönir til útflutnings. Bro flutti Utan af landi. Akureyri, 10. júní. F. Sex fi’ambjóðendur í Eyja- fjarðarsýslu og þrir á Akur- eyri, allir hinir sömu og áður hefir verið símað um. — Líklegur frambjóðandi í Suð- u r-þ>in geyj arsýslu af ihalds- hálfu er talinn Sigurjón Frið- jónson. Sigurður á Arnarvatní hættur við framboð. Mokafli á útmiðum fjarðair- ins. 1 gær barst svo mikill fislc- ur á land í Ólafsfirði, að menn muna ekki dæmi slíks. Er áætl- að, að aflinn verkaður nemi 180 skpd. Útlit fyrir beituskort.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.