Vísir - 13.06.1927, Side 2

Vísir - 13.06.1927, Side 2
VlSIR Bopðsmjörlikið er komið aítar, Prima og Extra. Símskeyti —0-- Khöfn, 11. júní. FB. Hryðjuverk Rússa. Síniað er frá Moskva, að ráð- stjórnin rússneska tilkynni, að vegna þess hve keisarasinnar leggi nú mikla áherslu á að efla baráttuna gegn stjórninni, þá hafi tékan skipað svo fyrir, að skjóta skuli 20 keisarasinna, #em flestir voru fyrverandi liðs- foringjar. — Menn þessir voru skotnir i gær. þeir höfðu setið í fangelsum, sakaðir um upp- reisnaráform gegn ráðstjórn- inni og njósnir fyrir England. Sendiherra-morðið. Símað er frá London, að stjórnin i Bretlandi líti svo á, að ásakanir Rússa í garð liennar og Breta, séu ekki svara verðar. Blöðin í Bretlandi telja það ólík- legt, að styrjöld leiði af morð- inu á Vojkoff sendiherra. Blöð in lita svo á, að her Rússa sé ekki fær um að leggja út í styrj- öld. Deila Albana og Júgóslava. Simað er frá Berlín, að deilan milli stjórnanna í Albaníu og Júgóslavíu harðni enn. Albaníu- stjórnin hefir nú kallað sendi- sveit sína frá Júgóslavíu. Khöfn, 12. júní. FB. „Times“ um hryðjuverk Rússa. Símað er frá London, að blað- ið Times líti svo á, að stjómin i Rússlandi sé slegin ótta, vegna þeirrar andúðar, sem hún mæt- ir í öðrum löndum, og hafi þess vegna leiðst út á þá hættulegu braut, að hefja hryðjuverknað. En blaðið ætlar og, að það sé ekki einvörðungu mótlætið er- lendis, sem komið hafi hryðju- verkunum af stað, heldur ef til vill enn frekara, að sundurlynd- ið í Rússlandi ágerist, og megi jþvi vera, að aðaltilgangur ráð- stjómarinnar sé, að bæla niður allan mótþróa innanlands með harðri hendi og skjóta mót- stöðumönnum sínum skelk i bringu. . pjóðverjum blöskra hryðju-. yerkin. Simað er frá Berlín, að blöð- in í pýskalandi líti svo á, að af- tökurnar, sem fram fóru í Rússlandi i fyrradag, séu geipi- leg pólitísk yfirsjón, sem muni hafa eyðileggjandi áhrif á sam- úð þá, sem Rússar um skeið hafi notið meðal pjóðverja. Óttast blöðin, að aftökurnar i fyrra- dag, séu upphaf að nýrri ógna- öld i rússneskum löndum. Sam- kvæmt fregnum, sem til þ»ýska-! Jands berast frá Rússlandi, fara æsingar vaxandi í landinu. Fjölda margir andkommún- istar em handteknir. Lindbergh fagnað í Banda- ríkjunum. Simað er frá Washington D. C.j að Lindbergh hafi komið í gær á herskipinu Memphis. Var honum tekið með kostum og kynjum og var Coolidge forseti fremstur í flokki móttakenda- anna. Geysilegur mannfjöldi beið á ströndinni til þess að hylla flughetjuna, en tvö hundr- uð flugvélar flugu á móti lier- skipinu og sveimuðu yfir borg- inni á meðan á móttökuathöfn- inni stóð. C-listinn —o— Þvi var lofaö í sítSasta bla'Öi, aö grein skyldi verSa gerö fyrir framboSi C-listans, sem í kjöri verSur við alþingiskosningarnar hér í bænum 9. júli ásamt tveim- ur öðrum listum, frá jafnaðar- mönnum og íhaldsmönnum. Það er félag frjálslyndra manna í Reykjavík, sem. aS listanum stendur. Á funcji, sem haldimr var i lok maímánaðar, var samþykt í einu hljóSi, að bera fram af hálfu írjálslyndra manna hér í bænum, sérstakan lista, viS þessar kosn- ingar, og að eg yrði efsti maður á þeim lista. En fyrir min orö og í samráði viö kosninganefnd fé- lagsins, hafa ritstjórar „Vísis“ samþykt a'ð vera á listanum með mér. Frjálslynda félagið var stofnað í fyrravetur með það fyrir augum, að hér í bænum væri fjöldi manna, sem í raun og veru aðhyltist hvorki stefnu íhalds- né jafnaðar- manna, né heldur sérkreddu-bænda- stefnu framsóknarmanna. Með því hins vegar að skiftast milli jafn- aðarmanna og ihaldsmanna við kosningar í bænum, var auðsætt, að frjálslyndir menn yrðu ger- samlega áhrifalausir að öðru leyti cn því, að þeir þá yrðu til þess, þvert á móti vilja sínum, að blása öfgum þessara andstæðna byr und- ir báða vængi, með auknu kosn- ingafylgi. Þeim var því nauðsyn- legt að stofna til slíks félags- skapar. Eg er þess fullviss, að flestir bæjarbúar kysu helst að geta unnið saman í friði og eindrægni, jafnt i stjórnmálum sem öðru. En friðar og eindrægni í stjórnmálum er ekki að vænta, meðan íhalds- menn og jafnaðarmenn berjast um völdin. Hvorugir eiga að ná völdunum að fullu. Það á að vera hlutverk frjálslyndra manna, frjálslynds flokks, að skapa það meðalhóf, sem öllum er fyrir bestu. Með þessum hug er C-listinn fram borinn, og i þessum anda er stefnuskrá frjálslynda flokksins. - Því að flokkurinn er til. Hann er til meðal þjóðarinnar, hvort sem hann á nokkurn mann á þingi eða engan. Það er auðvitað, að öfga- Gal v. þaksaumur 21/*” Miklar birg;ðir komnar með ,Croðafo8si‘ .Verðlð er heimingi lægra en iægst annarstaðar. Versl. B.H. Bjarnason. Galv. Girðinganet og Steypunet - Nýjar birgð- ir komu afiur með .,Goðafoss“. Verðið er að vanda hið lang ægsta á landi hér. VERSL. B. H. BJARNASOK mennirnir til beggja handa muni af öllum mætti reyna að hamla þvi, að hann nái fótfestu í þing- inu. Allur þeirra áhugi beinist að þvi, að auka höfðatöluna i sínum flokkum. Þeir einblína á hag þess- ara flokka og gleynia hag þjóðar- irinar, þvi að flokkshagur og þjóð- arhagur er oft sitt hvað. — En það eru kjósendurnir, sem skera úr um það, hvernig þeir skiftast í flokka og hverja þeir kjósa á þing. Og það er enginn vafi á þvi, að hér í Reykjavik eru frjálslyndir kjósendur svo margir, ab þeir geta myndað flokk fyrir sig, og það öflugasta flokkinn í bænum. Eg veit nú ekki, hve heppinn þessi flokkur hefir verið, er hann valdi mig til þess að vera efstan á lista sínum. En þeir hafa verið að hlakka yfir: því í andstæðinga- blöðunum, að eg hafi verið orðinn einn í flokki i þinglokin. Eg hefi þá að minsta kosti þann kost sem þingmannsefni þessa flokks, að eg er reyndur að því, að geta un- að mér í litlum flokki. Og eg vil lika miklu heldur vera einn í fiokki, en lítið peð í stórum flokki. Eg býst nú við því, að andstæð- ingarnir, „stóru“ flokkarnir, fari úr þessu að láta blöð sín leiðbeina háttvirtum kjósendum í því, að meta mig sem þingmannsefni. Eg mun þá og að mínu leyti reyna að gera grein fyrir afstöðu minni til þessara flokka og mála þeirra, sem nú eru helst á dagskrá og tal- ið er að kosningarnar eigi að snú- ast um. Jakob Möller. ekkja Hallgríms biskups Sveins- sonar, átti áttræðsafmæli í gær. Hefir hún dvalið hér 56 ár, eða síðan 1871, er hún kom hingað nýgift með manni sínum, sem þá var dómkirkjuprestur. Hún hefir því lengi skipað virðulegt sæti í þessum bæ og verið landi voru jafntrygg og þótt hún hefði verið héðan upp runnin. Vel gæti hún haft orðtak Englend- inga: „My house is my castle“, því að heimilið hefir verið hennar ríki og þar hefir hún stjórnað með list og prýði. Ekki þykist eg hafa séð annarsstaðar fegra heimilislif en í biskups- húsinu, hvergi var heimilið hreinna, hvergi borðhaldi betur stilt, hvergi línið hvítara, hvergi rósirnar rauðari. G. F. bifreiðagúmmí er svo þekt að gæSum hér á landi, sem í öUum &3»- um löndum heimúns, að bifreiðaeigendur æitu að sjá sinn hag í að nota ekki aðrar tegundir en DUNLOP. Aðalnmboðsmean á tslanðf. Jóh, Ólaísson & Co. Reykjavik. Ef þér reyfeið ekki Virginia tóbak þá biðjið ura FINE Ljúffengar og mildar. '.u. ÞöAHEITE! Þri.. ■ 'ARtl. PAHXJPAnív;-? hvarvetna, algarattur, Teoíani FINE (Egypskar). florskur finðsviiiur Anders Skásheim að nafni kem- ur með „Lyru“ á morgun, og ætlar að dvelja hér stuttan tíma. Er hann góðkunnur allflestum íslendingum, sem til Björgvinj- ar hafa komið, enda hefir hann greitt götu þeirra á margvísleg- an hátt. Skásheim hefir verið einlægur og áhugasamur Is- landsvinur, síðan hann kom hingað til lands fyrir rúmum 20 árum og ferðaðist hér um sveit- ir og í kringum land. Hefir hann síðan fylgst vel með í íslands- málum og lesið íslensk blöð og bækur. Anders Skásheim er ættaður úr Sogni, en hefir verið banka- ritari í Björgvin upp undir 20 ár. Hann er einn liinna áhuga- sömustu og atkvæðamestu for- göngumanna ungmennafélag- anna norsku, og var lengi for- maður annars bændaungmenna- félagsins í Björgvin (Ervingen). Er liann eldheitur þjóðræknis- maður, ann af alhuga öllum þjóðlegum fræðum og menn- ing, enda hefir hann um langt skeið unnið ósleitilega að efl- ing og þroska norskrar þjóð- ræktar á margvislegan hátt. — Skásheim er því einn hinna mörgu Norðmanna er unna ís- landi af sterkri eðlishvök, og þroska síðan þá kend með öða- ari fræðslu og viðkynningn. Unna þeir menn íslandi aZfe góðs eigi síður en sínu eigtu fósturlandi. Eru þeir landi voru og þjóð einatt góður hauktur i horni, og er eigi nema skylt, að við vitum það og metujn seé verðleikum. — 1 stjórnmálum hefir SJBás- heim staðið framarlega í £k>kkii hreinna vinstrimanna, og kra$ allmikið- að honum þegar ií WPf' mm Beiðjakkar Wí lOB %/ [Boxsr, vatnshaldar skAUnar. Sjóhattar, Tanhattar, Befðhanskar, Bilhanskar, Bakpokar, Srefnpokar, JjovatdmjflmaÍQfi

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.