Vísir - 13.06.1927, Page 3

Vísir - 13.06.1927, Page 3
VISIR Málaravörur af öllu tagi - Afbragðs tog þ á m Titanlivítt nr. 1 fá uienn lang ódýrastar í Versl. B H. Bjarnason: 0OT Séretöíc kjör i stærri kaupum. unga aldri. Hefir hann staðið í flokkstjórn vinstrimanna í Björgvin og annast ýms önnur störf þeirra. Hann er maður vel ritfær og vel máli farinn, hrein- lyndur og einarður og di’engur liinn besti. Af oss íslendinguin er hann alls góðs maklegur. Verður honum því væntanlega alstaðar vel tekið. Býst liann við að ferðast liér um sveitir, áður en hann fer norður um land og heimleiðis. Er eigi ósennilegt, að Iiann haldi hér fyrirlestur einn eða fleiri, meðan hann stendur við. Helgi Valtýsson. Efik Aagaard. Hvar eru hinir níu? Saga frá Krists dögum. _Árni Jóhannsson sneri á ís- lensku. —-o— Arni Jóhannsson er orðinn kunnur rithöfundur hjá oss og kær þeim, sem liafa yndi af að ,,heyra Guðs orð og varðveita það“, því að öll rit Árna, þýdd og frumsaxnin, miða að því að styrkja og verja kristna trú og vekja kristilega alvöru. Og Árni er ekki smávirkur i þessari grein bókmentanna og leggur ekki htið í sölurnar til þess að konia þessum ritum sin- um fyrir almenningssjónir. Áf þvi má meðal annars marka, hver alvara honum er, hve marksækinn liann er á sínu sviði. þetta hljóta nú allir réttsýn- ir menn að kannast við og virða við liann. Níi er hann sextugur að aldi'i og á sextugsafmæli sínu, sem ■$v i dag, sendir hann vinum sinum þessa hugnæmu, en þó alvarlegu skáldsögu eins og kveðju frá sér. Eg þakka honum lijartanlega fyrir mitt leyti. Aldrei hefir sagan um hina tíu líkþráu menn orðið jafnljós og lifandi fyrír mér, eins og við 'lestur þessarar sögu. Að sönnu hefir inér altaf þótt vanþakklæti „hinna níu“ átakanlega ljótt, mér hefir blöskrað það, fund- ist það svo ómannlegt, svo ó- skiljanlegt. En nú skil eg það, Og nú skil eg betur en áður, til hvers vanþakklætið getur leitt. Sagan á erindi til allra krist- inna manna. Allir erum vér meira eða minna vanþakklátir við Guð. Eg tek á móti sögunni eins og vinsamlegu varnaðarorði og læt hana hvetja mig til að þakka hetur hinar óumræðilegu ást- gjafir Guðs i Kristi, svo að eg lendi ekki í þokunni, sogist ekki út í iðustraum játningar- leysisins, efasemdanna og hálf- velgjunnar, virði ekki Krist að yettugi, eins og f jöldinn, og slá- íst ekki að lokum í för með ?eim, sem hrópa: „Rrossfestu hann!“ Alt er þetta til og alt er þetta sífelt að gerast í lífi margra æirra, sem njóta náðargjafa Guðs fyrir Drottinn Jesúm Krist. Svona tek. eg þá þessari sögu vinar míns, þessari vinsamlegu varnaðarkveðju hans. Og eg óska þess af heilum liug, að ' íún niegi fá svipaðar viðtökur íjá mörgum, mörgum. Svo óska eg honum hjartan- ega blessunar á liinu byrjanda æfiskeiði. það er kallað aftur- fararskeið og er það að ytra liætti. En liverjum kristnum manni á það að vera skeið náms og fyllri þroska. pað á að vera einkenni krist- íns manns, að sál hans yngist með aldrinum og verði yngst seinast, undir það er hin full- komna, eilífa æska tekur við. Líf kristins manns á að vera ein óslitin andleg framför, innri maðurinn á daglega að endur- nýjast, þótt hinn ytri hrömi. - En — Drottinn' einn getur komið þessu til vegar. An hans megnum vér ekkert. Hjartans þakkir fyrir söguna, Árni! B. J. SuBdskáimn á Alafossi var vígöur i gær kl. 3 eins og auglýst hafði verið. Vigsluathöfnin byrjaði með því, aö Sigurjón Pétursson, glimu- kappi og verksmiðjustjóri, for- göngumaður sundskálabyggingar innar, setti hátíðina og bauð gesti velkomna og skýrði frá dag skránni. Næst talaði Þórður lækn- ir Sveinsson og lagði út af fánatökudeginum 12. júní, og sagði sögu dagsins. Á eftir var sungið „Ó, guð vors lands". Síð ast talaði forseti í. S. 1., Ben. G. Waage. Þakkaði Sigurjóni hinn niikla iþróttaáhuga og framtak, er kæmi fram í þessu verki og sagði að þetta væri eitt millistigið að hinu mikla líkamsmenningarmáli höfuðstaðarins, sundhöllinni. Á eftir var sungið „ó, fögur er vor fósturjörð". — Næst fór sjálf vígsluathöfnin fram, á þann hátt, að Einar Pétursson bar fram vígt vatn (úr sundpollinum?) í silfur- bikar, en fánaberar gengu á hvora hönd honum og sundmenn i fylk ingu á eftir. Stökkti hann vatn- inu á skálann og næsta umhverfi hans, og var skálinn þar með vigður og tekinn til notkunar strax. Skálinn stendur á vestri bakka Varmár, fyrir ofan Álafoss-stífl- una. Hann er 8 X 6 álnir að stærð og er dálítið sólskýli framan við hann að vestanverðu til að taka af norðan- og vestan-næðinga. A bakkanum niður af skálanum er stökkborð fyrir dýfingar. Sund- pollurinn er safnið ofan við stífl- una. Er þar sjálfgerð fyrirtaks sundlaug, á að giska 80—100 m. löng og 20 m. breið, með nægu dýpi þar sem dýpst er, fyrir alls- konar dýfingar, og vatnið er ný- mjólkur-volgt og hressandi ferskt vegna straumsins, sera altaf end urnýjar það. Þegar vígslunni var lokið sýndu nokkrir sundmenn úr Reykjavík ýmsar sundaðferðir og dýfingar af stökkborðinu. Voru mörg stökkin falleg og vel gerð, en því miður var hæðin ekki nægileg, til þess, að stökkin nytu sín sem skyldi. Eftir aj5 sundmennirnir höfðu verið að leik þessum góða stund, sýndi ungfrú Ruth Hanson nokkra sundleiki, sem hún gerði af mikilli list. Gerðu menn góðan róm að list hennar. Næst voru sýnd björgunarsund; — hvernig bjarga skal þreyttum sundmanni og druknandi manni. Að síðustu háður knattleikur á sundi (Waterpolo), milli Glímufél. Ár- manns og Sundfélagsins Ægis, og sigraði hið síðarnefnda með 2 mörkum gegn o. — Leikurinn var leikinn 7 mín. á hvora hlið, eins cg venja er, og var fjörugur með köflum, en samleikur var ekki góður, og köstin mistókust all- cft. Mönnum virtist falla leikurinn vel í geð. — Leikskrá dagsins var lokið með þessu, að dansi undan- skildum, sem var stiginn til kl. 10. Á Sigurjón raiklar þakkir skyld- ar frá starfsfólki Álafoss-verk- smiðjunnar 'og öllum íþróttavinum yfirleitt, fyrir tröllatrygð sína og áhuga fyrir íþróttahreyfingunni. Má með sanni segja, að þar sem Sigurjón er, þar eru íþróttir iðk- aðar. Fjölmenni mikið var þarna upp frá í gær og mikill erill af fólkí, á bílum, hjólum og jafnvel á „hest- um postulanna", enda var veður hið fegursta. ó. Nýkomið: HVEITI Five Roses, Harvest Queen, Keetoba. I. Bpynjólfsson & Kvaran. Bæjarfréttir Nýkomid Þvottastell frá 10 kr., Kaffistell fyrir 6 frá 14 kr., Kökudisbar frá 50 au., Blómsturvasar frá 75 aur., Bollapör og allar Postu- líns-, Leir- og Glervörur ódýrastar hjá K. Einarsson & Björnsson. Bankastræti 11. \ Ny bóbiT Ny bókT Hvap eru Iiíhíf níul / Saga frá Iírists dögum. Eftir Erik Aagaard, þýdd og gefiu út af Árna Jóhannssyni, með formála eftir sr. Bjarna Jónssom dómkirkjuprest. — Ein hin fegursta saga, sem til er á íslensku. Fæst í bókaverslunum og kostar að eins 3 kr. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 9 st., Vestm,- eyjum 11, ísafirði 10, Akureyri 9, Seyðisfirði 8, Stykkishólmi 8, Grimsstöðum 2, Raufarhöfn 5 (engin skeyti frá Grindavík, Hól- um, Angmagsalik og Hjaltlandi), Færeyjum 10, Kaupmannahöfn 13, Utsira 8, Tynemouth 10, Jan May- en 1 st. -— Mestur hiti hér í gær 11 st., minstur 5 st. — Hæð'767 mm. yfir íslandi og fyrir norðan land. Grunn lægð fyrir suðvestan land, á norðurleið. — Horfur: Suð- vesturland: í dag og í nótt hægur suðaustan. Þurt veður. Faxaflói: í dag norðan átt. Þurt veður. í nótt hægur austan. Breiðafjörður, Vestfirðir, Norðurland: í dag og í nótt hægur vindur og þurt veð- ur. Norðausturland og Austfirðir: í dag og i nótt hægur norðan, víða þoka. Suðausturland: í dag og í nótt hægur vindur 0g þurt veður. Dánarfregn. Jón þorvaldsson, fyrrum bóndi, frá Rrossum í Eyjafirði andað- ist að heimili sonar síns, Jóns Eyfirðings, sem býr í Bolung- ar, aðfaranótt 11. júni, 85 ára að aldri.. — Systkini Jóns voru 11 og eitt af þeim var frú Snjó- laug kona Sigurjóns sál. Jó- hannessonar á Laxamýri. Böm Jóns eru: Snjólaug og pórdís J. Carlquist báðar hér í Reykjavík, Sigurlaug Thomsen i Vestmannaeyjum, Jóhann, porsteinn og Jón, sem eru á ísa- firði og Bolungarvík. Jón sál. var hinn mesti ágætismaður og bjó lengst af á Hofi i Svarfað- ardal. Kosningaskrifstofa frjálslyndra manna (C-list- ans) er í Báruhúsinu, uppi á lofti. Skrifstofan er opin eftir kl. 2 daglega. Kjörskráin liggur þar frammi til athugunar fyrir kjósendur. Frjálslyndir kjósendur, þeir er úr bænum fara og verða fjarverandi á kjördegi, eru beðnir að neyta atkvæðis- réttar síns á skrifstofu bæjar- fógeta, áður en þeir fara úr bænum. Kaupskip ferst? Menn eru orðnir hræddir um, að því er segir í tilkynningu frá sendiherra Dana 11. þ. m., að gufuskipið „Hugo“ hafi farist með allri áhöfn á leið frá Græn- landi til Danmerkur. Venjuleg- ur siglingatími þessa leið er 12 dagar, en 19 dagar eru liðnir síðan er skipið lét í haf frá Ivigtut. Landfógetinn í Godt- haab hefir símað að „Islands Falk“ hafi fundið lík á reki og gufuskipið „Gustav Holm“ hafi fundið hjörgunarhát frá ,Hugo‘. 19 menn alls voru á skipinu. Leit hefir verið hafin, bæði af „Islands Falk“ og öðrum skip- um, sem til hefir náðst á þess- um slóðum. Frambjóðendur til Alþingis, auk þeirra, sem áður hafa verið taldir: I Rangárvallasýslu Sigurður Sigurðsson, búnaðar- málastjóri (frjálsl.). í Suður- Múlasýslu Sigurður Ai’ngríms- son, ritstjóri á Seyðisfirði, og porsteinn Stefánsson bóndi (í- hald). I Barðastrandarsýslu P. A. ólafsson konsúll (frjálsl.), Andrés Straumland (jafnað- arm.) og i Dalasýslu porsteinn porsteinsson, sýslumaður. Tel- H-F. EIMSKIPAFJELAO _____ ÍSLANÐS „ESJA“ i fer héðan á morgun, 14. júní kl. 6 síðdegis austur og norð- ur um land í hringferð. „GOÐAFOSS" fer héðan föstudag 17. júní kl. 3 síðdegis vestur og norður um um land, fljóta ferð, til Hull og Hamborgar. Farseðlar sældst á' miðrikudag. ur hann sig líklega utan flokka. í Norður-Múlasýslu: Jón Jóns- son á Hvanná (frjálsl.) og Jón Sveinsson bæjarstjóri á Akur- eyri (frjálsl.). Áke Claesson söng\’ari syngur annað kveldL Matth. þórðarson talar nokkur orð um Bellman áður en söng- urinn hefst. Ari Arnalds bæjarfógeti og sýslumaður er, staddur hér í bænum. Goðafoss kom híngaö á laugardag, ,frá Hamborg og Hull, norðan unl land, fullfermdur vörum. Farþeg- ar voru um 50. Frá útlöndumi m. a.: Berrie stórkaupm. frá Leíth, Iiellesen, umboðsm., Miss Robin- son, ensk kenslukona. Utan af landi komu: Jóhannes Jósefsson', glímukappi, Þórhallur Bjamason* prentari, Haraldur Jónsson, Ing- ólfur Jónsson, bæjargjaldk. (Isaf.), P. A. ólafsson, AtSalsteinn ólafs- son, Gísli Andrésson verslunarUm- boðsm. og frú, síra Magnús Þotv steinsson og frú, Viggó Nathan- aelsson, Loftur Hjartar, frú Mar*

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.