Vísir - 09.10.1927, Qupperneq 2
V I S I R
3
Gærnr og Garnir
kanpnm við hán verði.
ITerðlækJcim á
CHEVBOLET
Chevrolet vnrubifreiðin kostar nú aðeins kr. 2900,00 íslenskar nppsett i' Reykjavik.
---------JÓH. ÓLAFSSON & CO.------
Aðalumboðsmenn á íslandi fyrir: GENERAL M O X O R S-bifreiðar.
«7
Bittaliíiii í KbIíihiíí
— Flðkahúfnrnar (Lindberg) —
komnar aftur í öllum litum.
Aima Ásmundsdóttii*.
V epkSpædmgsstÖpL
Eg tek að mér allskonar verkfræðingsstörf, þar á ineðal að
gera tillögur, útreikninga, uppdrælti og kostnaðaráætlanir um
hverskonar mannvirki. Einnig framkvæmd mannvirkja, eða
umsjá og efirlit með framkvæmd þeirra. Meðal annars:
Járnbent steinsteypa, miðstöðvarhitanir, skolpveitur og önnur
verkfræðingsstörf tillieyrandi almennum liúsabyggingum;
vatnsveitur, hitaveitur, holræsi, bryggjur og önnur hafnarmann-
virki, brýr, vegagerðir, verksmiðjur allskonar og byggingar til
atvinnurekstrar, rafmagnsstöðvar og aðrar aflstöðvar.
Teiknistofa mín og einkaskrifstofa eru í Bankastræti 11, mið-
hæðinni, síma 2303. Öllum fyrirspurnum greiðlega svarað.
Reykjavík, 7. okt. 1927.
Jóxa Þovláksson.
verkfræðingur.
Símskeyti
Khöfn, 8. okt. FB.
Ófriðarblika á Balkanskaga.
Símað er frá Berlin, að make- .
dons-búlgarskir óaldárflokkar
Iiafi kastað sprengikúlum á
ýmsar byggingar í júgóslaf-
neskum landamærabæ. Urðu
miklar skemdir á ýmsum opin-
beruin byggingum. Sprengju-
tilræði þessi ásamt morðinu á
júgúslafneska hershöfðingjan-
um Iiaí'a vakið miklar æsingar
í Júgó-Slafiu gegn Búlgaríu.
Óttast margir, að ef svo lialdi
ái'ram, kunni að draga til ófrið-
ar enn einu scinni milli Ballcan-
skagaþjóðanna. — Sendiherrar
stórveldanna í Balkanskaga-
löndunum álíta ástandið afar-
alvarlegt. Stjórnin í Júgó-SIafíu
hefir látið stöðva alla umferð á
landamærum Júgó-SIafíu og
Búlgaríu. ’
Frá styrjöldinni í Kína.
Símað er frá London, að
Shangháiherinn vinni nú stöð-
ugt á gegn Norðurhernum kín-
verska. pó ætla menn eigi niikl-
ar líkur séu til þess eins og sak-
ir standa, að norðanmenn láti
Peking ganga sér úr greipum.
i Kaupmannahöfn.
Meðan vér 'biðum eftir hinu
i'yrsta verulega leikhúsi á ís-
landi, þá er það að líkindum
ofurlítil fróun fyrir óþolinmæð-
ina að lesa um, hvað aðrar
þjóðir eru að bollaleggja um
leikhúsmálin hjá sér, og þá helst
þær þjóðirnar, sem vér erum
kunnugastir.
Danir hafa lengi verið að
liugsa uin aö byggja leiksvið
við Kgl. leikhúsið, þar sem að
eins væri talað (talsvið), cn leik-
húsið, sem nú er, yrði þá söng-
leikhús (opera). Einu sinni átti
þetla að kosta 2,200,000 kr., síð-
an hefir sá, sem þetta skrifar,
mist augun af þessum tillögum,
sem aldrei hafa komist í verk.
Ekkert þing hefir viljað veita
upphæðina, en þingin hafa alt-
af borgað það sem á vantaði til
þess að tekjur kgl. leikhússins
hrykkju íyrir útgjöldum.
Ný leikhústillaga
hefir nú komið fram, og er bor-
in fram af byggingameistara
Christian að nafni. Hann skýrði
frá þvi á fundi reyndra leik-
húsmanna, leikara og annara
listamanna, að liann vildi reisa
leikhús, sem tæki 5000 áliorf-
endur (Höfn er nú bær með
700,000 íhúum). Húsið sagði
hann að mundi kosta 1 % milj.
króna í steinsteypu og járni, út-
búnaðurinn yrði 2l/j milj. kr.,
grunnurinn 3J4 milj. Ennfrem-
ur þyrfti leikhúsið % milj. kr.
til rekstrarfjár. Með þessu móti
kostaði leikhúsið 8 milj. kr., og
leigan eftir það áleit hann að
ætti að vera 550,000 kr. um ár-
ið.
Peningar’nir ættu að fást
þannig: 4 milj. og 2 milj. frá 1.
veðsetningu og annari, en 2
milj. með hlutabréfasölu og af
þeim væri fyrri milj. fengin
þegar. I byggingarkostnaðinum
voru 225,00 krónur fyrir tröll-
aukið orgel lianda leikhús-
inu qg fyrir radíóhljómleika,
sem útvarpið borgaði.
Leiksviðið og inngangseyrir.
Leiksviðið á að vera útbúið
með himinhring, lofttjaldi alt í
kringum það; má draga það upp
og láta síga niður að vild. Báðu-
megin við leiksviðið eru jafn--
stórir salir sem það er sjálí’t, og
þar má setja upp heil leiksvið
og draga þau inn á sviðið;
sömuleiðis er samskonar útbún-
ingur í leiksviðskjallaranum.
Leiksviðsgólfið sjálft getur
runnið til Jdiðar og nýja „leik-
sviðið“ í kjallaranum gengur
upp og verður að leiksviði.
pannig má skifta um vanda-
sömustu leiksvið á augabragði.
Inngangseyrir áleit hann að
ætti að vera að miklu leyti frá
85 au. upp í 1,75 kr., en minni
lxlutinn af sætunum væri frá
1,75 kr. og upp í 0 kr. Væri 58
% af sætunum seld að meðal-
tali á kvöldi, þá ætti þetta mikla
leikhús að standast kostnaðinn.
Hánn áleit að það væri leikhús-
stjórunum að kenna, hve leik-
húsin í Danmörku væru illa sótt.
peir væru bundnir við óteljandi
reglur, og þær hefðu þau áhrif,
að þar væru leiknir leiðinlegir
smámunir, en alla liátíð vant-
aði. parna mætti leika stærstu
-og bestu leikritin, og mann-
fjöldinn legði til hátíðablæinn.
petta væri almannaleikhúsið.
Sigursæll keppinautur við
kvikmyndahúsin.
Rohert Neiiendam, leiksögu-
ritari Dana, tók þá til máls og
sýndi fram á, hve mikla og góða
þýðingu leikirnir á þessu leik-
húsi, sém ekki er við smámuni
bundið, gætu haft á menning-
una. J^elta leikhús hlyti að
verða sigursæll keppinautur við
kvikmyndahúsin, sem snuðuðu
almenning um sanna list. Hann
endaði ræðu sína með því að
benda á, að það yrði að vera
Adam Poulsen, sem veitti þessu
leikhúsi forstöðu.
Hættan fyrir gömlu leikhúsin.
Slauning þjóðþingismaður og
fyrv. stjórnarforseti tók því
næst til máls, og sagði að hug-
myndin félli sér vel i geð, en
hann leyí'ði sér þó að spyrja,
hvort þetta leikhús yrði ekki til
þess að leggja hin leikhúsin i
rústir. Hann vildi sérstaklega fá
skýringu á afstöðu þessa mikla
Icikhúss til Konunglega leik-
hússins. paðværi skóli fyrirleik-
listina, sem ekki mætti Ieggja
niður eða loka. En vel mætti
vera, að hvorttveggja gæli sam-
einasl og yrði sameinað. Aage
Garde leiðbeinari tók i sama
strenginn. Honum mótmælti
Harald Bergstedt, rithöfundur,
sem mótmælti því, að hugsað
væri of mjög um afleiðingarn-
ar, ef einhverju nýju ætti að
þoka fram, og þetta væri eina
leiðin til þess að endurnýja nú-
verandi leikhús og leikhússtjórn
í Danmörku. Nefndin sem hafði
málið til meðferðar lieldur á-
fram rannsóknuin sínum.
(Eftir Berl. Tid., 22. sept. þ. á.).
Frá l?§!ir-ls!iáiii
—o—
FB. í okt.
Halldór Kiljan Laxness
las upp ýmislegt eftir sjálfan sig
á skemtun, sem hann hélt í Winni-
]>eg, snemma í sept. Er lokiö miklu
lofsoröi á sögur þær og sögukafla,
er Halldór las Jjar upp, í blööunum
vestra.
Hátíöahöldin 1930.
Heimskringla flytur svohljóö-
andi fregn eftir Montreal Daily
Star, einhverju stærsta dagblaði
Canáda:
„Samkvæmt tilkynningu frá
ræöismannsskrifstofunni hér fyr-
ir Danmörku og Island, er ísland
nú aö búa sig undir hátíöahöld,
sem varla munu eiga sinn líka í
veröldinni og sem búist er viö, aö
margir sæki frá Canada. Búist er
viö, aö kunnir stjórnmálamenn frá
öilum löndum heims veröi viö-
staddir þessi hátiöahökk þósund
ára afmæli hins fyrsta þings á ís-
landi. er haldiö verður 1930. —
J. E. Böggild, yfirræðismaöur ís-
lands hér i landi, geröi heyrum
kunnugt í dag, aö i ráði væri aö
leigja sérstakt gufuskip til þess
aö flytja heim þá mörgu Islend-
inga, er til íslands munu leita frá
Canada og Bandarikjunum."
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson,
skáld, er nú fluttur til Winnipeg,
og stundar ]iar lækningar. Undan-
farin ár hefir hann átt heima í
Lundar.
Vísir
er sex síður í dag. Sagan og
bæjarfréttir eru i aukablaðinu.
ÍÉiilipr erleifiis.
—o—
Fyrir nokkuru síöan skrifaði
Skúli Skúlason blaöamaöur grein
um þörfina á því, aö stofnaö væri
hér á landi íslendingafélag, í lík-
iiigu viö Nordmandsforbundet í
Noregi. Ölíurn, er veriö hafa er
ltndis um lengri eöa skemri tíma,
mun ljós þörfin á stofnun slíks
félags, og má eigi vansalaust
kallast, ef eigi verður hafist
handa til þess að hrinda þessu
máli áleiöis. íslendingafélagiö
mun auövitaö á sínum tíma láta
semja skrá yfir nöfn íslendinga,
sem heima eiga eða eru um stund-
arsakir í öðrum löndum. Liggur í
augum uppi hver nauðsyn er á
samning slíkrar skrár. Fréttastofa
Elaöamannafélagsins ætlar nú að
gera tilraun í þessa átt, til bráöa-
hirgöa^ uns af verður stofnun ís-
lcndingafélagsins. Skilyröiö til
þess að tilraunin hepnist er. að ís-
lendingar sem utan fara, og eins
]:>eir, sem nú eiga heima í öðrurn
löndum, láti Fréttastofunni í té
upplýsingar um nöfn sín og heim-
ilisfang. Ennfremur er nauösyn-
legt að tilkynna ]ægar allar breyt-
ingar, sem á kunna aö verða. Ekk-
ert gjald verður tekiö fyrir skrá-
setninguná. Skriflegum fyrir-
spurnum væri ])ó æskilegt að
fylgdi frímerki á svarbréf. Eru
óll vikublöð íslensk beöin aö birta
grein ])essa og eins íslensku blöö-
in í Winnipeg.
Fréttasíofa Blaðamannafélagsins.
Pósthólf 956. Reykjavík.