Vísir - 05.12.1927, Blaðsíða 3
VlSIR
Góður eiginmað-
up gefur konunni
Singers
saumavél.
líkamlegri vinnu lifa, mætax er
þeir ieita réttar síns hjá liinu
háa dómsmálaráðuneyti.
Reykjavik, 12. nóv. 1927.
Stjórn Múrarafélags Reykja-
víkur hefir ritað ráðuneytinu
bréf, dags. 5. þ. m., um tilboðin
í innanhúðun landsspitalans. —
Segir þar að tilboð Óla Ás-
mundssonar, skilið á þann hátt
er hann segir að skilja beri, sé
þannig úr gaði gert, að eigi
verði skoðað sem gilt tilboð. En
þó er tilboð þessa manns i fullu
samræmi við útboðslýsing húsa-
meistara, og eigi verður því
heldur með nokkrum rétti mót.
mælt, að meiningin með heild-
artiíboði hans hafi verið sú, er
hann segir. í bréfi félagsstjórn-
arinnar eru annars liótanir og
ósæmilegar aðdróttanir í garð
ráðuneytisins, og virðist félags-
stjórn þessi helst ætla sér að
ráða því, hverju tilboðinu ráðu-
neytið tekur. Er þvi síður á-
stæða til að ræða frekar málið
•við félagsstjórnina, og mun
ráðuneytið í þessu sem öðru
fara því fram, er það sjálft tel-
ur réttast.
Að þessu sinni mun ráðu-
neytið ekki Iáta höfða mál gegn
félagsstjórninni, en best mun
henni að skrifa ekki fleiri slík
bréf hingað, ef vel á að vera.*
F. h. r.
E. u.
Sigfús M. Jobnsen.
Til
formanns Múrarafélags Reykja-
víkur, herra Guttorms Andrés-
-sonar, Laufásveg 54, Reykjavík.
Ojæja! Líklega eigum vér að
vera þakklátir.
Af einskærri niiskunsemi ætl-
ar dómsmálaráðherrann ekki að
lögsækja okkur í þetta skifti. En
vér iðnaðarmenn vitum hvers
vér megum vænta í framtíðinni
af þessum dómsmálaráðherra
bænda og jafnaðarmanna, ef
vér gerumst svo djarfir, að leita
réttar vors og látum áljt vort í
ljós á þeim málum, er varða
hcill og framtið stéttarinnar.
En óljúft er oss ekki að fá úr-
skurð dómstólanna um það,
hvort vér höfum svo af oss
brotið, að það sé annað en em-
bættisliroki, að hóta oss mál-
sókn, þótt vér leituní réttlætis
]>ar, sem það helst ætti að vera
að finna, og' getur það liaft
mikla þýðingu fyrir alla húsa-
smiði landsins, ef dómstólarnir
fengju að dæma um tilboð þau,
sem um er deilt og réttmæti
þeirra.
En nú, eftir að samningar eru
undirskrifaðir um tilboð, íjgm
byggist á múnnlegum skýring-
um, sendum vér mál þetta fyrir
dómstól almenninsálitsins í
fullri vissu þess, að þó enn þá
vanti lög eða reglugerð, sem
varni því, að hægt sé að taka til
greina hverja þá munnlega
skýringu, sem hæfust þykir, til
að sölsa undir sig verk, sem
boðin em út undir yfirskini
heiðarlegrar samkepni, þá eru
til lög í hjörtum allra, sem skyn
bera á málið, er mótmæla þess-
um ráðstöfunum dómsmála
ráðuneytisins.
Almenningsálitinu mun þykja
dýrt keyptar þær krónur sem
við þetta sparast ef rétt er, sem
oss sýnist, að dómsmálaráðu
neyti vort hafi fyrir þær gengið
á undan i að virða að vettugi al-
mennar reglur. (Hér er átt við
reglur sem gilda um meðferð á
opinberum útboðumí nágþanna-
löndum vorum, og sem hér hef-
ir verið farið eftir, jafnvel við
útboð á einstaklingshúsum). í
slikum málum sem þessu, mætti
því síst ýta undir óreglu og
vafasama meðferð á útboðum
og tilboðum í þessum bæ. í
þeim efnum er ástandið svo
bágt, að til vandræða horfir.
Almenningur skilur, hver
hætta felst i því að húsameistari
rikisins telur sig ekki bundinn
við að taka tillit til þeirra skil-
yrða, sem hann setur tilboðsgef-
endum í útboðslýsingum sínum,
þó húsameistari virðist ekki
skilja liana.
Almenningur skilur, hver
hætta felst í því, að veikja
traust manna á að tilboðsgef-
endur njóti fulls réttlætis við
tilhoð á byggingum ríkisins, þó
dómsmálaráðuneytið virðist
ekki skilja það.
En almenningur skilur ekki,
að það sé einungis velfei'ð rik-
issjóðs sem ráðið liafi úrslitum,
er gengið var að þessu tilboði
(119 þús. kr.).
Tilboðsgefandi sjálfur metur
gjallsteypu og slitlög á 18500
kr. og aðra vinnu tilboðsins á
100500 kr., eins og sjá má á til-
boði hans, að þeim skilningi við-
höfðum er liann sjálfur leggur
í það. En í þennan hluta vinn-
unnar (gólfavinnuna) komu
tvö tilboð, sem bæði voru lægri,
annað frá Kornelíusi Sigmunds-
syni, og nam það 12000 kr., hitt
frá Kj. Ólafssyni og félögum
hans, og er þess getið hér að
framan.
það verður þvi erfitt að sjá,
hvað réttlætir þá ráðstöfun, að
hjá bóksölum
Verð kr. 3,75.
Sömulciðls
Heilsníræði
ungra kvenna.
xxx=>o<
“1
Bæjarfréttir
cxrsxx
Cxxrrxxs
Bæjarf
x>
Leturbreyt, ,vor.
boði, sem nemur 100500 +
18500 kr.
ÖII meðferð dómsmáiaráð-
lierra og húsameistara á tilboð-
um þessum sýnir, að þeir telja
sig liafa all óbundnar hendur til
að fara með þau eins og þeim
sýnist. pað er því ótrúlegt, að
þeim liafi verið sett skilyrði um,
að ganga annaðhvort að 'báðum
tilboðunum frá Ó. Á. eða að
hvorugu, enda væri það þá til-
boðsgefandi, en ekki húsameist-
ari, sem þá réði útboðsskilmál-
unum — en það væru sérrétt-
indi, sem enginn hinna tilboðs-
gefndanna liafa notið, ef húsa-
meistari léti slíkt viðgangast, og
óyggjandi sönnu fyrir þvi að til-
boð þetta átti engan rétt á að
vera tekið til greina.
Oss virðist, samkvæmt annari
meðferð húsameistara og dóms-
málaráðunevtisins á þessum til-
boðum, að fylsta ástæða hefði
verið til, að hagnýta sér þau
réttindi, sein áskilin eru með
sundurliðun heildartilboðsins,
og áskilin réttindi til að hafna
öllum tilboðunum.
Hefði hagsmuna ríkissjóðs
verið gætt, gat því dómsmála-
ráðuneytið annaðhvort tekið
lægsta sértilboði eða hafnað öll.
um tilboðum í gjallsteypu og
slitlög að sinni.
pað liefði verið í samræmi
við munnlega skýringu, sem
vér fengum frá lnisameistara á
sundurliðun aðaltilboðsins, og’
sýnt, að liún var gerð í skyn-
samlegum tilgangi. Vandræða-
laust var þetta að þvi leyti til,
að verk þetta verður ekki unn-
ið fyr en allri húðun á öllum
hæðum er lokið, og ekkert
bendir til að vinna þessi verði
dýrari næsta haust, þegar hún
verður unnin, en ósannað að
hún geti ekki orðið ódýrari þá.
Nú hafa tvö tilboð komið frá
liæfum mönnum, annað á 12000
kr., hitt á 13000 ki’., en ráðu-
neytið gengur að tilboði er nem.
ur 18500 kr. Er það af um-
liyggju fyrir hagsmunum ríkis-
sjóðs?
Vill ekki húsameistari eða
ráðuneytið gefa skýringu á
þessari höfðinglegu aukaborg
un? -—•
Að henni ófenginni lítum vér
svo á, að þessar 6500 kr. séu
upp'bót á of lágu aðaltilboði, og
mun margur spyrja, livað koma
eigi fyrir þann bitling eða hvað-
an hann komi.
Reykjavík, 23. nóv. 1927.
F.h. Múrarafélags Reykjavíkur.
Guttormur Andrésson,
formaður.
Bergsteinn Jóhannesson.
Einar Sveinsson.
□ EDDA. 5927l266l/2 = 2-
Veðrið í morgun.
Hiti um land alt. í Reykjavík
3 st., Vestmannaeyjum 5, ísafiröt
3, Akureyri 3, Seyöisfiröi 4,
Stykkishólmi 4, Grimsstööum 1,
Raufarhöfn 3, Blönduósi 4, (engin
skeyti frá Hólum í Hornafirði,
Grindavík, Grænlandi, Kaup-
mannahöfn og Hjaltlandi), hær-
eyjum 6, Utsira 1, Tynehouth 4,
Jan Mayen 1 st. — Mestur hiti
hér i gær 3 st., minstur o st. Úr-
koma 8,2 mm. — Djúp lægö (715
mm.) um 500 km. suður af Vest-
mannaeyjum. Hreyfist austur eft-
ir. Hægur sunnan í Noröursjónum,
tn hvass sunnan á vesturströnd
Skotlands. — Horfur: Suövestur-
land: Stormfregn. 1 dag austan
rok og rigning. í nótt hvass aust-
an og noröaustan. — Faxaflói,
Breiöafjöröur: Stormfregn. í dag
og nótt hvass austan. Orkomulít-
iö. — Vestfiröir: í dag vaxandi
austan. Stormfregn. í nótt hvass
norðaustan. —• Noröurland, norö-
austurland : í dag og nótt vaxandi
áustan, hvass úti fyrir meö kveld-
imi. — Austfirðir, suöausturland:
Stormfregn. 1 dag og nótt hvass
austan. Rigning.
greiða 6500 kr. meira en þörf
er á fyrir þessa vinnu, eins og
nú er gert með þvi að taka til-
Klukkurnar í Landakoti.
Einhver, sem nefnir sig „Verka-
niann", skrifar smágrein í Alþýðu-
blaöið 1. þ. m. og beinir þeirri
lúalegti aödróttun til herra bygg-
ingameistara Jens Eyjólfssonar,
iö hann muni hafa gefið klukk-
rnar í Landakoti fyrir þá „tekju-
aukningu“ er hann „vann sér með
3ví aö greiöa verkamönnum sín-
um í sumar ekki nema 90 aura um
klukkustund". Þessi aðdróttun
„Verkamanns", sem auösýnilega
er sprottin af illvilja í garö hr.
J. E. — því aö tæpast mun
„Verkamaður" öfundast yfir því,
sem guðshúsi er gefiö — er auk
þess með öllu röng. Kaupgjald
verkamanna hans er ekki og hefir
aldrei verið 90 aur. um tímann, og
hefði verið betra fyrir „Verka-
mann“ aö afla sér áreiöanlegra
upplýsinga áður en hann flónskað-
ist eða lét hafa sig til aö skrifa
jafn lúalegan og rangan greinar-
spotta.
Annar verkamaður.
Félag frjálslyndra manna
í Reykjavík heldur fund á
morgun kl. 8)4 síödegis, í Báru-
húsinu, uppi. — Pétúr A. Ólafs-
son flytur erindi.
Mannvirki
Skelfélagsins viö Skerjafjörð
mega nú heita fullgerö, og er von
á olíunni um áramót. Olíugeym-
arnir haía allir veriö fyltir sjó, og
reyndust ágætlega. Hafa íslenskir
menn einir komiö þeim upp, og
er þeim verkið til mikillar sæmd-
ar. Voru það félögin Harnar og
Héöinn, sem létu setja geymana
saman, og vanst verkið bæöi fljótt
og vel. Þá hefir og verið gerö
mjög löng bryggja fram undan
stöðinni. Fyrstu 216 metrarnir
sianda á steinstöplum, en þá er
staurabryggja 90 metra löng, og
fremst verður fljótandi bryggja,
200 metra löng. Verður hún aö-
eins notuð, þegar stórskip legg'j-
ast að bryggjunni, og er 24 feta
ciýpi viö hana um stórstraums-
fjöru. Er svo til ætlast, aö 8000
smálesta skip geti legið við hana.
Arinbjöm Sveinbjamarson
liefir látið gera nýja bókabúð
i húsi sínu á Laugaveg 41, þar sem
áður var bókbandsvinnustofa hans.
Ilefir hann þar á boðstólum mik-
iun fjölda bóka, (einkum danskar
og norskar bækur), auk isl. bóka,
og að auki allskonar ritföng. Búð-
in er hin prýðilegasta og smekk-
iega frá henni gengiö á allan hátt,
Aðalfundur
Félags Vestur-íslendinga er i
kveld kl. 8y2 á kaffihúsinu Upp-
sölum, en ekki í Kirkjutorgi 4 eins
og ráðgert var. Kosin stjórn. —
Skúli Skúlason flytur erindi.
I.ögberg og Heimskringlu,
blöð Vestur-íslendinga, geta
menn séð á lestrarsal Alþýðubóka-
safnsins, Skólavörðustíg 3.
Skipafregnir.
Esja kom til Stykkishólms kl.
12 i dag. Væntanleg hingað á
Inorgun.
Brúarfoss var í Vestmannaeyj-
um i morgun.
Lagarfoss er á Þórshöfn á út-
leið.
ísland
fór frá Kaupmannahöfn kl. 10
árd, í gær.
Dronning Alexandrine
fór frá Akureyri kl. 10 i gær-
kveldi, áleiðis til Seyðisfjarðar og
utlanda.
Skúli fógeti
kom af veiðum i morgun með
mi'kinn afla. Fór áleiðis til Eng-
lands í dag.
Frá Englandi
komu í gærkveldi Egill Skalla-
grímsson og Apríl, en Njörður í
morgun.
Kvikmynd
af dansi systranna Ruth og Rig-
mor Hanson var sýncl í Nýja Bíó
í gær ásamt aukamynd, og var góð
aðsókn. Sjálfur dansinn var góð-
ur, en myndin ekki nógu skýr.
U. M. F. Velvakandi
heldur fund annað kveld kl. 9
stundvíslega, í Kirkjutorgi 4.
Hvítabandið
heldur fund í kvelcl kl. 8J4 í
húsi K. F. U. M.
Verkakvennafélagið Framsókn
endurtekur ársskemtun sína ann-
að kvelcl í Iðnó, kl. 8y>. Húsið
verður opnað kl. 8. Félagskonur
eru vinsamlega beðnar að vitja að-
göngumiðanna helst í dag, kl. 3—
7, og hafa kvittanabækur með sér.
Á sania tíma verður félagsgjöld-
um veitt móttaka. Á morgun verða
aðgöngumiðar afhentir eftir kl. I.
Mætið stundvíslega.
Gjöf
til nýrrar kirkju í Reykjavík,
frá konu, 100 (hundrað) krónur,
afhent síra Bjarna Jónssyni.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 2 kr. frá 7./16.