Vísir - 01.05.1928, Blaðsíða 2
VlSIR
D KteiHm i Olseini (
flðfnm til:
Rúgmjöl
Hálfsigtimjöl
Haframjöl
Hpísgrjón
Hveiti:
Cream ofManitoba.
Glenora.
Canadian Maid.
Onota.
Buffalo.
FyMrliggjandi:
A* Obenliaupt,
Símskeyti
Khöfa, 30. april. FB.
Kosningaúrslit í Frakklandi.
Frá Paris er símað: Úrslit
kosninganna í gær kunn í tæp-
Iega 300 kjördæmum. Stuðn-
ingsmenn Poinearé’s fengu tals-
verðan meiri hluta. Leon Blum,
foringi jafnaðarmanna, féll fyr-
ir kommúnistanum Duclos.
Flugmönnum fagnað.
Frá New Yorkborg er símað:
Atlantshafsflugmennirnir þýsku
Köhl flugkapteinn og von
Húnefeld barón, ásamt Fi.tz-
Maurice, úr flugliði írska fri-
ríkisins, komu til New York-
borgar i gær og tók mikill
mannf jöldi á móti þeim. Opin-
her hátíðahöld til þess að fagna
flugmönnunum fara fram og
eiga þau að standa yfir í fimm
daga. — (Flugmennirnir lögðu
af stað í Ailantshafsflug sitt frá
Baldonnel i írlandi þ. 12. apríl
og lentu um hádegi daginn eflir
á Greenly Island, fyrir norðan
Newfoúndland).
Manntjón af ofviðri.
Ofviðri, hellirigningar og
vatnsflóð hafa komið i suðaust-
urhluta Bandaríkjanna. Sex
þúsundir manna heimilislausar.
13 menn farist. Miljónatjón.
Einkennilega miklar skemdir á
baðmullarekrum.
Knud Rasmussen
kominn til Reykjavíkur.
Hann heldur nokkra fyrirlestra
hér um Eskimóa í Grænlandi
og Canada og lifnaðarháttu
þeirra, átrúnað og
þjóðsiðu.
Danir hafa lengi lagt mikla
slund á að kynna sér landfræði
Grænlands og jarðfræði, svo og
sögu Eskimóa og siðu. ]?ó stjórn
þeirra á landinu sé i mörgu til-
liti ámælisverð frá sjónarmiði
þeirra, er unna Eskimóum fulls
mannfrelsis og góðra h'fskjara
og trúa á mátt þeirra til að lifa
undir svipaðri stjórn og hvitir
menn, verður liinu ekkí neitað,
að vísindastarfsemi Dana í
Grænlandi er þrekvirki, ekki
sist hinar miklu laudkönnunar-
ferðir, sem gerðar liafa verið til
þess að fá efnivið í sæmilegan
uppdrátt af landinu. Frá þessari
öld eru t. d. almenningi kunn
nöfn þeirra Mylius-Erichsen,
sem lét líf sitt í rannsóknarför
til Norður-Grænlands, Einars
Mikkclsen, Peter Freuchen og
ýmsra fleiri manna.
En víðkunnastur allra Gram-
landskönnuða fyr og síðar, að
undanteknum Eiríki rauða, er
maður sá, er hér er staddur
þessa dagana, Knud Rasmussen
dr. phil. Mun eigi völ á neinum
manni um víða veröld er jafn
fjölbreytta og viðtæka þekkingu
hafi á Eskimóum, högum þeirra,
lundarfari, sögu og þjóðsiðum
eins og hann, einkum þeim er
í Grænlandi húa, enda hefir
hann haft góða aðstöðu til þess
að afla sér þeirrar þekkingar.
Knud Rasmussen er fæddur í
Grænlandi 1879, af grænlensku
bergi brotinn í móðurætt, og
ólst þar upp. Fór til Danmerk-
ur og tók þar stúdentspróf alda-
mótaárið, en tók þá þegar að
gefa sig við mannfræðirann-
sóknum. Árið 1901 fór hann til
Lapplands til þess að kynnast
Lapplendingum, en árið eftir
fór liann í hina fyrstu Græn-
landsför sína — með Mylius
Erichsen — og hafði þá vetur-
setu hjá Eskimóum í norðlæg-
um héruðum í Grænlandi. Síð-
an hefir hann starfað óslitið að
Eskimóa-rannsóknum i 26 ár,
og pftast verið á ferðalögum.
Árið 1912 lagði liann í hina 1.
„Thule-för“ sína, vfir jökulinn
til Pearylands, 2. förina fór
hann 1916-18 til norðurstranda
Grænlands og þannig koll af
kolli, þangað til liann gerði út
hinn merkasta og stærsta leið-
angur frá Græniandi vestur yfir
nyrstu landflæmi Canada og
Alaska, alla leið til vesturstrand-
ar Ameriku. Var hann í þeirri
ferð frá 1921 til 1924 og varð
förin fræg um allan heim. Má
nefna, að munir þeir, sem Ras-
mussen hafði heim með sér lír
þeirri ferð, eru hið stærsta safn
til þjóðsiðasögu Eskimóa, sem
til er í heimi. Hefir það verið á-
nafnað þjóðmenjasafni Dana.
Fjölmörg rit eru til eftir
Knud Rasmussen, og er hann
eiiikar skemtllegur rithöfund-
ur. Kru það ýmist ferðabækur,
þjóðlýsingar eða útgáfur Eski-
móa-þjóðsagna og skáldskapar.
Um þcssar mundir er að koma
út bók hans um förina miklu
um Canada, eru tvö hindi kom-
in, en hið þriðja væntanlegt
innan skamms. pessi bindi sem
komin eru af ferðabókinni
þykja afbragð að skýrri fram-
setning og ritsnild. En auk þess
verður gefið út á ensku vísinda-
legt rit um förina, eigi minna
en tólf hindi.
Vísir hitti doktorinn að máb
i gær. Hann er hér ásamt konu
sinni og börnum, og komu þau
hingað frá Skotlandi. Rásmus-
scn hefir í leiðinni frá Dan-
mörku komið við í Lundúnum
og haldið þar fyrirlestra, enn-
fremur hélt hann fyrirlestra á
St. Andrews-liáskólanum í
Skollandi.
— Hafið þér ekki komið
hingað áður, á ferðum yðar til
Grænlands?
Nei, það hefir aldréi I>or-
ið svo uudir, að skipin seni eg
hefi farið með vestúr, hafi
komið við hér. En árið 1900
var eg í dönsku stúdentaferð-
inni hingað. Þá eignaðist eg
Iiér marga kunningja og þótt-
ist þekkja bæinn í krók og
kring þegar eg fór. En það
segi eg yður satt, að þó eg
telji mig engan rata, þá rata
eg ekki um Revkjavik núna.
Þetta er alt annar bær. Nýr
bær.
En livað sem því líður, þá
hefir mig langað hingað aftur
i 28 ár, þó eg liafi ekki haft
tækifæri til þess að láta það
eftir mér fyrr en nú. Eg hefi
haft í ýmsu að snúast. Og það
eru mörg ár síðan eg lofaði
konunni minni og krökkunum
íslandsferð. Svo gafst tæki-
færið loks i vor og ferðin var
afráðin.
— En þér eruð ekki kominn
liingað i skemtiferð eingöngu?
-— Ónei. Það er nú önnur
saga að segja frá því. Eins og
kunnugt mun vera hér, var á
síðastliðnum vetri afráðið, að
í stað þess að liafa faslan
sendikennara frá Dönum við
liáskólann liér, skyldu fengnir
menn til að fara hingað og
lialda hér nokkra fyrirlestra
um vísindi og listir á liverju
ári. Nefndin, sem á að sjá um
framkvæmd þessa verks í
Danmörku, fékk veður af því,
að eg ætlaði hingað, og fór
])ess á leit, áð eg byrjaði þetta
fyrirlestrahald, og var það mér
vitanlega ljúft. En vegna þess,
að eg varð að fara á ákveðnum
tíma, mín sjálfs vegna, var
tíminn naumur lil undirbún-
«
k
«
tt
tt
Togara-manilla
*V’
vönduð teg. fyrirliggjandi.
Þörður Sveinsson & Co.
»
u
u
u
u
u
ings af nefndarinnar hálfu, og
það er að eins örstutt síðan
háskólinn hér fékk að vita um
ferð mína.
Nú hefi eg bitl rektor liá-
skólans liér, Sigurð Sívertsen
])rófessor, og þó að undirbún-
ingstíminn hafi verið naumúr,
er saml alt undirbúið og eg
byrja fyrirlestrana á miðviku-
daginn. Þeir verða 5 talsins og
fjalla allir um Eskimóana, og
sýni eg skuggamyndir með
þeim. Sá fyrsli verður inn-
gangsfyrirlestur um Eskimóa
alment og land þeirra, þjóð-
félagsskipun og ýmsa ein-
kennilega hætti þjóðarinnar.
Annar fyrirlésturinn verður
um lífsskoðanir og heimssjá
Eskimóa, hið frumlega innræti
þeirra og áhrif þau er þeir
tiafa orðið fyrir frá öðrum
þjóðurn, svo og um trúarbrögð
þeirra. Þriðji fyrirlesturinn
verður um hugmyndalíf Eski-
móa, þjóðsagnir þeirra, þjóð-
kvæði og vísnagerð. Það er
sennilega engin þjóð í heimi,
sem yrkir eins mikið og syng-
ur og Eskimóarnir; þeir sem
ólæsir og óskrifandi eru, ekki
síður en liinir. — Þá verður
fjórði fyrirlesturinn um sær-
ingamenn, lækna og spekinga
eða spámenn Eskimóa, þessa
merkilegu menn, sem hafa svo
mikið vald yfir fólki, að gerð-
ir þeirra verða kraftaverk. —
Loks verður síðasti fyrirlest-
urinn um viðskifti Eskimóa og
íslendinga í Grænlandi til
forna og sagnir þær, er enn
lifa á vörum Eskimóa um
„livítu mennina“.
Galu báruláro oo slétt.
Mlklap birgðir.
Mest gæðl.
Lægst verð.
Galv. þaksaumur 2Va”
á kr. 10,00 pp. þús.
Nýkomið.
Versl. B. H. BJARNASON.
JO<SWC^OOOO
Bæjaríréttir u
5*0 OOOO
Veðrið í morgun.
Iiiti um land alt. í Reykja-
vik 11 st., ísafirði 7, Akureyri
11, Seyðisfirði 5, Vestmanua-
eyjum 8, Stykkishólmi 9,
Rtönduósi 11, (engin skejii Frá
Raufarhöfn), Hólum í Horna-
firði 9, Grindavík 10, Færeyj-
um 9, Julianehaab 2, Jan
Mayen 2, Angmagsalik 0,
Hjaltlandi 12, Tvnemouth 7,
Kaupmannaliöfn 10 st. Mest-
ur hiti liér í gær 13 st., minstur
7 st. — Lægð (750 mm.) fyrir
sunnan land. Austan kul á
Iivalbak. — Horfur: Suðvest-
uiiand: í dag og nótt alllivass
suðaustan. Dálitil úrkoma.
Faxaflói: í dag og nótt austan
átt. Sennilega þurt veður.
Breiðaf jörður, Vestfirðir, Norð-
urland: í dag og nótt suðaust-
an. purt og lilýtt. Norðaustur-
land, Austfirðir, suðausturtand:
I dag og nótt sunnan átt. Sum-
staðar þoka, en úrkomulítið.
Það má heita sjaldgæft
tækifæri sem bæjarbúum gel'st
í þetta sinn: að heyra um
Eskimóa og Grænland af vör-
um þess nianns, sem af svo
miklu liefir að miðla i þessum
efnum. Háskólafyrirlestrarnir
verða haldnir í Kaupþings-
salnum og er öllum heimill að-
gangur þar ókeypis meðan
rúm leyfir. En eigi mun van-
þörf á, að minna fólk á að
koma snemma, ef þvi er um-
hugað um að komast í sæli.
Fyrsti fyrirlesturinn verður,
eins og áður er sagt, á morg-
inn kl. 8i/2 siðd. Síðai verð-
ur tilkynt hvenær liinir fyr-
irlfestrarnir fara fram.
!
70 ápa peyn sla
og visindalegar rannsóknir
tryggja gæði kaffibætisins
<2_5>
enda er hann heiinsfrægur og
liefur 9 sinnum hlolið gull-
og silfurraedalíur vegna fram-
úrskarandi gæða sinna.
Hér á landi hefur reynslan
sannað að VEEO er mlklu
hetri og drýgrl en nokkur
annar kaffibætir.
Notið aðeins VERO,
það marg borgar sig.
í lieildsölu hjú
IIALLDÓRI ELRÍKSSYNI
Hafnarstræti 22. Reykjavík.