Vísir - 17.08.1928, Qupperneq 2
VÍSIR
Höfum til:
Noregssaltpétur.
Nokkrar tummr ólofaðar.
Nýkomid:
Hltaflöskur mjög góðar og
ódýiar, galv. fötur og bal-
ar. Eínnlg handtöskuF.
A. Obenliaiipt.
Slysið á Laugavegi.
—■—c*-
Konan Guðlaug Ólafsdóttir,
sem varð fyrir flutningabifreið-
inni á Laugavegi i gær, andað-
ist i sjúkrahúsinu i Landakoti
laust fyrir kl. 2 í gærdag.
Slysið atvikaðist svo, að bif-
reiðin GIv. 7 var að koma ofan
Laugaveg rétt fyrir hádegi og
fór réttu megin á veginum og
ekki hart, að sögn sjónarvotta.
Konan var að ganga suður yfir
götuna og áttí örstutt upp á
gangstéttina, þegar eitthvert
hik kom á liana, sennilega vegna
þess, að hún hefir séð lijól, sem
kom neðan veginn. Bifreiðar- •
stjórinn var ekki nógu fljótur
til að varna árekstri, og konan
lenti með höfuðið framan á bif-
reiðinni og féll við og lenti milli
framhjólanna og inn undir bif-
reiðina og festist undir iienni
miðri, og náðist ekki undan,
fyrr en bifreiðin fór aftur á bak.
Bifreiðarstjórinn er ungur
maður sunnan úr Höfnum, og
fellst honum svo mikið til um
slysið, að hann hneig í ómegin,
þegar það var um garð gengið.
Sjúkrabifreið kom innan fárra
mínútna og flutti konuna á
sjúkrahús.
Réttarrannsókn liófst í mál-
inu í gær og gekk framburður
vitna í vil bifreiðarstjóranum.
Símskeytf
—4?.—
Khöfn, 10. ágúst. F. B.
Róstur á Balkanskaga.
Frá Berlín er simað: Sendi-
herrar Bretlands og Frakldands
í Söfía hafa krafist þess, að
stjórnin í Búlgaríu geri öflugar
ráðstafanir til þess að koma í
veg fyrir, að búlgarskir óaldar-
flokkar vaði uppi, eins og veríð
hefir undanfarið, í þeim lduta
Makedoníu, sem tilheyrir Júgó-
slavíu. Stjórnin í Búlgaríu liefir
svarað og segir, að nauðsvnleg-
ar ráðstafanir hafi þegar verið
gerðar lil þess að útrýma óald-
arseggj unum. Húsrannsókni r
hafa farið fram hjá nokkurum
stjórnmálamönnum i Makedon-
íu, og voru sumir þeirra hand-
teknir.
Japan og Kína.
Frá Peking er símað: Breskur
rithöfundur, Weale að nafni,
sem er vel kunnugur Kínamál-
um, hefir sent japanska sendi-
herranum í Peking ritling, þar
sem því er haldið fram, að jap-
anskt leynifélag liafi myrt
Chang-Tso-lin með þegjandi
samþykki. hermáladeildar jap-
anska sendiráðsins, i þeim til-
gangi að greiða fyrir fvrirætl-
unum Japana viðvikjandi yfir-
ráðunum yfir Mansjúríu.
íslenska málverkasýningin
í þýskalandi.
Frá Berlín er símað: íslenska
málverkasýningin var opnuð i
gær hjá Nierendorf. Dómar
blaðanna ágætir.
Hasssl frestar flugferðinni.
Frá Rockford er símað: Flug-
maðurinn Hassel frestaði því að
leggja af stað í Stokkhólmsflug
sitt, vegna óhagstæðs veðurs.
Utan ai landi.
SeyðisfirSi 16. ág. FB.
Fyrir skömmu brann ibúðarhús
Þorsteins Jónssonar kaupfélags-
stjóra á Reyðarfirði til kaldra
kola á svipstundu, og komst fólk
með naumindum út, sumt skað-
brent. Þessir fengu brunasár:
Benedikt bílstjóri, ÓIi fóstursonur
Þorsteins og þjónustustúlka. Við
björgun fó§tursonar síns braust
Þorsteinn út um glugga, brendist
eitthvað og skar sig á glerrúðu svo
háskalega í lærið, að tæpt stóð
með líf hans er læknir kom. Fólk-
ið, sem brendist, er á sjúkrahúsi,
nema Þorsteinn, alt á góðum bata-
vegi. Orsiik brunans talin sú, að
stúlka kveikti upp eld með stein-
'olíu. Húsið var vátrygt, en allir
innanstokksmunir óvátrygðir.
8. ]). m. andaðist Jörgen Sig-
fússon bóndi í Krossavík í Vopna-
firði úr lungnabólgu, hinn merk-
asti maður, aldurhniginn.
Færeysk skúta kom með dauð-
an mann sem orðið hafði fyrir
byssuskoti.
Nýlega hvolfdi 1)át á siglingu
hér á firðinum meS tveimur pilt-
um og. einni stúlku. Nærstaddir
menn björguðu þeim og var ])á
stúlkan aðframkomin.
Reytings-þorskveiði, langsótt, en
engin síld.
I ’ungt kvef gengur.
Óþurkar hálfsmánaðarskeið. —
Þurkur í gær og dag.
Jón.
Bifreidaskoðan.
Árleg skoðun bifreiða og bifhjóla, skrásettra með einkeaais
hókstöfunum: GK., fts og HF., fer fram næstkomandi mánu-
Siglufirði 16. ág. FB.
Tilkytming frá Flugfélagi íslands.
Súlan hefir flogið tvær ferðir
í dag.
Fyrri ferðin. — Flugum frá
Siglufirði kl. 8,50 og flugurn yf-
ir Skagafjörð utan til og yfir
Skaga, sáum dálítið af síld aust-
ur af Skagatá og mikið af síld
út af Skagastrandarkaupstað og
])ar inn eftir. Þar var einnig mik-
ið af skipum og öll að veiðum.
Síðan var flogið inn með Vatns-
nesi og yfir Húnaflóa og út með
Ströndunum út á Norðurfjörð og
haldið þaðan yfir undir Skaga.
Dálítið af síld út af Reykjanes-
hyrnu og í Norðurfjarðarmynni.
Einurn línubát þar var sent skeyti.
Dálítil sild vestan við Rifsnes og
út af Skaganum. Síðan var haldið
frá Skaga og beint til Siglufjarðar.
Nokkur síld út af Lanrbanesi. Mó-
torbát er þar var fyrir austan, var
sent skeyti. Koniið til Siglufjarð-
ar kl. 11,20.
Scinni fcrðin. — Súlan flaug
aftur kl. 12,15 °S fór inn „Skaga-
fjörð, yfir Höfðavatn og inn
fjörðinn alt til Sauðárkróks, og
])aðau upp að Laxarvik og Sel-
vík, þaðan þvert yfir fjörðinn til
baka til Sigluf jarðar. Nokkurar
sildartorfur sáust austan til á
Haganesvík og nökkuð í norður
af Drangey og út með vestanverð-
um Skágafirði. Örfá -skip sáust á
Skagafirði. Súlan kom aftur til
Siglufjarðar kl. 2.
Flugfélag.
Minninpr
frá Ungverjalandi.
Eftir Sigurbjörn Á. Gíslason.
X.
Brot úr sögu Ungverja.
Sléttulandið niikla við Dóná
og Theiss sunnan og vestan Kar-
pataf jalla hét Pannonia forðum,
meðan Rómverjar réðu þar
ríki. Á þjóðflutningatímabilinu
og enda síðar komu þangað alls-
konar þjóðl'lokkar austan úr
heimi, er hröktu hver annan,
uns Magyarar, komnir austan
úr Asíu, lögðu landið undir sig
um 5)00 eftir Kr. Hafa þeir síð-
an verið aðalliluti landsmanna,
og eru stundum nefndir „hinir
eiginlegu Ungverjar“. Hér og
hvar eru þó heil liéruð bygð
Öðrum þjóðstofnum, afleiðing-
ar gamalla styrjalda, og þar þá
töluð þýska eða einhver slafnesk
tunga: tékkigka, slavokiska,
serbneska o. fl.
Ungarn er þýska nafnið á
landinu, Englepdingar kalla það
Hungary, en Magyarar sjálfir
nefna land sitt Magyarország.
Saga Ungverja er stórfeld
styrjaldasaga, glæsileg tilsýnd-
ar með köflum, því að Ungverj-
ar hafa verið ágætir riddaraliðs-
menn og hrundu öldum saman
áhlaupum Tyrkja, en raunaleg
er saga þeirra tíðum, þegar bet-
ur er að gætl: kúgaðir smæl-
úigjar, blóði drifin, sundurþykk
stórmenni, og sundurleit þjóð-
ernisbarátta blasir ]já við og
dag, íþriðjudag, miðvikudag, fimtudag og föstudag 20. til 24.
}j. m., frá kl. 10—12 f. hád. og 1—6 e. hád. dag hvern, á torgwu
vestan við sölubúð E. Jacobsens hér í bænum. — Ennfremwr
verða ‘þar og frk athuguð skírteini bifreiðastjóra og bifhjéla-
stjóra. —
Ber hlutaðeigendum að koma greindum bifreiðum til sko8-
unar, svo og bifhjólum á tiltekinn stað, hina tilteknu daga, að
viðlagðri ábyTgð samkvæmt bifreiðalögum. —
Lögboðinn bifreiðaskattur, er í gjalddaga féll 1. júlí /j. á.,
verður innheimtur jafnhliða skoðuninni. —
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, hinn 15. ágúst 1928.
Magnús Jdnsson.
varjjar skuggum á glæsilegar
riddarasveitir.
Kristin trú kom til Ungverja-
lands um svipað leyti og til
Noregs. Stefán lielgi sat þá á
konungsstóli (997—1038) og
fekk kristniboða frá Italíu, er
varð mikið ágengt, enda studdi
hann trúboðið með blíðu og
stríðu, likt og Ólafur helgi í
Noregi.
Sylvester páfi annar veitti
honum í staðinn tignarnafnið
„postullegur konungur“, og
þjóðtrúin tók hann síðar í dýr-
lingatölu.
Skömmu éftir dauða hans
gerðu heiðnir menn uppreisn
hvað eftir annað. Árið 1046 tóku
þeir t. d. Gérard eða Gellert
biskujj frá Csanád og vörpuðu
honum fram af klettum í Biida
niður i Dóná. Gnæfir líkneski
píslarvottsins nú á þessarildetta-
hæð, en neðar stendur stærsta
gistihús í Búdapest og kennir
sig við hann. —
Um tvær aldir leið þjóðinni
fremur vel, þótt oft væru skær-
ur við nágranna. Prestaveldi
fór vaxandi og latína varð tunga
allra mentamanna.
Árið 1222 veitli Andrés kon-
ungur annar þjóðinni eða öllu
lieldur höfðingjunum sérrétt-
indi mikil gagnvart einveldi
sem nefnd eru „gullna skráin“,
var það 7 árum fyr en Englend-
ingar fengu réttindabréf sitt,
„Magna Charta“.
Skömmu síðar (1241) eyddu
Mongólar stórum hluta landsins,
og flultust þá erlendir nágrann-
ar i þau héruð sum, {. d. fór
stór hópur jþjóðverja austur
fyrir Karpatafjöll.
Bela konungi IV. tókst að
endurreisa ríkið (um 1250), en
eftir það áttu Ungverjar að stað-
aldri í styrjölduin við austræna
þjóðflokka, og Jiegar Tyrkir
höfðu hertekið Konstantínópel,
urðu Ungverjar ,múrveggurinn‘
gagnvart árásum þeirra vestur á
bóginn. Eru margar frægðar-
sögur sagðar frá þeim sjyrjöld-
um. Jóhann Hunyadi og Matt-
hías Corvinus soniu’ lians, báðir
á 15. öld, eru þó taldir fremstir
heikonunga Ungverja, og rikið
víðlent mjög um það leyti. —
Ráku þeir af sér öll áhlaup
Tyrkja, en grimdin var mikii
og hrottaskapur á báðar hliðar.
Sú saga er sögð t. d. af einum
hershöfðingja Hunyadis, er
Kinizsi liét, að liann liafi bar-
ist með tveim sverðum jafa-
snemma og verið slíkt ofur-
menni, að Tyrkir töldu liann
djöful en ekki mann. Einhverju
sinni var Kinizsi að fagna unn-
um sigri, tók hann þá 3 dauða
Tyæki úr valnum, einn í hvora
liönd og þann þriðja með tönn-
unum og liljóp eða „dansaði“
með þá um vígvöllinn. Svo
sterkur var hann — og slíkur
var hrottaskapurinn í þessum
styrjöldum.------
Um 1500 lömuðu innanlands-
styrjaldir þrótt þjóðarinnar og
það hagnýttu Tyrkir sér. Árið
1526 feldu þeir Ladislaus kon-
ung, tóku liöfuðborgina Búda
og náðu öllum miðlduta lands-
ins á sitt vald. Skiftist Ungarn
70 ára Feynsla
og vísindalegar rannsóknir
Þyggja gæði kaffibætisins
enda er hann heimsfraegur
og hefir 9 s i n n u m hlot-
ið gull- og silfurmedaliur
vegna framúrskarandi gæða
sinna.
Hér á landi hefir reynslan
sannað að VERO er miklu
betri og drýgri en nokkur
annar kaffibætir.
Notið að eins VERO.
pað marg borgar sig.
f heildsölu hjá
HALLDÓRI EIRÍKSSYNI
Hafnarstæti 22. Reykjavík.