Vísir - 30.11.1928, Page 2
VISIR
Nýkomið:
Rúgmjöí,
Hálfsig timj öl,
Flópsykup,
LaukuF í pokum.
PFÍma
Hrísmjöl
á leidinni.
Æ* Obenliaupt.
Símskeyti
Khöfn 29. nóv. FB.
Heilsufar Bretakonungs.
Frá London er símað: Það
hefir aukið mjög ótta almenn-
ings viðvíkjandi veikindum
konungsins, að prinsinn af
Wales liefir snúið heim á leið
aftur, úr Afrikuför sinni. Af-
þessum orsökum liefirlíflæknir
konungsins sent landsstjórn-
inni bréf, til.þess að draga úr
ótta manna. Segir læknirinn
konunginn vera veikan af
lungnabólgu og brjósthimnu-
bólgu. Konungurinn sé að vísu
allþungt haldinn af veikinni, en
batamerki séu samt sjáanleg.
Ætlar hann, að von sé um bráð
legan bata.
Nytsamleg jurt.
Énglendingar hafa uppgötv-
að jurt eina, sem talið er, að
muni reynast nytsamleg fyrir
ullariðnaðinn. Trefjur jurtar-
innar líkjast hör. Hefir þetta
vakið liina mestu eftirtekt, og
er mikil eftirspurn eftir jurt-
inni.
Flotamál Bretlands og Banda-
ríkjanna.
Formaður flotamálanefnd-
ar fulltrúadeildar þjóðþings
Bandaríkjanna, Bratten að
náfni, liefir sent Stanley Bald-
win, forsætisráðherra Bret-
lands, tillögu þess ^efnis,
að flotamálanefnd þjóðþings
Bandaríkjanna og samskonar
nefnd, kosin af Bretaþingi,
liittist í Kanada á næstkomandi
vori, til þess að ræða flotamál
Bandaríkj anna og Bretlands, á
þeim grundvelli, að hvort ríkið
um sig hefði jafnöflugan flota,
einkanleg'a til þess að semja
um skipategundir, sem Was-
hingtonsanmingurinn fjallar
ekki um. Bratten (Britten?)
sendi tillöguná, án þess að
ráðgast við stjórn Bandaríkj-
anna fyrst.
Hvirfilbylur í Filippseyjum.
Frá Manillá er símað: Hvirf-
iivindur hefir gert stórtjón í
Fiiipseyjum. 200 manns hafa
farist í Samarieyjunni. 90%
liúsa liafa eyðilagst þar, og
20% uppskerunnar. f Leyte-
eyjunni eru 10.000 manns
heimilislausar. Bandaríkj a-
stjórnin liefir sent lierski]) til
hjálpar.
Fióðin í Beigíu.
Frá Brussel er símað: Flóð-
in í Belgíu lialda áfrgm. Mat-
vælaskortur sumstáðar, þar
sem flóðin hafa komið. 10.000
verkamenn í Antwerpen eru
atvinnulausir vegna flóðanna.
Árin og eilífðin.
í dag, á sextugsafmæli höf-
undarips, eða næstu daga, kern-
úr út annað bindi af prédik-
unum eftir próf. Harald Níelsson.
Flestir munu kannast við fyrra
hindið, sem kom út fyrir ríokkrum
árum, og öðlast hefir mikla út-
brciöslu og orðið mörgum kært.
Af ])ví að mér er all-kunnugt efni
þessa bindis, sem nú er að koma
út, vil eg fara um það nolckrum or'ð-
um.
Öllum, sem lesið hafa fyrra bind-
ið, er kunnugt andríki og snild höf.
í framsetningu. Þeir eiginleikar
koma einnig glögglega fram í þessu
bindi. Eldmóður höf., trúartraust
hans og óvenjulegur fróðleikur um
biblíuleg og guðfræðilég efni, skín
alstaðar út úr ræðunum. Þær eru
ekki neitt „prestiegt mas“ uppi í
skýjunum, sem hvorki ræðumaður
né áheyrendur taka alvarlega. Þar
er lögð öll stund á að fræða menn
um uppruna ýmsra kirkjukenninga
og hvernig skilja skuli ýmislegt í
ritningunni. Og höf. er ekki hrædd-
ur við að andmæla þeirn kenningum,
er hann telur rangar eða ranglega
boðaðar, heldur segir skoðun sína
hispurslaust. Er það bæði nauðsyn-
legt vegna áheyrendanna og virð-
ingarvert af prédikaranum; það er
svo sjaldgæft. að menn þori að
kannast við skoðun sína, ef hún fer
að einhverju leyti í bága við al-
menningsálitið.
Meira ber í þessu bindi en hinu
fyrra, á boðun þeirrar þekkingar,
sem fengin er fyrir rannsókn dular-
fullra fyrirbrigða. Hof. var í upp-
hafi mjög varkár um þá boðun í
fÁ. \
ræðum sínum. Að vísu dró hann
aldrei dul á skoðanir sinar, en hon-
um var ljóst, að ekki dugir að ala
smábörn á fæðu fullorðinna manna
né að segja alveg ófróðum mönn-
um um slík efni frá mestu stór-
merkjunum í sambandi við það mál.
En á síðari árum vissi hann, að búið
var að fræða almenning svo mjög,
að miklu leyti með starfi hans sjálfs
og samherja hans, Einars H. Kvar-
ans rithöfundar, í Sálarrannsókna-
félaginu og annarsstaðar, að óhætt
væi að láta meira bera á boðun
þessa máls; að segja mönnum
meira og gera ráð fyrir, að það
yrði þeim til hjálpar, en ekki
hneykslunar. Tel eg það vel farið,
því að eg hygg nú vera kominn
tíma,til að boða þetta mál óttalaust
og láta ekki undan efasemdarmönn-
unum x neinu, enda er efi þeirra
oft og einatt ekki annað en fagurt
nafn á fáránlegri vanþekking.
Ekkja próf. Haralds, frú Aðal-
björg Sigurðardóttir, hefir valið
ræðurnar og gefið safnið út. Valið
á ræðunum virðist hafa tekist mjög
vel, þegar þess er gætt, að binda
varð sig við vissa helgidaga. Safnið
er mjög fjölbreytt, kemur víða við
og morg vandamál eru tekin þar
til meðferðar og úrlausnar. Er það
að lokum ósk mín, að andi sá, er
birtist í ræ'imm sr. Hai-alds, andi
sannleiksleitarinnar, sannleiksástar-
innar og djörfungarinnar, megi æ
rneir svifa yfir vötnum íslenskrar
kirkju og kristindóms; þá mun því-
hvorutveggja vel farnast.
Jakob Jóh. Smári
Háskóiastúdentar munu á
rnorgun gangast fyrir liátí'ða-
höldum til minningar um við-
urkenningu Dana á fullveldi
voru. Stúdentar hafa síðustu
ár stofnað til hátíðahalda
þenna dag, en nú virðist vera
sérstök áslæða til þess vegna
tíu ára afmælis sambandslag-
anna.
Iiátiðahöldin hefjasl með
því, að stúdentar, ungir og
gamlir, safnast saman kl. 1 á
Mensa academica og ganga
þaðan í skrúðgöngu til Alþing-
ishússins, og mun Lúðrasveit
Reykjavíkur ganga á undan
flokknum og leika á iúðra. Þá
heldur Tryggvi Þórhallsson,
forsætisráðherra, ræðu af svöl-
um Alþingishússins. Að ræð-
unni lokinni, mun Lúðrasveit-
in enn ieika nokkur iög á Aust-
urvglli.
Þá verða skemtanir i báðum
bióhúsúnum, og munu þær
hefjast kl. 4. Þar hefir ailur al-
ménningur aðgang, og er þess
að vænta, að bæði húsin verði
full, því að til skemtananna
hefir verið vandað eftir föng-
um. Hingað til liefir skemtun
einungis verið liöfð í öðru hús-
inu, en aðsókn í fyrra var svo
mikil, að margir urðu frá að
hverfa, og þvi er þetta ráð.upp
tekið. Sérstaklega skal á það
bent, að Stúdentakórinn, sem
sjaldan liefir látið til sín
heyra, mun syngja á báðum
skemtununum. Þá munu og
nokkrir liáskólastúdentar lesa
r
Wichfflann motorar
endupbættip.
Motorar þessir hafa verið endurbættir þannig, að vatns-
notkun er nú óþörf og olíusparnaður meiri en áður. —
Gamlar Wichmann vélar má endurbæta með lítilli breyt-
ingu. — Nánari upplýsingar gefur
Þ6p3up Sveinsson & Co.
Aðalumboðsmenn.
I
«ÍOÖOOOOOÍÍíXXXKÍíXSOOOOOOO«lf
~Z /þJt' ,"|SA naiiiiMlaiiiaiaÍMH<||
Símí Si<>
XXXXiOOOOfXXXXXXXXXXXXXXXX
upp kvæði eftir sig á annari
skemtuninni. Auk þess verða
ágætir ræðumenn á báðum
stöðum, þjóðkunnur upplesari
og ágætir hljómlistamenn, svo
sem nánara má sjá af auglýs-
ingu hér í blaðinu. Allur ágóði,
sem af skemtunum þessum
verður, rennur til Stúdenta-
garðsins, sem nú er byrjað að
byggja; í dag eða næstu daga
verður lokið við moldargröft í
grunni lians, en við gröftinn
hafa stúdentar sjálfir unnið
ókeypis, eins og kunnugt er.
Stúdentablaðið mun og koma
úl þenna dag. Það er einkum
lielgað sambandslögunum, og
rita um þau ýmsir nafnkunnir
menn. Benedikt Sveinsson al-
þm. ritar aðalgreinina. En aulc
lians rita ýmsir þjóðkunnir
menn um málið. Má þar til
nefna Ágúsl H. Bjarnason,
Harald Guðmundsson, Jakob
Möller, Jóhannes Jóiiannesson,
Magnús Jónsson, Óiaf Lárus-
son, Ólaf Thors, Sigurð Eggerz
og Sigurð Nordal. í grcinum
þcssum er ýmsum ólíkum
skoðunum haldið fram og
munu þær vekja mikla athygli.
Ludvig Guðmundsson, skóla-
stjóri, segir frá síðustu utanför
sinni og minnist margs i því
sambandi. Hann er ali-harð-
skeyttur til sumra skóla hér,
einkum Mentaskólans og Há-
skólans. Fer hann liörðum orð-
um um fyrirkomulag guð-
fræðideildarinnar og kemur
þar með róttækar tíllögur til
breytinga. Þá eru kvæði og rit-
smíðar eftir stúdenta um ýmis-
leg málefni. Auk þess eru þar
myndir af nokkrum þektum
mönnum, og liafa stúdentar
gert þær allar. Blaðið er mjög
vandað að ytra frágangi, með
þylckri kápu. Það mun verða
til sölu á götunum allan dag-
inn og í anddyri Háskólans
mun liggja frammi listi, sem
menn geta skrifað nöfn sín á,
ef þeir vilja gerast fastir
áskrifendur. Þar mun og Scl-
skinna verða til sýnis.
Um kveldið verður dansleik-
ur fyrir stúdenta í Iðnó og
mannfagnaður á Hótel ísland,
og gengst Stúdentafél. Rejdcja-
víkur fyÆr honum.
Morgnnblaðið
og Sogsvirkjnnin.
Herra xátstjóri.
Út af ummælum Morgunblaðsins
]). 25. nóv. og áður, um framkomu
mína í samningaumleitunum við
þýska rafmagnsfélagiS „A. E. G.“
í surnar, og um fyrirspurn hins
danska umboðsmanns félagsins í
Kaupmannahöfn til rafmagnsstjóra
Steingríms Jónssonar um mig, vildi
eg mega biðja y'Öur um rúnx fyrir
stutta skýringu.
Morgunblaðið hefir ílutt það
sem ástæðu gegn rökum þeim, sem
eg hefi haldið fram til stuðnings
því, að Reykj avíkurbær ætti nú þeg-
ar að ráðast í virkjun Sogsins, að
umboðsmaður Jxýska félagsins x
Danmörku hafi símað hingað í sum-
j ar og spurt m. a.: „Er hægt að taka
Sigurð Jónasson bæjarfulltrúa al-
varlega?“ o. s. fi-v. (Mgbl. I/. nóv.),
og síðar segir blaðið að þessi maður
hafi spurt. hvort eg væri „verður
þess að talað væri við mig um þessi
mál, hvort rétt væri að taka mig
alvarlega“ (Mgbl. 25. nóv.).
Til ]:>ess að almenningur rnegi sjá,
hversu sanngjörn og rétt þessi ])ýð-
ing Mgbl. er, skal hér með birt hið
umrædda símskeyti, rétt þýtt:
Símskeyti. RP 12.33. 18. ágúst
1928. Forstjóri Steingrímur Jóns-
son, Reykjavik. — Hefi frétt að 45
kílómetra frá Reykjavík eigi nú að
virkja 7000 kílówatt af 40.000 kíló-
watt-vatnsafli, með ábyrgð ríkis og
bæjarfélags. Er það rétt? Er ti-ygg-
ing fyrir að notuð verði 7000 kíló-
watt, og viljið þér ráðleggja mér að
firrna mitt hugsi urn að taka að sér
virkjunina senx aðalverktaki, og ef
til vill einnig leggi fram fé til þess.
Er bæjarfulltrúi Sigui-ður Jónasson