Alþýðublaðið - 07.05.1920, Side 1
Gcíið ilt af Alþýðuflokknum.
1920
Föstudaginn 7. maí
102. tölubl.
Alþbl. er blað allrar alþýðu!
fri sambanðsrikinn.
Khöfn, 5. maf.
Ðanir taka við Suður-Jótlandi.
Danskt herlið hélt í dag inn í
1. atkvæðahérað SuðurJótlands,
og var hvarvetna tekið með mikl-
um fagnaðarlátum, nema í Tonder.
Þar var þeim tekið með alvarleg-
um „demonstrationum".
Khöfn, 5. maf.
Danir og Pjóðverjar.
Danir og Þjóðverjar semja nú
um það, á hvern hátt Danir skuli
taka við völdum (civiladminstrati-
onen) í 1. atkvæðahéraði Suður-
Jótlands.
Khöfn, 5. maí.
Slésvík.
Slésvíkurmálið verður lagt fyrir
sendiherraráðstefnuna í París á
morgun.
Pöllanð og Ukraine.
Khöfn, 5. maí.
Póíland hefir gert samning við
Ukraine. Fá Pólverjar Austur-
Galiziu og Volhyniu.
Jranskt hajnarverkjall.
Khöfn, 5. maí.
Frá París er símað, að hafið sé
i Frakkiandi hafnarverkfall, sem
gjörstöðvi allar skipagöngur.
Stórvirkin.
Morgunbl. segir að bærinn hafi
brotist í hverju stórfyrirtækinu
eftir annað, og því sé von að
gjöldin séu þung og skuldir mikl-
ar. Hvaða „stórfyrirtæki" eru þaðf
Gasstöðin var komin fyrir tíð
Zimsens, þótt hann ætti þar hlut
að máli, blessaður, lofsællar minn-
ingar. Vatnsveitan var lika komin
áður. Hvað hefir þá verið gertf
Vatnsgeymirinn var bygður, og
var gagnslaus vitleysa frá upphafi.
Götuspottar hafa verið steinlagðir,
en það er svo illa unnið, þrátt
fyrir hagsýnina og verkhygnina,
að óumflýjanlegt er að endurbæta
mjög bráðlega. Austurstræti er
hólótt, eins og vegurinn í Svína-
hrauni, og á Laugaveginum og í
Lækjargötu eru rennusteinarnir
farnir að detta niður úr.
Og þá má ekki gleyma BPóI-
unum“. Þar beit nú skömmin
höfuðið af sjálfri sér. Slönguturn-
inn og efri hæðin á brunastöðinni
er víst eitt „stórfyrirtækið", en
fleirum man eg nú ekki eftir í
bili. Væri gott, ef Mgbl. vildi
ryfja þau upp fyrir mönnum, sem
eftir eru, því annars er hætt við
að menn muni ekki eftir þeim á
laugardaginn.
Á yfirstandandi ári sést ekki
að annað eigi að gera, sem til
frambúðar mætti verða, en að
dytta að „Gamla spítalanum",
girða Austurvöll og malbika nokk-
ur skref af götum. Þó er jafnað
niður nærri 2 milj. kr. Er nú
nokkur furða, þótt menn spyrji
hvað verði um féðf Er ekki von
að menn gruni, að kettirnir fari í
mjólkina? Einhver fleytir rjómann.
Kláus.
Eini maðurinn af bæjarfulltrú-
unum sem fengist hefir til að
leggja nafn sitt við hégóma og
mælt með Knúti er Kristján
„okkar" Guðmundsson.
Msemi Knud Zimsens.
„Dugnaðarmaðurinn“
afhjúpaður.
A. J. Johnson bankaritari ritar
fróðlega grein í Vísi nú þessa
dagana (greinin byrjaði að koroa
út síðastl. föstudag), þar sem hann
afhjúpar algerlega hinn »duglega«
og »verkhyggna* borgarstjóra,
sem vér bæjarbúar höfum orðið
að búa að sfðustu árin. Er ekki
ólfklegt, að mönnum sé forvitni.á
að heyra á hve miklum rökum
vindglamur Morgunblaðsins1 eða
spýja sú, sem hr. Pétur Zophonías-
son2 lætur smala sína bera út um
bæinn, er bygt.
Um fjármálin er það að segja,
að með hverju árinu hafa skuldir
bæjarins aukist stórum, án þess
að sýnilegar séu þær umbætur,
sem slfkur takmarkalaus fjáraustur
hefði átt að hafa í för með sér.
Alt þetta hlýtur að koma niður
á bæjarbúum, enda sýnir hækkun
aukaútsvaranna sfðustu árin greini-
Iega, hve kostnaðarsöm fjármála-
speki Knúts hefir verið. / miljón
og poo þús. kr. Á þessum árum
hafa þau tólffaldast. Hver vill svo
hrósa þessari Qármálaspeki f Ekki
er við öðru að búast, en að al-
þýða manna kunni illa við slíkt.
1) Vitanlega kemur engum til
hugar að marka Mgbl., því það
vcrður altaf að fylgjast með meiri-
hlutaákvörðunura fulltrúaráðs Sjálf-
stjórnar.
2) Almenningi þykir víst fróð-
legt að vita hve föst og ákveðin
skoðun hr. P. Z. er, þegar hann
gengur til kosninga. Nokkru fyrir
þingkosningar sfðastl. haust, var
hann, a. m. k. eftir þvf sem hon-
um sagðist sjálfum frá, fastráðinn
í því að kjósa Þorv. Þorv. og Ól.
Fr., ef þeir yrðu í kjöri. Allir
muna hvernig hann hagaði sér við
þær kosningar; hann vann þvert
ofa* í áður lýsta skoðun sína.
Svona er sannfæring þeirra Knúts-
sinna.