Vísir - 22.09.1929, Síða 5
VÍSIR
Sunnudaginn 22. sept. 1929
Gassuðuvélar
stórar og smáar, eldavélar af mörgum gerðum, svartar og
smeittar, ofnar, svartir og smeittir, primusar, og yfir höfuð
allskonar eldfæri.
Gerið svo vel og athugið vörurnar og verðið.
Helgi Magnússon & Co.
Útvarp, (
tónlistarskóli, hijómsveit.
—o—
Eg tek mér hér fyrir hendur
aö gera grein fyrir því, hverja
þýSingu eg álít aö útvárp geti haft
fyrir íslenska menningu. Er þaö
gert í þeim tilgangi, aö hvetja
menn til nánari íhugunar þessa
máls, glæiSa áhuga fyrir þvi og
koma til leiöar að möguleikarnir
fyrir heppilegri tilhögun útvarp-
sins í efnalegu og menningarlegu
tiiliti, veröi teknir til meöferöar a'ö
nýju. Aö eg finn hvöt hjá mér til
þess, aö láta í ljós skoðanir mínar
í þessu efni, stafar af því hvað eg
er hrifinn af ísandi, islenskri
menningu og aö eg ann íslensku
þjóöinni alls góös.
Þaö kann aö viröast óviöeigandi
framhleypni af mér, aö hreyfa
þessu máli. I því sambandi, vil eg
tilfæra mér til málsbóta, að eg
he.fi haft tækifæri til þess aö
kynna mér ítarlega allar aöstæöur
hér á landi, þar eö eg hefi liaft á
hendi i ár stjóm tónlistafélags
og -skóla á Akureyri og síöar kom-
ið aftur til landsins fjórum'sinn-
um, til þess að halda hér hljóm-
leika. ||
í þessu sambandi vil eg einnig
geta þess, að þegar eg hvarf aftur
til Þýskalands 1924, kom eg ein-
mitt í' tæka tið, til þess aö geta
fylgst meö byggingu hinnar stóru
Langenbergstöðvar. Átti eg þar
nokkurn þátt í samsetningu efnis-
skránna, sá um útvegun margra
merkra listamanna og ennfremur
fékk eg oft tækifæri til þess aö
spila sjálfur viö ýmsar útvarps-
stöövar.
Það, sem hlýtur að verða aöal-
hlutverk íslensku útvarpsstöðvar-
innar, er að fullnægja fróðleiks-
fýsn og sérstökum. andlegum þörf-
um íslensku þjóöarinnar, því aö' ef
útvarp, sem stenst strangar kröf-
ur, áaö geta þrifist hér, þá er skil-
yrðiö þaö, að fyrir hendi séu ó-
uppfyltar óskir eöa andlegur
}>orsti, sem yrði svalaö meö hjálp
nýjustu uppgölvana. Eg er sann-
færður urn þaö, aö hugsunarlaus
eftirherma á tilhögun erlendra
stööva eöa gagnrýnislaus upp-
tugga efnisskránna, gæti engan-
veginn átt viö hér, heldur mundi
þaö verða íramgangi fyrirtækis-
ins þrándur í götu, eða jafnvel
leiða til algjörðrar stöðvunar, ef
ekki yröi tekiö fult tiilit til lan'ds- ■
hátta hér. Á hvaöa grundvelli á |
nú síík stofnun aö byggjast, til
þiess aö hún eigi framtiö fyrijr
höndum ? í
Megin reglan ætti aö vera: eins
fjölbreytt og marghliða efnisval og
hægt er, og þar næst: að kapp-
kosta að meðferð þess, sem flutt
er verði vönduð sem frekast er unt;
Þaö er auðsætt, aö áheyrendur
geta því aöeins haft ánægju til
lengdar af útvarpsviðtalca sínum.
ef óskir fólks af öllum stjettum
eru teknar til greina og hinum
margvíslegustu áhugaefnum 'sint.
Þaö er einnig deginum ljósara, aö
ómerkileg viðfangsefni og viðvan-
ingsleg meðferö mundi hafa
óánægju eöa jafnvel uppsögn i
för meö sér, sem auðvitað hefði
óheillavænlegar afleiöingar fyrir j
fjárhagslega afkomu útvarpsins. i
Hve miklir þeir erfiöleikar eru,
sem þarf að sigra, til þess að of-
angneindar meginreglur geti kom-
iö til framkvæmda. því hcfi eg
sjálfur fengið að kenna á, þann
tima, sem eg starfaöi á Akureyri,
þar sem reyndar er um smærri
skilyrði aö ræöa en hér. Áhuginn
fyrir göfugu takmarki, fórnfýsi
einstakra Akureyringa, miklar og
langvarandi tilraunir til þess aö
glæða tónlistalífið endaöi alt meö
deyföarmóki af því að brátt gat
engum dulist lengur aö ómögulegt
var að fullnægja ofangreindum
tveimur meginkröfum.
Skiljanlega var ómögulegt fyrir
litiö félag tónlistarvina, eins og
þaö var á Akureyri, að útvega
það fé, sem því miöur er óhjá-
kvæmilegt skilyrði fyrir menning-
arstarfsemi.
Það mun réttast aö taka hina
fjárhagslegu hlið þessa máls fyrst
til athugunar. Þrjár leiðir eru það'
aðallega, sem lig'gja til úrlausnar
þessa máls. í fyrsta lagi heföi ver-
ið hugsanlegt aö einstakir menn
kostuöu útvarpsstöðina, í öðru
lagi heföi veriö hægt að mynda
félag sem stæöi fjárhagslega á
bak við hana, en læsta úrlausn
þess vandamáls er sú sem nú er
orðin aö ríkisstjórnin taki það i
sínar hendur. En þar með er elcki
hin endanlega úrlausn málsins
fengin, það þarf að gera víðtækari
ráöstafanir, aö standa. straurn
af kostnaði fyrirtækisins í fram-
tíöinni með því að sameina, aö svo
raiklu leyti sem unt er svo að segja
allar stofnanir, sem korna viö hiö
opinbera menningarlíí.
í rauninni finst mér hægt, aö
’ialda svo góðu jafnvægi um tekj-
ur og gjöld útvarpsins, að það
beri sig sjálft. Já, tneira en það:
fjárhagsleg afkoma slíkrar stofn-
ur.ar getur verið svo glæsileg, aö
stuöningur geti orðið fyrir aöra
menningarstarfsemi hér á landi,
sem erfitt á uppdráttar ennþá, en
aftur gæti kornið útvarpinu aö
gagni. Eg á hér bæöi viö symfonie-
hijómsveitina, sem er i myndun,
tónlistarskólann, sem enn vantar
og fl.
Setjurn svo aö væntanlegir not-
endur útvarpsins yröu:
i Reykjavik og Hafnarfiröi 1500
Vestmannaeyjum ............... 200
Akureyri ..................... 200 (
ísafiröi ..................... 75
Seyðisfiröi .................. 75
úti um sveitir .............. 3°oo
Samtals 5050
sem væri líklega nærri sanni. Þá
yrðu tekjurnar ca. 180000 kr. tneö
3 kr. mánaðargjaldi. Undir engum
kringumstæöum mætti heimta
hærra gjald, því aðalástæöurnar
fyrir hinni miklu útbreiöslu út-
varpsins er lágt iðgjald og fjöl-
breytt efni. (1 Þýskalandi er
mánaöargjaldið t. d. 2 mk., í Hol-
lándi er móttakinn ókeypis.)
Meö tilliti til beggja aðal skil-
yröanna fyrir því að útvarp geti
orðiö langlift, þ. e. eins fjölUreyti-
legt efnisval og eins vönduð ineð-
íerð og frekast er unt, þá gefur aö
skilja, aö það sé miklum erfið-
leikum bundið, já jafnvel ókleift,
að veröa viö eðlilegum kröfum
svo margra og ólíkra áheyranda.
Af þessu leiðir að brýn nauösyn
er á því, aö handbæru fé eöa tekj-
um sé varið til vöndunar á því,
sem flutt er.
Hvernig þetta ætti að veröa í
einstökum atriöum, befi eg hugsaö
mér á þessa leið: Það Hggur i
eöli útvarpsins aö þaö flytur aö-
eins til eyrans (aö Ininsta kosti
fyrst um sinn meðan ekki hefir enn
sýnt sig, hvers vænta má af
mynda- og kvikmyndaútvarpi).
Þaö gefur að skilja, að það efnis-
val muni ná mestum vinsældum,
sem best samrýmist þeirn skorö-
um, sem útvarpinu eru settar, þar
sem minst verður saknað hins
beina persónulega sambands. Þar
er náttúrlega tónlistarflutningur
í fyrstu röö. Þar næst kæmu fyrir-
lestrar, upplestrar og þess hátt-
ar þar sem ýmsir gallar, sem eru
ólijákvæmilegir á öllu útvarpi,
mundu gera meira vart við sig.
En aftur á móti yrði að taka þaö
lil greina, að áhugi fyrir fyrir-
lestrum og tungumálanámi er sér-
lega mikill á íslandi. Aö síðustu
kæmi til mála sjónleikir, söngleik-
ir o. s. frv., í þessu sambandi yröi
auðvitaö einnig aö taka tillit til
óska áheyrenda, og ejns yröi yfir-
leitt að leitast viö, aö náin sam-
vinna væri milli útvarpsstjómar
og -notenda. Frh.
Kurt Haeser.
Skattarntr.
Tekju- og eignaskattur á aö
vera lagður á samkvæmt föstum
lögum og reglum. Það kemur þvi
mörgum undarlega fyrir sjónir,
hvernig hann hefir vcriö lagöuf- á.
í vetur. Þaö er eölilegt, að hann
hafi yfirleitt hækkaö, því’allur at-
vinnurekstur gekk með besta móti
i fyrra, en það er óskiljanlegt
hvernig hann getur hækkaö um alt
að yí hjá mönnum, sem hafa fasta
atvinnu og sama árskaup ár eftir
ár, vinnuveitandi gefur skrá yfir
kaupgjaldið, og aldrei um neinar
aukatekjur _ að ræða. Eg þekki
mann sem síðustu ]>rjú árin hiefir
haft nákvæmlega sania kaup.
Vinnuveitandi og hann sjálfur
hafa árlega gefið skattstofunni
rétta skýrslu um kaupið. Tekju-
skatturinn var árin 1927—8 kr. 76,
en i ár 112 kr, og þetta og þvi um
likt veröa rnenn að þola bótalaUst,
þó rangt kynni að vera, ]ivi mienn
sem eru í fastri vinnu eiga ekki
aðgang aö þessari skattskrá, sent
liggur frammi part úr nokkrum
virkum dögum, og seðlarnir eru
ekki bornir út fyr en löngu eftir
aö kærufrestur er útrunninn. Væri
það nú til ofmikils mælst, að hér
eftir yröi skattskráin prentuð, svo
menn gætu keypt hana eins og
niöurjöfnunarskrána. Þaö þyrftu
væntanlega ekki aö vierða tilfinn-
anleg útgjöld fyrir ríkissjóöinn. Af
því fáir hafa skattlögin við hönd-
ina vildi Vísir máske segja þeim,
sem þetta ritar, hvað skatturinn
átti eftir lögunum að vera hár af
kr. 4500. Eignir mannsins eru
innan viö 1000 kr.
Skattþegn.
Svar:
Af 4500 kr. árstekjum einhleyps
og skuldlauss gjaldanda eru 4000
kr. skattskyldar, og ber lögum
samkvæmt aö greiða 72 kr. í skatt
ti1 ríkissjóös af þeirri upphæö. —
Skattþegn sá, sem dæmið er tek-
ið af í ofanritaðri grein, ætti að
snúa sér til skattstofunnar og fá
loiðréttar misfellur þær, sem virö-
ast hafa orðið, er skattur hans var
ákveðinn síðast. — Veröur að sjálf-
sögðu auðsótt mál, að fá þessu
kipt í lag.
Ritstj.
JÖCSOtS5SOÖÍ10ílíl!SiiÖtHÍÍÍ5SOíÍ5SíXXSOOíÍOOOOOCXÍ«íXSOtÍOÍSOO<ÍötSÍ>íXXÍCO<
O
Dynamolugtir
á veiðhjól.
,BOSCH“, 2 tegundir fyrirliggjandi.
BERKO“, 2 ---- ----------1
ECCA“, 2 ----- ----------
Reynslan hefir sýnt það hér, sem annarsstaðar,
að „Bosch“ heimsfrægu reiðhjólalugtir eru þær
bestu, sem til landsins flyt jast.
Reibbjolaverksmtðjan Fálkinn.
}05S5S5S5S05S5S5S5S5S0005S05S5S5S5S5S05S005S<S0005S05S5S5S000005S5S05S005305S5StXX
Vetrarkápur kvenna, verð frá kr. 24,00, kjólar, ullar, frá
11,75, kjólar, silki, frá 15,75, kvenhattar, kápuskinn í metra-
tali, einnig tilbúnir pelskragar.
Verslun
Kpistínar Sigupðapdóttup,
Laugaveg 20 A.
Nýkomid:
Mikið úrval af fataefnum.
Rykfrakkamir góðu, allar
stærðir. — Reiðbuxur og
reiðfataefni.
G. Bjarnason & Fjeldsted
Niðursuðuáhölð,
Bnsáliöld
úr alaminlam
ofl emailernð.
Vepeluu
Sig. Þ Skjaldberg
Laugaveg 58. Símar 1491 og 1953.
Akranes kartðflur
i ÍO kp. poklnn.
Trygging viðskiftanna eru
vörugæði.
Haglabyssnr, rifflar og fjár-
byssnr. Skotfæri allskonar.
LÆGST VERÐ.
Sportvöruhös Reykjavíknr,
(Einar Björnsson)
Bankastr. 11. — Sími: 1053, 553-
Lillu-
límonaðh
púlver.
Besti og
ódýrasti
drykkurinn.
Aðeins 15 aura glasið.
fl.f. Efnagerð Reykjavíkur.
Yerslun
Vald. Poulsen.
Klapparstíg 29.
"WMIMIMMHHSF^HWStannnnftMSSS
Bronatryoolnoar 58
Sítui 254.
I slátur
Rúgmjöl og alt krydd í slát-
ur og rullupylsur höfum við
eins og að undanförnu. Gerið
svo vel og hringið í síma 448.
Alt sent heim samstundis.
VON OG BrEKKOSTÍGI.
Nokkurir svenskir
Disterar og
Jakkaklæðnað r
seljast í nokkura daga með inn-
kaupsverði
Reioh. Andersson,
Laugaveg 2.