Vísir - 20.11.1929, Page 2
VlSIR
*
Höfum fyfipíiggjandi s
RÚÐDGLER
í» A KP AP P A
ÞA KJARN
Þeasap vörur eru bestar ódýrastar
fri okkup.
Stoppod
tiúsgögn.
Bý til ný og tek gömul til við-
gerðar. — Dívanar fyrirliggj-
andi. — Vönduð vinna og efni.
FRIÐRIK J. ÓLAFSSON,
Hverfisgötu 30.
Lög við IiáííMrijoð
1930.
Páll ísólfsson fær 1. verðlaun.
Emil Thoroddsen II. verðlaun.
FB. 19. nóv.
Undirbúningsnefnd Alþingishá-
tíðarinnar 1930 tilkynnir:
Dómnefndin um söngvana við
liátiðarljóöin 1930 hefir lagt
fyrir hátíðarefndina svo látandi
álit og tillögur, sem hátiðar-
nefndin óskar birt í lieild, út af
ósönnum sögusögnum, er geng-
ið hafa um málið hér í bænum:
Vér undirritaðir, er kvaddir
vorum til þess að dæma um
hátiðasöngva í tilefni af 1000
ára afmæli Alþingis, leyfum
oss hér með að tilkynna, að vér
hófum starf vort 26. okt. þ. á.
og að vér í dag höfum orðið á-
sáttir um eftirfarandi tillögur:
Það varð oss, hverjum um
sig, brátt ljóst, að af öllum
þeim verkum, er send voru,
mundi ekki verða nema milli
tveggja að velja, sem báru tví-
mælalaust af hinum, sem sé há-
tíðarsöngvar Páls ísólfssonar,
er hann hafði að öllu leyti geng-
ið frá í píanó-búnaði, og Emils
Thoroddsens, er Iiann hafði að
nokkuru búið fyrir liljóðfæra-
flokk, en ekki eru fullsamdir,
með því að lítið eitt vantar á
niðurlag tónsmíðarinnar. Var
þó ekki tekið tillit til þess við
dómsúrslitin. Eftir sameigin-
legan lokafund um málið er
niðurstaða vor sú, að tónsmíð
Páls ísólfssonar sé best fallin til
flulnings á hátíðinni, með því að
hún gerir livort tveggja, að lýsa
gáfum og hagleik, og er auk
þess skýr að framsetningu og
auðskilin að efni. Þó getum vér
ekki afdráttarlaust metið hon-
um 1. verðlaun fyrir verkið,
nema hann vilji gera breyting-
ar á tilteknum minni háttar atr-
iðum, sem lionum mun verða
bent á. Þegar þessar breytingar
hafa verið gerðar, svo að oss
þyki fullnægjandi, leggjum vér
til, að verk Páls Isólfssonar
Mióti 1. verðlaun og verk Emils
Tlioroddsens 2. verðlaun.
Vér viljum um leið taka það
fram, að einstakir þættir í tón-
smið Emils Thoroddens hafa
vakið alveg sérstaka atliygli
vora fyrir sakir hugkvæmni
þeirrar og skáldlegra tilþrifa,
sem þar verður vart. Bregður
þar og fvrir frumlegum blæ,
sem kemur mönnum á óvart.
En kunnátta ogleiknierþvímið-
ur ekki á borð viðeðlisgáfuhans.
Best að augiysa í VlSI.
Höfum vér því, að vandlega at-
huguðu máli, komist að fram-
anritaðri bráðabirgða niður-
stöðu.
Khöfn, 8. nov. 1929.
Carl Nielsen. Sigfús Einarsson.
Haraldur Sigurðsson.
Hátíðarnefudin hefir samþykt
tillögur dómnefndar um að
Veita Páli Isólfssyni 1. verðlaun
með þeim skilyrðum, er i álit-
inu greinir og taka tónsmíð lians
til flutnings á hátíðinni, og að
veita Emil Thoroddsen 2. verð-
laun.
Símskeyti
Khöfn, 19. nóv. FB.
Bæjarstjórnarkosningar
í Þýskalandi.
Frá Berlín er símað: Bæjar-
stjórnarkosning fór fram hér í
fyrradag. Socialistar töpuðu 9
sætum, þjóðernissinnar Hugen-
bergs 7, demokratar 7 og smá-
flokkarnir 5 sætum. Kommún-
istar unnu 13 sæti, þjóðflokkur-
inn 2, þjóðemissinnar, Hitlers,
13.
Socialistar og kommúnistar
hafa til samans meiri hluta í
bæjarstjórninni, nefnilega 120
af 225 sætum, en þess er ekki að
vænta, að samvinna takist á
milli þeirra. — Miðflokkarnir
og socialistarnir, sem að und-
anförnu hafa unnið saman í
bæjarstjórninni, töpuðu meiri-
hlutanum. Þannig liefir enginn
flokkur meiri hluta og búast
menn við, að nauðsynlegt verði
að efna til nýrra kosninga áður
en langt um liður.
Niðurstaðan i öðrum bæjum
varð mjög mismunandi. Soci-
alistar sigruðu glæsilega i ein-
um bænum, en biðu lægra hlut
i öðrum. Svipað er að segja um
hina flokkana, nema Hitlers-
sinna, sem næstum því alstað-
ar unnu á, en á kostnað Hugen-
bergssinna.
Bretar og undirróður Rússa.
Frá London er simað: Cliam-
berlain, fyrv. utanríkismálaráð-
herra, hefir gert fyrirspurn i
þinginu út af því, að sovietblað-
ið Isvestia hefir birt ritstjórnar-
grein, sem í stendur, að Inter-
nationale kommúnista sé eklci
bundinn af skuldbindingum
bresk-rússneska samningsins
um að forðast undirróður.
Henderson svaraði og kvaðst
álíta, að skuldbindingin gildi
einnig fyrir undirróður Inler-
nationale kommúnista og ætli
breska stjórnin að halda því
fast fram.
Sauðnaiit
00 hreinflýr.
i.
Sorglegl væri ef hin slysa-
legu mistök með loðkálfana
yrðu til þess að lcveða niður
áhuga þann, sem eflst liefir
liraðfara hér á landi síðustu ár-
in, um að hagnýta betur en
liingað til hið geysimikla hag-
lendi á afréttum vorum og ör-
æfum, er telja má algerlega ó-
notað mestan hluta ársins. Er
enginn vafi á, að þar myndu
sauðnaut fylla alhnikið skarð
á vissum slóðum, svo að liagur
væri í, er fram liðu stundir, ef
vel væri á haldið.
Það væri ástæðulaust og
barnalegt að gefast upp við
merkilega tilraun sökum slysa,
sem altaf mátti búast við, þar
sem í hlut átti óþroskað og móð-
urlaust ungviði, er eðlilega
þurfti alveg sérstaka hirðu og
nákvæma.
Til að bæta úr tjóni þessu og
vonbrigðum, ætla ég á ný að
benda á leið þá, er ég mun liafa
drepið á í „Vísi“ fyrir 3—4 ár-
um. Átti ég þá um hrið bréfa-
skifti við einn nafnkunnasta Is-
hafsfara og éttgerðarmann í
Noregi. Taldi hann mjög líklegt
að komast mætti að hagkvæmu
samkomul. við einhvern reynd-
an „selveiðara“ um að „leggja
lykkju á leið sina“ og ná i nokk-
ur sauðnaut og flytja til íslands
(fullorðin naut og kálfa). Bjóst
hann við, að fá mætti t. d. 10
sauðnaut á þenna hátt gegn alt
að 10,000 lcróna greiðslu. Hafa
Norðmenn alloft tekið fullorð-
in sauðnaut þar nyrðra og flutt
heim til Noregs.
Fengjust t. d. um 10 fullorðin
sauðnaut, hingað komin, fyrir
10,000 kr„ teldi ég réttast að
leita fyrir sér í þessa átt liið
allra bráðasta. Gæti vel komið
til mála, að stjórnin sendi einn
góðan mann með í þann leið-
angur og kæmi þá reynsla hans
að haldi síðar meir, ef á þyrfti
að halda.
H.
Eins og suma mun reka minni
til, hefi ég ritað allmikið síð-
ustu fimm árin um innflulning
hreindýra frá Noregi (tamin
dýr). Erú nú full 20 ár síðan
ég hreyfði þessu fyrst í íslensk-
um blöðum, svo að nýmæli er
þetta eigi! — Undanfarin 4—5
ár hefir verið sótt til stjórnar-
innar a. m. k. þrisvar sinnum
um innflutningsleyfi. en til
þessa hefir því verið synjað, án
þess að nokkur fullgild og fram-
bærileg ástæða hafi verið til
færð. — Hefir þó máli þessu
þokað noklcuð áleiðis síðustu
árin. Áhugi manna og skilning-
ur hefir glæðst og aukist ár frá
ári, og má því telja víst, að leyfi
muni fást innan skamms.
Eg vil játa það hreinskilnis-
lega, að þótt ég sé einn þeirra
mánna, sem gladdist yfir för
„Gottu“ og tilraun jreirri, sem
iþar var gerð, — þá gramdist
mér samt í aðra röndiná „mis-
lyndi“ stjómarinnar, er neitaði
þvert um leyfi til að flytja hing-
að valin hréindýr, en veitti til
hins — að öllu óreyndu — svo
mikið fé, að nægt hefði til að
kaupa og flytja hingað unt 300
hreindýr!
Um skilyrði fyrir hreindýra-
rækt hér á landi þarf eigi að
þrálta né ræða. Þar höfum við
um 150 ára óræka reynslu og
I afar merkilega:
tOOOOOOOOÍXiOOOOOOOOÍSOOOOOÍXSOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO*
í r Teofani j
Np. 1 l
Vipginia 1
„Kings Own“
5 ÍiH'EOFANÍ&CCLTwll
§ >tJL0 ILhd St j(||| 20 stk. 1.25. |
XSCXÍOOOOOOOOOOíJOOOOOOOOOOOOÍiOOOOOíXÍOOOOOOOOOOOOOOOOOOt
HafiiaFfjoFÖiu*
Ásatlunapfepðii* á hvepjum
klukkutíma alian daglnn
TEINDÓRI
ffíiis-ka!li celr sila [Mi
1. Hreindýrin hafa reynst hér
nær „ódrepandi“.
2. Kálfar falla mjög sjaldan,
svo vitað sé.
3. Þroski hreindýra hér á
landi liefir reynst l'ullum
% rneiri heldur en í Nor-
egi, eða ámóta við hinn
mesta þroska, er fengist
hefir í Alaska. En þar eru
skilyrði til lireindýrarækt-
unar talin með afbrigðum
góð!
4. Hreindýrum virðist fjölga
tíltölulega ört hér ó landi
á Vestur-Öræfum (inn af
Fljótsdalsliéraði). Sjást þar
stórir hópar á liaustum,
300—400 dýr í hóp. Og á
seinni árurn hafa sést smá-
liópar á slóðum, þar sem
hreindýr voru alveg liorf-
in áður.----------
Á þvi leikur enginn minsti
vafi, að hreindýrarækt gæti orð-
ið all-arðvænlegur atvinnuveg-
ur liér á landi, sérstaklega í
fjallasveitum, þar sem land-
rými er, og haglendi gott. Hefi
ég fært gild rök að þvi í blaða-
greinum minum undanfarin ár,
enda liggur það i augum uppi,
ef málið er athugað skynsam-
lega.
Utigangssauðirnir gömlu og
frægu eru lir sögunni. Hrein-
dýrin eiga að koma i þeirra stað!
Þá munu afrétti vor og öræfi
verða arðberandi eign, er gefa
mun góða vexti!
Island er í eðli sinu sjálfkjör-
ið hreindýraland! Og hreindýr-
in liafa unnið sér þegnrétt hér
á landi með ódrepandi þreki
sínu og þolgæði, gegn óblíðri
veðráttu og takmarkalausri
grimd skammsýnna manna, í
Iiálfa aðra öld! Eru því hrein-
dýr sjálfkjörinn búpeningur í
flestum fjallasveitum íslands! ■
Helgi Valtýsson.
E.S. Eg ætla að nota tækifærið
og biðja þann, er lánaði lijá
mér „syrpu“ mína, „Hrein-
skinnu“, síðastl. vor, ásamt
tveim skýrslum (Bulletins)
um „Hreinrækt í AIaska“, að
skila mér bókum þessum sem
allra fyrst! Eg þarf nauðsyn-
lega á þeim að lialda! H. V.
RáDagerðir
um flugferðir yfir ísland.
Parísarútgáfa blaðsins Chica-
go Tribune birtir 6. nóv. eftir-
farandi skeyti frá Ottawa:
Canadiska stjórnin liefir nú
fengið áætlanirnar um reglu-
bundnar Atlantshafsflugferð-
ir í sínar hendur. Áætlanirnar
eru samdar af Mr. School flug-
vélafræðingi í Chicago. Sam-
kVæmt óætlunum lians verður
lagt af stað daglega frá Chicago
til Croydon (i Englandi). Aðal
j viðkomustaður i Canada verður
Winnipeg. Ráðgert er að fljúga
þessa leið: Frá Chicago til
Winnipeg, þaðan til Baker Lalce,
þaðan til Dwyer-höfða á suður-
strönd Grænlands, þaðan til ís-
lands, Færeyja og yfir Irland til
Croydon.
School gerir ráð fyrir, að
stofnuð verði 3 félög, er vinni
saman að framkvæmdum í mál-
inu, ameríslcu, canadísku og
ensku fclagi, er beri kostnaðinn
í sameiningu.
(FB).
Leikhúsið.
Lénharður fógeti verður leik-
inn annað kveld kl. 8. Leikhús-
gestum munu þykja það góö tíö-
iudi, aS þá verSa nýir stólar
komnir í staS gömlu bekkjanna.
Hjúskapur.
I gær voru gefin saman í
hjónaband af síra Bjarna Jóns-
syni dómkirkjupresti i Reykja-
vík, ungfrú Guðný 0. Magnús-
dóttir og Brynjólfur Brynjólfs-
son, Selvogsgölu 2 í Hafnarfirði.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Jóhanna Páls-
dóttir frá Arnljótsslöðum í Suð-
ur-Múlasýslu og Jón Ragnar
Þorsteinsson, Ránargötu 8 A,
Reylcjavík.
50 ára
er í dag frú Ragnhildur Magn-
úsdóttir, Hverfisgötu 84.
Jón H. Sigurðsson.
héraSslæknir fer til útlanda í
kveld, og er Björn Gunnlaugsson
settur héraSslæknir í fjarveru
hans, og gegnir öllum embættis-