Vísir - 20.09.1930, Blaðsíða 2
NÝKOMIÐ:
MAGGI’S I
Viðurkendar nærandi og styrkjandi.
SALAN EYKST DAGLEGA.
Símskeyti
London. (ÚP) 19. sept. FB.
Ráðagerð um atvinnubæíur.
Til þess að ráða bót á kreppu-
vandræðunum í Bretlandi, liafa
allmargir kunnir iðjuhöldar
landsins hafið samtök, og hefir
Sir William Morris fyrir þeirra
hönd sent út boðsbréf að fundi,
sem hefst þ. 25. þ. m. Er í ráði,
að stofna ópólitískt þjóðfull-
trúaráð, sem liafi það hlutverk
með höndum að ráða bót á iðn-
aðar- og verslunarmálaerfiðleik-
um, til þess að endurreisa vel-
gengni þjóðarinnar og tryggja
atvinnulíf hennar.
London (UP) 20. sept. FB.
Atvinnuleysi í Þýskalandi.
Berlin: 1 lok ágústmánaðar
var tala hinna atvinnulausu
2,875,000. Margt hefir hjálpast
að til að auka atvinnuleysið nú,
minkandi framleiðsla á öllum
sviðum, sérstaklega er dauft yf-
ir byggingaiðnaðinum, því nær
ekkert er bygt, og loks er at-
vinna minkandi, eftir því sem
nær dregur vetri, en vanalega
fer atvinna ekki að minka fyrr
en lengra líður á. Aðeins 72,2%
af meðlimum verkalýðsfélaga
hafa nú fasta atvinnu, sbr. við
82,2% 1929 á sama tíma. — 400
þúsund verkamanna eða 14%,
sem eru atvinnulausir, eru
einskis stuðnings aðnjótandi,
hvorki frá ríkinu eða sveita- og
bæjarfélögum.
Verkfallshorfur í Þýskalandi.
Berlín: Sáttatilraunir milli
iðjuhölda málmiðnaðargrein-
anna og verkamanna eru byrj-
aðar. Fulltrúi iðjuhölda tilkynti
þegar í byrjun umræðnanna um
breytt launakjör, að Iaun verði
að lækka á. m. k. 15%. — Full-
trúar verkamanna fóru hins-
vegar fram á 7% launahækkun.
— Er búist við verkfalli, uns
sættir takast, en sáltahorfur
eru síst vænlegar eins og sakir
standa.
CJtan af landie
ísafirði 19. sept. FB.
Síldarafli skipa héÖan varð í
sumar:
Hávarður 11.797 mál í bræðslu,
457 í salt. Hafstein 4717 mál. í
bræðslu og 2750 tn. í salt.
Samvinnubátarnir öfluðu:
Ásbjörn 8032, Auðbjörn 5819,
Gunnbjörn 8179, ísbjörn 8762, Sæ-
björn 7560, Valbjörn 8647, Vé-
björn 7062, alt tunnur í bræðslu og
salt. Aðrir bátar héðan öfluðu:
Elín ca. 3000 tn., Freyja ca. 3000,
Percy ca. 2900 tn.
Snorri Sigurðsson fluttist alfar-
inn með Dronning Alexandrine til
Akureyrar og tekur við forystu
nvja barnaskólans þar. Snorri hef-
ir verið skólastjóri á Flateyri í 18
ár og aflað sér trausts og vinsælda
fyrir kenslustörf og ósérplægni í
opinlierum málum. Héldu Flateyr-
ingar þeim hjónum fjölment sam-
sæti við brottför þeirra nú.
Ægir kom hingað í gær með
enskan botnvörpung sem hann tók
við Straumnes, og var hann sektað-
ur um 2000 gullkrónur fyrir ólög-
legan umbúnað veiðarfæra.
Lítilsháttar hefir veiðst af
smokkfiski síðustu daga, en smá-
síld hefir einungis íengist mjög lit-
ið í lagnet.
TðniistarskðlL
—o—
Hljómsveit Reykjavíkur er um
þessar mundir að hleypa af stokk-
unura fyrirtæki, sem er þess vert,
að því s.é gaumur gefinn. Það er
tónlistarskóli.
Þeir sem að skólastofnun þessari
standa, hafa manna best fundið til
þess, hve erfitt það er, a'S halda
uppi hljómsveit hér í bær, sökum
jjess hversu fáir þeir eru, sem lært
hafa að fara með hljóðfæri, svo
að fullum notum komi. Þaö hefir
orðið að fá erlenda atvinnumenn í
þessari grein, sem leikið hafa í
hljómsveitum kaffihúsa og kvik-
m-ynda,húsa, en menn þessir hafa
oft veriS ráSnir hingaö til skamms
tima og því ekki veriö á þá aS
treysta til langframa, en stööug
mannaskifti í hljómsveit er mikiS
mein. Úr þessu á Tónlistarskólinn
aö bæta. Hann verSur svo marg-
þættur, aö eftir 2—3 ár ætti aS
vera auSvelt aS hafa hvert rúm í
fullkominni hljómsveit skipað
innlendum mönnum. Og þar meS
mundi þaS einnig detta úr sögunni,
aS inn í landið þyrfti aö flytja
hljóSfæraleikendur fráöörum lönd-
um, eins og nú tíökast og nauS-
synlegt virðist.
Eitt hlutverk skólans verður
ófceinlíns aö koma í veg fyrir þaS,
að fólk meS takmarkaöa hæfileika
leggi út í langt og kostnaðarsamt
nám erlendis í þeim greinum, sem
skólinn getur veitt kenslu í. Jafn-
fiamt veröur þaö hlutverk skólans,
aS koma þeim áfram, sem óvenju-
rmklum hæfileikum eru gæddir. —
Allir hljóta aö sjá, aS þetta er
þýSingarmikiS atriði.
ASalhlutverk skólans er að koma
upp fullkominni hljómsveit, sem
veiti höfuSstaðarbúum betra upp-
eldi á sviði tónlistarinnar en þeir
áður hafa átt viS að búa. ÞaS er
ekki vansalaust, aS hér skuli ekki
vera fullskipuS hljómsveit. ÞaS
hefir verið til og er hér enn vís-
ir til hljómsveitar, semi menn meS
dænrafáum áhuga og ósérplægni
hafa haldiö uppi. En þeirn I>er
engin skylda til aS leggja alt fram
sjálfir. Þeir eiga að fá stuðning
allra bæjarbúa. RíkissjóSur og
bæjarsjóSur eiga að halda skólan-
um uppi fjárhagslega, eigi síSur en
öðrum skólum — jafnvel fremur,
þar sem hljómlist hefir hingað til
veri'S vanrækt af opinberri hálfu.
MeS því móti verður væntanlegri
hljómsveit kleift aS gera þaS, sem
best og fullkomnast er í tónlist, aS
almenningseign.
Þetta fyrirtæki er því nauðsyn-
legra nú en áSur, aS megn spill-
____________VÍSIR______________
ing í hljómlist geisar yfir heim-
ir.n, og viS stöndum ver aS vígi
en flestar aSrar menningarþjóSir
aS sporna við spillingunni, þar sem
undirstaðan hjá okkur er ófull-
komnari.
Hér í Reykjavík er fjöldi söng-
fólks. Hefir þaS sýnt, aS þaS
megnar aS flytja mikil og vanda-
söm tónverk. Hljómsveit mundi
leysa þessa bundnu krafta úr læS-
ingi og tónar Beethovens og ann-
ara öndvegis tónskálda næöu út
hingaS, fluttir eins og ætlast vaf1
til, þegar listaverkin sköpuöust. —•
Höfum viö Reykvíkingar ástæSur
til þess aS fara þessa á mis ár eft-
ir ár? — Enn mætti nefna inn-
lenda og erlenda sönglistamenn,
sem hingaö sækja og flytja tón-
verk, er krefjast hljómsveitar-
undirleiks. Þeir verða aS notast
viö slaghörpu. Áheyrendurnir fá
meS því móti aldrei rétta hugmynd
um stærö eSa gildi tónverkanna
stm flutt eru eSa höfunda þeirra.
Rikisútvarp tekur til starfa hér
á landi á næstunni. Tónlistarskól-
inn á aS leggja þeirri stofnun til
smærri og stærri hljóðfæraleik-
endaflokka meS tíS og tíma, og
er því full ástæöa til aS fjárveit-
ingarvaldiS gæti þess, aS skólinn
jiurfi ekki viS efnahags öröugleika
aS stríöa.
Tónlistarskólinn tekur til starfa
1. október. Er þess aS vænta, aS
þeir sem hæfileika og áhuga hafa
í tónlistaráttina sitji sig ekki úr
færi aS sækja hann. Til skólans
hafa ráSist hæfir kennarar, svo aS
treysta má því, aS árangurinn
verSi góður.
h—.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11 árd.,
síra Bjarni Jónsson. Kl. 5 síðd.
síra Árni Sigurðsson fríkirkju-
prestur.
í Landakotskirkju: Hámessa
kl. 9 árd. Engin síðdegis guðs-
þjónusta.
1 spítalakirkjunni í Hafnar-
firði: Hámessa kl. 9 árd. Engin
síðdegis guðsþjónusta.
Veðrið i morgun.
Hiti í Reykjavík 10 st., ísafirði
8, Akúreyri 9, Seyðisfirði 8, Vest-
mannaeyjum 10, Stykkishólmi 9,
Blönduósi 9, Raufarhöfn 7, Hólum
i Hornafirði 8, Grindavík 9, Fær-
eyjum 11, Julianehaab 3, Angmag-
salik 1, Jan Mayen 2, Hjaltlandi 11,
Tynemouth 13, Kaupmannahöfn
13 st. — Mestur hiti hér í gær 12
st., minstur 7 st. Úrkoma 7,3 mm.
— Stonnsveipurinn um Bretlands-
eyjar hreyfist hægt norður eftir og
fer heldur minkandi. — Horfur:
SuSvesturland, Faxaflói: Austan
og norðaustan kaldi. Úrkomulítið
og léttir sennilega til. Breiðafjörð-
ur: Austan og norðaustan kaldi.
Dálítil rigning öðru hverju. Vest-
firðir, Norðurland, norðausturland,
Austfirðir, suðausturland: Austan
og norðaustan átt, sumstaðar all-
hvasst. Rigning.
Hátíðar-kvikmynd
tók Loftur á Alþingishátíðinni á
Þingvöllum. Einnig tók hann nokk-
urar kvikmyndir á skemtunum, sem
fóru fram hér og á Álafossi um
það leyti, og hefir hann nú látið
fullgera myndina erlendis. Hefir
Loftur bæði variS fé og fyrirhöfn
til þess að gera þessa ágætu
mynd, sem vafalaust verður hin
merkasta heimild um Alþingishá-
tíðina, þegar frá líður. Eða hvað
vildu menn'nú gefa til þess að eiga
K>istalsá.pa
fyi*ipliffgjaiidí. — Lágt veifö.
M
n
kvikmynd af þjóðhátíðinni 1874
eða setning Alþingis 930? — Loft-
ur sýnir mynd þessa í Nýja Bíó á
morgun kl. il/2, kl. 3 og kl. 4, og
verður væntanlega mikil aðsókn.
Valhöll
á Þingvöllum verður lokað næst-
komandi mánudag, 22. sept. Þann
dag eru Þingvallaréttir og má ætla,
að ýmsir héðan fari í réttirnar, ef
veður verður gott. Er gaman aS
vera í réttum í góðu veðri, en hitt
mundi þó enn skemtilegra, að vera
eystra síðdegis á sunnudag, þegar
safnið verður rekið til Þingvalla-
réttar. Kemur annar aðalflotinn
utan af Mosfellsheiði, um Selkots-
fjall og Kárastaðafjall. Er safnið
síðan rekið neðan Búrfells og sam-
einast norðan Öxarár fé því, sem
kemur af Öxarárdal og úr Botns-
súlum sunnanverSum. Hitt aðal-
safnið kemur úr norðurleitum svo-
nefndum (norðan Ármannsfells).
Er það rekið suður um Sandklupt-
ir og sameinast undir Ármannsfelli
safninu úr Þingvallahrauni. Bif-
reiðavegur er nú alveg heim að
réttarvegg. Á sunnudagskveld verð-
ur að líkindum einhver mannfagn-
aður í Valhöll, en Reykvíkingar
þeir, sem það kjósa heldur, geta
farið heim á sunnudagskveld. Hin-
ir, sem bíða vilja réttanna, taka sér
gistingu í Valhöll eöa á Kárastöð-
um.
Guðmundur Magnússon
Freyjugötu 9, er fimtugur i dag.
71 árs
er í dag Guðríður Guðmunds-
dóttir, Grandaveg 37.
Sigríður Ólafsdóttir
á Bústöðum er áttræð i dag.
K. F. U. M.
Síðastliðið ár efndi K. F. U. M.
til haustmarkaðar í byrjun október-
mánaSar til styrktar félaginu og
starfsemi þess. Þessi nýbreytni fé-
lagsins gaf svo góða raun, að
ákveðið hefir verið að efna til
markaðs-halds af nýju snemma i
næsta mánuði. K. F. U. M. hefir
nú starfað hér i bænum rúm 30 ár
og mjög sjaldan leitað til almenn-
ins um fjárstyrk. Hefir félagið þó
þurft á miklu fé aS halda, starf-
semi sinni til eflingar, en það hafa
einstakir menn lagt fram, sumir
stórfé árlega. Auk ]>ess hafa marg-
ir • félagsmanna lagt fram mikla
vinnu endurgjaldslaust, árum og
áratugum saman. Tekið verður
Jmkksamlega við hverskonar vörum
og munum og peningagjöfum. Þarf
enginn að kveinka sér við, þó að
skerfur hans verði litill, því að sá
gefur oft mest i raun og veru, sem
af minstu hefir að taka, en miðlar
samt af fátækt sinni.
Málverkasýning
frú Inger Löclite Blöndal og
Gunnlaugs Blöndal verður opin
í dag og á niorgun i siðasta sinn.
Þessa tvo daga verður sýningin
jafnframt opin á kveldin til kl.
10.
Haustfermingarbörn
komi í dómkirkjuna til síra FriS-
riks Hallgrimssonar mánudag kl.
5 og til síra Bjama Jónssonar
þriðjudag kl. 5 og fermingarbörn
síra Árna Sigurðssonar komi í K.
F. U. M. (stóra salinn) á mánu-
dag kl. 5
Barnabækur.
Þorvaldur Kolbeins hefir gefið
út tvær litlar barnabækur. Onnur
þeirra heitir: Fjögur ævintýri
handa börnum, og er þý'Sanda ekki
geti'S, en hin bókin heitir: Litli
Kútur og Labbakútur, og hefir
Freysteinn Gunnarsson þýtt úr
dönsku. Er hún með mörgum
myndum eftir danskan málara. —
Ævintýrin kosta 50 aura en „Litli
Kútur“ eina krónu.
Sjómannastofan.
Samkoma á morgun kl. 6 e.
h. í stofunni Tryggvagötu 39. —
Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn.
Samkomur á morgun: Helg!-
unarsamkoma kl. IOV2 úrd.
Sunnudagaskóli kl. 2 síðd. Úti-
samkoma á Lækjartorgi kl. 4
síðdegis. Útisamkoma við stein-
bryggjuna kl. 7 síðd. Hjálpræð-
issamkoma kl. 8 síðd. Stabskapt.
Árni M. Jóhannesson stjórnar.
Hornaflokurinn og strengja-
sveitin aðstoða. Allir vellcomnir.
Barnaheimilið Vorblómið.
Samþykt var á bæjarstjórnar-
fundi í fyrrakveld svolátandi til-
laga út af erindi frá Þuríði Sig-
urðardóttur um að bærinn kaupi
Grund við Kaplaskjólsveg fyrir
barnaheimili: „Nefndin (þ. e.
fjárhagsnefnd) leggur til, að bæj-
arstjórnin heimili borgarstjóra að
kaupa húseignina Grund við
Kaplaskjólsveg (gamla Elliheim-
ilið) með tilheyrandi landi fyrir
ali að 45000 kr„ í þeim tilgangi,
að húsið verði lánað barnaheimil-
inu „Vorblóminu". Jafnframt
greiði Elliheimilið Grund 300^0
kr. upp í skuld sina við bæjar-
sjóð. Ennfremur sé það skilyrði
fyrir kaupunum, að Thorvald-
sensfélagið framlengi frestinn til
þess að reisa barnaheimili fyr-
ir gjafafé þess um fjögur
ár.“ — Tillagan var samþykt með
9 atkv. gegn 3. Jafnaðarmenn
vilja láta bæinn reka slík fyrir-
tæki sem þetta.
Anna Fía giftist.
Ólafur Erlingsson liefir áður
gefið út tvær bækur um Önnu
Fíu og liafa þær orðið vinsælar,
einkum meðal ungra stúlkna.
Nú kemur þriðja bókin: Anna
Nýkomnip
fallegii*
regaírakkar
fypir* karla.