Vísir - 06.12.1930, Blaðsíða 3

Vísir - 06.12.1930, Blaðsíða 3
v 1 S i R ORGEL og PIANO < ru enn nýkomin frá MÚLLER & NYSTRÖM. — Mörg fleiri koma me'ð „Goðafoss“ nsest (12. þ. m.). Hljóðfæi'in mín hafa rutt sér til rúms jafnt, stöðugt og eðlilega. Þau munu vera nokkru ódýrari en títt er í hljó'ð- færaverslunum um sambærileg hljóðfæri. Það er og eðlilegt. því að þau þurfa ekki að bera uppi kostnað við búðaleigu, mannahald eða því um líkt. Sólvallagatan er dálitið afskekt. En smávik geta stund- um borgað sig. Elías Bjanason. Sólvöllum 5. - Sími 1155. stöðu til jjess að kynnast starfi enskra póstmanna innan frá. íívílik árvekni, hvílík alúð og þrautseigja að koma i réttar iiendur sendingum þeim, sem pósthúsinu hafði verið trúað fyrir! En þar eins og hér gat þetta verið vandkvæðum bund- ið: skakí eða ill-læsilega skrifað. utan á, áritunarmiðar dottnir : af sendingum, viðtakendur í fluttir án þess auðvelt væri að rekja hvert, og ýmislegt annað gat valdið örðugleikum. En j aldrei var gefist upp fyr en í fulla hnefana. Eftirlitsmenn- irnir brýndu póstana rækilega áður en þeir lögðu upp: „Þarna er böggull með ,pie‘ og kökum, en það er nærri ómögulegt a'ð ráða fram úr utanáskriftinni, wirðist þó vera Faraday Street, Stone Hill. Lawrence var úti æneð hann i morgun en varð að loma með hann aftur; bless- aður gerðu nú það sem þú get- uir, það er sennilega eitthvert Ibláfátækt fólk sem í hlut á.“ — Oftast bar þessi viðleitni árang- sur að lokum. Mig hefir langað til að sjá þenna sama sið innleiddan hér, og árum saman hefi eg ætlað að vekia máls á því efni, en sí- ffelt farist fyrir. En nú eru jól- in enn einu sinni í nánd. Á Englandi eru það bara sjálfir póstamir (póstar heyri eg sagt að séu nú orðnir „bréf- berar“ (frb. brjebberar) hér í Reykjavik"), sem þessar jóla- gjafir fá, en hér vil eg láta þetta ná til afgreiðslumanna Sfka, bæði á bréfastofu og bögglastofu. Það er öllum kunnugt að launakjör þessara manna, sem alveg eru útilokað- ir frá allri aukavinnu, eru svo Jéleg að þjó'ðarsmán má heita. Mætti þá, ef vildi, skoða giafir þessar sem mótmæli almenn- ings gegn svo óböfðinglegri viðurgemingu. En aðferðina til þess að taka á móti þeirri hugn- un, sem menn kvnnu að vilja láta af hendi rakna, hefi eg hugsað mér þá, að nóststjórnin sýndi þann velvilja að setja upn samslcotabauka á af- greiðslustofum pósthússins, uppi og niðri, sem almenning- ur svo gæti látið aura sina i. Þetta væri ákaflega litill kostn- aður. En hað bvrfti há að ser- ast sem allra fvrst, því timinn er orðinn naumur og margir eiga ekki nema örsjaldan er- indi á pósthúsið. Visir hefir iafnan sýnt góð- vild í garð póstmanna og eg trevsti honum þvi til að koma þessari tillögu minni á fram- færi. Ilún virðist að minsta kosti meinlaus. Gangleri. Vikivakaflokkur baraa sem sýndi á Þingvöllum í sumar, kemur saman i kaup- þingssalnum á morgun kl. (5 (en ekki kl. 4 eins og áður hef- ír verið tilkynt). Eru börnin beðin að athuga jictta og láta það berast sin á milli. Bæjarfréttir □ Edda 59301297 — Fyrirl. Atkvgr. Messur á morgun. 1 dómkirkjunni kl. 11, sira Þorsteinn Briem. Kl. 5, sira Bjarni Jónsson (altarisganga). í frikirkjunni kl. 2, síra Árni Sigurðsson. í Landakotskirkju: Hámessa kl. 9 árdegis og kl. 6 síðd. guðs- þjónusta með predikun. 1 spítalakirkjunni i Hafnar- firði: Hámessa kl. 9 árd. og kl. 6 síðd. guðsþjónusta með pre- dikun. Hjálpræðisherinn. Engin samkoma á morgun vegna við- gerðar á salnum. Pétur Sigurðsson flytur fyr- irlestur í Varðarhúsinu annað kveld kl. 8% um heimsfræga kr'stniboðann Stanley Jones, bækur hans og skoðanir. Jarðarför Sigríðar Helgadóttur fór fram í gær, að viðstöddu fjölmenni. Prófessor síra Sigurður P. Sí- vertsen hélt húskveðju, en síra Friðrik Hallgrimsson líkræðu í dómkirkjunni. Skátar gengu undir merki og báru kistuna frá heimilinu til kirkjunnar og suð- ur í kirkjugárð. Veörið í morgun. Frost um land alt. í Reykjavik 2 st., ísafirði 5, Akureyri i, SeyS- isfiröi 2, Vestmannaeyjumi i, Stvkkishólmi 2, Blönduósi 5, Raufarhöfn 4, Hólum i Hornafiröi 2, Grindavík 2, Færeyjum 4, Jan Mayen —4, (engin skeyti frá Grænlandi), Hjaltlandi 5, Tyne- mouth 5, Káupmannahöfn 3 st. — Mestur hiti hér í gær o st., minst- ur -4- 6 st. Úrkoma 17 mm. Lægð yfir norðvesturlandi. Engar fregn- ir frá Grænlandi. — Horfur: Suð- vesturland: Suövestan átt, siund- um allhvass. Snjóél. Faxaflói, Breiðafjörður: Suðvestan kaldi. Snjóél. Vestfirðir: Breytileg átt og hægviðri i dag. Getur orðið norðaustan i nótt. Snjóél. Norður- land, norðausturland, Austfirðir: Suðvestan kaldi. Léttskýjað. Suð- austurland: Suðvestan kaldi. Snjó- él. Hjúskapur. f dag verða gefin saman i hjónaband ungfrú Guðríður Hansdóttir og Júlíus Jónsson. Síra Bjarni Jónsson gefur þau saraan. Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trú- lofun sína Sigríður Sigurðar- dóttir, Laugaveg 147 og Hall- dór Sigmundsson bifreiðastjóri. Leitinni að Apríl er haldið áfrain i dag, og hafa nokkur botnvörpuskip tekið þátt í henni á samt varðskipun- um. Hermóður vitaskipið kom i nótt úr flutningaferð. Þýskur botnvörpungur kom í gær að fá sér kol og vistir. Botnvöruuskioin Max Pemberton og Baldur voru við Vestmannaeyjar um liádegi í dag, á leið frá Eng- landi, og eru væntanlegir hing- að í nótt. Heimilasambandið heldur fund á mánudaginn kl. 4 í kaffistofu sjómannaheimil- isins. Skiðafélag Rvíkur fer á morgun í skíðaför, ef færi og veður leyfir. Kristján Kristjánsson söng í gærkveldi í Iðnó, með aðstoð Ernils Thoroddsen, og var það ágæt skemtun. Talsverð snjókoma var hér í nótt og morgun, þó komust bifreiðir til Hafnaiv fjarðar og yfir Hellisheiði, en búist er við, að nokkur ófærð sé á veginum ínilli Kolviðar- hóls og Reykjavíkur. S. R. Eins og auglýst var i Vísi í gær, verða þeir meðlimir Sjúkrasamlags Reykjavíkur, sem ætla að skifta um lækna nú um áramótin að tilkynna gjaldkera það, eigi síðar en 15. þ. m. Það er áríðandi fyrir samlagsmenn að athuga þetta, ]>ví að eftir miðian mánuðinn verður ekki hægt að fá skift um lækna nema alveg sérstaklega ptqndi á. Samlaecmenn ættu líka að athuga, eftir því sem mögulegt er, að skulda ekki mánaðargjald til S. R. um ára- mót. Hlutaveltu lieldur skátafélag K. F. U. M. og Væringiar i K. R.-húsinu á morgun. Margir ágætir drættir. Sk'o E’mskinafélaesins. Goðafoss fór frá Hull í dag áleiðis til Reykjavikur. Deltifoss fór frá Þingeyri kl. 10 í morgun, áleiðis til Reykja- víkur. Veikin í Móakoti. Eins og frá hefir verið skýrt i Vísi, kom uon óhekt veiki i fyrra mánuði í Móakoti ó Vatns- levsuströnd, og vóru fjögur svstkini flutt baðan í sóttvarna- húsið hér. Siðan liefir veikin verið rannsökuð nákvæmlega, og hefir dr. Helgi Tómasson komist að raun um, að liér væri um heilabólgu að ræða. Börn- in. «ein veiktust, eru nú á bata- vegi. Mjólkurfélag Reykjpvíkur opnaði í morgun stóra sölu- búð í hinu nýja húsi sinu við Hafnarstræti. 1 annari deildinni eru nýlenduvörur á boðstólum, en í hinni búsáhöld allskonar. Verslunarstjóri er Hávarður Valdimarsson frá ísafirði, sem um nokkurn tíma hefir verið starfsmaður félagsins. Búð hessi er björt og rúmgóð og að öllu leyli með nýtísku sniði og er myndarlegasta búð bæiarins af bessu tæi og sjálfsagt þótt víðar væri. leitað. Allar hillur, skúffur og ská"ar, eru úr eik, sniíðaðar af Hiálmari Þor- steinssyni og Friðrik Þorsteins- syni. — París heitir kvikrmynd, sem sýnd verð- ur í fyrsta sinni í kvöld í Gamla Bíó. Er það hljóm- og talmynd í Seljum liina alþektu „Mill Bay“ handsápu sépstaklega ódýrt — Spyrjiö um verö. — E Benediktsson & Co. Sími 8 (fjórar línur). Gód atvinna og skemtileg. Sá, sem getur lána'ð fimm þúsund krónur, með tryggingu i lítinn tima, getur nú þegar fengið góða ntvinnu í fyrirtæki, sem er verið að stofnsetja. Tilboð sendist afgreiðslu Vísis nú þegar, merkt: „15. desember 1930“. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiniiiiiiiiiniiiiiiiiiHiiiiiiimiiiui Tilkynning. H.f. ísaga. - Skrifstofan ei* fXutt í Lækjargötu 8. [I!I!IIIII!illlliI!!I8!lllI!B!IIEil!iillKIIIIIIIIiIIIIIIIIIIIKSiIIIIIIIIIIIIEIIIIIIIKIII Efnalang Reykjavíknr. Semisk fatahreinsun og iitun. Langaveg 32 B. — Sími 1300. — Símnefnl; Efhalang. Hreinsar með nýtísku áhöldum og aðferðum allan óhreinan fatnað og dúka, úr hvaða efni sem er. Litar upplituð föt og breytir um lit eftir óskum. Eykur þægindi. Sparar fé. io þáttum og aðalhlutverkið leik- ið af Maurice Chevalier, sem lék aðalhlutverkið í „Eiginmað'ur drotningarinnar". Kvikm. þessi er talin mjög skemtileg. Auk hennar er sýnd fréttamynd (talmynd). Áheit á Strandarkirkju, afh. Visi: kr. 2,50 frá konu. Kommúnistaflokkur stofnaður. 5. des. FB. Stofnþing kommúnistaflokks íslands var háð í Reykjavík dag- ana 26. nóv. til 3. des. Mættir voru fulltrúar frá sex af átta deildum félagsins. Lög flokksins og baráttustefnuskrá verður birt i Verklýðsblaðinu, málgagni flokks- ins. — Kommúnistaflokkur ís- lands. (Deild úr alþjóðasambandi kommúnista.). Hitt og þetta. Hitamestu kolin. „Best South Yorkshire Hard Steam“ — Kolin frægu ávalt fyrirliggjandi. Kolaverslnn Úlafs Ólafssonar Sími: 596. Drengur yfir fermlngn getnr fengið atvinnn vlð — sendiferðir í — Féiagsprentsmiðjunni Um Panamaskurðinn fóru 6.185 skip árið sem leið eða nokkru færri en árið áður. Skip þessi greiddu i tolla ca. 27 miljón- it' dollara. Umferðin um skurðinn hefir aukist jafnt og þétt þangað til nú og er talið, að umferðin muni halda áfram að aukast, þegar kreppunni léttir af. Sápuframleiðslan í U. S. A. Bandaríkjamenn fi'amleiddu sáp' ur fyrir ca. 258 dollaramiljónir árið sem leið og er það 7% meira en árið þar á undan.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.