Vísir - 21.03.1931, Síða 3
V I s I R
ar falliÖ i gleymsku. En hann lifir
og mun halda áfram aÖ lifa, í hin-
um meistarlegu æfintýrum sínum.
Þatt eru gerÖ af þeim efniviÖ, sem
tíinans tönn. viímur ekki á. Þau eiga
frumleik, fegurÖ og sannleiksgildi.
Og eg er svo gamaldags, aÖ eg held
því fastlega fram, — þrátt fyrir
andstæðar skoðanir ýmsra fræðslu-
frömuða nútímans, — að slík æfin-
týri séu hollur lestur börnum og
unglingum. Þau veröa ekki andlega
snauöari við að kynnast Hans
Christian Andersen. Hann opnar
lesendum sinum veröld dýrðar og
furðu, hann eykur ást þeirra til allra
manna, ást þeirra til alls, sem lifir,
ást þeirra á sannleika, gæsku og
réttlæti. Og æfisaga Andersens get-
ur verið hinum ungu hvatning til
framsóknar. Hún sýnir, að hið lífs-
hæfa heldur velli. „Ekki sakar þann
að vera fæddur í andagarði. sem
í svans eggi hefir legið.“
Andersen áleit ltina óvenjulegu
snildargáfu sína guðlega gjöf, sem
ekki mátti misbeita, og þessi háleiti
skilningur hans á köllun sinni óx
eftir því sem árin liðu. Hann hafði
lært það. að hinir niestu i heimi
hér helga líf sitt Itárri hugsjón. í
kvæðinu „Zombien" segir hann:
„Andans snilli er einhlit varla,
ef að kalt er mannsins hjarta."
Skáldið gat djarft úr flokki talað.;
hann átti bæði hlýleik hjartans og
hreinleik þess. Hann var alla æfi
snillingurinn með barnshjartað.
Mel á jörðu.
—o--
f kring um Jlc dc Re, frakkneska
ríkisfangelsið, er þreföld röð
veggja, enda eru þangað sendir til
gæslu verstu glæpamenn landsins,
til þess síðar að vera fluttir til Gtti-
ana, en þar er fanganýlenda Frakk-
lands. Þangað eru sendir þeir, sem
■dæmdir hafa verið i æfilangt fang-
elsi fyrir morð og yfirleitt allir stór-
glæ]tamenn, og loks þeir, sem gerð-
ír hafa verið útlægir. Loftslág á
Guiana er óheilnæmt tnjög og marg-
ir fanganna eiga þar skamma æfi.
Og ntjög er það fátítt, að ntenn
sleppi þaðan undan á flótta. Fanga-
nýlenda þessi er sögð sannkallaður
kvalastaður. Einu sinni á ári sendir
Frakkland fangaskip til Guiana. —
Ameriskur blaðamaður lýsir því
svo, er fangahópur lagði af stað frá
Ile de Ré, þ. 17. febr. s.l.: „Þegar
klukkan sló eitt, voru fangelsisdyrn-
ar o])iiaðar og 673 fangar gengu
út í fangagarðinn.Fjöldi varðmanna
var nálægur. Margir fanganna voru
hleklíjaðir á fótum. Fangarnir voru
Idæddir i brún fangaföt úr gróf-
gerðu efni og báru svarta, óhreina
hatta á höfði, tréskó á fótum og
voru allir sokkalausir. Sérhver fang-
anna bar bakpoka með aleigu sinni
Stórglæpamennirnir voru 368 tals-
íns og voru alrakaðir og snoðklipt-
ir. Hinir höfðu ekki verið neyddir
til þess að láta skera hár sitt eða
skegg. Alt i einu kemur flokkur
Senegal hermanna inn i fangagarð-
inn. Mér er sagt, að í herdeild
þessari séu aðeins úrvals skotmenn.
Hermennirnir bera kepi, og eru i
hláum, skrautlegum einkennisbún-
íngum. Ósjálfrátt ber eg þá saman
við fangana brúnklæddu. í fanga-
garðinum stendur Picaud ábóti og
lúterski presturinn Calas. Þeir eru
þar til að kveðja fangana. Þarna
eru og emliættismenn tnargir, og
tneðal þeirra fulltrúar innanríkis-
málaráðherrans og nýlendttmála-
ráðherrans. Loks eru hlið fanga-
garðsins opnuð. Leiðin liggur í
fyrstu, þegar út úr garðinum kem-
ur og út fyrir alla veggi, um snotur
trjágöng. Þau eru kölluð Guiana-
göngin. En ]>au eru líka kölluð trjá-
göng andvarpanna. Svo er áfram
CrAi) CrV) GrAD erADGrAbfcFAaérAb GrAD ötaD GrAD Grvb
Fljótustu afgreiðsluna og bestu
bílana færðu hjá
AðalstððinnL
Sfmar:
— 929 & 1754. —
haldið. Senegal hermennirtiir eru
reiðubúnir að skjóta hvern þann,
setn gerir tilraun til að flýja. Og
enn er áfratn haldið, til Saint Mar-
tin, þar sem hið alræmda Jangaskip
La Martiniére liggur fyrir akker-
ttm. Á innibyrgðum hafnargarðin-
um er fjöldi skyldmenna og vina
fanganna. — Kallari gengur með-
frant húsaröðinni, sem veit að höfn-
inni og skipar svo fyrir, að allir
loki húsutn sínum og gluggunt. Og
tnönnum er bannað að mæla tnóðg-
unarorðum til fanganna. — Vindur
stóð af hafi og það fór að rigna.
Máfarnir flugu yfir höfðum fang-
anna, svo nálægt. að ]>eir næstum
snertu þá með vængjum sínum.
Undarlegar tilfinningar vakna í
hrjósti, er rnenn þessir ganga sein-
ustu spor sín á frakkneskri grund.
Haturs og andúðartilfinningar kotn-
ast ekki að. Menn geta ekki varist
því að finna til meðaumkunar með
þessum vesalings mönnum, sem
varpað er til heljar á jörðu. Það
er mælt fonnælingarorðutn þarna
og þarna er gnístran tanna. En þar
er einnig grátið, mæður kyssa syni
stna, konur eiginmenn og unnustur
unnusta sína, og á ]>essum rauna-
lega stað skiftast menn á ástarorð-
um. Raunalegast er að horfa á 20
menn, sem standa utan við aðal-
hópinn. Þeir eru hlekkjaðir hvor
við annan með stálkeðjum. Þessir
menn höfðu áður reynt að komast
undan á flótta. Þar er nr. 5693, 34
ára gamall maður, sem hafðt drepið
föðttr sinn til þess að komast yfir
fáeina franka. En þarna eru marg-
ir aðrir, sent allir Frakkar kannast
við. Þar er Victor Imbs, sem myrti
ástmær sína og reyndi ,að fremja
sjálfsmorð, en tókst ekki. Þarna er
Furcy. Hann hrópar í örvæntingu:
„Ef þeir aðeins vildu láta mig á
höggstokkinn.“ (Aftökur fara enn
í dag fram með þeini hætti í
Frakklandi, að menn eru hálshöggn-
ir). Einn hrópar: „Eg er 24 ára.
Eg er frjáls eftir 16 ár. Þá kem
eg aftur.“ Og kannske býr von í
brjóstum fleiri fanganna. Von um
að komast undan á flótta -— eða
von um að komast heim. Þungbún-
astir eru þeir fanganna, sem kom-
ist haía undan á flótta frá Guiana
og heim til Frakklands, en eru nú
sendir öðru sinni. Þeir vita hvað
bíður þeirra: Langvarandi svækju-
hitar, þvi næst rigningatið og óholl-
usta og pest. Þeir eru vonlausir.
Þeirra verður stranglegar gætt en
hinna. •— Yngstur fanganna er Je-
an Fourrier. llann er 17 ára. Hann
slapp við höggstokkinn, en ekki
Guiana. — Nú er gefið nterki. Ætt-
ingjar og vinir verða að hörfa frá.
Síra Calas og Picaud ábóti kveðja
fangana hinstu kveðjunni. Og nú
hefst flutningurinn á skipsfjöl.
Þegar ]>angað er komið, ertt ]>eir
leiddir til klefa sinna hver á fætur
öðrum. Og af þilfari La Martinére
horfa þeir — ef til vill i síðasta
sinni — á strendur hins sólríka
Frakklands.
Klukkan slær fjögur. Frakkneski
fáninn er dreginn við hún. Akker-
in eru upp dregin. La Martinére
heldttr til hafs, áleiðis til lands
kvala og dauða, þar setn hinir brot-
legu eiga að' „afplána syndir sínar“.
□ Edda 59313247 — 1. Fyrirl.
Messur á morgun.
f dómkirkjttnni kl. n síra Bjarni
Jónsson. Kl. 2 bamaguðsþjónústa
(sr. Fr. H.). K.l. 5, síra Friðrik
Hallgrímsson.
I fríkirkjunni kl. 5, síra Ánii
Sigurðsson.
1 Landakotskirkju : Hámessa kl.
9 árd. og kl. 6 síðd. guðsþjónústa
með prédikun.
í spítalakirkjunni í Hafnarfirði:
Ilámessa kl. 9 árd. og kl. 6 síÖd.
guðsþjónusta með prédikttn.
í fríkirkjunni i Hafnarfirði kl.
2, síra Jón Auðuns.
Sjómannastofan. Kl. 6 síðd.. Síra
Sigttrður Z. Gíslason talar. Allir
velkomnir.
Yeðrið í morgun.
Frost um land alt, sem hér segir:
í Reykjavik 1 st., ísafirði 5, Akur-
eyri 1, Seyðisfirði 3, Vestm.eyjum
1, Stykkishólmi 3. Blönduósi 3,
Rattfarhöfn 4, Færeyjum hiti 7,
Julianehaab 12, Angmagsalik —
16, Hjaltlandi hiti 7 st. Skeyti vant-
ar frá öllum öðrum stöðvum. —
Mestur hiti hér i gær 4 st„ minstur
—4 st. Úrkoma 1,3 tnm. Vestan
átt um land allt. Lægð frá Græn-
landshafi og austur með norður-
strönd íslands. — Horfur: Suð-
vesturland, Faxaílói, Breiðaf jörður,
Vestfirðir, Norðurland : Vestan átt.
Stundum'pllhvast og nokkur snjóél.
Norðausturland, Austfirðirfir, suð-
austurland: Vestan kaldi. Viðast
léttskýjað.
Háskólafyrirlestrar
próf. Agústs H. Bjarnason utn
vísindalegar nýungar. Næsti íyrir-
lestur verðttr fluttur i kveld kl. 6
i 1. kenslustofu Háskélans. Öllttm
heimill aðgangttr.
Hjónaband.
19. þ. m. voru gefin saman i
hjónaband Einar Jónsson prent-
ari i Gutenberg og Jóruníi
Þórþardóttir. Síra Bjarni Jóns-
son gaf þau saman.
Alþýðufræðsla
Guðspekifélagsins. — Sunnu-
dag 22. ]). m. kl. 8% síðd. flyt-
ur Steingrímur kennari Arason
fyrirlestur í húsi Guðspekifé-
lagsins um uppeldismál. — All-
ir velkomnir á meðan húsrúm
leyfir.
Söngskemtun
Karlakórs Iv.F.U.M. i Gamla
Bíó s.l. fimtudagskveld tókst
ágætlega. — Söngflokkur þessi
hefir ávalt átt miklum vinsæld-
um að fagna og liafa þær farið
vaxandi og að maklegleikum,
enda er ávalt ágæt aðsókn að
söngskemtunum kórsins. Ein-
söngva sungu Garðar Þorsteins-
son, Jón Guðmundsson og Sig-
urður Waage. Undirleik önnuð-
ust dr. Mixa og Páll ísólfsson.
Söngskemtunin verður endur-
tekin i Gamla Bió á morgun
kl. 3 síðdegis.
Danssýning
Ástu Norðmann og Sigurðar
Guðmundssonar fór hið besta
fram og fyrir fullu húsi áliorf-
anda. Dansar ungfrúin afburða
vel. Yfirleitt tókust dansamir
ágætlega og vöktu óskifta lirifni
áhorfenda. Danssýningin verð-
ur endurtekin i Iðnó á morgun.
Sjá augl.
Um 1000 smálestir
af ísl. afurðum flutti Detti-
foss út i gær. Aðallega var það
verkaður fiskur og blautfiskur,
lýsi fiskmjöl og ull.
Er Wegener enn á lífi?
heitir bæklingur, sem nú er að
koma út, eflir Jón Jónsson frá
Laug, þann er var með í liin-
um fræga vísindaleiðangri
Wegcners til’ Grænlands s. 1.
sumar. Er hann einn þeirra
þriggja manna, sem enn eru
konmir til haka úr leiðangrin-
um. Þeir eru því þeir einu, sem
eru til frásagnar af ferðinni
eins og nú standa sakir.
Bæklingur þessi er skýrt og
snjalt ritaður. Er þar sögð i að-
aldráttum saga leiðangursins
þar til höfundurinn vfirgefur
hann. Ennfremur eru rakin til-
drög öll og atvik að þvi að tveir
leiðangursmennirnir, sem ætl-
uðu að eiga vetrarsetu 400 km.
inn á jöklinum, fá ekki til sín
í tima þann útbúnað og vistir,
sem upphaflega var gert ráð
fyrir, og að Wegener neyðist til
að leggja í ferð til þeirra undir
haustið til að reyna að veita
þeim einhver bjargráð.
Höfundurinn liefir aðra skoð-
un en félagar hans á því, hvort
þarna er hætta á ferðum cða
ekki.
Ei’ hér mál, sem allur hinn
mentaði heimur veitir athygli,
og á ef til vill eftir að verða
mjög að umræðuefni í lielstú
blöðum veraldarinnar.
Lesandi bæklingsins getur
nokkurnveginn sjálfur skapað
sér skoðun á málinu, Er þvi
nauðsynlegt fyrir alla að lesa
liann, svo að þeir geti fylgst
með og skilið, það sem siðar
kann að koma fram i þessu
efni. Enda er það sjaldgæfl að
Islendingar geti nokkuð lagt til
þeirra mála, sem umheimurinn
lætur sig nokkru skifta.
J. Kr.
Jafndægri
eru í dag.
Af veiðum
kom Ver i morgun, og marg-
ir linubátar i nótt, allir með
góðan afla.
Enskur botnvörpungur
kom i morgun. Hann mun
tetla að kaupa hér nýjan fisk
og flytja út í is.
Dronning Alexandrine
fór kl. 5 í morgun frá Fær-
eyjum áleiðis til Reykjavíkur.
Dettifoss
l’ór Iiéðan i gærkveldi til út-
landa. —- Meðal farþega voru:
Hallgr. Túlinius, Þorlákur Sig-
urðsson, Helga Níelsdóttir, Mr.
George Wilson, Mr. Christie og
frú og drengur á leið til Winni-
peg, Eiríkur Kristjánsson, R. E.
Kingdon, frú Anna Ziegler, Þór-
ir Jakobsson og Thor Brand,
báðir á leið til Winnipeg.
Hjólpræðisherinn.
Samkomur á morgun: Helgunar-
samkoma kl. 10]/2 árd. Stabskapt.
Árni M. Jóhannesson stjórnar.
Hornaflokkurinn aðstoðar. Sunnu-
dagaskóli kl. 2 síðd. Hjálpræðis-
samkoma kl. 8 síðd. Stabskapt.
Árni M. Jóhannesson stjórnar.
Flornarflokkurinn og strengjasveit-
in aðstoðar. Allir velkomir. —
H eimilasambandið heldur funcl
mánudaginn 23. trtars. Stud. theol.
Valgeir Skagfjörð talar. ,
Pétur Sigurðsson
flytur fyrirlestur i Varðar-
húsinu annað kveld kl. 8V2 um
heimilið, skólann og föðurland-
ið. Allir velkomnir.
Grímudansleikur Ármanns
verður laugardaginn 28. mars
í Iðnó. Eru dansleikir Ármanns
annálaðir fyrir hvað þeir eru
fjöfugir og skemtilegir. Aðsókn
að grimudansleikum félagsins
Akranesstör.
Stjórn Sambands ungra sjáLf-
stæðismanna gengst fyrir ferð
til Akraness á morgun. Farið
verður með hafnarbátnum
„Magna“ og lagt af stað kl. 1
e. h. frá uppfyllingunni. Allir
ungir sjálfstæðismenn úr Heim-
dalli og Stefni i Hafnarfirði, eru
hvattir til að koma.
Gúmmístimplar
eru búnir til í
Félagsprentsmiðjunni.
Vandaðir og ódýrir.
er vön að vera mjög mikil og
eru félagsmenn beðnir að sækja
aðgöngumiða sína sem fvrst. —
Sjá augl. i blaðinu í dag.
F.
Glímúfél. Ármann.
Æfingar verða á morgun sem
hér segir: K1 10 árd. III. fl.
karla, fimleikar í Möllerskól-
anum. Kl. 11 árd. Hlaup og
frjálsar íþróttir i Mentaskólan-
um. Kl. 3 síðd.j fimleikar
kvenna, I. fl. i Barnaskólanmu
kl. 4—5 II. fl. kvenna og .kl
5—6 samæfing lijá hinum
kvennaflokkunum.
Ií. F. U. M.
býst við góðri aÖsókn á morgun
á alla fundi. — Nýung á hverjum
fundi. — Vorinu fagnað á öllum
fundum. — Sveitirnar í Y-D fjöl-
menna mjög um þessar mundir, og
keppa að ]>ví, að hver sveit fái sinn
sérfána. — Litlu drengirnir í V-D
muna eftir sínum fundi kl. 3, ekld
fyrr; það er mikið fjör og gleði á
þeim fundum.. — K. F. U. K. býð-
ur öllum ungum stúlkum 12—18
ára á fund sinn kl. 6; það eru
venjulega fyrirtaks fundir. —
Merkilégasti fundurinn á morguu
verður U-D fundurinn, ber þar
margt til. — Vatnaskógarmenn eru
beðnir að fjölmenna á þann fund
og sömuleiðis meðlimir úr yngri
Val. U-D hefir í tvo vetur verið að
safna sér fyrir finni myndavél. Nú
er rétt koniið að uppfyllingu ]>eirra
vona. Búist er við að enginn, sem
með nokkuru móti getur komið,
láti sig vanta. — Vér eigum i Y-D
kl. ij von á góðuin heimsækjanda.
Utvarpið í dag.
Kl. 18,15; Erindi í Háskólanum
(Ágúst Fl. Bjarnason, próf.). —•
19,05 : Þingfréttir.— 19,25: Hljóm-
leikar (Grammófón). — 19,30:
Veðurfregnir. — 19,35 : Barnasög-
ur (írk. Sigrún Ögmundsdóttir). —
19,50: Hljómleikar á cello (Axel
Wold): Saleski: Reveri Trist.
Francoer-Kreisler: Cisiliene et Ri-
daudon. —- 20,00: Þýzkukensla í 2.
flokki (W. Mohr). — 20,20:
Hljómleikar á cello (Axel Wold):
Johan Matheson : Air. Gotterman:
Andante. Ofíenbach: Musette. —-
20,30: Erindi: Um ættgengl II.
(Árni Friðriksson, náttúrufr.). —
20,50: Óákveðið. — 21,00: Fréttir.
— 21,20—25: Kveðnar vísur (Jó-
hann Sveinsson) frá Kvæðamanna-
fél. Reykjavíkur. — 22,35: Dans-
músik.
Nemendasýning
Rigmor Hanson verður endurtek-
in á morgun í Nýja Bíó kl. 2. Að-
göngumiðar, sem eftir eru, fást í
Ilansonsbúð og Bókaversl. Sigf.
Eymundssonar í dag’, og við inn-
ganginn í Nýja Bíó á morgun frá
kl. 1. ef nokkurir eru þá eftir.
Gjafir,
afh. Vísi, til fólksins á StaS-
arhóli: 10.kr. frá Önnu, 20 kr.
frá B. ,T.