Vísir - 02.08.1931, Blaðsíða 3
v?5IFí
Nýkomið:
Sérstaklega ódýrar RÚSKINNSBLÚSSUR á unglinga og
fullorðna, frá kr. 7.85.
BLÚSSUFÖT, allar stærðir, ódýr og góð.
NÆRFÖT á drengi, frá 1.95 stk., ágæt tegund.
Misl. Blússuföt á smádrengi frá 6.75 og
KVEN-SILKISOKKARNIR margeftirspurðu á 3.75.
Pokabuxur og Reiðbuxur, nýjar birgðir.
AUSTURSTRÆTI 1.
Ásfl. G. Gunnlaugsson & Co.
F. I. S. -— En á þeim árum var
Þetta er vörumerki firmans I.' D. Fliiggers í Ham-
borg, sem vér erum einkasalar fyrir á íslandi. — Verk-
smiðja þessi framleiðir liinar ágætu málningarvörur, er
mest liafa selst hér undanfarin ár, sakir framúrskarandi
gæða, svo seln:
Titanhvíta,
Zinkhvíta,
Dekkhvíta,
Olíurifnir 1 i t i r, ailar tegundir.
Japanlökk, „Gletscherhvíta“ o. fl.
Löguð málningí öllum litum.
„P a 1 c o“ ryðverjandi málning á skip, brýr og
önnur járnmannvirki, og á járnvarðar bygg-
ingar.
K í 11 i.
Þurkefni.
Litarlaus lökk, fjöldi tegunda.
Vélalökk og bílalökk, i ýmsum litum.
Litarduft.
Auk þessara aðal-vörutegunda frá ofangreindu firma
höfum vér allt annað, er að málningu lýtur, bæði þaðan
og frá öðrum þekktum finnum, t. d.:
Fernisolía, besta tegund, ljós, tvisoðin.
Terpentína.
„Velmatt“, mött olíumáhiing i ýmsum htum.
„Muradek“ distemper, fjöldi lita.
Penslar í fjölbreyttu úrvah og öll tæki til
málningar.
Listmálaravörur.
Ennfremur Veggfóður, fjölbreyttasta úrval á land-
inu, strigi og pappír.
jvpqnmir
REYKJAVlK.
P. O. Box 701. Sími 1498.
Verk
(spunnið og óspunnið), ásamt gluggastoppi, nýkomið. Vérðið
mikið lækkað.
O. Ellingsen.
Til mánaðamóta
gegnir hr. læknir Sveinn Gunnarsson sjúkrasamlags og fá-
tækralæknisstörfum mínum. Öðrum læknisstörfum mínum
gegnir hr. læknir Halldór Hansen.
Mattli. Einarsson.
"þenn, sem ekki hætta baráttu
sinni fyrr en þingið er skipað
í samræmi við þjóðarviljann og
menn eru sestir í ráðherrasæt-
in, sem ekki skortir ábyrgðar-
tilfinningu, getu og góðan vilja
til að vinna þau nytjaverk í
þjóðarinnar þágu, sem hinir
aumu leiðtogar framsóknar-
flokksins bersýnilega finna
vanmátt sinn til — og láta því
alt reka á reiðanum, uns kom-
ið er i algert strand. Og þá
verður lítið boðið i smámenni,
sem sjá ekkert nema sinn
tiag og sinnar klíku: Forsætis-
ráðherrann og' fjármálaráðherr-
ann Tryggvi Þórliallsson og
ráðherrana tilvonandi Jónas
Jónsson og' Ásgeir Ásgeirsson.
Nema það fari svo, að hlut-
skifti Tryggva Þórhallssonar
verði að sigla öhu í strand, með
manninn úr sambandinu við
filið sér?
* * *
Daníel Jóhannsson
s í m r i t a r i.
—o—
Árla dags hinn 1. júlí s.l.
barst sú fregn, að þessi efnis-
jnaður væri skilinn við jarðvist
SÍna, eftir stutta en þunga legu.
Hafði liann um áramót kent
iil lasleika, er magnaðist svo
mjög, þrátt fyrir ágætis læknis-
hjálp og hjúkrun á Landspítal-
anum.
Hann var fæddur 19. júlí
1899 að Gröf i Vatnsnesi i
jHúnavatnssýslu.Foreldrarhans
voru Jóhann bóndi Jóhannsson
og Guðrún Daníelsdóttir. Mun
þeim hjónum liafa orðið fleiri
barna auðið, en þar kann eg
.ekki frá fleirum að greina en
Gesti .Tóhannssyni, alþektum
heiðursmanni, búsettum á
Seyðisfirði.
Daniel sál. Jóhannsson var
ínerkismaður fyrir margra
hluta sakir. Og tel eg einstætt,
hve honum tókst að móta
greind sína á jafn stuttu
þroskaskeiði. En það mun vera
Æitt æðsta lilutverk jarðvistar.
Þegar um fermingu hóf hann
baráttuna fyrir gengi sínu.
Byrjaði hann þá að vinna við
símalagningar um nokkurra
ára skeið. En þeir, sem til
þeirrar vinnu þekkja, skilja að
þar muni óharðnaður ungling-
ur oft liafa átt erfiða daga í
misjöfnum veðrum, oft á fjöll-
um uppi. Dugnaðarmaður
gerðist hann svo með afbrigð-
iim og verksýnn, að um tíma
var hann flokksstjóri við lagn-
ingarnar.
Þó snerist liugur hans meir
að kaupsýslu. Og er liann hafði
aflað sér nægilegs fjár, gekk
hann á Verzlunarskóla Islands
og útskrifaðist þaðan 1918. En
um þær mundir hélt landssím-
ínn uppi simritunarskóla og
beindist hugur Dániels sál. þá
aftur til þeirrar stofnunar.
Gekk hann á þann skóla og
lauk prófi, fékk siðan fasta
stöðu hjá landssimaniun sem
1. fl. símritari, og gegndi henni
til 1929.
öll þessi ár, er Daniel starf-
aði hjá landssímanum, var
hann hinn ákjósanlegasti sam-
verkamaður, sakir elju og með-
faeddra hæfileika. I félagsskap
okkar símamanna stóð hann
|afnan framarlega. Ýmist i rit-
ftjárn Símablaðsins eða stjórn
baráttan oft liörð fvrir bættum
kjörum starfsfólksins, og á
Daniel sál. drjúgan þátt i því
sem unnist liefir stéttinni til
hagsbóta. Hann var greindur
vel og fylginn sér svo um mun-
aði, en hinsvegar atliugull og'
flanaði að engu. Landssíminn
misti mikils með Daníel sál.,
en samtakakeðja símamanna
einn haldbesta hlekkinn.
Vinfastur var Daniel sál. þar
sem hann tók vinskap.,en vand-
ur var hann að vinavali. Lýsir
það festu og' trygð. Alvörugef-
inn var hann, meir en títt er
um jafn unga menn. Mun þar
miklu hafa valdið, live alvöru-
þrungið líf byrjaði snemma að
móta manninn. Hinsvegar gat
hann verið glaðvær mjög í
vinahóp, og þá oft hrókur fagn-
aðar, sakir andlegra yfirburða
yfir meðalmanninn.
Eftir að Daníel fór frá lands-
símanum 1929 fékst liann við
verslunarstörf og einnig eitt-
hvað við blaðamenslcu.
Það er sár söknuður ættingja
og vina, að sjá á bak slíkum
efnismanni i blóma jarðvistar.
Og ósjálfrátt spyr maður upp
í þögulan himininn: Því gáf-
ust lionum ekki fleiri tækifæri
til nytsamra átaka meðal vor?
Góði vinur, eg' sem þekti þig
einmitt þau árin, er þroski
oklcar beg'gja var að mótast,
liefi feng'ið það svar, að þin
hafi þurft við á hærra þroska-
stigi. Það er tvent í senn: Gleði-
blándin huggun og bjargföst
vissa. — Mætti svo einnig verða
ættingjum og öðrum vinum
þínum.
Kveð eg þig, vinur, með ósk
uin hraðfleygt gengi á braut
þróunar.
Gunnar Bachmann.
Veðurhorfur í dag.
I gær var spáð rigningu hér,
en hún náði ekki lengra en til
Grindavíkur og láglendisins
austan fjalls. — I gærkveldi
voru enn horfur á sunnan átt
og rigningu í dag, samkvæmt
þeim skeytum, sem komin
voru, en Veðurstofunni höfðu
þá engar fréttir borist frá skip-
um vestur í hafi.
Vísir kemur ekki út
á morgun (mánudag) vegna
fridags prentara. Næsta blað
kemur út á þriðjudag.
Síra Octávíus Thorláksson
frá Selkirk kemur hingað
ásamt fjölskyldu sinni 9. þ. m.
frá Kaupmannahöfn. Hann hef-
ir verið 16 ár trúboði í Kína og
er nú á leið lieim til Kanada.
Síra Octavíus er sonur síra
Steipgríms Þorlákssonar í Sel-
kirk, en kona hans er ættuð
héðan úr Reykjavík. Þau eru
bæði fædd vestan hafs og hafa
aldrei til íslands komið.
Sextugsafmaeli.
Guðríður Jónsdóttir, Hverfisgötu
gA i Hafnarfirði, á sextugsafmæli
á niorgun.
Skákmeistari heimsins,
dr. jur. A. Aljechin, keniur hing-
að til landsins á e.s. íslandi í dag
á vegum Skáksambands íslands,
og verða haldnar hér í bænum að
minsta kosti tvær skáksýningar á
meðan heimsmeistarinn dvelur hér
—- Fyrri sýningin, fjöltefli við 40
menri, verður hatdin 11. k. þriðju-
dagskveld kl. 8 í K. R. húsinu.
Kep].)a þar við heimsmeistarann
allir Ijestu taflmerin úr Reykjavík
og Hafnarfirði, og verður gaman
að sjá hvernig sú viðureign fer,
eða hvort Islendingar standa sig
ver'en t. d. Danir, Svíar og Norð-
menn, sem teflt hafa við dr. Alje-
chin á sama hátt. —- Sökum þess
að búðir allar verða lokaðar sunfiu-
dag og mánudag, þá verða að-
göngumiðar að þessari fyrri sýn-
ingu seldir i tóbaksbúðinni i Hótel
Borg í dag, sunnudag og mánudag.
Tk.
Dýrtíðin og saumastofan.
Fyrir kosningarnar í sumar
skýrði Tíminn frá þvi, að stjórn-
arliðið hefði þá nýlega komið sér
upp saumastofu á Laugaveginum
og væri henni ætlað að ráða bót á
dýrtíðinni. Skömmu" síðar var frá
þvi skýrt, að „árangurínn væri
glæsilegur.“ Varð ekki'annað ráð-
ið af orðum blaðsins, en að sauma-
stofan (og Þórsfiskurjnn) væri i
þann veginn að steindrepa alla dýr-
tið i bænum. — Hentu sumir gam-
an að þessu, en aðrir sögðu að
þetta væri bara byrjunin. Bráðlega
mundi stjórnin setja á laggirnar
skóaraverkstæði, „billiardstofu“ og
kaffihús, en næsta vor væri í ráði
að flokkurinn stundaði grásleppu-
veiðar af kappi, og þá skyldu menn
nú sjá, hvort dýrtíðin færi ekki að
láta sig fyrir alvöru. — Eg hefi nú
ekki orðið þess var, að dýrtíðin
hafi „látið sig“ hið allra minsta,
þrátt fyrir saumastofuna. en vera
má að umskiftin komi, þegar stjórn-
in leggur grásleppunetin í þinglok-
in að vori.
Hannes.
Sundmeistaramótið
hélt áfram i Örfirisey á fimtu-
dag. Kept var i þessum sundum:
4X50 m. boðsund: 1. Sundfél.
Ægir 2 mín. 14.2 sek. (nýtt ísl.
met),*-2. Glímufél. Ármann 2 mín.
18.8 sek. Að eins þessi tvö félög
kepptu. — 50 m. drengjasund:
1. Hafliði Magnússon (Á.) 43.9
sek. 2. Ragnar Guönason (Á.)
44.2 sek. 3. Rögnvaldur Sigurjóns-
son (Æ.) 45.1 sek. — 100 m. kven-
sund: 1. Þórunn Sveinsdóttir (K.
R.) 1 min. 44.8 sek. 2. Lára
Grímsdóttir (Æ.) 1 min. 48.9 sek.
3. Jóna Sveinsdóttir (Æ.) 1 niín.
49 sek. Tíminn bjá þeirri fyrstu
er sami og íslenska metiö. — 400
m. frjálst sund: 1. Jónas Hall-
dórsson (Æ.) 6 min. 39.4 sek.
(nýtt met). 2. ÞórSur Guðmunds-
son (Æ.) 7 mín. 17.7 sek. 3. Elías
Valgeirsson (K. R.) 7 mín, 55.3
sek. Sundkongurinn lækkaði metið
rækilega í þetta skifti -— það var
7 mín. 10.8 sek. —• en betur má ef
duga skal, og það er vist enginn i
vafa um, áð Jónas á eftir að gera
þaS mun betur áður lýkur.
íþ.
Matth. Einarsson,
læknir, verður fjarverandi til
mánaðamóta. Á meðan gegnir
Sveinn Gunnarsson læknir sjúkra-
samlags- og fátækralæknisstörfum
hans, en Halldór Hansen læknir
öðrum læknisstörfum.
Kvikmynd af Alþingishátíðinni,
tekin af Frökknm og' gefin
hingað, var sýnd í Nýja Bíó kl.
5 í gær. Mun flestum, sem á
horfðu, liafa þótt myndin næsta
ófullkomin.
Hljómsveit Reykjavíkur
1925—1931 er nafn á bæk-
lingi, sem nýlega er kominn út.
Höfundurinn heitir Kristján
Sigurðsson.
Útvarpið í dag og á morgun.
Sunnud. 2. ágúst kl. 10: Messa
í. dómkirkjunni (síra Jónmundur
Iíalldórssson, prestur á Stað í
Grunnavík). — 19,30: Veðurfregn-
ir. — 20,15: Grammófónhljómleik-
ar (Kórsöngur) : Guð, heyr núna
bæn, úr 55. sálmi Daviðs. Fyrsti
sálmur Davíðs. Sungið af Don Kó-
sakka-kómum. Mason: Hærra minn
guÖ til þín. Beethoven: Lofsöngur.
Sungið af Sandnes-Kameraterne.
20,30: Erindi: Um heiminn og líf-
ið (Dr. Helgi Péturss). — 20,50: