Vísir - 21.08.1931, Side 3
VÍSIR
þrjóskast við að greiða, ef við
höfum nokkur ráð. En sann-
leikurinn er sá, að okkur er oft
alveg ómögulegt að greiða op-
inber gjöld í tæka líð, sakir fé-
leysis. Við neyðumst til að láta
greiðsluna dragast, stundum
svo, að við verðum ár á eftir.
X)g okkur munar um að greiða
12% á ári af því fé, sem við
raegum þó alls ekki missa, í
liina botnlausu hít, bæjarsjóð-
jnn.
Vaxtagreiðsla af útsvarsfé er
ekkert aðliald að þeim, sem
ekki geta borgað. Við borguin
ekki fyrr en við getnm, þó að
vextir sé heimtaðir, og má þá
;að þvi leyti einu gilda hvað
heimtað er, hvort beldur y2%
eða jafnvel 10% á mánuði. En
náttúrlega græðir bæjarsjóður
á þvi, að þlokka af okkur vexti
j ofanálag.
Eg veit ekki hvernig peninga-
iiiennirnir hafa það með sínar
útsvarsgreiðslur, en tel lang-
líklegast, að þeir borgi í tæka
tíð og þnrfi enga vaxtasvipu á
:sig. I
Frumvarpsmennirnir, er áð-
ur voru nefndir, þingmenn okk-
ar Reykvíkinga, bæta gráu ofan
á svart, er þeir ætla að fá það
lögfest, að rjúka megi á hvern
gjaldanda liálfum mánuði eftir
gjalddaga og taka útsvarið lög-
taki, án alli-ar aðvörunar. Hing-
að til hefir það þó verið auglýst,
hvenær lögtalc yrði látið fram
fara, ef útsvar væri ekki greitt.
;Veit eg með vissu, að þær að-
varanír hafa iðulega orðið til
þess, að gjaldendur bafa farið
að urga saman peningum í op-
ínberu gjöldin, til þess að kom-
ast hjá því, að greiða löglaks-
kostnað. Nú er lögtaksmanni
ætlað að koma sem þjófur á
ílóttu og láta greipar sópa um
þær litlu reytur, sem til kunna
#ð vera. Ákvæðið er líklega sett
til þess, að lögtaksmaður skuli
hafa nóg að gera allan ársins
hring, og ennfremur til þess, að
bæjarsjóður græði á lionum
heldur en Jiilt.
Eg liefi mörg ár úndanfarin
verið fjarverandi úr bænum
frá þvi í maímánuði og fram i
septemberlok. Eg liefi reynt að
borga, útsvarið þegar eg Jiefi
komið heim á haustin, og lief-
ír ekki orðið að sök, svo að cg
viti. Verði nú frumvarj) þeirra
Héðins og félaga lians að lögum
óbreytt, get eg átt von á þvi,
ef eg fer að vanda minum úr
bænum í atvinnuleit að vori,
að þrcnn eða fern lögtök verði
látin fara fram i lieimili mínu,
jneðan eg er fjarverandi. Lög-
"taksmaðurinn verður að darka
heima hjá mér i júní, júlí, ágúst
og september, og má nærri
geta liversu skemtilegar þær
heimsóknir verða fyrir konuna
mina.
Nú kunna menn að segja, að
eg geti skilið nægilega peninga
eftir lijá konunni þegar eg fari,
svo að hún geti greitt útsvarið,
en að öðrum kosti geti eg scnt
peningana í tæka tíði En þar til
er þvi að svara, að eg hefi enga
peninga til að skilja eftir. Kon-
an og börnin vinna mestmegnis
fyrir sér sjálf meðan eg cr fjar-
verandi.*Og ráðningarkjör min
hafa verið ]>au að undanförnu,
að eg liefi litla peninga fcngið,
fyrr en að vinnutímanum lokn-
um. Mér liefir virst peningarnir
-verða öllu drýgri með því móti,
að taka þá alla i einu í „enda-
lok verlíðar“, en að vera að
taka þá smátt og smátt. — Eg
er ekki að lialda því fram, að
JSvona muni vera ástatt lijá
-mörgum, en þetta dæmi af
sjálfum mér er rétt, og svipað
þessu getur verið ástatt um
fleiri.
Eg vildi óska að þetta inn-
heimtufrumvarp þeirra fjór-
menninganna yrði ekki að lög-
um. Og mér þykir fara illa á
því, að þingmenn okkar meti
liag líæjarsjóðs meira, en liag
okkar borgaranna, sem gert
höfum þá að fulltrúum okkar
á Alþingi.
Eg er hvergi nærri viss um,
að þessir háttvirtu þingmenn
væri svona rífir á dráttarvaxta-
tökunni úr vösum okkar, né
fíknir í lögtökin fern eða finnn
á ári, ef kosningar slæði nú fyr-
ir dyrum.
Verkamaður.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavik xi stig, ísa-
firöi io, Akureyri 8. Seyðisfirði
io, Vestmannaeyjum ío, Stykkis-
liólmi 10, Blönduósi 9, Hólum í
Hornafirði 9 (skeyti vantar frá
Raufarliöfn, Grindavík og Ivaup-
mannaliöfn), Færeyjum 8, Juliane-
liaal) 8, Angmagsalik 1, Jan Mayen
3. Hjaltlandi 10, Tynemouth 13
st. Mestur hiti hér i gær 14 st.,
minstur 7 st. Sólskin 15,5 stund-
ir. Grunn lægð yfir miðju íslandi,
en háþrýstisvæði yfir sunnan-
verðu Grænlandshafi. Lægö yfir
Noröursjónum. — Horfur: Suð-
vesturland, Faxaflói: Hægviðri.
Sumstaðar skúrir, en lijart á rnilli.
Breiðafjörður. Vestfirðir, Norður-
land: Hægviðri. Úrkomulaust og
víða léttskýjað. Norðausturland,
Austfirðir: Hægviðri. Skýjað loft,
en úrkomulaust. Suðausturland:
Vestan gola. Sennilega þurt.
Arni Pálsson
liókavörður hefir verið skipaður
prófessor í sögu viö Háskóla Is-
lands.
Sigurður Guðmundsson,
slíólameistari á Akureyri, verð-
ur að sögn settur fræöslumála-
stjóri í stað Ásgeirs Ásgeirssonar,
sem nú er orðinn fjármálaráð-
herra.
Ný stjórn.
Eftir miklar þrautir og lang-
vinnar fæðingarhríðir liefir fram-
sókn nú loks tekist að mynda nýja
stjórn. Var skipunin tilkynt i
ljáðum deildum Al])ingis i dag.
St jórnin er þanmg skipuð:
Tryggvi Þórhallsson forsætisráð-
herra og atvinnumálaráðherra,
Jónas Jónsson dóms- og kirkju-
málaráðherra og Ásgeir Ásgeirs-
son fjármálaráðherra. Mun þetta
órðugasta stjórnarfæðing hér á
landi, því að léttasótt madclömu
Framsóknar hefir staðiö hvíldar-
laust i 38 sólarhringa, auk las-
leika og ýmislegra „aðkenninga“
áður en þing kom saman. — Það
er á margra vitorði, að litlir kær-
leikar hafa verið með þeim Jón-
asi og Ásgeiri og hefir hvorugur
þóttst vilja eiga niikið saman við
hinn að sælda. En þegar báðum
stóðu völd til lioða, féll alt i ljúfa
löð. ,,Á þeim degi urðu þeir Heró-
des og Pílatus vinir.“
Esja
var á Norðfirði i morgun.
Súðin
var á Norðurfiröi í morgun.
Til veiða
eru þeir að liúast Gyllir og
Tryggvi gamli.
Suðurland
fór til Borgarness í morgun.
Berjaför
fara sendisveinar n. k. sunnudag
upp að Tröllafossi. Verður farið
frá skrifstofu Merkurs Lækjar-
götu 2 um morguninn kl. 9 i kassa-
bilum. Kostar farið báðar leiðir
tvær krónur og fimmtíu. Þátttak-
endur verða að gefa sig fram á
skrifstofu Merkúrs fyrir hádegi á
I.augardag. S.
Næstkomandi sunnudag
efnir Glímufélagið Ármann til
skemtiferðar austur að Laugarv.
I heimleiðinni verður farið um
Þingvelli. Eins og allir vita er
þetta einhver hin allra skemtileg-
asta leið, sem farin er á bílum, og
Laugardalurinn mjög rómaður
fvrir fegurð. í förinni veröur á-
gætur harmonikusþilari, svo að
fólkið þarf elvki aö láta sér leiðast
á viðkomustöðunum. Sjá augl. í
blaðinu í dag. A.
Reykjavíkurkeppnin.
Kappleikurinn i gærkveldi milli
Fram og Vals fór þannig' að Val-
ur vann með 1—o. Úrslitakapp-
leikur mótsins fer fram föstudag-
inn 28. þ. m. milli K. R. og Vals.
Efnalaug Reykjavíkur
Laugaveg 34. biður að vekja at-
hygli á því, aö afgreiðsla hennar
veröur lokuð allan daginn á morg-
un, samanber augl i blaðinu i gær.
Leiðrétting.
Ekkjan Jóhanna Jónsdóttir, sem
átti 80 ára afmæli 15. ágúst. á
heima á Brekkustíg 14 B, en ekki
15 B, eins og stóð í afmælisfregn
i Vísi.
Útvarpið í dag.
Kl. 19,30: Yeðurfregnir.
20,30: Hljómleikar (Emil Tlior-
oddsen, slagliarpa). — 20,45:
Þingfréttir. — 21: Veðurspá og
fréttir. — 21,25: Lesin upp
dagskrá 30. útvarpsviku. —
21,30: Gramniófónhljónileikar
(liljómsveit). Beetlioven: Sym-
fónía nr. 2, D-dúr.
Áheit á Strandarkirkju,
afheiit Visi: 10 kr. frá N. N., 5
kr. frá S. Ó., 5 kr. (gamalt áheit)
frá Þ. J.
Tilkpning frá Í.8.1.
—o—
FB. 19. ágúst.
Staðfest íþróttamet.
Nýlega hefir stjórn í. S., í. stað-
fest þessi afrek sem íslensk met:
Spjótkast, betri hendi: 52,41 stiku,
,sett 17. júní 1931 af Ásgeiri Ein-
arssyni (Á.). Kúluvarp, betri
bendi: 12,07 stikur, sett 17. júní
1931 af Marinó Kristinssyni (Á.).
Grindahlaup 110 stikur á 20,2 sek.
sett 18. júní 1931 af Stefáni
Ejarnasyni (Á.). Ferþraut (1000
stiku hlaup, hjólreiðar, kappróður
og sund) á 35 mín. 51.1 sek, sett
31. ágúst 1930 af Hauki Einars-
syni (K. R.). Bringusund, 100
stilcur á 1 min. 33,5 sek, sett 12.
júlí 1931 af Þórði Guðmundssyni
(Æ.). Sund, frjáls aðferð 100 stik-
ur á 1 mín. 14,3 sek., sett af Jón-
asi Halldórssyni (Æ.). Bringu-
sund: 200 stikur á 3 mín. 41 sek.,
sett af Þórunni Sveinsdóttur (K.
R.) 26. júli 1931. Sund. frjáls að-
íerð, 400 stikur, á 6 min. 39,4 sek.
sett 30. júli 1931 af Jónasi Hall-
dórssyni (Æ.). Boðsund: 4X5°
stikur á 2 min. 14,2 sek., sett 30.
júlí 1931 af sundfélaginu Ægi.
Spjótkast, beggja handa, saman-
lagt: 84.02 stikur, sett 7. ágúst á
meistaramóti í. S. í. í Vestmanna-
„Dettifoss"
fer annað kveld tll Hnli og
Hamborgar kl. 11.
Farseðlar óskast sdttlr
fyrir hádegi á morgun.
Hveiti í sekkjnm
(Alexandra), 14 kr. pekkurinn.
Bergsveinn Jónsson.
Hverfisgötu 84.
Sími: 1337.
eyjum af Friðriki Jessyni (H.
V.). Sundafrekin eru sett i svölum
sjó.
íþróttaráð Vestm.eyja. Þessir
menn hafa verið skipaðir af í. S.
í. i iþróttaráðið til eins árs: Páll
V. G. Kolka formaður, Sigurður
Gunnarsson, Óskar Sigurhansson,
Haraldur Eiriksson og Jóhannes
Jóhannesson.
Styrktarfélagi í. S. í. hefir ný-
lega gerst Jakób SigurðsSon, sund-
kennari, Vogurn, Gullbringusýslu.
Meistaramót í. S. í. Framhald
meistaramótsins verður haldið á
íþróttavellinum i Reykjavík og
liefst það 24. ]). m. Hefir Ánnann
og K. R. verið falið að standa fyr-
ir mótinu. Er búist við keppend-
um utan af landi.
Hitt og þetta.
Bókmentaáhugi í Bretlandi.
Á undanförnum árum hefir mik-
iö verið unnið að því, að auka á-
huga manna í Bretlandi fyrir því
að nota bókásöfnin, sem nú eru
i hverjum bæ og liverju héra'ði
landsins og mörg i sumum. Góðu
skipulagi hefir verið komið á
starfsemi bókasafnanna. — Geta
menn þar fengið lánaðar bækur
til fræði- og skemtilesturs sér að
kostnaðarlausu. — Skýrslur um
íekstur bókasafnanna koma út við
cg við og af skýrslum þessum má
íá ýmsar mikilvægar upplýsingar
um bókmentaáhuga alþýðumanna,
bvernig bókmentasmekkurinn er
o. s. frv. i hinum ýmsu héruðum
og borgum. Þannig er nýlega út-
komin skýrsla um bókasafnið í
Croydon, sem er ein af útjaðra-
borgum Lundúna. Bókaútlán þar
gefa þvi góða hugmynd um bók-
mentaáhuga breskra borgarbúa,
því Cr.oydonbúar eru eins og geng-
ur og gærist um íbúa annara
breskra borga. Croj'donbúar lána
árlega eina miljón lióka úr Al-
þýðubókasafninu og skýrslurnar
sýna. að fólk þar er að verða vand-
ara í vali er það lánar bækur til
lesturs. Glæpa- og leynilögreglu-
sögur eru i langtum minni eftir-
spurn en.áður og eftirspurnin eft-
ir „styrjaldar“-bókmentum rnink-
ar einnig stöðugt. Hinsvegar
eykst eftirspurnin eftir verkum sí-
gildu (klassisku) höfundanna.
Itinnig eru þær bækur mikið lesn-
ar. sem fræða menn um vanda-
mál þau, sem mest e>' um deilt
nú á timum. Þar sem skýrslur
annara bókasafna benda ótvírætt
í sömu átt er talið víst, að iióka-
útgefendur taki til greina þær
bendingar. sem í skýrslunúm fel-
Verðlisti.
Bónkústar * 10,00
Gólfmottur 1,25
3 gólfklútar 1,00
Gólfbón, dósin 1,00
Bönklútar . 0,85
4 bollapör 1,50
Skálasett, 5 stk. 3,75
Skálasett, (i stk. 6,00
Ávaxtastell 5,50
Fataburstar 1,00
Skóburstar 0,75
Hárburstar 0,95
Vatnsglös 0,30
Flautukatlar, alum. 3,50
Galv. fötur 1,25
Email. fötur 1,90
Smádiskar 0,30
3 sápust. 1,00
3 klósettrúllur 1,00
6 sápustykki 1,00
Dósalmifar 0,50
Berjafötur 0,50
Og hundrað aðrir ódýrir bús-
hlutir.
Sig. Kjartansson,
Laugavegi og Klapparstíg,
Dýrtídarlækkuii.
í rúma 5 mánuði hefir Fíll-
iim selt flestar vörur minst 10%
ódýrara cn alment gerist. —
Með þvi að versla þar liefðuð
þér getað og getið enn sparað
yður á eftirtöldum vörutegund-
um sem hér segir, miðað sem
næst við alment verð:
Á smjörlíki 18 au. pr. kg,
Plönlufeiti 20 au. pr. kg.
Kæfu 25 au. pr. kg.
Mjólkurosti, ísl., 64 au. pr. kg.
Mysuosti 15 au.
Hveiti „Alexandra“, 14 au. pr.
kg-
Haframjöli 5 au. pr. kg.
Hrisgrjónum 5 au. pr. kg.
Sagógrjónum 9 au. pr. kg.
Kartöflumjöli 7 au. pr. kg.
Rúsinum 15 au. pr. kg.
Sveskjum 15 au. pr. kg.
Þurlc. eplum 30 au. pr. kg.
Þurk. Aprikosum 30 au. pr. kg.
Súkkulaði „Consum“ 50 au. pr.
kg-
Súkkulaði „Husholdnings“ 40
au. pr. kg.
Súkkulaði „Pette“ 15 au. pr. pk.
Ivaffi, brent, i pökkum 40 au.
pr. kg.
Kaffi, óbrent 25 au. pr. kg.
Kaffibæti, L. D„ 24 au. pr. kg.
Gætið að því að þetta er ör-
litill liluti af öllum þeim vöru-
tegundum, sem verslunin liefir
á boðstólum til daglegrar notk-
unar og sem jafnmikið má
spara útgjöld á með þvi að
kaupa þær í Filnum og greiða
við móttöku.
Vepslunin Fíllinn
Laugavegi 79.
Simi: 1551.
Gúmmístimplar
eru búnir til í
Félag-sprentsmiðjunni.
Vandaðir og ódýrir.
ast, og leggi aöaláhersluna á út-
gáfu vandaöra bóka. Þá er þetta
og niikilsvert aö því leyti, aS ýms-
ir góöir höfundar njóta góðs af
því á niarga vegu, aö verk þeirra
eru meira metin en áður var, er
ruslabókmentirnar voru yfirgnæf-
andi. (Úr blaðatilk. Bretastj.).