Vísir - 10.10.1931, Blaðsíða 3
VISIR
Vestnrfðr Lavals.
—o—
Þegar veslurför Lavals, i'or-
sælisráðherra Frakklands,
hafíi verið ákveðin, var þcgar
jnikið rætt um þessa fyrirhug-
uðu för. Hoover forseti bauð
Laval að koma vestur og var
gert ráð fyrir, að Laval færi
vestur um miðbik mánaðarins.
Frakknesku blöðin, sem út
komu um það leyti og förin var
ákveðin, töldu heimsókn þessa
mundu liafa mikla þyðingu og
eitt blaðið sagði, að þessi lieim-
sókn væri eini ljósdepillinn á
hinum ínyrka fjármálahimni.
Blöðin i Frakklandi virtust vera
á einu máli urn það, að nú væri
það undir samvinnu Frakklands
x>g U. S. A. komið, hvort takast
mundi að lælcna fjármálamein
þjóðanna og koma öllu á réttan
kjöl aftur. Frakkland og Banda-
rikin liefði til samans :;i hluta
af öllum gullforða heims — og
gæti þessar gullauöugu jyjóðir
ekki eitthvað gert, væri ekki
von að aðrar gæti það. M. a.
segir blaðið Temps á þessa leið:
„Þessar tvær þjóðir hafa það,
sem til ]>arf, „afl þeirra hluta,
sem gera skal“, og geta því
hjálpað öðrum þjóðum, sem eru
i liættu, og Frakkar og Banda-
ríkjamenn fullnægja ekki þeirri
skyldu, scm mannkyn alt með
réttu býst við að þeir inni af
hendi og sagan virðist ætla
þeim að gera, ef þeir samein-
ast ekki um að vinna jretta
skylduverk“.
Nokkuð má af því marka,
sem Laval sagði, er hann þáði
boðið frá Hoover, með hverj-
um hug hann fer vestur. „Eg
þigg þetta boð. Við munum
ræða fjármálin saman og á
livern hátt megi koma þeim i
gott liorf. Við megum ekki
gleyma þvi, að með starfi okk-
ar getum við lagt grundvöll að
því, að betri tímar komi um
allan lieim. í nafni Frakklands
-sendi eg Hoovcr forseta kveðjú
og fullvissa Iiann um einlæga
-vinátju Iands míns.“
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, síra
Friðrik Hallgrímsson. Kl. f>,
síra Bjarni Jónsson.
í fríkirkjunni hér ld. 2, sira
Björn O. Björnsson frá Ásum
í Skaftártungu. — 1 frikirkj-
unni í Hafnarfirði kl. 2, síra
Jón Auðuns.
í Landakotslcirkju: Hámessa
kl. í) árd. og kl. 6 siðd. guðs-
þjónusta með prédikun.
1 spítalakirkjunni i Hafnar-
firði: Hámessa kl. 9 árd. og
kl. 6 síðd. guðsþjónusta með
prédikun.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 8 sl„ ísafirði
ö, Akureyri 3, Seyðisfirði 4,
Vestm.éyjum 8, Stykkishólmi 5,
Blönduósi 5, Raufarhöfn 4,
Hólum i Hornafirði 4, Grinda-
vík 7, Færevjum 10, Juliane-
haab — 1, Angmagsalik -4- 1,
Kauj>mannahöfn 12 st. Skeyti
vantar frá öðrum stöðvum.
Mestur hiti hér i gær 9 st„
minstur 4 st. Urkoma 7,1 mm.
Sólskin 2,3 stundir. -— Lægðin,
sem var við Suður-Grænland
í gærkveldi, hefir hreyfst hratt
porðaustnr eftir og er nú vfir
Faxaflóa og heldur áfram norð-
austur yfir landið. Horfur: Suð-
vesturland, Faxaflói: Suðvest-
an og vcstan átt og sluirir i
dag, en sennilega hvass norðan
í nótt. Breiðafjörður, Vestfirð-
ir: I lvass norðaustan og siðan
norðan. Rigning eða slvdda.
Norðurland: Allhvass suðaust-
an og íigning' í dag, en norðan
átt og slydda, þegar liður á
nótlina. Norðausturland, Aust-
firðir: Vaxandi sunnan átt í
dag, en norðan átt á morgun.
Suðausturland: AUhvass suð-
vestan og skúrir í dag, en léttir
til með norðvestan átl t nótt.
40 ára hjúskaparafmæli
eiga í dag hjónin Ingibjörg
Ólafsdóttir og Gísli Þórðarson,
Scllandsstig 30.
Hjúskapur.
Siðastl. laugardag voru gefin
saman i hjónaband af sira
Bjarna Jónssyni ungfrú \ral-
gerður Anna Eyþórsdóttir og
Sigurbjörn Ágúst Einarsson
hakari. Heimili ungu hjónanna
er á Bergstaðastræti 8.
SiíSastl. stmnudag voru gefin
saman í hjónaband at" síra Arna
Sig'urSssyni ungfrú Ásta F.inars-
dóttir o g Ragnar Hjörleifsson
bankaritari. Heimili þeirra er á
Barónsstíg' 78.
Síðastl. laugardag voru gefin
saman í hjónaband af sira Áma
Sigurðssyni, ungfrú Guðbjörg
Þorbjörnsdóttir og' Ásmundur
Vilbjálmsson rnúrari. Heimili
þeirra er á Seljaveg 15.
Siðastl. mánudag voru gefin
saman i hjónaband af sira
Bjarna Jónssyni, Sigríður .T.
Einarsdóttir og Runólfur Stef-
ánsson. Heimili þeirra er á
Laugaveg 11.
Magnús Árnason
listamaður hefir sýningu á
listaverkum sínum i sýningar-
skálanum við Alþingishúsið. —
Opin daglega frá kl. 10 árdegis
lil 5 síðdegis.
„Fóstra“
hcitir ofurlíti'S rit. sem kemur
út í vikulokin. Utgefandi erBarna-
vinfél. Sumargjöf. Kostar það 50
aura, og mun koma út fjórum
sinnum í vetur. cöa oftar, eftir
ástæSum. I ]>essu fyrsta hefti eru
íitgeröir eftir Steingr. Arason,
Hallgrím Jónsson. Arngr. Krist-'
jánsson, Dr. Gunnl. Claessen, Sig.
Thorlacius og ísak Jónsson. —
Foreldrum mun gefinn kostur á
::8 sjá ritiö og kynnast því næstu
daga. Rit ]>etta á aö stuöla aö
nánari samvinnu en veriiS hefir
milli kennara og foreldra skóla-
barna.
Gullfoss
kom frá útlöndum i gær.
Meðal farþega voru: Prófessor
Einar Arnórsson alþnt., Jón
Baldvinsson alþm., Héðinn
Valdiinarsson alþm., Mr. Dun-
can, frú G. Gunnlaugsson, frk.
Kristin Ingimundardóttir, Páll
Helgason, frk. Rannveig Þor-
steinsdóttir, Karl Jónsson.
Dettifoss
kom frá úllöndum fyrir há-
degi í dag.
Suðurland
kom frá Borgarnesi í morg-
un. —-
Geir
kom af veiðum í g;er og fór
til Englands.
ísfiskssala.
„Ari“ hefir sclt í Englandi
fisk, sem hann flutti þangað
fyrir báta i Önundarfirði og
Súgandafirði, fyrir 1090 stpd.
„Gulltoj>pur“ seldi i fyrradag
Rafmagnsperup
ódýrastar.
Helgi Magnússon & Co.
fyrir 945 stpd. og „Belgaum“ í
fyrradag fyrir 1005 stpd. „Rán“
seldi á miðvikudaginn fvrir 872
stpd. og „Skúli fógeti“ í fyrra-
dag' fvrir 861 stj>d.
Skátafélagið Ernir
biður að minna félaga sína
og aðra velunnara að koma
munum á hlutaveltu félagsins
i Iv. R. húsið, frá kl. 5 c. h.
Hvammstangadeilan.
Þegar blaðið var að fara i
j>ressuna, fréttist cftir góðum
heimildum, að Hvammslanga-
deilan mundi til lykta leidd i
dag. Mun Hannes Jónsson liafa
gengið að kröfum verkalýðsfé-
lagsins. Verður nánara að þessu
máli vikið í blaðinu á morgun.
Barnalesstofan.
Vegna mikillar aðsóknar sið-
astliðinn sunnudag og einróma
ánægju barnanna, hefir verið
ákveðið að segja börnum sögur
i Alþýöubókasafninu kl. 3—4 á
hverjum sunnudegi fyrst um
sinn.
H já Ipr æðisherinn.
Samkomúr á morgun: Helg-
unarsamkoma kl. 10* 1/> árdegis.
Sunnudagaskóli kl. 2 siðd. Her-
mannasamkoma kl. 4 siðdegis.
Hjálpræðissamkoma ld. 8. —
Lúðraflokkurinn og strengja-
sveitin spila. Kapt. Axel Olsen
og frú stjórna. Allir velkomnir.
Haustmarkaöur K. F. U. M.
h'eldur áfram í húsi félagsins
í dag, og er þar enn til margs-
konar varningur, ætur og óæt-
ur, þó mikið seldist i gær. Er
hvergi hægt að gera jafngóð
kauj> og á haustmarkaðnum.—
í kvöld er skemtun i stóra saln-
um. Þar syngur Erling Olafs-
son einsöng, frú Guðrún Lár-
usdóltir talar, frú Guðrún Á-
gústsdóttir svngur og Karlakór
K. F. U. M. svngur. Aðgangur
er aðeins ein króna. — Á morg-
un ld. 3 hefst hlutavelta, og
verða ]>ar engin núll og ekkert
haj>j>drætti.
Birting' veðurfregna.
Ríkisútvarj)ið biður ]>ess get-
ið, að veðurfrcgnum á sunnu-
dögum verði fvrst um sinn
varpað út á þeim tímum, sem
hér segir: Kl. 1.0,40 og kl. 19,30.
Þetta Iiefir misprentast i sér-’
]>rentun dagskrárinnar og leið-
réttist hér með.
TJtvarpið í dag'.
'10.15 Veðurfregnir.
16.10 Veðurfregnir.
19.05 Fvrirlestrar Búnaðarfé-
lagsins.
19.130 Veðurfregnir.
19.35 Fyrirlestrar Búnaðarfé-
lagsins.
20.00 Klukkusláttur.
l.eikril: IJr Galdra Lofti
(Haraldur Björnsson og
Þóra Borg).
20.25 Óákveðið.
20.30 Fréttir.
20.55 Öákveðiö.
21.00 Grammófónhljomleikar:
Schubert: Trio oj>. 99, nr.
1 í B-dúr.
Danslög til kl. 24.
Munið
fyrirlestur Jóh. S. Birkilands
kl. 7i/2 i kveld í Nýja Bíó.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá M„ 5
kr. frá E. J„ 2 kr. frá konu.
Siliurrefir.
Frá silfurrefabúinu á Bjarma-
lamli geta menn nú fengið 1.
flokks silfurrefi til undaneldis.
Öll tilsögn við refarækt veitl ó-
keyjns. Wrðið hið sama og á
refum frá Noregi. Eingöngu 1.
flokks dýr. Semjið við okkur
sem fyrst. Simi 392.
RefaMIð á Bjarmalandi.
Hin dásamlega
TATOL'handsápa
mýkir og hreinsar hörundið
og gefur fallegan og bjartan .
litarhátt.
Einkasalar
S
HITSTOFÁN, ÁðaUtrætl 9.
Bmnrt branS,
neKti etc.
sent heÍM.
Veitingar
Hitt og þetta,
—O—•
Framleiðsla á cementi
er mikil í Californíu. Arið sem
leið voru framleiddar þar
9,831,938 tunnur af cementi og
var verðmæti þeirra á vinslu-
stöðvunum áætlað $14,575,731.
Iíurt Björkvall,
sænskur flugmaður, flaug frá
Stokkhólmi til London í sumar,
án viðkomustaða. Iiann var 9
stundir og 4 minútur á leiðinni.
Vegalengdin er 931 ya ensk míla.
Gullforði Bandaríkjanna.
Snernma í fyrra mánuði áttu
Bandaríkin nær helming alls gulls,
sem til er í heiminum. Skorti þá
ekki nema tvær miljónir dollara til
þess aö allur gullforði landsins
næmi fimm þúsund miljónum doll-
ara. —■ Samkvæmt oj>inberum
skýrslum 2. sept. -var gullforði
Bandaríkjanna þá $ 4.998.000.000.
og hafði aukist' um $ 6.000.000
undanfarna viku, en um $ 498.000.-
000 á árinu. Allur gullforði heims-
ins nemur ríflega $ 11.000.000.000.
Aldrei hefir jafn mikiíS gull verið
i Bandaríkjunum áiSur, en orsök-
in til-þess er talin sú, að þeim, sem
gullið eiga, hafi þótt öruggara að
geyma þa'S í Bandaríkjunum en
öðrum löndum. Því er opinberléga
neitaS, að stjómin hafi gert nokk-
urar rá'Sstafanir til þess að safna
gulli í fjárhirslur rikisins.
Heidrudu
húsmæðup
Biðjið ávalt kaupmann vðar
eða kaupfélag um þær einu
smekkbætisvörur (kryddvöriir)
til matargerðar og kökugerðar,
sem revnast bestar og eru þekt-
astar uni alt landið fvrir gæði,
—- frá
H.f. Efnagerð
Rey kj aví kup,
sem er sú langstærsta, fjöl-
breyttasta og þektasta verk-
smiðja hér á landi i sinni grein.
Gúmmístimplar
eru búnir til í
Félagsprentsmiðjunni.
Vandaðir og ódýrir.
Eggert Claessen
áæ^taréttarmálaftutningsmaður
Skrifstofaí Hafnarstneti 5.
Sjmi 871. Viðtalstími kl. 10—12.
-------- Z-E-I-S-S ---------—
Rak- og Toilet-ljósspeglar.
Sportvöruhús Reykjavílvur.
Energetic business man or firm
required, capable organiser desirous
taking up ageney line in World de-
mand showing remunerative return.
Only inoderate initial capital requi-
red. Communicatc fully to Messrs.
Saul D. Harrison & Sons, Strongliold
Works, West Ferry líoad, Milhvall,
London, E. 14.
Hverfisgötu 18.
Reykjavík.
Verð á 13 plötu geymum
kr. 55.00 hlaðnir.
- 1
í slátrid
þarf að nota íslenska rúgmjölið
frá Mjólkurfélagi Reykjavíkur.
Ekkert annáð rúgmjöl er jafn-
gott til sláturgerðar. — Biðjið
kaupmann vðar um íslenska
rúgmjölið. Hafi hann það ekki
til, þá pantið það beint frá
Mjólkurfél. Reykjavíkur.
Mjólkurfélag Revkjavíkur.
FÆÐI
Stúlkur eru teluiar i fæði
með góðum kjörum, Mjóstræti
8 B. (812
Nokkurir menn geta fengið
fæði og liúsnæði á sama stað.
Laufásvegi 17. (776
FæSi, gott, er selt á Skólavör'Su-
stíg 3 B. (154