Vísir - 11.02.1932, Qupperneq 2
V I S l fí
Fáum daglega:
EGG, glæný frá Akranesi.
Símskeyf!
—o—
London, 10. febr.
United Press. FB.
Aukakosning í Bretlandi.
Aukakosning hefir farið
fram í South Croydon. H. G.
Williams, íhaldsmaður ldaut
19,126 atkvæði, en R. lJ. Messel
9,289 atkvæði.
Aukakosningin fór fram
vegna þess, að fyrverandi þing-
maður kjördæmisins, Sir' Willi-
am Mitchell, var aðlaður.
Frambjóðandi íhaldsmanna’
hlaut færri atkvæði nú en sein-
ast, en orsök þess *r talin su,
að úrslitin hafi verið fyrirfram
viss.
London, 10. febr.
United Press; FB.
Edgar Wallace látinn.
Símfregn frá Beverley Hills,
California, hermir, að rithöf-
undurinn Edgar Wallace sé lát-
inn.
London, 10. febrúar.
United Press. FB.
Aukakosning' í Bretlandi.
í Christchurch, Hampshire,
hefir farið fram aukakosning.
Mills, íhaldsm., lilaut 23.327 at-
kvæði. Dr. G. A. Smith, óháð-
ur verklýðsmaður hlaut 5.135.
Ashley herdeildarforingi, fyrr-
verandi þingmaður kjördæmis-
íns, var nýlega aðlaður, og því
fór aukakosningin fram.
Genf, 10. febrúar.
United Press. FB.
Afvopnunarráðstefnan í Genf.
Grandi, utanrikismálaráðh.
Italíu, hefir haldið ræðu á af-
vopnunarstefnunni og tilkynt,
að Ítalía sé reiðubúin að fallast
á afnám stórra lierskipa, kaf-
báta og flugvéla-skipa, skrið-
dreka (tanks) o. s. frv. Enn
fremur, að bannað verði að nota
flugvélar til að varpa sprengi-
kúlum á borgir, bannað verði
að nota eiturgas í liernaði o. s.
frv.
London, 10. febr. Mótt. 11.
United Press. FB.
Gengi sterlingspunds.
Gengi sterlingspunds, miðað
við dollar, 3.441/8, er viðskifti
hófust, en 3.41%, er viðskiftum
dagsins lauk.
New York: Gengi sterlings-
punds $ 3.43%—3.42.
[PpéttatíFéf
úr Suður-Þingeyjarsýslu.
í febrúar FB.
Ágætistíð
má heita að hafi verið hér fyr-
ir norðan i vetur það sem af er.
Dálítíll snjór um jólaléytið og
fram yfir nýárið, en tók að
mestu upp i janúar. — Storma-
samt hefir verið með köflum
og þá oftast af austri og norð-
austri. Sérstaklega var mikið
veður þ. 12. jan. s. 1. Ekki gerði
það þó neinn verulegan skaða
hér.
Kaupfélag Þingeyinga
hefir sameinað pöntunar- og
söludeild sína nú um áramótin.
Fer nú reikningslialdið í félag-
'inu að mestu leyti fram í Húsa-
vík, en þó er deildarskipun ó-
breytt á félagssvæðinu. Félags-
mönnum hefir fjölgað mjög
þetta ár og hefir nú K. Þ. mest-
alla verslun héraðsins' í sínum
höndum.
Gpautargepð
Tímans.
—0—
í síðasta blaði „Timans“ birt-
ist uppiiaf langrar ritsmiðar,
sem nefnd er: „Vér héldum
heim“. Grein þessi er með öll-
um einkennum þeirra ritsmiða,
sem nú er alnlcnt farið að kalla
„grautargerð Tímans“. Ritgerð-
ir þessar eru frábrugðnar skrif-
um venjulegra manna að því
leyti, að þær eru um alt og'
ekkert. Höfundurinn eða höf-
undarnir vaða úr einu i annað,
staldra livergi við, ræða ekkert
málefni til hlítar, liræra öllu í
eina bendu, skilningslaust og
án samhengis. — Þess þarf
naumast að geta, að flestir eru
löngu hættir að leggja það á
sig, að lesa J>essar langlokur,
því að allar eru þær leiðinlegar
i mesta máta, en heimskan
gengur ljósum logum, berstríp-
uð og roggin.
Venjulega eru Jiessar rit-
smiðir „Tímans“ skrifaðar í
þeim tilgangi, að mannskemma
og' æruméiða einhverja stjórn-
mála-andstæðinga blaðsins. Er
stundum tekinn fyrir einn mað-
ur eða tveir í senn, en stundum
margir. Ber ]>á oft við, að ætt-
ingjar cru látnir „fljóta mcð“,
lífs eða liðnir, ef haganlegra
þykir. Mun „Tíminn“ einn um
þann vopnaburð allra hérlendra
blaða og sennilega allra blaða i
siðuðum ] >j óðfélögum.
Grein sú, sem nefnd var i
uppliafi þessa máls, hlýtur að
vera til orðin, er höf. hennar
var sérstaklega illa fyrirkallað-
ur. Það er ekki líklegt, að nokk-
ur maður, sem ræður að fullu
yfir skapsmunum sinum og
penna, liefði látið annað eins frá
sér fara. Grcinin er botnlaus
elgur frá upphafi til enda.
Þar örlar hvergi, svo að telj-
andi sé, á heilbrigðri hugsun.
Og þó að slíkt sé að vísu al-
vanalegt í „Tímanum", ])á er
þó liér öllu ver á haldið en að
vánda.
Greinin hefst á átakanlegu
vonsku-nuddi út af þvi, að
hæstiréttur Iiefir dæmt dr.
Helga Tómassyni nokkurar bæt-
ur fyrir ástæðulausan og ófor-
svaranlegan brottrekstur ,frá
Kleppi. Þykir það liin mesta ó-
svinna, að hæstiréttur skuli liafa
litið sanngjörnum augum á það
mál og dæmt í því sem lög
stóðu til. Er ráðist á þá Eggert
Briem og Pál Einarsson af mik-
illi grimd fyrir það, að J>eir
skuli hafa látið sig henda slikt,
þvert ofan i vilja stjórnarinn-
ar, en þriðja dómarans er ekki
getið. — Ruglast nú bráðlega
alt fyrir höfundinum út af
þessum raunum og lendir hann
þá um stund hjá Estrup hinum
danska. — En bráðlega losnar
hann þó frá liinum danska aft-
urhaldsmanni, og lendir j)á í
Jæiin ósköpum, að fara að
likja Magnúsi Torfasvni við
•Tón Sigurðsson forseta og Jón-
as Hallgrimsson skáld. Munu
þeir ekki hafa sést i slikum fé-
lagsskap áður.
Þá kemur röðin að Guð-
mundi prófessor Hannessyni,
og er það einna lielst að Iionum
fundið, að liann sé gáfaður
maður. Fer það mjög að von-
um, því að gáfur og lærdómur
er eitur í „Tímans beinúm“.
Þess er nú enginn kostur í
stuttri Elaðagrein, að rekja öll
þau undur af bjánaskap, sem
haugað er saman í nefndu
skrifi „Tímans“ og verður því
látið nægja, að segja lauslega
frá efni þess eða öllu lieldur
getið nokkurra þeirra manna,
sem leitast er við að svívirða.
Það er orðin föst venja í
þessum grautarskrifum „Tím-
ans“, að ráðast á minningu
Jóns heitins Magnússonar, for-
sætisráðherra. Jón Magnússon
andaðist 1926 og glöggum
manni telst svo til, að „Tím-
inn“ sé búinn að flytja milli
50 og 60 níðklausur um liann
látinn. Það er óneitanlega vel
að verið og búast má við, að
Iialdið verði áfram enn um sinn.
Þá er og Magnúsar Guð-
mundssonar getið að vanda og
lítl vinsamlega, en þess er lái-
ið ógetið, er framsóknarmemí
„gengu á eftir honum með gras-
ið í skónum“ og grátbændu
hann um að gerast ráðherra af
„þeirra náð“. Þótti þeim Magn-
ús hverjum manni betur fallinn
til ráðherradóms, enda er óneit-
anlega margt vel um þann
mann. En hann var tregur og'
upp úr því versnaði allur vin-
skapur. Síðan hefir „Timinn“
ofsókt Magnús af miklum dugn-
aði.
Eggert Briem hæstaréttar-
dómara, miklum gáfumanni og
vafalaust ágætum lögfræðingi,
er einkum fundið það til for-
áítu, að liann hafi stundað nám
hér í latinuskólanum eftir 1880
og numið lög i Kaupmanna-
höfn um það leyti, sem Estrup
sat þar að völdum. Fleiri sak-
arefni virðist blaðið ekki liafa
á hendur þessum mæía manni.
Páli Einarssvni, hæstaréttar-
dómara, og Þórði prófessor
Sveinssyni á Kleppi, er lagt
mjög til ámælis, að þeir skuli
trúa þvi, að til sé annað lif eftir
Jietta. Forsætisráðherrann er af
ágætum kennimönnum kom-
inn langt fram í ættir, og hefir
sjálfur tekið vigslu. Hann hefir
og þjónað þrestsembætti og
boðað trúna á annað líf. Gera
verður. ráð fyrir, að hann hafi
trúað þvi, sem hann tók laun
fvrir að kenna söfnuðum sín-
um. Samt lætur ])e^si maður
])að viðgangast, að blað stjórn-
arinnar, blað sem liann þefir
stjórnað árum saman, hefji
árásir á menn sakir þess, að
þeir trúi á ódauðleik sálarinn-
ar. Engum dettur í liug, að for-
sætisráðherra hafi skrifað um-
rædda grein, en liins ætti að
mega vænta, að hann léti ekki
blað sitt svívirða menn sakir
þess, að þeir trúi því, að maður-
inn lifi, þó að hann deyi.
Næst er komið við hjá Arna
prófessor Pálssyni og ausið yf-
ir hann fúkyrðum vegna þess,
að hann hafi litlar mætur á
Guðmundi biskupi góða. Guð-
niundur var mikill vandræða-
maður, sem kunuugt er, og ó-
þarfur þjóð sinni, ]>ó að liann
væri vel gefinn um sumt og
góðhjartaður. —- Er sagt að
Arni hafi haldið „æsingaræðu
gegn Guðmundi“ nýlega og að
ræðan hafi ]x)tt ágæt. — Ræða
sú, sem greinarhöf. vitnar til,
var afburða-snjöll, og þess
vegna er Árna nú skipað til sæt-
is meðal liinna „bannfærðu“.
Dr. Guðmundur Finnbogason
er svivirtur fyrir ])að, að liann
skuli hafa látið sér detta í liug,
áð oddvitar þjóðanna, konung-
ar, keisarar, forsetar, ráðlierrar
og þessháttar menn, nn ndi rag-
ari að leggja út í styrjaldir og
manndráp, cf þeir ætti að
standa í fylkingarbrjósti sjálfir
og ráðast gegn kúlnaregni óvin-
anna. Finst höfimdinum þetta
ákaflega fráleitt, og vill sýni-
lega, að þeir, sem ábyrgðina
beri á ófriði og' manndrápum,
feli sig' sem vandlegast meðan
á „hættunni stendur“. Sýnir
þetta ljóslega karhnannsþor
höfundarins og skörungsskap.
Mattliías Þórðarson, forn-
minjavörður, er borinn þeim
sökum, að hann hafi viljað
„lokka“ konung vorn hingað til
lands síðastliðið vor. — Menn
vita nú ekki til þess, að Mattlií-
as hafi gert neitt i ]æssa átt, en
hitt er vitanlegt, að framsókn-
armenn hafa krafist þess, að
reist væri konungshöll hér á
landi, og munu þoir þá liafa
ætlast til þess, að konungur
kæmi hingað stöku sinnum.
Hér liefir nú verið getið lit-
ilsháttar sumra þeirra manna,
sem „Tíminn“ leggur í einelti
i síðusu „grautargrein“ sinni og
skal fáu við aukið. — Þess skal
]m’) getið, að enn er verið að
tala um „lögreglu-lirákana",
eða lögregluna, „sem mátti
lirækja á“, eins og það er stund-
um orðað í blaðinu, og er því
nú við bætt, að lögreglan liafi
haft ])að til að „flýja“.
Loks bregður liöfundurinn
sér „út fyrir pollinn", og minn-
ist lítilsháttar á ýmsa Noregs-
konunga, svo sem Harald liár-
fagra, Ólaf Trvggvason, Ólaf
helga, Harald harðráða o. fl.
Frá Noregi leggur hann svo
leið sína viðsvegar um álfuna
og þylur upp nöfn margs stór-
mennis. Lendir liann að Síðústu
hjá Napóleon mikla.og talar þá
margt spaklega og af lærdómi.
Þess ber að geta, að fram-
hald er væntanlegt af liinni
miklu grein „Tímans“. „Graut-
urinn“ er ekki mcira en Iiálf-
soðinn enn sem komið er. Iiætt-
an er bara þessi, að við kunni
að brenna enn meira, er á líður
suðuna. —- Gæli því verið liag-
anlegt, að forsætisráðherra
hefði þvöruna i pottinum að
staðaldri, svo að grauturinn
yrði ekki sangur og flokksmenn
hans flökraði síður við matn-
um.
Hitt væri og gott, að andstæð-
ingar stjómarinnar læsi þessi
„grautar“-skrif „Timans“ með
atliygli. Þau eru að vísu ekki
sem skemtilegust, en hentug
eru þau til glöggvunar og skiln-
ings á bæjarbrag öllum og á-
stæðum þar á „kærleiksheimili“
stjórnarinnar.
Norskar
loftskeytafregnir.
—o—
Osló 5.-9. febr.
NRP. — FB.
Þegar Quisling landvarnarráð-
herra kom seinni hluta dags á
þriðjudag á skrifstofu sína í laud-
varnarráðuneytinu, nokkuru eftir
vanalegan skrifstofutíma, réðist á
hann ma'ður nokkur eða fleiri en
cinn,- Einn þeirra gerði tilraun til
þess að reka hníf í brjóst honum,
en ráðherranum tókst að verja sig'
fyrir árásarmanninum. Þvi næst
var hann sleginn niður og pi}>ar
varpað í augai honum. Misti haim,
þá meðvitund og hné niður á gólf-
ið. Árásarmaðurinn eöa árásar-
mennirnir komust undan á flótta.
Ráðherrann náði sér fljótt aftur
eftir árásina og fór ])cgar til vinnu
sinnar daginn eftir. Lögreglaa
hefir málið til rannsóknar. 5000
króna ve'rðlaunum er heitið fyrir
upplýsingar, sem leiða til þess, að
árásarmaðurinn eða mcnnirmr
verði handteknir. Blöðin ætla, að
árásarmennirnir hafi ætlað sér aS
komast f)rrir skjöl, sem snerta
landvarnir ríkisins. Iiins vegar
hefir rannsókn leitt í ljós, að engra
skjala er saknað á skrifstofunum.
Á skautahlaupunum í Lake Pla-
cid ]). 4. febr. hefir þátttakendum
frá Noregi gengið ver en búist
var við. í fyrsta 500 metra hlaupi
varð Linclboe nr. 4, Engestanges
og Haakon Pedersen nr. 4 og 5 í
])riðja hlaupi. Bernt Evensen vana
í öðru hlaupi og komst í loka-
hlaupið með 3 Canadamönnum og
2 Bandaríkjamönnum. Bandaríkja-
maðurinn Shea vann á 43.4 sek.
Bernt Evensen varð nr. 2. — ,í
5000 metra hlaupunum stóöu þeir
sig svo veí, Ballangrud og Even-
sen, að þeir komust i lokahlaupið.
Jaffer varð fyrstur á 9,40,8, Ball-
angrud nr. 3 og Evensen nr. 6.
Osló 6. febr.
NRP. — FB.
Svalbarða-skrifstofan tilkynnir,
að íeiðangur Finns Devold, sena
fór til Grænlands á mótorskútunni
„Heimer“, hafi í sumar sem leið
sest að sunnarlega á austurströnd
Grænlands. Devold hafði með séir
400 watta radiostöð, en ])að leiö
langur tími uns samband náðist
við stöð hans, en það hefir nú tek-
ist. Devold hefir komið upp tutt-
ugu húsum þarna í fjörðunum.
Stöð Devolds er um það bil miðja
vega milli Angmagsalik og suður-
odda Grænlands. Stöðina kalla
þeir Finnsbu.
Læknir Quisling landvarnarráð-
herra hefir skijiað honum að vera
í rúminu um skeið, vegna þess að
fótavist geti verið honum skaðleg,
fyrr en hann hafi náð sér alveg
eftir árásina. Líðan ráðherrans er
])ó.góð eftir atvikum, en þaö kom
í ljós, er hann ætlaði að fara tö
vinnu eins og ekkert hefði í skor-
ist, að hann þoldi það ekki.
Samkvæmt fregn í Dagbladet
hefir stjórn Norges Bank ákveðið
að leggja 50 miljónir króna í
Norske Creditbank og Bergerrs
Privatbank. Málið verður tekið
fyrir í Stórþinginu.
í 1500 metra skautahlaupunuuB
í Lake Placid varð Shea fyrstur á
2,47,5. í 10.000 metra hlaupunum
varð Ballangrud nr. 2 í fyrsta
hlaúpi, Evensen nr. 3 í öðru
hlaupi. Vegna óeiningar hvort
taka skyldi gilda þátttpku Canada-
mannsins Steack var ákveðið að
keppni í xo.ooo metra hlaupi skyldi
fara fram á ný í dag.