Vísir - 19.06.1932, Side 2
V I S I R
FypMiggjandi:
ÞAKJÁRN nr. 24 & 26, allar stærðir.
SLÉTT JÁRN nr. 24 & 26, 8”.
ÞAKPAPPI, 2 teg., Nr. 0 og 00.
ÞAKSAUMUR.
RÚÐUGLER.
Hnskvarna kjötkvarnir
eru þær bestu sem fást.
Biðjið um þær hjá kaupmönnum.
Þópöup Sveinsson & Co.
Umboðsmenn fyrir
HUSKVARNA VAPENFABRIK A/B.
19. júní.
Lausanne 18. júní.
United Press. - FB.
Lausanne-ráðstefnanr
Neville Chamberlain, fjár-
málaráðherra Bretlands, hefir
lýst því yfir á ráðstefnunni, að
Bretland sé fúst til að strika
út ófriðarskuldirnar, ef aðrar
þjóðir geri slíkt liið sama. —
Herriot vildi ekki fallast á að
fresta skaðabótagreiðslunum,
en Bretland, Frakkland, Italía
Belgía og Japan liafa fallist á
að skaðabóta- og skuldagreiðsl-
um verði frestað fyrst um sinn,
á meðan ráðstefnan stendur
yfir. — Næsti fundur ákveðinn
á þriðjudaginn.
Santiago, 17. júní.
United Press. - FB.
Bylting í Chile.
Gagnbylting var hafin í gær-
kveldi til þess að koma ráð-
stjórninni, sem mynduð var á
dögunum, frá vöklum. Foringi
byltingarmanna er Curz liers-
höfðingi og er hann sluddur af
Davila. — Ráðstjórnin lagði á
flótta og leitaði liælis i Mone-
dahöllinni. Höfðu gagnbylting-
armenn sitt fram og gaf ráð-
stjórnin sig þeim á vald.
Santiago 18. júní.
United Press. - FB.
Nýja stjórnin í Chile hefir
lýst yfir hernaðarástandi í
landinu.
Norskar
loRskejtafregnir.
NRP., 17. júní. — FB.
Alberti látinn.
Danski fjárglæframaðurinn,
Alberti, varð fyrir skömmu síð-
an fyrir sporvagni. Meiddist
liann mikið og var fluttur á
Ríkisspitalann. Lést hann þar
þ. 14. þ. m. Hann varð 81 árs.
— Árið 1910 var Alberti, sem
hafði verið dómsmálaráðherra,
dæmdur í 8 ára fangelsi. Fjár-
svik hans námu 16 milj. kr.
Kolavinsla í Færeyjum.
Frá Þórshöfn í Færeyjum er
simað, að nú verði hafist handa
á ný um kolavinslu í Færeyj-
um. Er sagt, að Hedemann stór-
kaupmaður í Paris hafi fengið
einkaleyfi til vinslu kolanám-
anna í Trangisvaag á Suður-
eyju, eftir að hafa fengið um-
ráðarétt jfir námunum frá
frönsku félagi sem fyrir nokk-
urum árum síðan fékk rétt á
námunum og Iióf framkvæmd-
ir, þótt minna yrði úr, en i
fyrstu var til ætlast. Ællað er,
að í námunum séu 120 miljónir
smálesta af kolum og að gæðum
standi þau eigi að baki enskum
kolum.
Qtan af landí.
Vestm.eyjum 18. júní. FB.
Druknun.
Drengur, tæpra fimm ára,
Sigurður Sigurðsson, Sæ-
mundssonar að Hallormsstað
hér í Eyjum, féll út af syðri
liafnargarðshausnum um kl. 5
í kveld og druknaði.
Tveir drengir á sama reki
gerðu tilraun til að rétta lion-
um spýtu, en þegar það varð
árangurslaust hlupu þeir heim
iil hans og sögðu hvernig
komið var.
Fólk var stalt á ,Skansin-
Um,“ sem er skamt þar frá
sem slysið vildi til, en vissi
eigi um það.
Ilaffari gerir sennilega til-
raun til að finna líkið.
Akureyri, 17.. júní. — FB.
Knattspyrnufélag Akureyrar
gekst fyrir hátíðahöldum liér i
dag. Fjölbreytt íþróttasýning
fór fram, ræðuböld, söngur og
hornablástur. Fyrir minni Jóns
Sigurðssonar mælli Geir Jónas-
son stud. mag. og Hannes
Magnússon kennari fvrir minni
Islands.
Leikfélag Reykjavíkur sýndi
Jósafat hér í fyrsla sinni i gær-
kveldi, en meiri hluti leikenda
voru þó Akureyfingar. Aðsókn
var góð og leiknum vel tekið.
Útbú Landsbankans liér á 30
ára starfsafmæli á morgun.
-----------------------
Framh.
Eins og getið var um í niður-
lagi upphafskafla grcinar þess-
arar, sem birtist í Vísi í gær,
verður farið nokkurum orðum
um það markvcrðasta, sem
fyrir augun ber„ á sýningunni.
Menn eru þó beðnir að athuga,
að tiðindamaður blaðsins varð
að fara braðara yfir en æskilegt
væri, og má ])vi vel vera, að ým-
islegt verði hér eigi talið, sem
vcl væri þess vert að minnast á,
enda eru ekki tiltök að lýsa
slíkri sýningu sem þessari,
nema í stórum dráttum, í stutt-
um blaðagreinum.
Þegar inn i skólagarðinn
kemur taka menn eftir kerrum
og vögnum, á vinstri hönd.
Kerrurnar og fleira, seln þar er,
hefir Kristinn Jónsson vagna-
smiður smíðað. Smíðisgrij)irnir
eru traustlegir og vandaðir.
Kristinn hefir um langt skeið
stundað smíði vagna og ýmis-
konar áhalda og liafa smíðis-
gripir lians selst ágætlega og
út um all land. Kristinn hefir
alla tíð lagt áherslu á vöruvönd-
un og einnig, að hafa lientug á-
höld á boðslólum. Auk viðskifta
við menn í Reykjavik og ýms-
um kaupstöðum, hefir Kristinn
lengi haft mikil viðskifti við
bændur.
Á hægri hönd, þcgar inn í
skólagarðinn er gengið, eru
nokkurir tilhöggnir steinar
(legsteinar). Steina ]>essa sýnir
Magnús G. Guðnason, stein-
smiður, Grettisgötu 29, hér í
bænum. Bera steinarnir mikilli
vandvirkni vott og smekkvísi.
Þá sýnir Steinsteypuverk-
smiðja Akureyrar steypta steina
í skólagarðinum.
H.f. Pípuverksmiðja Reykja-
vílcur sýnir ýmiskonar fram-
leiðslu, einnig í skólagarðinum,
svo sem sýnishorn af stein-
steypugirðingum, jurtaker úr
steypu (til notkunar i görðum),
pípur, valta, flísar til að lcggja
á götur í görðum og á gólf, ein-
angrunarplötur úr íslenskum
vikur, Terrazzoplötur o. fl., Alt
það, sem pípuverksmiðjan sýn-
ir, er vert mikillar athygli, og
er því sérstaklega beint til
þeirra, sem láta reisa sér liús
eða koma sér upp steinsteypu-
girðingum o. s. frv. Einangrun-
arplötur þær úr íslenskum vik-
ur, sem verksmiðjan sýnir, liafa
reynst vel, og verða vafalaust
mikið notaðar í framtíðinni.
Hefir nú verið drepið á það
helsta, sem getur að líta í skóla-
garðinum, og liggur þá næst
fyrir að fara inn i leikfimissal-
inn og líta í kringum sig þar.
Framh.
--------------- -------
Tiíkynning
frá félagi úlvarpsnotanda.
15. júní. — FB.
Á fundi félags útvarpsnot-
anda binn 9. júni 1932 var sam-
þykt að gera þessar kröfur:
1. Að útvarpsstjórnin geri
víðtækar ráðstafanir til þess að
útbreiða úívarpið. Meðal ann-
ars með því að selja viðtæki
með auðveklum greiðsluskil-
málum, og stuðli ennfremur að
þvi, að menn geti smíðað við-
tæki sin sjálfir.
2. Að viðtækjavcrslunin út-
vegi ávalt fullkomnustu og
ódýrustu viðtækin, sem völ er
á á heimsmarkaðinum, en bindi
ekki viðskifti sín við örfáar
norðurálfuverksmiðjur eins og
nú er gert, og selji þau ekki
bærra verði en þarf til að stand-
ast verslunarkostnaðinn.
3. Að viðtækjaverslunin hafi
næga sérfróða menn í þjónustu
sinni við innkaup og sölu tækj-
anna.
4. Félagið áhtur nauðsvnlegt
að rekstrarskýrsla yfir allan
rekstur útvarpsins sé birt al-
menningi ársfjórðungslga.
5. Félag útvarj)snotanda tel-
ur æskilegt að lögum og reglu-
gerð um útvarpið verði breytt
þannig, að Félag útvarjisnot-
anda fái fullan ihlutunarrétt
um fjármálastjórn útvarpsins,
ásamt meiri liluttöku en það
hefir nú að lögum um skipun
útvarpsráðs.
6. Sjái útvarpsstjórnin sér
ekki fært að taka til greina
kröfurnar undir tölulið 1., 2. og
3., þá álítur Félag útvarpsnot-
anda nauðsynlegt að breyta til
um sölufyrirkomulag.
Ennfremur var samþykl svo-
hljóðandi tillaga:
„Fundurinn ályktar að lýsa
því yfir við útvarpsráðið, að
hann telur dagskrá útvarpsins,
eins og hún hefir verið upp á
síðkastið, svo fáskrúðuga, að
ekki sé við unandi, og óskar að
bót verði ráðin á þessu svo
fljótt sem föng eru á.“
í dag á vel við að bæjarbú-
ar minnist Landspítalans, því
sannarlega er það að þakka
því starfi, sem unnið befir ver-
ið þennan dag undanfarin ár,
að Landspítalinn er nú kom-
inn upp og tekinn til starfa.
Þrátt fvrir að svo er, liafa kon-
ur enn ekki- slej)t hendi af
þessu óskabarni sinu. Og þótt
i ár sé ekki starfað jafn mikið
fyrir þá stofnun og á undan-
förnum árum, þá er þó öllum
bæjarbúum gefinn kostur á að
leggja skcrf í Landspítalasjóð-
inn með því að kauj)a merki
hans, sem seld verða í dag.
Góðir bæjarbúar, minnist
þess, að enn ’er óbætt úr mörg-
um nauðsynjum spítalans. Þér
hafið jafnan sýnt starfsemi
kvenna fyrir Landspítalann ör-
læti og stuðning, gerið svo enn.
Eflið Landspítalasjóðinn í dag.
Kaupið níerki Landspítalasjóðs
íslands.
„Skipun
skólanefnda^
(Svar
til Hafliða M. Sæmundssonar).
—o—
II.
Þá kemur önnur lilið máls-
ins. Það er um íhlutunarrétt
skólanefnda í vali á kennurum.
Þessum ihlutunarrétti vilja
þeir, sem standa á bak' við til-
löguna,* ná í sínar hendur, með
því, að fá vald til að skipa í
skólanefnd, en það vald liefir
bæjarstjórnin nú í hverjum bæ.
Þarna er nú fiskurinn falinn
undir steininum.
Það munu flestir véra sam-
mála um það, að foreldrarnir
eða borgararnir i liverju sveit-
ar- og bæjarfélagi eigi að liafa
ihlutunarrétt um það, hverjir
kenna börnum þeirra og búa
þau undir lifið. Það væri líka
ranglæti, ef svo væri ekki. Þá
hefðu borgararnir þau ein rétt-
indi um fræðslu barna sinna,
að leggja fram peninga til þess,
án þess að mega neinu ráða um,
hverjir með það fé færu eða
hvernig því væri varið. Slikt
væri ekkert réttlæti, heldur aft-
urför frá þvi sem nú er. Eins
og nú er ástatt, hafa borgararn-
ir þennan íhlútunarrétt i raun
og veru. Þeir velja bæjarfulltrú-
ana og fela þeim meðferð bæj-
armálanna, og eitt af verkum
bæjarfulltrúanna er svo að
velja skólanefnd, svo að bæjar-
stjórn er að eins milliliður eða
kjörmenn, sem svo framkvæma
val skólanefndar. Skólanefnd-
in gerir svo tillögur um veit-
ingu kennaraembættanna.
Eftir að hafa athugað þetta,
þá verður það hert, að tillagan
* Eg á hér við alla, sem töl-
uðu fvrir henni i vetur. (Höf.).
er árás á þennan óbeina íhlut-
unarrétt foreldranna um val
á kennurum. Foreldrarnir ráða
þó sannarlega ekki of miklu
um val á kennurum, eins og nú
er. Ef til vill væri heppilegast,
ef hægt væri að koma þyi við,
að foreldrar kysu kennarana,
svipað og prestar eru nú kosn-
ir, og ekki verður annað sagt,
en að það væri meira lýðræði.
Greinarhöf. segir, að það sé
„mjög liætt við, að skólanefndir
misbeiti valdi sínu“ í vali á
kennurum. Ekki skal eg dæma
um, hve sú hælta er mikil, en
liitt er trúlegt, að skólanefnd
gæti alveg eins, og ekld síður,
misbeitt valdi sínu, þó að t. d.
greinarliöf. og þeir, sem á bak
við þetta mál standa, hefðu
skijiað alla eða flesta skóla-
nefndarmennina; og jafnvel þó
þeir sætu sjálfir í henni, þá álít
eg, að með því væri ekki loku
skotið fyrir hlutdrægni gagn-
vart einstökum kennurum og i
kennaravali. Einu virðist grein-
arhöf. liafa gleymt, er snertir
veitingu á kennarastörfum, og
það er það, að eg veit ekki bet-
ur en að skólanefnd liér i bæ
liafi oftast farið mikið eftir til-
lögum skólastjóra i vali á kenn-
urum. Eg gæti vel trúað, að
skólastjóri Austurbæjarskólans
hefði getað fengið skólanefnd
tií að mæla með Jóhanni
Sveinssyni, sem liöf. reynir að
gera hér að píslarvotti, ef skóla-
stjóranum hefði verið mjög
liugleikið að fó liann, en eg
liefi engar fregnir af, að hann
hafi lagt sig í framkróka til að
fá Jóliann. Það er alveg rangt
hjá liöfundi, þar sem hann seg-
ir, að úrskurðarvaldið, um val
á kennurum sé í höndum
fræðslumálastjóra. Fræðslu-
málastjóri hefir að eins tilíögu-
rétt um skipun kennara. I þessu
sambandi segir liöf. svo, að
fræðslumálastjóri hafi „kórón-
að skömmina“ með samþykki
sínu á tillögum skólanefndar
um kennarával. Mig furðar á
því, ef þessi kennari veit ekki,
að veitingarvaldið á þessum
störfum er í liöndum kenslu-
málaráðherra, en ekki fræðslu-
málastjóra. Af þvi eg álit liöf.
vel færan í starfi sínu, þá trúi
eg ekki öðru, en að hann viti
þetta eins og hver annar. En ef
hann veit það, þá fer hann hér
með vísvitandi blekkingar. Væri
það aftur þannig, að liöf. væri
ókunnugur um sv.ona alkunn
atriði i skólamálum landsins,
])á Iýsir ])að svo mikilli fáfræði,
að liann ætti þá að gera sem
minst af því, að skrifa i blöð um
þessar eða aðrar byltingar og
„gerbreytingar“ á skólamála-
sviðinu. Þá gefur nú liöf. okkur
stéttarsystkinum sínum talsvert
stóra rúsínu, þar sem hann seg-
ir,að kennarar geti ekki látið sér
í „léttu rúmi liggja,að liðlétting-
um sé smeygt inn í stétt þeirra.“
Hvaða „liðléttinga“ á hann hér
við? Eg skora á höf. að nafn-
greina nokkura af þeim opin-
berlega, ef hann getur, því ann-
ars á öll stéttin óskilið mál, og