Vísir - 07.07.1932, Page 3
V I S I R
Atvinna.
Ungur reglusamur piltur óskar eftir atvinnu, lielst við
verslun, (hefir starfað við verslun i rúm 6 ár). Mjög væg
kaupkrafa.
Þeir, seni vildu sinna þessu sendi nöfn sin í lokuðu um-
slagi til afgr. Vísis fyrir föstudagskveld. Merkt: „Reglusamur“.
Ath. Gæti jafnvel komið með arðvænlega verslunar-
atvinnugrein með sér.
Lífsábyrgðarfélagið TflULE
HLUTAFÉLAG.
, THULE greiðir liærri bónus en nokkurt annað félag, er
á íslandi starfar. Hluthafar fá einar 30.000,— krónur á
ári i arð, en allur ágóði þar fram yfir fer til HINNA
TRYGÐU. — Bónusinn til hinna trygðu nam fyrir árið
1931:
4 mtljdnum 752 þúsund 390 krdnnm,
en það em 158/159 hlotar alls ágóðans.
Sumapfrí
:sem er að lærast yfir hana. Og
hver sá maður, sem ekki hjálp-
ar til þess að reyna að koma at-
vinnutækjunum í gang á
friðsamlegan 'hátt og stuðla að
því að þau geti þrifist, hefir
gerst svikari við land og þjóð.
Brynjólfur Jónsson.
Krðftigaoga
ðlafs Friírikssonar.
Á sameiginlegum fundi Dags-
brúnar og Sjómannafélags
Reykjavíkur er haldinn var i
gærkvöldi, var besta samlvndi
milli krata og kommúnista.
Maður nokkur liafði flutt þá
tillögu á fundinum, að kjósa
skyldi nefnd til að fara á minn
futtd. En er fundurinn dróstv
á langinn, óttaðist Ólafur Frið-
riksson, að inn i umræðurnar
_yrði dregið sníkjufé Alþýðu-
blaðsins úr sjóði Sjómaunafé-
lagsins. Fann hann þá upp á
því snjallræði, til þess að koma
í veg fyrir frekari umræður,
að láta slita fundi strax og fara
kröfugöngu heim til mín og
fleiri bæjannanna. Var fvrst
haldið heim til min, og var Ó-
lafur í broddi göngunnar. Var
staðnæmst fyrir utan liús for-
eldra minna með ópum og ó-
hjóðum. Móðir min var ein
heima, með tveimur systrum
mínum, tólf ára gömlum. Er
þær heyrðu lætin, klæddu þær
sig, og fór móðir mín fram á
tröppurnar og spurði, hvað
þessi læti ættu að þýða. Ólafur
Friðriksson varð fyrir svörum
og hað liana að fara inn. Neit-
aði hún því, og var úti á tröpp-
unum, þar til söfnuður þessi
hvarf hurtu með söng og
skvaldri.
Eins og áður er sagt, var eg
fjarverandi. Var eg í heimsókn
hjá Júliusi Sigurðssyni banka-
stjóra, er koin hingað í bæinn
í gærkvöldi að norðan, með Es.
Islandi. Móðir mín, sem vissi,
aá eg liafði farið að bitta Júlí-
us, hringdi til mín, þegar söfn-
uðurinn var horfinh á brott og
skýrði mér, frá, hvað gerst
hafði. Var eg enn um stund bjá
Júlíusi, en er eg gekk heim um
kl. liálf eitt, gengu nokkrir
menn i veg fvrir mig, neðst á
Skólavörðustíg, og báru mig
þeiin brigslyrðum, að eg mundi
hafa verið heima, er kröfu-
gangan kom, en flúið burt bak-
dyramegin. Sagði eg þeim hið
sanna um ferðir mínar og það
með, að eg væri altaf tilhúinn
að ræða mál Sildarverksmiðj-
unnar á borgarafundi, eða
fundi i Sjómannafél. Reykja-
víkur, ef mér væri boðið þang-
að. Komu nú vöflur á þá. Rétt
i þessu kom þar að Sigurður
Ólafsson, gjaldkeri Sjómanna-
félagsins, og óð að mér með ó-
bótaskömmum. Svaraði eg
honum óhikað, en þá varð
hann svo æstur, að hann gerði
sig liklegan til að berja mig.
Safnaðist nú að múgur og
margmenni, og lá við slags-
málum, þegar lögreglan kom
og stilti til friðar.
Eg endurtek þá yfirlýsingu
mína, að eg er altaf tilbúinn
að ræða um Síldarverksmiðju
ríkisins i blöðum, á horgara-
fundi eða í Sjómannafélaginu,
•en mælist til þess við Ólaf Frið-
riksson og menn af hans tæi,
að þeir raski ekki svefnfriði
móður minnar og s\rstra.
Sveinn Renediktsson.
Adalfundui*
Prestafélags íslands.
—o—
Framli.,
Störf kirkjunnar að mannúðar-
málum og' félagsmálum.
Nefnd sú er kosin var á að-
alfundi 1931, til þess að vinna
að þessum málum, gerði grein
fyrir störfum sínum og lagði
fram tillögur. Ilafði formaður
nefndarinnar, sira Asmundur
Guðmundsson, franisögu, en
margir aðrir tóku til máls.
Þessar tillögur voru sam-
þyktar:
I. 1.) Prestafélagi beinir
þeirri ósk til Alþingis að láta
ekki dragast að nema burt úr
stjórnarskrá landsins það
ákvæði, er sviftir þá menn al-
mennum réttindum, sem þegið
hafa sveitarstyrk.
2) Prestafélagið skorar á
Alþingh að taka fátækralög-
gjöfina til gagngerðrar endur-
skoðunar, þannig að lögð sé
megináhersla á það, að fátækra-
flutningur og sveitardráttur út
af fátækramálum hverfi úr sög-
unni. og að lögð sé áhersla á
það, að veita vinnufærum
mönnum atvinnu, þeim og f jöl-
skyldum þeirra til framfærslu,
fremur en beinan peningalegan
styrk eftir þvi sem kostur er á.
3. ) Að öðru leyti álitur
Prestafélagið heppilegast, að
fátækraframfærslan færist meir
í það horf, að í stað hennar
komi sem fullkomnastar al-
þýðutryggingar, svo sem trygg-
ingar vegna sjúkdóma, slysa,
örorku, elli o. s. frv.
4. ) Aðalfundur Prestafélags-
ins kýs árlega fimm manna
nefnd til þess að athuga og gera
tillögur um samvinnu milli
prestastéttarinnar og þeirra,
seni vinna í þjóðmálum að bót-
um á kjörum fátækra manna
og bágstaddra og að jafnrétti
allra.
I þá nefnd voru endurkosnir:
Sira Ásmundur Guðmunds-
son dócent,
síra Ámi Sigurðsson frí-
kirkj uprestur,
sira Brynjölfur Magnússon,
síra Eiríkur Albertsson og
sira Ingimar Jónsson skóla-
stjóri.
II. Aðalfundur Prestafélags
íslands telur þess brýna þörf, að
núgildandi helgidagalöggjöf sé
endurskoðuð og henni brevtt
þannig, að lögð sé ábersla á eft-
irfarandi atriði:
1. ) Verkalýður jafnt á sjó og
landi eigi skýlausan rétt til
hvíldar á öllum helgidögum
þjóðkirkjunnar frá vinnu, sem
fresta má án verulegs tjóns,
enda sé þá bönnuð öll slik
vinna.
2. ) Þeir, sem þurfa að vinna
slíka vinnu á helgidögum, eins
og t. d. bilstjórar, fái þá hvíld
einhvern annan dag vikunnar,
og ennfremur sé þess gætt, að
sami maður þurfi ekki að vinna
nema annanhvern sunnudag.
3. ) Um jólin hafisjómennrétt
til að vera í höfn, og heima, ef
því verður við komið.
^4.) Báða daga stórhátíðanna
þriggja, skirdag og föstudaginn
langa, séu undantekningarlaust
bannaðar vinveitingar á opin-
berum veitingastöðum. Enn-
fremur sé undantekingarlaust
bannaður dans á opmlærum
veitingastöðum fyrra dag stór-
hátíðanna, skírdag og föstudag-
inn langa.
5. ) Bannað sé, að kosningar
til Alþingis fari fram á helgi-
dögum þjóðkirkjunnar.
6.) Önnur ákvæði núgildandi
lielgidagalöggjafar sé í engu
skert.
Vcgna lielgidagalöggjafar var
síðan kosin þriggja manna
starfsnefnd og hlutu kosningu:
Cand. tlieol. Sigurbjörn Á.
Gíslason, ritstjóri,
síra Ingimar Jónsson, slcóla-
istjóri og
síra Sveinbjörn Högnason,’
skólastjóri.
Niðurl.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík í morgun n st.,
ísafirði 7, Akureyri 9, SeyÖisfirði
9, Vestmannaeyjum 11, Stykkis-
hólmi 7, Blönduósi 9, Hólum í
Hornafirði 11, Grindavík 11, Fær-
evjum 13, Julianehaab 12, Jan
Mayen 5, Angmagsalik 9,Hjaltlandi
13, Tynemoutir 14. (Skeyti vantar
frá Raufarhöfn og Kaupmanna-
höfn). Mestur hiti héiJ í gær 14 st.,
minstur 10. Úrkoma 0,3 mm. Yfir-
lit: Grunn lægð yfir suðvesturlandi
og önnur út af Langanesi. — Horf-
itr: Suðvesturland : Hægviðri. Þoku
loft og rigning. Faxaflói: Hæg
norðanátt. Léttir sennilega til.
Breiðaf jörður, Vestfirðir: Norð-
austan gola. Víðast úrkomulaust.
Norðurland, norðausturland, Aust-
firðir: Hægviðri. Þokuloft ,en litil
rigning. Suðausturland : Hægviðri.
Dálítil rigning
Áttræður
er í dag Jónas E. Jónsson,
Sólheimatungu, Borgarfirði. Er
hann einn af kunnustu bænd-
um í Borgarfjarðarbéraði,
sæmdarmaður í hvívetna, höfð-
inglegur mjög á velli og i öllu
höfðinglyndur. Jónas bjó nær-
felt 40 ár í Sólheimatungu og
bætti jörðina mikið, en nú hefir
Tómas sonur hans tekið við
jörðinni.
Silfurbrúðkaupsdag
eiga í dag frú Ástriður M.
Eggertsdóttir og Jón E. Berg-
sveinsson, fulltrúi Slysavama-
félags íslands. •
Skemtiferðaskip
er væntanlegt hingað á laug-
ardag næstkomandi. Er það e.s.
Reliance, sem hefir komið liing-
að nokkurum sinnum áður.
Kemur það frá New York og
munu farþegar vera um 200.
„Hckla“ annast móttöku ferða-
mannanna.
Gengið.
Sterlingspund ....... Kr. 22,15
Dollar .............. — 6,221/2
100 ríkismörk........ — 147,87
— frakkn. fr.....— 24,62
— belgur — 86,49
— svissn. fr.....—- 121,62
— lirur............ — 32,01
— pesetar ..........— 51,05
— gyllini ..........— 252,25
— tékkósl. kr....— 18.62
— sænskar kr._____ -— 113.99
—• norskar kr......— 109.49
— danskar kr.....— 120.12
Gullverð
isl. krónu er nú 59.97.
Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur á Austurvelli í kveld
kl. 8V2, ef veður leyfir. Er 10
ára afmæli sveitarinnar í dag.
Es. Dettifoss
fór héðan í gærkveldi, áleiðis til
útlanda. — Á íneðal farþega voru:
Garðar Gíslason stórkaupm., Björn
G. Björnsson, Sig. Skúlason ma-
gister, Arthur Gook trúboði- o. fl.
Stórstúkuþingið
hefst á morgun kl. 1 með
guðsþjónustu i fríkirkjunni.
Síra Bjöm Magnússon frá Borg
flytur prédikun.
E.s. Gullfoss
var á Siglufirði í morgun.
G.s. Island
kom i gærkveldi að vestan og
norðaii.
Anna Borg og.Poul Reumert
lesa og leika Faust í Iðnó i
kveld kl. 8Vo. Síðasta sinn.
Leitin að G. S.
Leitinni að Guðmundi Skarp-
héðinssyni er enn haldið áfram.
Hefir nú verið sendur kafari
nórður til þess að aðstoða við
leitina. — Kafari frá Akurevri
liefir leitað árangurslaust.
Sendiherra Dana
hefir gefið stóran og fallegan
bikar til þess að keppa um i
knattspýrnu á milli D. 1. og
skipverja af dönsku strand-
varnarskipunum. Er þetta far-
andbikar, og gert ráð fvrir, að
kept verði um hann árlega liér
i bæ. I ágústmán. n. k. verður
kept um bikarinn i fyrsta skifti.
Knattspyrnumót íslands
Annað kveld kl. 8/2 keppa K.
R. og „Valur“ úrslitaleikinn um
íslandsbikarinn. Allir ættu að
koma og sjá stærsta kappleik
ársins. — Hverjir verða Islands-
meistarar? — Nokkurir drengir
óskast til að selja aðgöngu-
miða að kappleiknum. Komi á
Óðinsgötu 24 A, kl. 5 e. h. á
morgun.
Skemtiför til Akraness
fer Heimdallur á laugardag
kl. 5 á e.s. Suðurlandi. Fundur
um kveldið með ungum sjálf-
stæðismönnum á Akranesi. Á
sunnudag verður gengið á
Akrafjall. Farið beim á sunnu-
dagskveld á e.s. Suðurlandi.
Heimatrúboð leikmanna.
Almenn samkoma á Vatns-
stig 3 i kveld kl. 8.
Vinnustöð kvenna
hefir útvegað mörgum stúlk-
um atvinnu. Miðstöðin getur út-
vegað nokkurum stúlkum at-
vinnu, i Reykjavík og utan, m.
a. í kaupavinnu.
Pétur Sigurðsson
er nú kominn heim aftur.
Hefir hann ferðast um Norður-
land síðastliðnar 7 vikur og
flutt fyrirlestra J>ar víðsvegar,
og segir gott af ferð sinni.
Ef yður vantar ódýran
sumarleyfiskjól jþá farið
upp í Ninon, Jxir eru
léttir kjólar á 9—10—
12—15—18—20 kr.
Nýtísku „Jumpers“
10.50 — 10.85.
Frönsk pils
(niðursett verð) 10.50.
Prjóna Komplets 35.00.
NINON
mmmm odio - 22—v
Ódýpt.
Herta vasaúr á 10.00.
Dömutöskur frá 5.00,
Ferðatöskur frá 4.50,
Diskar djúpir 0.50,
Diskar, desert 0,35,
Diskar, ávaxta 0.35,
Bollapör frá 0.35,
Vatnsglös 0.50,
Matskeiðar 2 turna 1.75,
Gafflar 2 turna 1.75,
Teskeiðar 2 t. 0.50,
Borðlinifar, ryðfriir 0.90,
Pottar með loki 1.45,
Áletruð bollapör o. m. fl.
ódýrast hjá
í Eimrssoo 4 irrai
Bankastræti 11.
E.s. Selfoss
kom í gærkveldi frá útlönd-
um.
Útvarpið í dag.
lOjOO Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir.
19.30 Veðurfregnir.
19,40 Tónleikar (Útvarps-
tríóið).
20,00 Klukkusláttur.
Grammófón: Pianó-kon-
sert í G-dúr, eftir Mozart.
20.30 Fréttir.
Músik.
Áheit
á barnaheimilið Vorblómi'S, afh.
Vísi: 5 kr. frá M,
Áheit á Str^ndarkirkju,
afhent Visi: 3 kr. frá H. og J„
10 kr. frá Siggu.
Til RÖmlu, fátæku ekkjunnar,
afhent Vísi: 10 kr, frá N. N.