Vísir - 10.07.1932, Page 2
V I S I R
Blaut sápan
eftirspurða, er komin aftur.
Hessian
BindiganaL Saumgam
F y rirliggj audi.
Þðrðnr Sreinssos & Co.
Simskeyti
—o--
Lausanne, 8. júlí.
United Press. - FB.
Samkomulag
á Lausanne-ráðstefnunni.
G. Martin hefir tilkynt, að
Þýskaland hafi falhst á að
greiða 3 niiljarða marka, þcgar
viðskifti ern komin i gott liorf
á ný. Er nú að eins eftir að
ganga frá samkomulaginu i
einstökum atriðum. — Kl. 9 e.
h. verður ráðstefnufundur og
mun MacDonald l>á skýra öll-
um fulltrúunuin á ráðstefnunni
frá samkomulaginu, i einstök-
um atriðum. — Fulltrúarnir
koma saman á morgun til þess
að skrifa undir samningana.
Skýringar djtarfar.
-O—’
Það er kunnugt, að lif.
„Kveldúlfur" liefir leitað samn-
inga við Sjómannafél. Reykja-
víkur, um kaupgjald á síldveið-
um í sumar. Það er líka kunn-
ugt, að sjómenn þeir, sem kost
eiga þeirrar sumaratvinnu,
mundu vilja ganga að kaup-
gjaldstilhoði „Kveldúlfs“, ef
þeir fengi samþykki Sjómanna-
félagsins til þess. En um slikt
samþykki hefir verið neitað. Á
bæjarstjórnarfundinum síð-
asta létu fulltrúar jafnaðar-
manna það í veðri vaka, að
þessu tilhoði „Kveldúlfs“ hefði
verið hafnað eingöngu vegna
þess, að vitað liefði verið, að
jafnvel þó að því hefði verið
tekið, þá ætlaði „Kveldúlfur“
sér alls ekkert að gera út á síld
í sumar. Tilhoðið væri aðeins
gert til þess, að fá sjómenn til
að samþykkja kauplækkun!
Nú hefir verið birt bréf frá
„Kveldúlfi“, þar sem tilhoð
þetta er endumýjað og jafn-
framt gert annað tiliioð, um að
lána sjómönnum skipin endur-
gjaldslaust yfir sildveiðitím-
ann með skuldbindingu úm
að kaupa af þeim aflann, fyrir
ákveðið verð, 3 kr. málið. —
Alþýðublaðið skýrir frá þessu
tilboði á þá leið, að það verði
sem allra óaðgengilegast í aug-
um sjómanna, og lætur svo um
mælt að lokum, að þetta tilboð
„Kveldúlfs“ þurfi ekki frekari
skýringar.
Fyrra tilboðinu fengu „leið-
togamir“ lirundið með þvi að
halda því fram, gegn betri vit-
und, að það væri ekki til neins
að ganga að því, af þvi að ekki
yrði staðið við það. — Síðara
titboðið er að því leyli erfiðara
viðfangs fyrir þá, að það er
gert skriflega og þegar hirt op-
inherlega. Það er ekki unt að
hálda því fram, að það sé ekki
tilætlunin að standa við það.
En þá er reynt að liræða sjó-
mennina með áhættunni, þeir
eigi á hættu að liafa svo og svo
lítið upp úr sumrinu með þess-
um hætti. Það tekst þó ekki
hetur en svo, að það allra
minsta, sem gert er ráð fvrir
að þeir^geti unnið sér inn, er
þó meira en það, sem þeir sjó-
menn unnu sér inn á síldveið-
um í fyrra, sem voru á skip-
um, er skiftu við sildarbræðslu-
stöð ríkisins á Siglufirði. Nú
mun vera gert ráð fvrir því, að
sjómenn, sem ráða sig á skip,
er ætla að skifta við ríkisverk-
smiðjuna í sumar, húi við sömu
kjör eins og i fyrra, sama liluta
af afla, og verður eflirtekja
þeirra þá væntanlega enn
minni en i fvrra, vegna lægra
síldarverðs. En Sjómannafé-
lagið virðist ekkert hafa við
það að atlmga. Áhættan er al-
veg sú sama, aflaleysi, eða rýr
afli. Munurinn á kjörunum er
sá, að sjómenn á skipum
„Kveldúlfs“ þurfa ekkert að
horga í leigu eftir ski])in. Hinir,
sem ráðnir eru með venjuleg-
um hlutakjörum, verða að sæta
þvi, að útgerðannaðurinn fái
venjulegan hluta veiðinnar í
skipsleigu.
Það er þannig augljóst, að
kjör sjómanna á „Kveldúlfs“-
skipunum liljóta að verða mun
hetri en liinna. Og afstaða Al-
þýðuhlaðsins gagnvart þessu
tilboði „Kveldúlfs“ þarf þá
ekki heldur frekari skýringar.
Norskar
loftskeytafregnir*
—o—
Osló, 6. júlí.
NRP. — FB.
Fregn frá Kaupmannahöfn
til Tidens Tegn hennir, að
norska stjómin liafi ekki get-
að fallisl á orðsendingu
dönsku stjórnarinnar viðvíkj-
andi lögregluvaldsframkvæmd
dr. Lauge Koclis í Grænlandi.
Norska stjórnin sendi Dana-
stjórn mótmæláorðsendingu í
gær, út af þvi, sem gerst liafði
(í Grænlandi).
Andresen verksmiðjueigandi
liefir gefið 2().(MK) kr. til horska
Grænlandsleiðangursins, sem
farinn verður i ár. Vegna þess
arar gjafar verður hægt að
framkvæma fyrirætlun um að
gera upjidrátt af Austur-Græn-
landi, með aðstoð Lars Chris-
tensens flugmanns. Er í ráði
að taka ljósmyndir úr ftugvél
af þeim svæðum, sem ekki er
liægt að gera uppdrátt af með
öðru móti.
Osló, 7. júlí. NRP. — FB.
Samningaumleitanir íslendinga
og- Norðmanna.
Álit Garstads ráðherra.
Kirkebj' Garstad verslunar-
ráðherra segir í viðtali við
Tidens Tegn:
„Með uppsögninni ó verslun-
ar- og siglinga-samningunum
lætur ríkisstjórn fslands það eitt
í tjós, að íslendingar óski þess
að hafa frjálsa aðstöðu við
samningaumleitanir þær, sem í
hönd fara. Var Jietta greinilega
tekið fram af Asgeiri forsætis-
ráðherra Ásgeirssyni. Aðalmát-
ið, sem um verður samið á
fundunum, verður án efa salt-
fisksútflutningurinn.Vér álitum
þetta mál svo mikilvægt, að vér
álítum samkomulag um lausn
þess fytlilega bæta u])[) lækkun
á tollinum á saltketi, sem er
flutt inn í landið frá íslandi. fs-
lendingar hafa valdið oss mjög
miklu tjóni með því að demba
saltfisksframleiðslu sinni á er-
lenda markaði („duinping-
salg“), án þess að hafa þó sjálf-
ir liaft nokkurn hagnað af því.
Kröfur fslendinga eru kannske
á nokkurri sanngirni bygðar en
vér lítum svo á, að verði þeim
sint, verði eitllivað að koma í
istaðinn.
Samiag fiskframleiðenda á
Finnmörk liefir á aðalfundi í
Hammerfest fallist á samning
við United African Company
um sölu á saltfiski til Afríku.
Er liér um að ræða samlagssölu
allra stærstu fiskútflytjenda í
Norður-Noregi.
Kaupmannatiafnarhlaðið Poli-
tiken skýrir frá því, að danska
stjórnin ætli sér ekki að svara
seinustu orðsendingu norsku
stjórnarinnar út af Grænlands-
deilunni.
Skógareldar liafa geisað í
Övre Rendal. Á þriðjudag eydd-
ust 1000 mál skóglendis. f gær
blossaði eldurinn upp ó ný og
hélt hann áfram að breiðast út
í nótt. — Á Solör hafa einnig
geisað skógarelílar. Þar eydd-
ust 300 mál skóglendis af eld-
inum.
Osló, 9. júli. NRP. — FB.
Vegaviunuverkfall stendur
yfir viða', en á niörgum stöðum
er vinna hafin á ný af verkfalls-
brjótum. Á Östfold liefir rikis-
lögreglan veitt þeim vernd, sem
vinna í trássi við verkfalls-
menn. — Allmargir menn söfn-
uðust saman við Mysen til mót-
mæla gegn þvi, að verkfalls-
hrjótar ynnu, en alt fór rólega
fram. Ritstjóri verkalýðsblaðs-
ins í Mysen, Aksel ölsen, hefir
verið handtekinn, vegna liótana
gegn verkfallshrjótum. —
Landssamhand verkamannafé-
laganna ákvað i gær að samúð-
arverkfall skyldi hafið af starfs-
mönnum víneinkasölunnar og
ölgerðarliúsanna. Þátttakan
nær lil allra verkamanna við
þessi fyrirtæki. Samband flutn-
ingaverkainanna tilkynnir, að
alhr flutningar liafi verið stöðv-
aðir til víneinkasölunnar.
Hundseid forsætisráðherra
segir m. a. í Tidens Tegn, að
hann hafi orðið mjög forviða á
yfirlýsingunni um samúðar-
verkfallið, en ríkisstjórnin geti
ekki gerl fleiri tilstakanir. —
Dahl, formaður Félags atvinnu-
rekenda, telur samúðarverk-
fallið uppivöðslu af liálfu
verkalýðsfélaganna. -— Hal-
vard Olsen segir, að bersýnilegt
sé, að forsætisráðherrann telji,
að liann þurfi ckkert tillit að
taka til verkalýðssambandsins,
en það komi nú i ljós bráðlega,
hvernig úrslitin verði. — Rik-
isstjómin liéll fund í dag til
þess að ræða ástandið. —
Frcgnirnar um samkomulag
á Lausanneráðstefnunni vekja
gleði um lieim allan, einnig hér
í lanfh. — Mowinckel segir í
Dagbladet: „Frá því er Loear-
nosanmingurinn var gerður,
hefir ekkert gerst ánægjulegra
en þetta. Fylstu ástæður eru
fyrir hendi til þess að óska
stjómunum í Þýskalandi og
Frakklanth til hamingju."
Bæjarstjórnin í Stafangri
hefir ákveðið að efna til at-
kvæðagreiðslu um áfengismál
borgarinnar.
Gengi: London 20,23. Ham-
borg 135,50. París 22,00. New
York 5,68, Stokkhólmur 104,00.
Kaupmannahöfn 110,00.
Samkvæmt fregn í Lundúna
bíaðinu Times liefir norskur
maður að nafni Sehiöth verið
handtekinn við landamæri Sí-
hiríu og Mansjúríu. Var hann
á járnbrautarferðalagi til Har-
hin. Maður þessi tiafði verið
tollgæslumaður þar eystra. —
Utanríkisráðuneytið norska
hefir enn ekki fengið tilkynn-
ingu um málið.
Aðalfundur
Prestafélags íslands.
—o—
Niðurl.
III. Samvinna góðgerðafélaga
og hjálp til evangeliskra kirkna.
Framsögumaður })ess máls
var Sigurbjörn A. Gislason,
cand. -tlieol.
1. ) Aðalfundm- Prestafélags
íslands telur æskilegi, að sam-
bandi sé komið á með þeim
liknarfélögum, er starfa hér á
landi, líkt þvi er á sér stað hjá
nágrannaþjóðum vorum og
samþykkir að kjósa sjö manna
nefnd til þess að kynna sér mál-
ið tií' hlítar og leita undirtekta
hjá þeim félögum, sem nú
starfa á þessu sviði, og leggi
nefndin síðan álit sitt og tillög-
ur fyrir næsta aðalfund fétags-
ins.
2. ) Prestafélag Islands telur
æskilegt, að íslenska kirkjan
taki þátt í samstarfi annara
evangeliskra kirkna til stuðn-
ings evangeliskum söfnuðum í
Norðurálfunni.
í nefnd til að vinna að þess-.
um málum voru kosnir:
Cand. tlieol. Sigurhjörn A.
Gislason,
prófastur Sigurgeir Sigurðs'-
son,
síra Óskar J. Þorláksson,
síra Friðrik J. Rafnar,
síra Sigurjón Ámason, og
síra Jakoh Jónsson.
A fundinum flutti síra Óskar
.1. Þorláksson erindi: „Hugsjón-
ir æskunnar og kirkjan“, og
síra Halldór Jónsson erindi, er
liann nefndi: „Tíu ára áætlun“.
Ýms mál, auk þeirra, er
nefnd liafa verið, komu einnig
til umræðu, og þessar tillögur
meðal annars samþvktar:
1. ) Að styðja biskup lands-
ins að því, að reyna að fá ríkis-
stjórnina til þess að kaupa
Skálholt, svo að það gangi ekki
kaupum og sölum manna á
milli.
2. ) Að fara þess á leit við
ríkisstjórnina að þingvalta-
prestakall verði sein fyrst aug-
Iýst laust til umsóknar.
3. ) Aðalfundur Prestafélags-
íslands telur æskilegt, að bann-
að verði með lögum, að ungl-
ingar innan 16 ára aldurs taki
þátt í eða myndi með sér póli-
tískan félagsskap.
4. ) Ut af ályktun All)ingis
um fækkun prestakalla lýsir
Aðalfundur Prestafélags ís-
lands yfir þvi, að hann telur sig
þess fidlvissan, að gifta íslensku
þjóðarinnar sé bmidin við heill
og þroska islensku kirkjunnar
og sé þvi lilutverk Alþingis að
styðja kirkjuna af megni.
I>á ræddi fundurinn enn-
fremur um nauðsyn þess að
hefja útgáfu vikuhlaðs í litlu
broti. Skyldi það fyrst og
fremst vera uppbyggilegs eðlis,
forðast trúfræðilegar flokka-
deilur, en flytja greinar fræð-
andi og vekjandi um andleg
mát og fregnir um störf presta
og safnaða landsins og um hið
merkasta, er gerist i þeim efn-
iim erlendis.
„Prestafélagsritið“ heldur
áfram að koma út, eins og að
undanförnu.
A fundinn komu 34 menn
alls, þar af 30 prestvígðir, 2
guðfræðikandidatar og 2 konur.
Fndurinn var að öllu leyti
liinn ánægjutegasti og mun
verða fiestum fundarmönnuin
lengi minnisstæðiir.
Iðnsýningin.
—o—
Framh.
í stofu nr. 13, uppi, sýnir
Körfugerðin framleiðslu sina.
Ivörfugerðin var stofnuð af
Þórsteini Bjarnasyni, Jónsson-
ar heit. alþm. frá Vogi, fyrir
7—8 árum síðan. Var fyrirtæki
þetta lengi á Skólavöi*ðustíg 3,
en er nú flutt í Bankastræti 10.
Eru húsakynni þar rúmgóð og'
betri en þau, sem Körfugerðin
hafði áður. Körfugerðin býr til
allskonar lcörfur, þvottakörf-
ur, liandkörfur, bréfakörfur,
saumakörfur o. s. frv. og körfu-
húsgögn, borð, hlómajötur,
nótnastæði, o. m. fi. Aðallega er
unnið úr spanskreyr, sefgrasi
og pílviði. Framleiðsla Körfu-
gerðarinnar liefir reynst ágæt-
lega.
Blindravinafélag íslands
vinnur m. a. að þvi að kenna
blindu fólki iðnað, útvegar þvi
efni frá útlöndum og annast
'sölu þess, sem blinda fólkið býr
til.
1 stofu nr. 13 er sýning á
framleiðslu hlindra manna.
Mun sú sýning liafa vakið alveg
sérstaka attiygli allra sýningar
gesta. M. a. er sýnt: Húsgögn,
tágavörur og burstavörur, alt
unnið af hlindu fólki. — Einn
sýningargest heyrði tíðinda-
maður blaðsins hafa þau orð
um í tierb. nr. 13, að munir þeir,
sem þar væri sýndir, hefði
vakið mestu aðdáun sína og
undrun af öllu á sýningiumi.
— Ætti menn að minnast þess
við hver kjör bhnt fólk á að
búa og stýðja það og gleðja
með því að kaupa framleiðslu
þe;s.
I herbergi nr. 14 sýnir Soffia
Stefánsdóttir, Eiríkssonai- lieit-
ins tréskurðanneistara. útskor-