Vísir - 17.03.1933, Qupperneq 3
v í s f R
að rekja ekki efni erindisinfe.
Eg vil, að sem flestir heyri það
af vörum skáldsins.
Áheyrandi.
Yeðrið í morgun.
Frost um land alt. í Reykja-
vík 3 stig, ísafirði 3, Akureyri
4, Seyðisfirði 3, Vestmanna-
eyjum 3, Grímsey 6, Stykkis-
hólmi 5, Blönduósi 5, Raufar-
höfn 4, Hólum í Hornafirði 4,
Grindavík 5, Julianehaab -—7,
Færeyjum -f-2, Jan Mayen —7
ng Angmagsalik —10 st. Skeyti
vantar frá Hjaltlandi og Tyne-
mouth. Mestur hiti hér í gær
— 0 stig, minstur — 5. Sólskin
i gær 10,6 stundir. — Yfirlit:
Djúp lægð um Bretlandseyjar,
á hreyfingu austur eftír. Hæð
yfir Grænlandi. - Horfur: Suð-
vesturland, Faxaflói, Breiða-
fjörður: Stinningskaldi á
norðaustan. Bjartviðri. Vest-
firðir, Norðurland, norðaust-
urland, Austfirðir: Norðaust-
,an átt. Sumstaðar allhvass.
Éljagangur. Suðausturland:
Alllivass á norðaustan. Bjart-
viðri.
TFrú Guðríður Þórðardóttir,
Fjölnisvegi 9, á 50 ára afmæli
í dag.
Sendiherrafregn.
Bæjarstjómarkosningum í Dan-
mörku er nú lokið, og hefir fylgi
vinstrimanna hrakað, en annara
flökka aukist.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss er á Ieið hingað til
lands. Goðafoss er i Hamborg.
Detlifoss var á ísafirði í niorg-
an. Selfoss er i Hull. Lagarfoss
var á Önundarfirði í morgun.
Væntanlegur hingað á morgun.
Brúarfoss fer í kveld vestur og
norður.
G.s. ísland
fór frá Færeyjum áleiðis
hingað kl. 3% í nótt.
Af veiðum
hafa koniið Gulltoppur með 63,
Ólafur nie'5 60, Arinbjörn hersir
með 76 og Geysir með 60 tn. lifrar.
E.s. Suðurland
kom frá Borgarnesi í dag. með
norðan og vestanpóst.
Þjófurinn sem sofnaði!
í Alþýðublaðinu í gær er það
vítt mjög, að í1 ræðu, sem síra Frið-
rik Hallgrimsson flutti í útvarpið
nýlega, hafi hann talað m. a. um
„ljúgvotta á stjórnmálasviðinu". —
„Hver er að tala um mig?“ sagði
þjófurinn, sem sofnaði i kirkjunni.
Aðalfundi
Iðnaðannannaíélags Reykjavíkur
var lokið i gærkvekli. Sú breyting
var gerð á lögum félagsins, að 2
mönnum var, bætt við í stjórnina,
svo að nú skipa hana 5 menn í stað
3 áður. Formaður, Ársæll Árna-
son, og gjaldkeri, Ragnar, Þórar-
insson, sátu kyrrir í stjórninni, en
ritarinn, Guðm. Þorláksson, átti að
ganga úr henni, en var endurkos-
inn. Þeir Jón Halldórsson og Þorl.
Gunnarsson voru kosnir sem með-
stjórnendur. — Mörg mál, er
srterta félagið og iðnaðarstéttina í
heild, voru rædd á fundinum, og
sum af miklu fjöri. Fundurinn
stóð i tvö kveld, alls i nær 7 klukku-
stundir, og var vel sóttur, enda fer
áhtigi iðnaðarmanna fyrir málum
stcttarinnar sívaxandi.
Árshátíð
Félags járniðnaðarmanna 1
verður haldin i Iðnó annað
kveld og hefst kl. 8y2. Þar verð-
ur sýnt leikrit, sungnar gaman-
vísur, skemt með hljóðfæra-
slætti og upplestri og dansi.
Aðgm. verða seldir i Iðnó í dag
og á morgun kl. 5—8 síðd.
Dr. Max Keil
flytur fyrirlestur um „Bild-
ung und Volksbildung“ i kveld
kl. 8 i Háskólanum. ÖUum
heimill aðgangur.
A kosínað Sigui*ðar.
Alþýðublaðið í gær lætur svo
um mælt, að menn hafi skemt
sér „tvímælalaust best við til-
vitnanir Guðm. (Friðjónsson-
ar) í grein Sigurðar Einarsson-
ar“. Eg var meðal áheyrenda á
fyrirlestri G. F. og get um það
borið, að þeir, sem „skemtu
sér“ við nefndar tilvitnanir,
gerðu það áreiðanlega á „kostn-
að“ Sigurðar. Kunningjar S. E.
voru móurlútir, meðan G. F.
fór með „tilvitnanir“ þessar og
var auðséð, að jxeim mundi liða •
illa. Hitt er satt, að andstæðing-
ar S. E. voru með nokkuru
gleðibragði, er Guðmundur lét
hann ,Jiafa orðið“.
X.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík, vikuna 5.—11.
mars (í svigum tölur næstu
viku á undan): Hálsbólga 37
(53). Kvefsótt 9þ (145). Kvef-
lungnabólga 2 (15). Blóðsótt 0
(1). Gigtsótt 0 (1). Iðrakvef 18
(10). Inflúensa 269 (142). Tak-
sótt 3 (1). Hlaupabóla 0 (2).
Þrimlasótt 2 (0). Munnangur 2
(1). Mannslát 9 (9). — Land-
læknisskrifstofan. (FB).
Nýja Bíó
sýnir í síðasta sinn í kveld
kvikmyndina „Hamingjusamir
elskendur“, sem Georg Alex-
ander og Magda Schneider
leika aðalhlutverk í. Kvikmynd-
in er sýnd við góða aðsókn,
enda skemtileg.
Y.
Gamla Bíó
sýnir kvikmyndina „Eigin-
konan frá fjölleikahúsinu“. Er
það amerísk talmynd, gerð
samkvæmt skáldsögu eftir G.
Morris. Aðalhlutverk eru vel 1
leikin af Ruth Chatterton og
Clive Brook.
X.
í. R. f
Æfingar falla niður í dag og á
morgun, vegna veikinda kennarans.
Guðspekifélagið.
Fundur í Reykjavíkurstúk-
unni i kveld kl. 8% á venjuleg-
um stað. Ungfrú Hólmlriour
Árnadóttir flytur erindi. Gestir
velkomnir.
Áheit
á barnaheimilið Vorblómið
(Happakrossinn): 10 kr. gamalt
áheit frá S.i nýtyjP kr. og 8 kr.
4. febr., 10 kr. frá Sv. j. Með
þökkum móttekið. Þ. S.
Gengið i dag.
Siorlingspund . .. .\ . kr. 22.15
Dollar .............. — 6.411/2
100' ríkismörk ........ — 153.65
— frakkri. fr. .... — 25.39
— belgur ........... — 90.09
— svissn. fr. ..... — 124.90
— lírur ............ — 33.23
— pesetar .......... — 54.83
— gvllini .......... — 259.86
—- tékkósl. kr.....— 19.28
-— sænskar kr. — 117.26
— norskar kr. .... -— 113.61
— dnnskar kr. .... —- 100.00
Gullverð,
islenskrar krónu er nú 58.17.
Til ferdaiaga
og heimanotkunar:
TÁMALIT bollapör, diskar,
bikarar, hitaflöskur
og fleira.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
Bankastræti 11.
Útvarpið.
10,00 Veðurfregnir.
10,12 Skólaútvarp. (Hallgrím-
ur Jónsson).
12,15 Hádegisiitvarp.
16,00 Veðurfregnir.
19,05 Þingfréttir.
19,30 Veðurfregnir.
— Lesin dagskrá næstu
viku.
19,40 Tilkynningar. Tónleikar.
20,00 Klukkusláttur.
Fréttir.
20,30 Kvöldvaka.
Tannavernd
og biómyndir.
Tannlæknar leggja mikla á-
herslu á jiað, að fólk komi í
tíma til aðgerða, áður en icnn-
umar verða of eyðilagðar, ef
von á að vera um, að varðveita
jxær og halda jxeim alla æfi. —
Á þessu byggist það, að tann-
læknar hafa hrundið af stað í
menningarlöndunum svo lcall-
aðri skólatannlækninga-lxreyf-
ingu. — Skólatannlækningar
miða að því tvennu, að lækna
og viðl alda tönnum i börnum
og unglingum og fræða æsku-
lýðinn um tannavernd og nauð-
syn tann- og munnhirðingar.
Nú tiðkast það mjög, að nota
kvikmyndir í ýmsu fræðslu-
starfi og virðist jiað hafa gef-
ist vel. Þessi aðferð hefir einn-
ig verið tekin til hjálpar í út-
breiðslu þekkingar á nauðsyn-
inni á hirðingu tannanna og
tannlækningum.
Tannlæknar viðs vegar um
heim hafa gengist fyrir þvi, að
fræðandi kvikmyndir um þessi
efni hafa verið gerðar og sýnd-
ar þar, sem hægt er að koma
því við.
Tannlæknafélagið hér hefir
útvegað hingað að láni, hjá
tannlæknafélaginu í Danmöil«Sfo
tvær tannkvikmyndii-, aðallp*'%
til þess, að sýna þær skólafólki,
bæði hér i Reykjavík og á Ak-
ureyri og í Vestmannaeyjum.
Þessar kvikmyndir hefir Nýja
Bió góðfúslega tekið áð sér að
sýna bráðlega. Hér er ekki
staður til að ræða það með ná-
kvæmni, hvað af tannveikinni
getur leitt fyrir hinn uppvax-
andi lýð. En að eins má benda
á það, að tannlæknar kvarta oft
undan jxví, að fólk hirði of lít-
ið um tennur sínar hér og kem-
ur venjulega of seint til tann-
læknis.
Unglingar og æskumenn ættu
að gera sér að reglu.að fara til
eftirlits til lannlæknis sið minsta
kosti tvisvar á ári. Fólk á ekki
að bíða eftir kvölunum eða að
tennurnar etist í sundur.
í öðrum menningarlöndum
er jxað talið jafn sjálfsagt, að
hafa vel birtar tennur, eins og
það er sjálfsagt að þvo sér. Þar
er l’ka orðin almenn venja, að
fólk lætur liafa reglubundið
eftirlit með tönnum sínum.
Alt á sama stad.
Fjaðrir í flesta bíla. AUoy stál. U. S. L. rafgeymar, margar
stærðir. Rafkerti. Kertaþræðir. Platínur. Coil. Condenser.
Timken rúllulegur, og Kúlulegur í aUa bila. — BrettaUstar.
Gúmmimottur á gangbretti og gólf. Verkfæri, margar teg-
undir og ótal margt fleira.
Bílaverslun. Bílaviðgerðir. Bílamálning. Hvergi betra.
Egiii ViíhLjálmsson,
Laugavegi 118.
Sími: 1716, 1717, 1718. Sími eftir kl. 7: 1718.
Norskar
loftskeytafregnir.
Osló, 15. mars.
NRP. - FB.
Látinn er á Storð bóndinn
Eysteinn Eskeland, 93 ára gam-
all, faðir hins víðkurma skóla-
stjóra, Lars Eskeland á Voss,
Severins Eskelands rektors og
Eysteins Eskeland skólastjóra.
Flandin, fyrverandi fjármála-
ráðh. í Frakklandi, er á ferða-
lagi i Noregi, og er nú staddur
i Osló. Hann hefir jn. a. skoð-
að verksmiðjurnar í Odda. I
gær flutti hann erindi í gamla
hátíðarsalnum í háskólanum.
Umræðuefni lians var fjárliags-
og viðskiftamálaráðstefnan fyr-
irhugaða. «>
Osló, 16. mars. NRP. — FB.
Bæjarstjómin í Osló ræddi í
gær tillögu um að breyta til og
láta einstaklinga starfrækja
kvikmyndahúsin, í stað bæjar-
félagsins, en tillagan var feld
með 10 atkv. gegn 9.
Eftirlitsskipið Mikael Sars
hefir í nokkura daga leitað að
fiskibát með fjórum mönnum
á, sem ekki hefir til spurst í
fjóra daga. Óttast menn, að
báturinn hafi fainst á fiskimið-
um f™> utan Vardö.
Tidens tegn tilkynnir, að
þýska rikisstjórnin hafi gefið
til kynna, að hún óski þess ekki,
að Olympisku leikarnir verði
haldnir í Þýskalandi næst, eins
og ráð hafði verið fyrir gert.
Er þvi talið líklegt, að leikamir
fari fram í Rómaborg 1936.
Verðhækkun mikil liefir átt
sér stað á öli, vegna hækkandi
, skatta og gjalda, og hefir af
jiessu leitt, að öldrykkja hefir
minkað 111 jög mikið og var ár-
ið sem leið 14 litrar á ibúa
Oslóborgar, en öldrykkjan hef-
ir aldrei verið minni frá þvi ár-
ið 1872. Árið 1921 var ölneyslan
33 lítrar á íbúa.
■ Gengi: London 19.54. Ham-
borg 135,75. París 22,45. Am-
: sterdam 230.00. New York 5.67.
Stokkhólmur 103.50. Kliöfn
87.25.
"Ah;...
Barnafataverslunin,
Laugaveg 23. Sími 2035.
í gær tókunx við upp telpu-
kjóla og drengjaföt. --
Athugið verð og gæði.
xsísctiíícoísciocíícaöísocöíxsssoas
SCCCSSCUCSXSCCSSCCCSSCCUSSCUCt'S
Dömubindið
CELTEX
uppfyllir allar óskir yðar.
Það er„ úr mjúku, dún-
kendu efni, sem veitir hin
bestu þægindi. Það upp-
leysist í vatni. Má því eftir
notkun kasta þvi í vatns-
salerni. 6 stk. kosta að eins
kr. 0,95. Dömubelti, er má
nota við dömubindi. Sam-
anpressuð dömubindi
i fleiri stærðum.
Frá Akureyri.
Akureyri, 17. mars. FB.
Es. Nova liggur hér enn og
hefir engin uppskipun úr
henni farið fram og engin lík-
indi til að lausn fáist á deil-
unni að svo stöddu, Kommún-
istar halda stöðugt uppi lið-
safnaði og hafa um 200 manna
lið. — I gær bii'tu jxeir ávarp
til vexkalýðsins og stendur jxar
XXXXXSCCÍÍCOOSXÍCÍXÍOOÍXXÍOOÍX
SOOOÍXIOOOOOOOÍÍOOOÍSOOQÍSOOOC
í-KT^
Soj
\ w.!
<
>•
c
cz;
•
Ctí
<
e
K
K
c
<
z
Þ.
Ed
•C
8
QD
</]
«3
o
cö
G
.s
'cö
s
CÖ
u
<D
Jto
CÖ
ÍH
’S
G
G
G
C0
G
cö
u
0)
I
B5
EJ
bð
—
>
<
>
E2
BS
Q
BS
Eð
ö
<
Z.
H
B
I
Gúmmístimplar
eru búnir ti) í
Félagsprentsmiðjunni.
Vandaðir og ódýrir.
m. a„ að láti bæjarstjórnin
ekki undan, verði að taka upp
nýjar ki’öfur og herða barátt-
una að mun og skora á allan
hinn vinnandi lýð að fylkja sér
undir eitt merki gegn bæjar-
stjórninni.
Samkomubanninu var aflétt
i gær. Inflúensan komin svo
víða um bæinn, að álitið var
gagnslaust að halda uppi bann-
inu.