Vísir - 17.03.1933, Blaðsíða 4
I
V ISIR
»ooooocoöcoc;íoo!öttO!íceí>íso»5Sííocíso»»ooíio«nííctioíica»55í>»oe5
KILDEBO
u
útungunarvélar ug t'ósturmæður eru óðum að ryðja sér
til rúms á Norðurlöndum, sökum framúrskarandi vand-
aðrar smíði og efnis, og yfirgnæfandi útungunarmögu-
leika. Útungunarvélar þessar hafa olíugeymi, sem endist
allan útungunartímann, og sjálfsnúara, sem snýr öllum
eggjunum í einu.
Mjög lítil olíueyðsla. —
Stærðir fyrir 100 til 10000 egg. —
Höfum nokkrar vélar til sýnis og sölu. —
Biðjið um verðlista. —
Jöli. Ólafsson & Co.
i
Aðalumboðsmenn á íslandi fyrir:
99
KILDEBO
66
* C. F. Skafte, Sor0.
X10Q055Q0515Í0005S5JOC555Í5SQ5S5505J5S5 J5S5S0O5S5SO5SO55O51O5 Sí55i555S05í005í005>5
Hár
við íslenskan búning fáið þið
best og ódýrast unnið ixr rothári
í
Versl. Goðafoss.
Laugavegi 5. Sími: 3436.
sooo5so5soooo5s5sooo;s;so;s'.^
VörnMsið
S5S5S5S5 S5S5S5S5555005S5S5SO! S5S5S5S5 S05S5S5S5
hefir fallegasta úrvalið I?
af allskouar ^
Sokkom !
fyrir konur, karia b
og böm.
S5S5SQ5S5 S05S5S5 S5S5S5S5 S5S5S5S5 S05S5S5 55SQ5Í5
Best að auglýsa í Vísi.
BaokabyggsmjOl
(malað hér).
Bankabygg
faist i
K.F.U.K.
A. D.
Aðalfundur verður i kveld
ki. sy2.
Félagskonur, mætið vel.
HÚSNÆÐI
1
Gott hex-bergi með eða árx
húsgagna lil leigu. A. v. á. (472
Forstofuherbergi til leigu nú
þegar eða 1. aþril á Baldursg. 1.
(469
2 herbergi og efdhús óskast
14. maí. Tilboð sendisl hlaðinu
fyrir 19. þ. m., merkt: „Fyrir-
framgreiðsla“. (440
Hefi til leigu 2 ibxiðir. önnur
4 herbergi, eldhús og stúlkna-
herbergi. Þeirri íbúð fylgja
stórar svalir móti suðri. Hin
íbúðin, 3 herbergi og eldhús,.
Báðar ibúðirnar með öllum ný-
tisku þægindum. Þórarinn
Kjartansson, Laugavegi 76.
(455
2 lierbergi og eldhús óskast
14. maí. Má kosta 75—80 kr.
Tilboð sendist Vísi, merkt:
„113“. (452
3—4 herbergi og eldhús ósk-
ast. Uppl. Miðstræli 12, niðri.
(451
1 lierbergi með eldunarplássi
óskast 14. maí. Abyggileg
greiðsla. Tilboð, merkt: „15“,
sendist Vísi. (447
Litið herbergi til leigu nú
þegar til 14. mai. Uppl. í síma
2492. (445
3—4 herbergi og eldhús með
nútíma þa'gindum til leigu 14.
mai á góðum stáð i vestui'bæn-
um, — Tilboð, merkt: „Mar“,
sendist afgr. Vísis. (439
Sólrík og þægileg íbúð, 4 stof-
ur, eldhús, stúlknaherbergi, bað,
Sér-miðstöð, góð geymsla,
þvottahús og þurkloft, til leigu
14. maí á skemtilegum stað i
vesturbænum. Tilboð, merkt:
„Fyrsta flokks íbúð“ sendist
Vísi. (438
Góð 3ja herbergja íbúð með
ofnum, til leigu Grettisgötu 46.
Uppl. i sima 3617. (437
2 herbergi og eldhús óskast
,14. maí með nútíma þægindum.
Uppl. í síma 2403. (415
Sólrík ibúð, 5 herbergi, eld-
hús og bað, sér miðstöð og öll
þægindi, til leigu 14. mai, í ný-
tísku steinhúsi.við Bárugötu. —
— Tilboð, merkt: „Bárugata“,
sendist afgr. Vísis fyrir sunnu-
dag. (430
Barnlaus hjón óska eftir 2
herbergjum og eldhúsi 1. maí í
áusturbænum. Uppl. i sima
3696. (473
Mig vantar, 14. mai, 5—6
herbergja íbúð, með stúlkuher-
bergi. C. Proppé. (468
3 herbergi og eldhús til leigu
frá 14. mai innarlega á Hverfis-
götu. Uppl. í síma 3032. (466
Sólarherbergi i eða við mið-
bæinn óskast 1. apríl. Tilboð
merkt: „Skilvís“, leggist inn til
Vísis. (161
Stofa eða 2 herbergi, nálægt
miðbænum, óskast 14. maí. Til-
boð, merkt: „Skilvís gréiðsla“,
sendist Vísi fyrir 25. mars. (458
Bröndóttur köttur (lítill) er í
óskilum á Elliheimilinu. Vitjist
þangað sem fyrst. (462
r
VTNNA
Ung stúlka, vön afgreiðslu,
óskar eftir atvinnu við mat-
vöru- eða mjólkurbúð. A. v. á.
(450
Á Skólavörðustíg 3 (stein-
húsið) fáið þér ódýi'ust saumuð
barnaföt, drengjafatnað og
telpu-kjóla og kápur. (444
Unglingsstúlka óskast 1. apr-
il til að líta eftir barni hálfan
daginn. Uppl. Túngötu iM, niðri,
milli 7—8 síðd. (442
| Látið fagmanninn hreinsa og
gera við eldfæri ykkar. Fljót og
ódýr afgreiðsla. Sími 1955. (197
| Athugið! Peysuföt og upp-
' hlutir og alt sem að því lýtur er
saumað á Smiðjustíg 6. Einnig
allskonar barnaföt. — Alls-
konar prjón er tekið á sama
stað. Fljót afgreiðsla, góður
frágangur. — Prjóna og sauma-
stofan, Smiðjustía 6, uppi. NB.
Áður Klapparstig' 27. (64
Unglingsstúlku vantar mán-
aðartíma til að hjálpa í liúsi i
fjarveru húsmóður. — Uppl. í
síma 4728. Framnesv. 36 A.
| (470
1 Vönduð stúlka óskast strax
til 14. mai. Uppl. gefur Guð-
munda Níelsen, Tjarnargötu 3,
frá kl. 4—7. (465
| Stúlka óskar eftir ráðskonu-
stöðu. A. v. á. (464
Myndarleg stúlka óskast til
að gera hreint tvisvar í viku
í prívathúsi, frá nú til 1. okt.
Uppl. Hatta- og skermaverslun-
in, Laugavegi 5. (463
Stúlka óskast á Lokastíg 11,
niðri. (460
| Telpa, 14—16 ára, óskast til
að gæta barns, til Hafnarfjarð-
ar. Uppl. Laugavegi 11. Gengið
inn frá Smiðjustíg. (457
Tækifæriskaup á faliegri
samfellu (skauthúningur með
öllu tilheyrandi). Uppl. Þórsg.
10, uppi. (456
Stór mjög góður og fallegur
ofn, sem kostaði 500 krónur.
verður nú seklur á 175 krónur.
Uppl. Laufásvegi 35. — Simi:
3704. (454
Átta ungar varphænur til
sölu. Uppl. gefur Margx’ét Ingj-
aldsd., Bergstaðastræti 6. (453
Barnavagnar, stólkerrur, ung-
bamakerrur. Mest xirval. Vatns-
stíg 3. Húsgagnaverslun Beykja-
víkur. (291
Djúpur barnavagn til sölu.
Kerra óskast á sama stað. UppL
Brávallagötu 4. (448
Bamavagn og barnarúm til
sölu. Reykjavíkurvegi 13.
Skerjafirði. (449
I Notaðar kvenkápur til sölu.
1 Tækifæriskaup. Haðarstíg 2.
(443
Kaupum tómar flöskur,
sultutausglös og söyuglös hæsta
verði. Magnús Th. S. Blöndal,
Vonarstr. 4B. (18
Get bætt við mig nokkurum
dömuhöttum. Nýjasta tíska.
Einnig breytt um lit. Miðstr. 5,
annari hæð. (467
wjjPJT" Hefi til sölu og í skifium
allskonar húseignir og' grasbýli,
með hagfeldum kjörum. Fast-
eignir teknar til sölu. Heima
1—2 og' 7—8. Ólafur Guðnason,
Lindargötu 43. (459
Nýlegl, nýmálað, tveggja
manna rúmstæði til sölu á Ný-
lendugötu 22, annari hæð. (441
l
LEIGA
Rúmgott verkstæðispláss ósk-
ast strax. Tilb. sendist „Vísi“,
merkt: „Strax“. (471
r
TILKYNNIN G
\
iirxö/tilrynni
STÚKAN FRÓN nr. 227. Fund-
ur i kveld kl. 8y2. (446
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.
✓
HEFNDIR.
augum á Carruthers. — „Skiljið þér það, Carru-
thers,“ sagði hann og steytti hnefann — „skiljið þér
það, segi eg, að ef nokkur maður leyfir sér að sletta
sér fram i mín verk eða i'áðstafanir, þá er eg reiðu-
búinn til þess að fara — fara bara upp á stundina! —
Skiljið ])ér það! — Eg hefi nú stjómað þessum liluta
fyrirtækisins árum saman, eða þangað til herra Grc-
gory — illu lieilli — datt í hug, að flana lxingað aust-
ur!------- Hann er að vísu ágætur kaupsýsluhöldur,
og eg er talsvert upp með mér af því, að vera í þjón-
ustu hans, en hann hefði ekki átt að koma hingað.
-7-, En hvemig sem því kann að vikja við, þá er nú
djöfullinn Jaus og það er ekki víst, að við ráðum við
hann. Og mér er nær að lialda, að ástandið sé enn þá
alvarlegra og enn þá hættulegra, en nokkurn okkar
grunar. — Eg geri það, sem í mínu valdi stendur, en
guð má vita —“
„Mér þykir leiðinlegt, ef eg hcfi sært yður eða
móðgað,“ sagði hinn ungi maður í fullkominni ein-
lægni, „en þér gctið reitt yður á, að öll þessi vandræði
hafa komið við mig, ekki síður en yður —“
„Já, eg skil það,“ sagði Holman og var nú heldur
róiegri.----„En eg segi yður satt, herra Carruthcrs,
að hér eru alvarlegir hlutir að gerast. — Hvað segið
þér nú til dæmis um þetta?“ — Hann tók símskeyti
upp úr vasa sinum og veifáði þvi. — „Eg hefi ekki
getað fengið af mér, að sýna herra Gregory þetta
skeyti — nei, það veit heilög hamingjan! — Eg hefi
ekki getað gert það.“ — Hann lagði skeytið á borð-
ið, og gerði Carruthers visbendingu um, að hann
inætti líta á það, ef hann langaði til. — Honum vai'
það ekki of gott, strák-greyinu, þó að hann væri
ekki merkilegur — bara „sonur pabba síns“ —
sendur út af örkinni til þess, að kynnast viðskifta-
lífinu.
„Þetta er verst af þvi öllu,“ sagði Holman. „Lesið
þetta, drengur minn!“
Tom las skeytið yfir öxl Holmans og hrópaði upp
yfir sig: — „Guð komi til! — Getur þetta verið,
Holman? — „Feima“ sökt —- send niður á sjávar-
botn! — Guð komi til!“
„Já, svo er það! — Stærsta og besta skipið“, sagði
Holman með óblandinni sorg i rómnum. — „Sam-
særi eða uppreist hjá skipverjum. — Þeir bora göt
á skipið og fara þvi næst í bátima.“ —
„Eg er hræddur um, að Gregory eigi bágt með
að sætta sig við þetta.“
Holman kinkaði kolli. — „Og lítið þér á þetta!“
— Hann ýtti höfuðbókinni til hans. —- „Þessi höfuð-
bók hefir verið tekin úr skápnum einhvem tíma að
næturlagi, fyrir svo sem vikutima eða rúmlega það~
— Og sjáið þér nú til: — 1 þessa bók voru ritaðir
samningarnir um höfnina. — Þeir komust á eitt blað.
Það blað liefir verið tekið burtu. En það hefir ver-
ið gert svo vel, að ómögulegt ær að sjá, að blaðið
hafi nokkuru sinni verið þarna! — En blaðsíðutal-
ið segir til sín! Ódæðismaðurinn hefir látið bókina
aftur á sinn stað. Og hann hefir lokað skápnum,
eins og ekkert væri. Mér er lireinasta ráðgáta, hvern-
ig hann hefir farið að þessu.“
„Nú er auðskilið, hvernig á þvi stendur, að aðrir
hafa boðið hærra verð en við. Menn vita — eða einn
maður að minsta kosti — hvað við höfum boðið —“
„Hvað við höfum boðið!“ — Hann lokaði bókinni
hranalega. — „Skiljið þér ekki annað eins og þetta,
maður! — Skiljið þér ekki það, að við erum þegar
með snöruna um hálsinn! — Já, snöruna — eg sagði
það. — Og hún er hert að hálsi okkar, fastara og
fastara með degi hverjum.“
Holman lagði hönd á öxl Carxuthers. — „Herra
Carrutliers! — Þér eruð væntanlega ekki svo ein-
faldir, að láta yður detta i hug, að öll þessi bölvun
og öll þessi vandræði, sem nú steypast yfir okkur,
sé hrein og bein tilviljun? — Eruð þér i raun og
veru svo mikið flón? — Skip á sjávnrbotni! —
Skipakvíur skemdar á hinn einkennilegasta hátt! —