Vísir - 28.03.1933, Side 3
alisminn er rótin, sem kom-
múnisminn spratl upp af.“
Þann 12. mars er símað, að
Hindenburg forseti liafi fyrir-
sldpað, að framvegis skyldi
draga á stöng á opinberum
byggingum með Nazistafánan-
um, gamla þýska fánann,
svarta, hvíta og rauða. í út-
varpsræðu, sem Hitler hélt,
kvað liann gamla fánann tákn
fomrar frægðar, en Nazistafán-
ann framtíðarinnar. (Það yrði
sjálfsagt talið barnalegt, segir
i M. G., að benda á þá grein
stjórnarskrárinnar, sem segir,
að litirnir í þjóðfánanum eigi að
vera svartur, rauður og gylt-
ur, þvi að Weimar-stjórnar-
skráin sé að líkindum dauður
bókstafur).
í ræðu sinni sagði Hitler
einnig, að hann teldi það hlut-
verk sitt, að sameina alla Þjóð-
verja, iivað sem núverandi
stéttaskiftingu liði, gera þá eins
■ samhuga og samrýmda og
hamingjusama fjölskyldu. Þeg-
ar því márki verði náð, geti
Þjóðverjar aftur orðið mikil
Þjóð.
Þá nefnir M. G. tvær ráð-
stafanir, sem geröar liafi ver-
íð, þ. e. að veita öllum skóla-
kennurum, sem eru lýðveldis-
sinnar árs levfi (án launa), en
iiitt stofnun ráðuneytis, sem á
að hafa útbreiðslustarfsemi
með höndum. Dr. Göbbels á að
verða litbreiðslumála-ráðherr-
ann. Hlutverk þessa ráðuneyt-
is á m. a. að vera, að sjá um
að útvarp, leikhús, kvikmvnda-
leikhús og slíkar stofnanir,
verið notaðir til eflingar
Nazismanum. Um alt
landið er unnið að þvi, að
leysa upp félög jafnaðar-
manija. Ýmsar fregnir fóru nú
að berast til nágrannaland-
anna um hryðjuverk árásarliðs
Nazista, og þ. 12. mars endur-
tók Hitler skipun sina til þessa
liðs, að' gera ekki neitt upp á
eigin ábyrgð. Ríkisstjórnin
gæti ekki lejdt þeim að taka
_,,lögin i sínar hendur“; það sé
hlutverk ríkisstjórnarinnar, að
ákveða hvað gera eigi við þá,
sem á sannist, að sé fjandsam-
legir „þjóðhrevfingunni“.
(Frh.)
Dánarfregn.
Látinn er i gær á Ellihéimilinu
Ólafur Felixson ritstjóri. Hann
hafði átt við langa vanheilsu a'ð
striða. Ólafur var um langt skciÖ i
Noregi og gerÖist fréttaritari nokk-
urra norskra blaða, er hann flutt-
ist hingað til lands aftur.
Veðriö í morgun.
•Hiti um land alt. í Reykjavík 6
.stig, Isafiröi X, Akureyri 3, ScyÖ-
isfirði 2, Vestmannaeyjum 2,
Grímsey 2, Stykkishólmi 2, Blöndu-
úsi 3, Raufarhöfn 2, Hólum í
Hornafirði 5, Grindavik 5, Fær-
•eyjum 9, Julianehaab — 4, Jan
Mayen — 5, Angmagsalik — 5.
Hjaltlandi 8 stig. — Mestur hiti
hér í gær 9 stig, minstur 3 stig.
Úrkoma 11,2 mm. — Yfirlit: All-
djúp lægð sunnan við Reykjanes, á
hægri hreyfingu norður eftir. —
Horfur: Suðvesturland : Suðaust-
an og sunnan kaldi. Skúrir. Faxa-
flói: Austan og suðaustan kaldi.
Rigning öðru hverju. Breiðafjörð-
ur, Vestfirðir: Norðaustan og sið-
an suðaustan átt. Sutnstaðar all-
hvass og rigning. Norðuriand,
noroausturland, Austíirðir og suð-
austurland: Austan og suðaustan
kaldi. Rigning öðru hverju.
Sextugsafmæli
átti Ólöf Gunnlaugsdóttir. Fram-
nesvegi 52. þ. 26. þ. m.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss kom að vestan í morg-
un. Goðafoss fer í kveld vestur og
norður. Brúarfoss, Dettifoss og
Lagarfoss eru á útleið. Selfoss var
í Keflavík í morgun.
Frá Hafnarlirði.
Tíu botnvörpungar eru nú
gerðir út frá Hafnarfirði, þeir
Mai, Haukanes, Jupiter, Venus,
Garðar, Surprise, Sviði, Val-
pole, Rán og Andri. Auk þessa
leggja þeir Ivópur og Sindri
upp afla þar á vertíðinni.
E.s. Hckla
fór frá Neapel í gær áleiðis til
Torrivieja. Tekur þar saltfarm.
Hjónacfni.
Trúlofun sína hafa birt ungfrú
Svanborg Þórmundsdóttir, frá Bæ
í Borgarfirði, og Hjalti Björnsson,
bifreiðarstjóri á Korpúlfsstöðum.
Gengið í dag.
Sterlingspund.......kr. 22.15
Dollar ............. -— 6.49
100 ríkismörk....... 154.72
— frakkn. fr.....— 25.61
-- belgur ............. 90.42
— svissn. fr........— 125.11
— lírur ........... — 33.41
— pesetar ....... 55.08
— gyllini ......... — 261.57
— tékkósl. kr.... — 19.40
— sænskarkr......-— 117.36
— norskar kr..... 113.51
— danskar kr.....— 100.00
Gullverð
islenskrar krónu er nú 57.50.
S.R.F.Í.
Sálarrannsóknafélag íslands held-
ur fund i Iðnó næstk. fimtudag kl.
8.30. Einar H. Kvaran flytur er-
indi.
Löggiltir endurskoðcndur.
Til skýringar á fregn þeirri um
löggilding endurskoðenda, sem birt
var hér í blaðinu á sutmudaginn
var, skal þess getið, að þeir Björn
E. Árnason, Jóit Guðinundsson og
Jón Sívertsen hafa verið löggiltir
sem endurskoðendur síðati 27. tnars
1929.
Nýja málaravinnustofu
hafa þeir opnað á Þórsgötu 26
Kristþór Alexandersson óg Þor-
steinn Hannesson. t gluggum hús-
gagnaverslunar Friðriks Þor-
steinssonar & Co., Skólavörðustíg
12, eru húsgögn, sem þeir hafa
málað með celhtloselökkttm. Sjá
augl.
Heimatrúboð leikmanna,
Vatnsstíg 3. Samkoma í kveld
ld. 8.
Nýja Bíó
sýnir í fyrsta sinni í kveld
heimsfræga kvikmynd. „Congor-
illa“, sem er tekin í Afríku af
hjónunum Martin og Osa Johnson.
sent fræg eru orðin fyrir kvik-
myndir þær, sem þau hafa tekið i
löndum villimanna í Afrílcu. Var
tveggja ára verk að taka kvikmynd
þessa og lagði Fox-félagið fram
féð til myndatökunnar. Er hún
tekin í frumskógum Kongó. Getur
að líta þar fjölda villidýra, zebra,
gíraffa, nashyrninga, fíla og flóð-
hesta o. s. frv. Ennfremur eru
ágætar myndir af hittu fjölskrúð-
uga fuglalífi við frumskógavötnin.
Einkum er gaman að sjá myndirn-
ar af flamingóunmn, sem eru 1
miljónatali þarna við vötnin. En
skemtilegasti þáttur myndarmnar
er þó án efa utu „pygmeana“.
V í SI R
dvergþjóð, setn á heitnkynni i
fruniikógitnunt. — Kvikmynd
þessa ætti sent flestir að sjá Hún
er fróðleg og skemtileg.
A.
Skuggasveinn
vcrður ekki leikinn á morgun
(miðvikudag), eins og gert hafði
verið ráð fyrir, en leikið verður á
fimtudag og þá í 18. sinni.
I!. M. F. Velvakandi
þeldur fund á Lokastíg 14 kl.
9 í kveld.
Útvarpið.
10,00 Veðurfregnir.
12.15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir.
18.40 Erindi Stórstúkunnar.
(Sigurður Jónsson,
skólastjóri).
19,05 Þingfréttir.
19.30 Veðurfregnir.
19.40 Tilkynningar. Tónleikar.
20,00 Klukkusláttui.
Fréttir.
20.30 Erindi. Um fjörefni, III.
(Dr. Björg Þorláksson).
21,00 Tónleikar: Píanósóló.
(Emil Tlioroddsen).
21.15 Upplestur. (Guðmundur
Friðjónsson).
21,35 Grammófóntónleikar:
Haydn: Trio í G-dúr
(Thibaut, Casals & Cor-
lot).
Aukakosningin
i Rotherham.
Það þykir altaf miklum tíð-
indum sæta, ef eittbvað gerist
í helstu löndum álfunnar, sem
bendir til, að áttaskifti séu að
verða í stjórnmálabfinu. Á þetta
ekki síst við urn Bretland. í öll-
um löndum álfunnar og um
lxeim allan reyna menn að fylgj-
ast vel með livað þar gerist. -—
Aukakosningar þar í landi vekja
altaf talsverða eftirtekt, þvi að
þær gefa oft mikilsverðar bend-
ingar um, hvemig „vindurinn
blæs“. Seinasta aukakosningiii
í Bretlandi fór fram þriðjudag-
inn þ. 28. febrúar og var úr-
slitanna getið í skeytum frá
United Press til FB. Nánara er
frá aukakosningu jxessari sagt
í Manch. Guardian þ. 3. mars.
Urslitin urðu, eins og kunnugt
er, að W. Dobbie (verkl.) hlaut
27.767 atkvæði, en H. Drum-
mond (íhaldsm.) fékk 12.893.
Var Mr. Dobbie því kosinn með
15.874 atkvæða meiri liluta. í
kosningunni þar áður náði
íhaldsmaður þingsæti þessa
kjördæmis, G. Herbert að nafni,
og hlaut hann 23.596 atkv., en
F. W. Lindley, frambjóðandi
verkalýðsins 22.834 atkv. Bar
Mr. Herbert því sigur úr býtum
með að eins 762 atkvæða meiri
liluta. 1 kosningunum 1929 var
Lindley kosinn með 26.937 at-
kvæðum, en Latham, frambjóð-
andi ihaldsfl., fékk að eins 10.-
101 atkv. og var þvi Lindley
kosinn með yfir 16 þúsund at-
kvæða meiri hluta.
Um úrslitin þ. 28. f. m. segir
M. G„ að engan hafi þurft að
undra, að verkamenn unnu
kjördæmið aftur, þvi að kjör-
dæmið hafi verið gamall verka-
mannavígi, þótt ihalds-fram-
Ixjóðandi liefði náð þar kosn-
ingu með litlum meiri liluta at-
kvæða, er menn liéldu, að heilla-
vænlegast væri að Iialda á þjóð-
stjórnarbrautina. Hinn rnikla
kosningasigur verkamanna i
þessu kjördæmi nú yrði að
Vegna j ardarfarar
verður öllum starfsdeildum vorum lokað á morgun kl. 12—4.
Slátupfélag Suðurlands.
ÁvRXtíð og geymid fé yðap í
Sparisjóði Reykjavíknr og nágrennis.
Hverfisgötu 21, hjá Þjóðleikhúsinu.
Opið 10—12 og 5—7yo. — Fljót og lipur afgreiðsla.
skoða senx vanþóknunaryfirlýs-
ingu kjósendanna í Rotherham
i garð þjóðstjórnarinnar. En
þótt aukakosning þessi og aðr-
ar, sem frarn hafa farið, gefi
nokkrar bendingar í þá átt, að
óánægjan með þjóðstjómina
fari vaxandi, er sennilega engra
stórfeldra breytinga að vænta
á skipun hennar eða stefnu i
náinni framtið.
★
Erlendar fréttir.
Tokio í mars.
United Press. - FB.
Áform Japana.
Stjómmálamenn í Japan lita
flestir þeim augum á, að það sé
í rauninni eðlilegt, að atburðir
þeir, sem liófust þ. 18. septem-
ber 1931 liafi að lokum leitt til
þess að Japanar hættu sam-
vinnu við Þjóðabandalagið. En
þ. 18. sept. hófust þær athafnir
af Japana liálfu, sem siðar
leiddu til þess, að Mansjúkó-
ríkið var stofnað. Skoðun jap-
anskra hernaðarsinna hefir
lengi verið sú, að best væri fyr-
ir Japan að segja sig hreinlega
úr bandalaginu, og því fyrr þvi
betra. Lytton jari, sem var for-
maður nefndar þeirrar, sem
Þjóðabandalagið sendi til Man-
sjúríu, mun sennilega hafa gert
sér þetta ljóst, er hann ræddi
við Uchida forsætisráðherra
Japans sl. sumar. Uchida skýrði
honum þá frá því, að Japan
mundi láta Mansjúkórikinu í té
viðurkenningu og vernd, en
Lytton spurði hann þá að því,
hvort japanska stjómin liefði
gert sér ljóst, hverjar afleiðing-
ar þetta gæti liaft. Svaraði
Uchida þvi til, að hún gerði ráð
fyrir þvi, að svo kvnni að fara,
að afleiðingin yrði úrsögn Jap-
ana úr bandalaginu.
Áhrifamenn liér telja yfir-
leitt, að viðræðurnar í Genf hafi
verið tilgangslausar. Það sé i
rauninni ekki nema um eitt að
deila, og það sé, hvort Man-
sjúría sé hluti af Kína eða ekki.
Japanar hafi svarað þessari
spurningu löngu áður en þeir
viðurkendu Mansjúkórikið, og
japanskir stjórnmálamenn liafi
hvað eftir annað lýst yfir því,
að Japanar teldi sér skylt að
konxa i veg fyrir, að kínverskir
lxervaldar væri öllu ráðandi í
landinn eins og áður, því að
stjórn þeirra liefði verið ill og
innanlandsástandið eftir því, en
mikilvægt fyrir Japan að frið-
ur og góð stjórn væri í landinu.
Stjómmálamenn Japana líta
svo á, að Þjóðabandalagið hafi
ekki skilyrði til þess að leiða
til lykta deilumál út af Man-
sjúriu, né nokkur önnur vanda-
mál í Austur-Asiu. En um það,
hvernig fyrirætlunum Japana
reiðir af í Mansjúriu eru skoð-
anir skiftar. Menn greinir að
Barnafataverslunin,]
Laugaveg 23. Simi 2035.
Við höfum fjölbreytt úrval
af fallegu og ódjTU GARNI.
T. d. ógætt garn í pevsur, frá
kr. 0.50 pr. hespu.
GERI UPPDRÆTTI af allskonar
húsura. — Þorleifur Eyjólfsson,
husameistari, Öldugötu 19.
Fermingar
og sumarkjólaefni, hvitar og
mislitar blúndur, glans- og
rúskinnsbelti, mjög ódýrt,
smekklegt.
Verslunin á Njálsgötu 1.
Sólrík
ibúð, 6 herbergi, bað og eld-
hús, til leigu 14. mai. Tilboð,
merkt: „200“, sendist Vísi.
Nýkomið: sæggSK
Peysufatakápnr.
Sllkisokkar
Allskoear smá-
barnaffit.
AUsk. PEY8UR
1 fyrir fnllorðna og æ
1 bfirn. §
VÖRUHDSIÐ
æææææææáææææ
visu ekki á um það, að Japanar
liafi öll skilyrði til þess að gera
Mansjúkó-ríkið öflugt, ef deil-
an leiðir ekki til stvrjaldar. Það
er gert ráð fyrir því, að svo
kunni að fara, að Rússar og
Kínverjar sameinist um að ná
Mansjúriu úr greipum Japana,
en víst er, að Japanar hverfa
ekki íí brott þaðan, nema þeir
biði ósigur i styrjöld.