Vísir - 31.05.1933, Side 3
VÍSIR
■iegft, enda sýndi Eyjóltur föður
sínum sanna umönnun, þegar hon-
um lá mest á.
Jón sál. var einlægur trúmaSur
og kirkjurækinn og hélt ávalt trú
sinni i baráttu lífsins. Þaöan kom
honum trúmenskan i öllum ævi-
störfum sínum', þvi aö hann vissi,
á hvern hann trúði. Síöast sofnaöi
hann i fullu trausti til hans, sem
,,himna stýrir lxjrg“, í nafni frels-
arans.
Blessuö sé minning hans.
Kunilingi.
Enn nm ilragnótaTelðar.
—o—-
Vegna greinar í Vísi frá 25.
maí þ. árs, eftir hr. Arinbjörn Þor-
varösson, sem hann kallar svar
viö grein minni i Morgunblaöinu
.23. maí þ. árs, vildi eg láðja yður.
hr. ritstjóri, aö Ijá rúm í blaöi
vöar fyrir eftirfarandi línur.
Arinbjörn heldur þvi fram. að
rtikningar báta þeirra, sem eg
birti í grein minni, muni vera J)eir.
sem sýna versta útkomu af veiö-
um þessum. En því fer fjarri. Kg
befi sögur af mörgum verri, hæöi
xt Austur- og Vesturlandi. Eg set
hér aöeins eina.
’lveir tnenn áttu nýjan vélbát
-kuldlausan. Þeir létu narrast til
aö setja hann í stand til dragnóta-
veiöa. Eftir úthaldið neyddust
þeir til að selja bátinn, til Jiess aö
borga tapið, og stóöu svo slyþpir
eftir. Þessu lík dæmi eru víst alt-
of mörg. Gott heföi þeim verið að
■einhver hefði verndaö ])á frá
þessu.
Arinbjörn hygst aö sanna
ágæti dragnótaveiðanna með grein
■sinni. en honum tekst það ekki af
því, að það er ekki hægt. Það
sést á því, að hann birtir ekki
reikning síns báts, sem síðastliðiö
ur aflaði báta mest í dragnót.
Enrla þó að eg viti nú hváð sjó-
menn hans höfðu i sinn hlut á
dragnótaveiöum hans, vil eg ekki
birta það, þvi eg er hræddur urn,
að hlutur þeirra hafi e.kki verið í
samræmi viö taksta verkalýðsfé-
laganna.
Þú spyrð hvers vegna. eg veiði
þorsk í landhelgi og selji Spán-
verjum. Þú spyrð ekki af því, að
þú vitir ekki, að það viljum við
allir, en það er aðeins sá munur-
inn, að eg vil ekki veiða í botn-
vörpu í landhelgi, en það vilt J)ú,
<>g þar með drepa ungviðiö, svo
að innan fárra ára enginn
þorskur verði til að veiða og
selja Spánverjum.
Þá talar þú mikið um fiskirí í
Garðsjó. Það er rétt/ að mikill
fiskur gekk í Garðsjó, og það
fiskaðist vel um tíma, en nefuilega
vestur í hrauninu, þar sem engin
<!ragnót var notuð. En aftur í
Leirusjó og sem sagt á ölht drag-
nótasvæðinu stöðvaðist enginn
fiskur, heldur hljóp hann allur
inn undir Stapa, })ar sem engin
dragnót var notuð, síðasta Itaust.
Eg held því ekki fram, að fiskur
gangi ekki um dragnótasvæðin
þann tíma, sem ekki er verið að
fiska í dragnót, en þar sem enginn
fiskur stöðvaðist á dragnótasvæð-
inu, íreistast eg til að halda, að
það sé þvi að kenna, að dragnótin
rifur í burtu allan botngróður.
Eg gæti trúað, að sjómenn á
Þingeyri væru þér miður þakklát-
ir fyrir að bendla þá við þá fá-
fræði, að naiiðsynlegt sé að
fiska nteð botnvörpu í landltelgi,
til þess að fiskur gangi á grunn-
miðin. Þó tekur út yfir, j>egar þú
Eendlar fiskifræðinga við þá
skoðun. Það væri, cf satt væri,
hliðstætt því, að búfræðingar ráð-
legðu bændum að drepa öll lömb-
in til að fjölga fénaðinum.
Eg held því óhikað fram, að hin
vaxandi íiskigengd á grunnmið
landsins sé J)ví að þakka, að nú,
siðan við fengum ágæt-*varðskip
með duglegum skipstjórum, hefir
tekist að mestu að verja land-
belgi, og ungviðið J)ví fengiö að
alast upp í friði í landhelginni.
Það væri J)ví sorglegt, ef hið
háa Alþingi leyfði nú botnvör'pu-
veiðar í allri landhelgi. Enda væri
það víst eina landið í heiminum,
sem hent gæti J)að hneyksli.
Gerðurn, 28. mai 1933.
Guðm. Þórðarson.
Hiti í Reykjavík lo stig, ísa-
firði 8, Akureyri 10, Seyðisfiröi 9,
Vestmannaeyjum 8, Grimsey 5>
Stykkishólmi 7, Blönduósi 9.
Raufarhöfn 7, Hólum í Hornafirði
8. Grindavík 9, Færeyjum 8, Juli-
anehaab 13, Jan Mayen — o, Ang-
magsalik 4, Hjaltlandi 7 stig. -
Mestur hiti hér í gær n stig,
í’ninstur 8 stig. — Yfirlit: Lægð
fyrir sunnan land þokast hægt
norður eftir. — Horfur: Suðvest-
urland: Allhvass austan. Hvass
undir Eyjafjöllum. Dálítil rigning.
Faxaflói, Breiðaf jörður: Stinn-
ingskaldi á austan. Úrkomulaust.
Vestfirðir, Norðurland: Austan
kaldi. Stinningskaldi á norðaust-
an og Jiokusúld til hafsins. Norð-
austurland, Austfirðir: Suðaustan
kaldi. Dálítil rigning. Suðaustur-
land: Allhvass austan. Rigning
öðru hverju.
Stjórn Merkúrs
hefir boöað til almenns verslun-
armannafundar um búðalokunar-
málið. Nefnd leggur frant tillögu
i málinu. Fundurinn verður í
*
Varðarhúsinu í kveld og hefst kl.
8 y2.
Bæjarstjórnarfundur
verður haldinn í Kaupþingssaln-
um á morgun kl. 5. — Meðal ann-
ars verður þar rætt um lokun
sölubúða.
Kommúnistar
voru fjölmennir á áheyrenda-
pöllum neðri deildar í gær, er frv.
til laga um lögreglumenn ríkisins1
var til umræðu. Þar voru m. a.
tveir forsprakkar þeirra, Brynj.
Bjarnason og Stefán Pétursson.
Einar Olgeirsson var hinsvegar í
hlaðamannaherlærginu. For-
sprakkar þessir gripu livað eft-
ir amiað fram í fyrir þingmönn-
uin og er alveg sjálfsagt, að þagg-
aö sé niður í mönnum, er gera sig
seka um slíkt. Réttast væri, að
banna þeim mönnum, er þannig
komá fram, aðgang að pöllum og
áheyrendaherbergjum. Virðist
ekkert við það að athuga, að lög-
reglumenn þeir, sem viðstaddir
eru, reki þá menn út, er eigi geta
hegðað sér sæmilega á þessum
stað. Verður Jtað væntanlega gert
hér eftir.
Kirkjugarðamir. .
Athygli skal vakin á því, að
báðum kirkjugörðunum, nýja og
garnla, verður fyrst um sinn lok-
að kl. 10 að kveldi. Eftir þann
tírna er fólki baimað að vera þar.
Eru menn beðnir að taka til at-
hugunar augl. þá, sem birt er t
blaðinu í dag frá umsjónannanni
kirkjugarðanna. Einnig skal á })að
bent, að umsjónarmaðurinn er til
viðtals í gamla garðinum (skrif-
stofa móti Ljósvallagötu) kl. 11-
12, sími 4678. í nýja garðinum
(skrifstofa við Hafnarfjarðarveg)
er hann til viðtals kl. 2—3 virka
daga. — Fólk ætti að setja metn-
að sinn í að ganga vel um garð-
ana og gera umsjónarmanni að-
vart, ef menn verða varir við ein-
.'erjar alvarlegar misfellur í J)ví
efiii.
M.s. Dronning Alexandrine
er væntanleg hingað í nótt eða
íyrramálið. Hún niun hafa farið
ti! Eskifjarðar til þess að skila
aí sér landmælingamönnum.
Grænaborg.
Börn, sem ráðin eru á dagheim-
iliö í Grænuborg, koini þangað kl.
9 í fyrramálið.
Fasteignasölu
og atvinnuráðningar karlmanna
ætlar Húsnæðisskrifstofa Reykja-
Reykjavíkttr að liafa með höndum
framvegis, auk starfsemi þeirrar,
sem hún hefir rekið áður.
Bjarni Björnsson
ætlar að endurtaka skemtun
sina í Iðnó annað kveld kl. 9
vegna áskorana fjölda margra.
Þarf ekki aö efa, að Bjarni komi
áheyrendum i sólskinsskap. X.
Lokun sölubúða.
Eg sé x Vísi i gær (30. mai) að
verslunarmannafélagið Mérkttr
hefir haldiö fund um það, að versl-
ttnum sé lokað fyrr á laugardög-
um sumarmánuðina (júní—ágúst).
Tillagan er skiljanleg, þvi að sum-
arið er stutt og mönnum nokkúr
vorkunn, þó að ])eir vilji liverfa
sem fyrst úr bænum um helgar
þann tima. En Iniast má við J)vi,
c>.ð kaupmenn biði nokkurt tjón
við lokun þessa, þrátt fyrir allt.
Mér hefir því hugkvæmst, að
verslunarmenn gæti liætt kaup-
mönnum upp Jiessa lokun á auð-
veldan hátt, ef viljinn er góður, en
Jiað er að fara Jiess á leit, jafn-
framt þvi er þeir sækja um laug-
ardagslokunina, að verslunum sé
á föstudögum haldið opnum til kl.
22 (10 siðd.) þessa þrjá mánuði.
Eg er sannfærður um að fjöldi
verslunarmanna teldu þetta eigi
eftir sér, ef þeir Jxyrftu ekki að
ttarfa lengur en til kl. 13 (1 e. h.)
daginn eftir. Svo sent kunnugt er
þá tíðkast nú hjá flestum atvinnu-
rekendum að greiða starfsmönnum
laun. á föstudögum og mundi því
aðalverslunin verða Jtatm dag, ef
af laugardagslokuninni yrði. Það
kærni og annar svipur á bæjarlifið
eintt sinni í viktt, ef þessu yrði
Jtamtig hagað.
Kaupmaður.
\
E,s. Nova
fór héðan í gærkveldi.
G.s. Botnia
kont hingað i ntorgun.
E.s. Goðafoss
fór héðan i gær áleiðis vestúr
og norður, með fjölda farþega.
Sláturfélag Suðurlands.
Aðalfundur félagsins stendur
yfir hér í bænurn þessa dagana.
Jóhannes Sigurðsson
forstöðumaður var meðal far-
þega á Goðafossi í gær. Sest ltann
nú að á Akureyri ásarnt fjölskyldu
sinni.
Skátafélögin
í Reykjavík og Hafnarfirði,
efna til sameiginlegrar útilegu í
Þrastaskógi næstkomandi laugar-
dagskveld. Félagar tilkymti sveit-
rrforingjum sínum þátttöku fvrir
fimtudagskveld.
Ráðleggingarstöð
f}TÍr barnshafandi konur Báru-
götu er opin fyrsta þriðjudag í
hverjum ntánuði frá 3—4.
Ungbarnavenid Líknar Bárugötu
2 er opin hvern fimtudag og föstm
dag frá 3—4.
Duglegur
maður
Framköllun.
K o p í e r i n g.
S t æ k k a n i r.
Lægst verð.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
Betania
Saumafundurinn verður á fimtu-
daginn 1. júní kl. 4 e. h. á Óðins-
götit 13, utanfélagskonur eru líka
velkonmar.
Gengið í dag.
Sterlingspund .....
Dollar ............
100 ríkismörk þýsk.
— frankar, frakkn
— belgur.........
— frankar, svissn.
— lírur .........
— mörk, finsk . .
— pesetar .......
■— gyllini.........
— tékkósl. kr. ..
— sænskar kr. ..
— norskar kr. ..
— danskar kr. ..
óskast strax, í 4—5 vikur, að.
Reykjum í Mosfellssveit. Á að
vinna við girðingar o. fl. Upp-
lýsingar gefur bústjórinn á
Reykjum. Sími um Álafoss.
Hrærivél
óskast til kaups. Tilboð, merkt:
„Hrærivél“, sendist Yísi strax.
kr. 22.15
— 5.581/2
— 154.16
— 26.20
— 92.40
— 128.26
— 34.58
— 9.82
— 56.93
— 267.62
— 19.88
— 113.46
— 112.53
— 100.00
Miðvikudagur 31. maí.
10,00 Veðurfregnir.
12,10 Hádegisútvarp. —
Þingfréttir.
16,00 Veðurfregnir.
19.15 Grammófóntónleikar.
19.30 Veðurfregnir.
19,40 Tilkynningar. Tónleikar.
20,00 Klukkusláttur.
Fréttir.
20.30 Tónleikar. (Hljómsveit
Reykjavíkur).
21.15 Upplestur. (Þórunn
Magnúsdóttir).
Grammófón. Mozart:
líine kleine Nachtmusik.
ágæt tegund, altaf fyrir-
liggjandi.
Versl. Vlsir
við öðru, en bólstruðum, dúnmjúk-
um bifreiðum, sem einstaklingar
iakla uppi og endurnýja eftir því
sem ])örf krefur. Er þess að vænta
að forráðamenn þessara fyrir-
tækja útvegi nýjar og Jiægilegri
bifreiðar til sjúkraflutninga enda
má vel vera, þó að eg viti þa<9
ekki, að nýjar sjúkrabifreiðir sé
íiú í pöntnn og aðeins ókomnaV.
Eg vildi óska að svo væri.
Sjúkrabifreiöir.
Eg hefi í langan tíma vænst Jiess
að einhverjir vektu athygli hlut
ðeigenda á sjúkrabifreiðum þeim,
sem starfræktar eru hér í bænunx,
og þá einkum læknarnir. En J)ar
sem sú von mín hefir brugðist,
leyfi eg mér að fara um það
nokkrurú orðum.
Bæjarsjóður Reykjavíkur, keypti
sjúkrabifreið árið 1920, og var
það sæmilega góð bifreið, en hefir
nú, sem von er til, gengið rnikið úr
sér, á þessum 13 árum. Er nú svo
komið, að hún mun hafa legið í
lamasessi, siðan um nýjár i vetur,
tn samt mun vera ætlunin, að
reyna aö gera við hana enn á ný.
Kring um árið 1925 keypti
„Rauði Kross íslands“ sjúkrabif-
reið, sem skyldi aðallega aimast
sjúkraflutninga utanbæjar. Hefir
hún verið talsvert mikið notuð við
þá flutninga, og þar að auki, hefir
hún verið notuð í innanbæjarflutn-
mga, Jregar hin hefir verið biluð.
En uú er svo komið, með ])essa
bifreið, að eg skil ekki annað en
að varasamt sé að flytja á heimi
J)jáða sjúklinga frá fjarliggjandi
stöðum. Hvað fjaðramýkt beggja
Jæssara bifreiða snertir og fl„ þá
eru þær orðnar harðar og líklega
lítiö mýkri en venjulegar vöru-
flutuingabifreiðir. Má geta nærri
um líðan slasaðra og mjög þjáðra
sjúklinga, er ferðast í slíkum far-
artækjum, á misjöfnum vegum
eins og hér gerast. Finst mér
naumast vansalaust af bæjarfé-
laginu og „Rauða Krossi íslands",
sem er líknarfélag, að ætla sjúk-
um og þjáðum flutning i þessum
farartækjum, á sama tíma, sem
hraustir og heilbrigðir lita eigi
Norskar loftskeytafregnir.
Osló, 30. maí. NRP. — FB.
Um árás sjóræningja á
norska eimskipið Prominent
símar Reuter-fréttastofan frá
Hongkong: Sjóræningjar vor*
fjórtán talsins og voru þeir
vopnaðir skammbyssum. Þegai*
þeir stigu á skipsfjöl þóttust
þeir vera farjiegar. Georg .Ten-
sen, annar stýrimaður, var á
stjórnjialli, en sjóræningjamir
lögðu nú til atlögu viS
hann og veifaði foringi þeirra
skammbyssu. Jensen tók han*
glímutaki og kastaði honuna
niður á Jiilfarið, en liinir sjó-
ræningjarnir þustu J)á að stýri-
manninum og varð hann þá að
lúta i lægra haldi. Skipstjórinn,
Jensen að nafni, heyrði hávað-
ann, þreif staf i hönd og ætlaði
að stilla til friðar, því að hann
hélt að deila væri upp komiu
milh kínverskra affermingar-
manna, sem á skipinu voru.
Skutu ræningjar á skipstjóra
og særðist hann á fæti. Aðrir
yfirmcnn á skipinu urðu cinuig'
að lúta í lægra haldi. Fjmsta
stýrimanni var skipað að stýra
skijnnu, en vélamenn urðu aS
vinna hvildarlaust í tvo_daga s
48 st. hita (C.). Þegar skipiS
nálgaðist Hongkong varð lög-
reglubátur á vegi þess. Sáu lög-
reglumenn, að ekki var alt meS
feldu á skipinu og bjuggust tíi
að liðsinna skipverjum og hóf*
skotliríð á sjóræningja, sem ná
hleyptu á land. Komust sjóræn-
ingjar undan og höfðu með sér
fyrsta og annan stýrimanu sem
gisl, en létu þá lausa síðaib
Skipsbrytann og fhnm farþega
liöfðu sjóræningjar bimdið úti í
skipinu og ætluðu þeir að
krefjast lausnarfjár fyrir þá.
/