Vísir - 16.06.1933, Page 2

Vísir - 16.06.1933, Page 2
VlSIR Höfum fyrirliggjandi: Tvinna Gæðin óviðjafnanleg - Coats, 6-þættan. Kerrs 4. þættan. - verðið lágt. | Sira lúnas H. Siourðsson | prestur í Selkirk og í'orseti Þjóðræknisfélags Islendinga i Vesturheimi, andaðist i sjúkra- liúsi í Winnipeg 10. f. m., eins og frá hefir verið skýrt i sím- skeytum. « . Segir „Heimskringla“ (17. maí) frá ævilokum lians á þessa leið: „Andlát hans bar að með mjög snöggum hætti. Hann, kona hans, sonur og dóttir óku frá Selkirk liingað um morgun- inn, og virtist hann þá vera við liina venjulegu heilsu, er hann hefir haft nú hin síðari ár. — Heilsa lians hefir ekki verið sterk og hefir hann oft gengið að verki miður liraustur. Fyrri liluta dagsins gegndi hann ýms- um erindum, er haim þurfti að ljúka, en um kl. 3 fekk liann aðkenning af slagi. Var hann þá staddur á skrifstofu Áma Egg- ertssonar, er lét flytja hann strax lieim til sín, en þaðan var hann fluttur yfir í almenna sjúkrahúsið, eftir að læknar höfðu skoðað liann. Ráð og rænu liafði hann, en máttleysi færðist yfir hann, svo að hann mátti sig hvergi hræra. Ágerðist þetla eftir því, sem á kveldið leið, þar til er liann andaðist kl. hálf-níu“. Með sira Jónasi er til moldar genginn einn hinn merkasti Vestur-íslendingur, og er mik- ið og vandfylt skarð orðið í fylk- ing landa vorra vestra við frá- fall lians. Ivemur og vestanblöð- unum saman um, að hann hafi verið hinn mætasti maður og að eftirsjáin sé mikil. Síra Jónas var fæddur að Litlu-Ásgeirsá í Víðidal í Húna- vatnssýslvi 0. maí 1865, og varð því réttra 68 ára gamall. — For- eldrar hans voru þau lijónin Sigurður Bárðarson og Guðrún Jónasdóttir, er þá bjuggu á Litlu-Ásgeirsá. — Ekki er þeim, sem þetta ritar, kunnugt um önnur systkini lians en'bræður iimniiiiiiimnmiiimmmiiiiiifii Biðjið jafnan um Cigarettup. Fást bvartretna. 20 stk. 125 iiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimi tvo, þá Sigurð heitinn á Húris- 1 stöðum i Iiúnavatnssýslu, og Björn gagnfræðing, þann er úti varð á Torfalækjarflóa fyrir rúmum 20 árum, ásamt Birni bónda Ivristóferssyni i Hnaus- um. -— Voru þeir nafnar á leið heim til sín utan af Blönduósi, lögðu upp í vonskuveðri og urðu báðir úti. Þótti það ærið slysa- legt. Sigurður bóndi á Húns- stöðum mun og liafa andast um svipað leyti, og urðu ævilok hans þau, að liann féll af hest- baki, eða hestur datt með liann, ; er hann var einn á ferð heim j til sín um nólt (utan af Blöndu- ósi). Meiddist hann svo stór- kostlcga á höfði, að hann lést af þeim áverka á næsta dægri. Sigurður var mikill gáfumaður og góður búhöldur. Fjárhagur þeirra Litlu-Ás- geirsár-hjóna mun hafa verið heldur þröngur og fyrir þvi voru synir þeirra ekki til menta settir, sem kallað er. — Sira Jónas mun þó hafa lokið prófi við Ólafsdals-skólann, er hann var rúmlega tvítugur að aldri (1886). — Ári síðar fluttist hann til Vesturheims og tók bráðlega að stunda guðfræðiÁ nám við lúterskan preslaskóla í Chicago. — Hann tók prest- vigslu (af sira Jóni Bjarnasyni) 1893 og var fyrsl prestur „í norðurhluta íslensku bygðanna í i\Torth Dakota, en fluttist það- an til Seattle, Wasli., og var þar i mörg ár. Var hann þá í þjón- ustu Bandaríkjastjórnarinnarj Mun hann allaf hafa jafn- framt þjónað dálitlum íslensk- um söfnuði í Seattle og grend- inni. íslendingar voru þar ekki margir á þeim árum. — Árið 1918 fluttist síra Jónas til Churchbridge, Sask. og var þar prestur til 1927, er hann flutt- isl til Selkirk og þjónaði hann Selkirk-söfnuði eftir það til dauðadags. Hann var því prest- ur meðal íslendinga í Vestur- heimi i 40 ár, eða svo nærri því, að ekki vanlaði til nema fá- einar vikur.“ (Lögberg 18. mai). Síra Jónas var ósvikinn og ágætur íslendingur og þjóðræk- inn í besta lagi. Forseti Þjóð- ræknisfélagsins var hann kjör- inn oftar en einu sinni og var forseti þess, er hann andaðist. —- Hann átti sæti í lieimfarar- nefnd Þjóðræknisfélagsins og var kjörinn til þess að flytja ræðu fyrir liönd Vestur-íslend- inga á Alþingishátíðinni 1930. Var sú ræða stórmerkileg og hið besta flutt. Síra Jónas var talinn afburða- gáfumaður, ræðuskörungur mikill, orðhagur og skáld gott. Bera mörg kvæðanna fagurt vitni um ættjarðarást hans og íslendings-eðli. Hann var tvikvæntur. Var fyrri kona hans Oddrún Fri- mannsdóttir frá Helgavalni í Vatnsdal, en síðari konan heit- ir Stefania, og kann sá, er þet-ta ritar, ekki að ætlfæra liana. — Frú Stefanía lifir mann sinn, ásamt þrem börnum þeirra. Húnvetningur. Hæstaréttardómur í Belgaumsmálinu. Ár 1933 mánudaginn 12. júní var í málinu nr. 34/1930: Valdstjórnin gegn Aðalsteini Pálssyni uppkveðinn svolátandi dómur: Þegar mál þefta var fyrir hæsta- rétti í marsmánuði 1931, var ágreiningur meðal kunnáttumamra um ýms meginatriði þess. Með úr- skurði þessa dóms 9. mars 1931 var því lagt fyrir rannsóknardóm- arann í málinu að afla álits þriggja dónrkvaddra, óvilhallra og sér- íróðra manna um stað varðskips- ins, er það var á, þegar mælingarn- ar, sem í máli þessu grcinir, voru gerðar. Hinn 1. apríl 1931 dóm- kvaddi rannsóknardómarinn þrjá menn til að fratnkvæma umrætt starf, og er greinargerð þeirra dag- sett 21. mars 1932. Auk þess hafa margskonar fratnhaldsrannsóknir farið fram uin málið og einstök at- riði þess, fyrst yfirheyrsla á fyr- verandi stýrimanni á b.v. Belgaum 18. aprjl s. á., og yfirheyrslur á yfirmönnum varðskipsins Ægir 29. júlí og 3. sept. s. á. Við prófun þeirra og athugun á bókum þeirra, sem haldnar höfðu verið á varðskipinu, kom það í ljós, áð ýmiskonar ósamræmi var milli skýrslna bókanna um það, er gerst hafði í sambandi við töku b.v. Belgaum 17. mars 1930, og að breytt hefði verið færslu í þeim og inn í þær bætt eftir að dótnur var kveðinn upp í málinu í héraði. í tilefni af þessu krafðist skipaður verjandi kærða hér fyrir dómi í bréfi til dómsmálaráðherra, dags. 9. sept. 1932, að rannsókn á þess- um atriðum yrði fyrirskipuð. Með bréfi, dags. 13. s. m. var lögmanni boðið að rannsaka áðurnefnd kæru- atriði fyrir sjódómi Reykjavíkur. Hófust þar próf 19. nóv. s. á. og vár haldið áfram 21. og 22. s. m. og 3. des. s. á., og loks 6. þ. m. var eitt vitna þeirra, er prófuÖ höfðu verið, látið staðfesta með eiðí fyr- ir lögreglurétti Reykjavíkur skýrsl-' ur, er það hafði áður gefið í mál- inu. Auk þessara réttarprófa hefir, síðan málið var fyrir hæstarétti í marz 1931, -verið aflað álits kunn- áttumanna um einstök atriði, er síðan hafa komið fram í málinu. Verk hinna þriggja dómkvöddu ! manna láut að þvi að ákveða stað varðskipsins kl. 12,23, kl. 12,29 °S kl. 12,32 þann 17. mars 1930 síðd. eftir þeim skýrslum varðskipsíor- ingjans, er þá lágu fyrir. Og þetta hafa hinir dómkvöddu rnenn gert, eftir því sem þeim jiykir sennileg- ast. Áreiðanleik þeirra skýrslna hafa hinir dómkvöddu menn yfir- leitt ekki níetið, enda verður ekki séð, áð neitt hafi fyrir þeim legið um jiað atriði annað en þá var fram komið fyrir dóini í málinu. Það, hversu mikið byggja megi á greinargerð hinna þriggja dóm- kvöddu manna um úrslit málsins, fer Jiví eftir því, hversu mikið megi hyggja á skýrslum varðskipsyfir- ntannanna, þeim er fyrir dóm- kvöddu mönnunum lágu, og þeir hafa lagt til grundvallar við rann- sóknir sínar. Ef ekki þykir byggj- andi á nefndum skýrslum varð- skipsyfirmannanna, j)á getur ekki heldur greinargerð dómkvöddu mannanna haft neina úrslitaþýðingu í málinu. Verður þá að athuga skýrslu varðskipaforingjans frá 17. mars 1930, er fram lcom i lög- reglurétti Reykjavíkur 18. s. m., með samanburði við bækur skips- ins og önnur gögn, sem fram hafa komið. Um atburði þá, er gerst höfðu 17. mars 1930 i sambandi við töku b.v. Belgaum R.E. 153, voru haldn- ar fjórar bækur, sem venjulegt er að hakla á íslenskum varðskipum við slík tækifæri: „Rissbók" svo kölluð, og athuganabók, „kladdi“, eða uppkast að leiðarbók, og leiðar- bók. Auk þess hafa verið haldnar ldaddi að vélardagbók og vélardag- bók, ský'rslur um gang vélar o. fl. Fyrstu fjórar bækurnar halda skip- heiæa og stýrimenn, en hinar tvær vélstjórar. I áðurnefndri skýrslu skipherr- ans segir, að kl. 11,40 árdegis þann 17. mars 1930 hafi varðskipið haft tal af báti, sem hafi verið að koma úr róðri vestan fyrir Öndverðarnes. „Rissbók“ og athuganabók segja ekkert um þetta, en „kladdanum" ber hér saman við skýrslu skip- herrans. Leiðarbókin hefir og upp- haflega haft samhljóða skýrslu að geyma, en tölunni 11,40 hefiy, að þvi er virðist í maí 1930, verið brejdt í 11,48. Samkvæmt vélabók- unum var vélin í fullum gangi kl. 11,40, var stöðvuð kl. 11,44, sett á ferð aftur á bak kl. 11,46 og siðan stöðvuð kl. 11,47. Virðist svo sem yfirmenn slcipsins hafi tekið eftir jiessu ósamræmi milli sinna bókana og vélarbókanna, og að siðan hafi einhver þeirra breytt tölunni 11,40 i 11,48 i leiðarbók — en ekki i kladclanum — til betra samræmis við vélarbækurnar. Næst segir í skýrslu skipherrans, að kl. 11,55 hafi varðskipið „farið fram hjá Öndverðarnesi“, og að samtímis hafi sést togari, ,,sem virt- ist hafa N.A. læga stefnu og mið- aðist í m/v V.N.V. steínu írá varðskipinu.“ ,,Rissbókin“ segir ekkert uin jietta, en athuganabókin segir, að kl. 11,55 hafi Ægir verið á vesturleið fyrir Öndverðarnes, og „sást j)á togari, sem auðsjáanlega var i landhelgi." Kladdi og leiðar- bók segja að eins, að kl. 11,55 hafi togari sést V.N.V. af Öndverðar- nesi. Eftir vélabókunum var skipið lcyrt frá ld. 11,47 til kl. 11,58, og hefði skipið eftir jiví átt að hafa verið kyyt kl. 11,55, °8' hefði j)ví \ ekki getað verið að fara fram hjá Öndverðarnesi kl. 11,55, eins og skipherrann segir í skýrslu sinni. Skipherrann virðist 'síðar hafa veitt Jiessu ósamræmi milli skýrslu sinn- ar og vélarbóka eftirtekt. Þann 24. mai 1930 markar hann, eftir ágisk- un, stað varðskipsins, er það hitti bátinn kl. 11,40 (eða 11,48), all- löngu innanvert við Öndverðarnes, og sama dag markar hann, einnig eftir ágiskun, stað varðskipsins kl. it,55 nokkru fyrir innan nesið, og hefir hann þar með, að því er virð- ist, horfið frá því atriði í skýrslu ’sinni, að varðskipið hafi þá (kl. n,55) „farið fyrir Öndverðarnes“. Þá segir skipherrann næst í skýrslu sinni, að kl. 11,58 hafi togarinn snúið til vinstri „og hélt beint út frá landinu eftir jiað á undan varðskipinu“. Sá einn skiln- ingur verður lagður i skýrslu skip- herrans, að varðskipið hefir veriS á ferð kl. 11,58 eins og kl. 11,55. ,,Rissbók“ og athuganabók segja, að kl. 11,58 hafi togarinn „beygt meir út“, en athuganábókin ,bætir Jiví við, að jiá hafi verið haldið i áttina til togarans. „Kladdi“ og leiðarbók geta einskis atburðar við kl. 11,58. En, að líkindum til sam- ræmis viö vélabækurnar, hefir jiessari klausu verið siðar, að því er virðist í maí 1930, bætt inn í meginmál leiðarbókarinnar, en ekki „kladdann“: „11,59 haldið af stað“. Með þessu virðist gefið í skyn, að varðskipið hafi einmitt haldið kyrru fyrir til kl. 11,58, eins og vélabækumar segja, eða 11,59. Og er Jiessi síðastnefnda færsla í leiðarbókina í fullu ósam- ræmi við oftnefnda skýrslu skip- herrans. Eftir skýrslu skipherrans var varðskipið komið að togaranum kl. 12,19 síödegis. Hún verður, eins og fyrr segir, ckki skilin öðruvísi en svo, að varöskipið hafi siglt eftir togaranum frá því kl. 11,55 árdegis til kl. 12,19 síðdegis, eöa í 24 mínútur. Það virðist mega byggja á J)ví, að varðskipið hafi að meðaltali ekki farið minna en 12,5 sjómílur á klukkutíma, og hefði samkvæmt Jiví átt að vera nálægt 5 sjómílum undan landi, er Jiað nam staðar hjá togaranum. Hinsvegar segja vélabækuniar, að vélin hafi verið stöðvuð kl. 12,16 og eftir þeim ætti j)á útsiglingar- tími varðskipsins að hafa verið, frá 11,58, er vélin á, samkvæmt þeim, að hafa verið sett í gang, og til kl. 12,16, eða 18 mínútur. En þá hcfði varðskipið, með sama hraða og áður segir, hafa átt að vera rúmar 3 sjómílur undan Öndverð- amesi, er Jiað staðnæmdist við tog- arann. Ef farið er eftir frum- skýrslu skipherrans, hefði varð- skipið átt að vera nálægt 2 sjómíl- ur utan við landhelgilínu, en eftir vélabókum rétt utan við hana, er það nam staðar hjá togaranum. Skipherrann hefir gert þá at- bugasemd viðvíkjandi útsiglingar- tíma varðskipsins, að tímamörk þau, sem skýrsla hans greinir, hafi verið sett eftir armbandsúri eins stýrimannanna, en það hafi veri# 4—5 mínútum eftir varðúri skips- ins. Jafnframt er Jió að ráða af umsögn skipherrans um þetta, að klukkumismunur Jiessi hafi ekki skift máli um útsiglingartíma varðskipsins, Jivi að fariö hafi ver- ið eftir sömu ldukku allan tímann frá því kl.'11^55 og til kl. 1,30, er töku togarans er talið lokið til hlít- ar. Einn stýrimanna varðskipsins hefir að vísu borið Jiað fyrir rétti, aö hann hafi eftir kl. 12,14, er tog_ arinn nam staðar, farið ofan í stjórnklefa til að gæta á varðúrið, sem þá hafi verið 12,19. En af þessu veröur ekki ráðið neitt ura það, að tímaákvarðanimar eftir kl. 12,14 eftir úri stýrimanns,- hafi veriö teknar eftir annari klukku en hans úri eftir það til.kl. 1,30, endfi. óliklegt, að slík aðferð, sem muncK hafa ruglað öllum tímaákvörðun- um, Jiar sem Jió fullrar nákvæmni var þörf, hafi verið höfð. Samkvæmt íramansögðu ber skýrslum frá hendi varðskipsfor- ingjans og úr bókum varðskipsins svo illa saman um tímamörk og annað, er útsiglingartíma varð- skipsins snertir, að ekki verður af þeim fengin . nokkur áreiðanleg vissa um það, liversu lengi varð- skipið hefir siglt frá því, að það hóf eftirför sína eftir togaranum og þar til það nam staðar hjá hon- um. Verður af Jiessum ástæðum ckki ráðið af siglingartímanum um siað varðskipsins, er mælingarnar voru gerðar. Þá kemur að hornamælingum varðskipsins. í oftnefndri skýrslu sinni frá 17. mars 1930 gefur skipherrann upp þessar hornamælingar: I. Mæling kh 12,23 : Öndverðarnesviti Bárðarkista 23°2i' Dritvíkúrtangi 34°32' ✓ 1

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.