Vísir - 18.07.1933, Page 3
VTSIR
Útboö.
Tilboða er. óskað í byggingu húss fyrir kynsjúk-
'dóma. Upplýsingar á teiknistofu ríkisins. — Tilboð
verða opnuð kl. 10 f. h. þann 21. þ. m.
Reykjavík, 17. júli 1933.
Guðjón Samúelsson.
mefndinni sé kunnugt að 10—12
menn hafi verið valdir að brun-
anuin, og liún viti um nöfn
þriggja þeirra. Fyrir þessum
staðhæfingum verður opinber-
lega gerð nánari grein í Hol-
landi þegar mál liinna ákærðu
verður tekið fyrir í réttinum i
Leipzig. Níu lögfræðingar, sinn
;frá hverju landi koma þá sam-
an í Haag, og þessi nefnd á að
;ranhsaka þau gögn í málinu,
sem fram verða borin í Leipzig
og einnig þau gögn sem nefndin
■leggur fram. 1 nefndinni verður
m. a. enski lögfræðingurinn D.
N. Pritt, K. C., Clarence Darrow
heimsfrægur lögfr. frá Banda-
rikjunum, dr. Branting frá Svi-
þjóð, svissneskur dómari, hol-
lenskur liáskólakennari í lögum
og frægir lögfræðingar fró
Spáni, Danmörku og Frakk-
landi. „Vér munum sanna“
sagði Katz, að „að eins þjóð-
ernisjafnaðarmenn voru valdir
að brunanum, og auk skjallegra
sannana fyrir þessu muhum vér
leiða vitni málstað vorum til
stuðnings“. Katz sagði enn-
fremur, að hollenskur embætt-
ismaður yrði leiddur sem vitni
til þess að sanna það að van der
Lubbe væri ekki kommúnisti.
Telur hann, jægar þetta hefir
alt verið gert, verði ekki unt að
kveða upp dóminn yfir þeim
ákærðu. Göliring og Göbbels
áttu hugmyndina að því, að
kveikt var í Ríkisþingsbygging-
unni, segir Katz, en aðrir sáu
um framkvæmdirnar. Klykti
Katz út með því, að þeir þrír,
sem nefndin vissi nöfnin á og
valdir voru að brunanum, væri
allir leiðandi menn meðal þjóð-
ernisjafnaðarmanna.
'Veðrið í morgun:
Hiti í Reykjavík 13 stig, ísa-
firði 14, Akureyri 15, Seyöisfirði
13, Vestinannaeyjum 11; Stykkis-
■hólmi 12, Blönduósi 13, Hólum í
Hornafiröi 12, Grindavík 11, Fær-
eyjum 13, Jan Mayen 7, Angmag-
salik 5, Hjaltlandi 13, Tynemoutli
17 stig.' Skeyti vantar frá Gríms-
,ey, Raufarhöfn og Julianehaab. —
Mestur hiti hér í gær 15 stig,
rninstur 10 stig. Sólskin 1,4 st.
Yfirlit: Lægð fyrir suðvestan land
á hreyfingu austur eftir. Horfur:
Suðvesturland: Allhvass á suð-
■austan. Rigning öðru hverju.
Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirð-
ír: Suðaustan kaldi. Dálítil rign-
íng. Norðurland, norSausturland,
AustfirSir : HægviSri í dag, ensuS-
austan kaldi í nótt. Úrkomulaust
<0g víða»hjartviSri. SuSausturland :
SuSaústan gola og síSan k'aldi.,
Rigning öðra hverju.
Kosningarnar.
í dag verður taliS í Árnessýslu,
Dalasýslu og Vestur-HúnaVatns-
Isýslu, en á morgun í Vestur-
Skaftafellssýslu, Borgarf jarSar-
sýslu, Gullbringu og Kjósarsýslu
og sennilega í Skagafjaröarsýslu
og Snæfellsness og Hnappadals-
sýslu.
F imtugsafmæli
á í dag frú Halldóra Ólafsdótt-
ir frá Meöaldal í Dýrafirði, nú til
beimilis á. Framnesvegi 52.
Fimtugur
verSur á ntorgun Páll Kristinn
Jónsson, Syöra Langholti.
Samsæti
verður Kristmanni Guðmunds-
*
syni rithöf. haldið i kveðjuskyni á
Hótel Borg i dag. Fer Kristmann
héðan utan næstkomandi. fimtu-
dag. Þeir, sem enn kynnu aS vilja
taka þátt í samsæti þessu, geri
aövart í síma 2766. Samsrertið hefst
kk 7/2.
Síra Árni Sigurðsson
fríkirkjuprestur, er farinn úr
hænum, í sumarleyfi, um nokk-
urra vikna tima.
Hollenskur prestur,
Nygaard að nafni, kont hingað
fyrir skömmu ásamt konu sinni.
Presturinn er íslandsvinur mikill
og hefir um 40 ára skeið horið þá
þrá í brjósti aö geta komið hingað
til lands og ferSast hér uní. í kveld
kl. 9 flytur hann erindi í dómkirkj-
unni. Veröur þaS án efa fróðlegt
og skemtilegt. Á styrjaldarárunum
var Nygaard hermannaprestur og
kann frá mörgu aö segja frá þeim
árum. Erindið verður flutt á
dönsku/ — Allir velkomnir.
Knattspyrnumennirnir
dönsku fóra suður i Kaldársel
á sunnudaginn, en í dag var þeim
hoðið til þingvalla. — Þeir hafa,
því miður, ekki verið sem hepn-
astir meö veður, en skemta sér þó
prýSilega.
Kappleikurinn
í gærkveldi fór þannig, að
dönsku knattspyrnumennirnir unnu
með 6: c.
Gengið í dag.
Sterlingspund .....Kr. 22,15
Dollar .............. — 4,65J4
100 ríkismörk þýsk . — 158,66
— frankar, frakkn . -— 26,15
— belgur .......... — 92,85
■— frankar, svissn . — 128,89
— lírur ............— 35,35
— mörlc, finsk .... — 9,84
— pesetar ..........— 55,77
— gyllini ..........— 268,86
— tékkósl. kr....— 19,88
— sænskar kr.....— 114,44
—norskar kr.......— 111,49
—danskar kr.......— 100,00
ítalska flugið.
Þeir, sem hafa reikninga á
italska hópflugið hér, eru beönir
aö framvísa þeim í dag við Erlend
Pétursson á skrifstofu Sameinaða.
Alþýðubókasafn Reykjavíkur
verður lokað vegna málunar frá
og með 18. til og með 21. þ. m.
Farsóltir og manndauði
í Reykjavík vikuna 25. júní
til 1. júlí (í svigum tölur næstu
viku á undan): Hálsbólga 34
(20). Kvefsótt 36 (22). Kvef-
lungnabólga 2 (1). Taugaveiki
0 (1). Iðrakvef 26 (10). Tak-
sótt 0 (1). Hlaupabóla 4 (1).
Ristill 0 (1). Kossageit 1 (0).
Munnangur 4 (0). Mannslát 8
(5). — Landlæknisskrifstofan.
(FB.).
Timburskip
það, sem sagt var frá í Vísi í
gær, var til Timburverslunar Árna
Jónssonar, en ekki h.f. Völundar.
Norskt eftirlitsskip
er væntanlegt hingað í dag.
Skemtiferðaskip,
Arandora Star, er væntanlegt
hingað í fyrramáJið.
Finskt síldveiðaskip
koni liingað í morgun til þess
að leita sér aðgerðar. Hafði það
lent á skeri út af Reykjarfirði
og laskast eitthvað.
Skip Eímskipafélagsins.
Gullfoss fer héðan i kveld á-
leiðis vestur og norður. Goða-
foss kom til Hull í gærmorgun.
Brúarfoss fór frá Leith í gær.
Lagarfoss var á Akureyri i
morgun. Selfoss fór frá Leith á
laugardag.
Fákur.
Fundurinn i Café Svanur kl.
8,45 í kveld.
Útvarpið.
10,00 Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir.
19.30 Veðurfregnir.
19,40 Tilkynningar. Tónleikar.
20,00 Klukkusláttur.
Tónleikar: Píanósóló.
(Emil Tlioroddsen).
20.30 Erindi: Luzern-ráðstefn-
an. (G. Briem, verkfr.).
21,00 Fréttir.
21.30 Tónleikar.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 3 kr., gamalt á-
lieit, frá Möggu, 5 kr. frá N. N.,
10 kr. frá X, 1 kr. frá konu.
Áheit á Strandarltirkju,
al’hent af síra Bjania Jónssyni,
5 kr. frá Sigurði Semingssyni.
Úskemtilegar
iðnaður.
Mig liefir lengi langað til að
pára nokkrar línur og IiiSja Vísi
að koma þeim á framfæri.
Eg hefi þó dregiö þetta von úr
viti, meSfram vegna þess, aS eg
liefi verið að vonast eftir því, að
aörir mér færari, yrði til þess að
lienda á það, sem eg liefi haft í
huga, og tel alveg nauðsynlegt,
eins og nú er komið, að tekiS sé
til athugunar. Mér er full kunn-
ugt, að fjölda margir líta á mál
það, sem eg ætla mér liér að drepa
á lítilsháttar, sömu augum og eg,
Jjó að enginn liafi látið verða af
því aö skrifa um þaö, og liafa þó
margir haft á orði aS gera þaS.
Sá „óskemtilegi iSnaður,“ sem
cg á liér við, er kveðskapurinn í
blóSu'num. Eins og menn vita, eru
blöðin altaf viö og viS að flytja
allskonar rímaS mál — eða sem
á að lieita rímaS — og eg held aS
mér sé óhætt að segja, að það
sé langflestum til ama. Þetta er
nefnilega alls enginn skáldskapur
og oft lireinn leirburbur.
Þegar niaður les þessi kvæði,
þá vaknar sú spurning í hugan-
um, livernig á því muni geta stað-
ið, að höfundarnir sé að berja þetta
saman. Það er oftast nær svo
að livergi vottar fyrir nokkurri
skáldlegri liugsun. Alt er hiS aum-
asta „flatrím" eins og Einar skáld
Benediktsson komst að orði fyrir
mörgum árum. Þegar þetta er
lcsið, þessi svokölluðu ljóð, setur
að mönnum sárustu leiöindi. Menn
íara að hugsa um hvernig á því
geti staSiö, aS menn sé aS eyöa
tíma sínum í það, að lconia þess-
um ósköpum saman. Og liugur-
inn livarflar til skáldanna, hinna
sárfáu verulegu skálda, sem nú eru
uppi meS þjóðinni. — Hvar eru
skáldin og livar er nú hægt að
finna anda sinum Jivild við lestur
nýrra og góðra ljóða? Er alt aö
kafna i leirburöi og auvirðilegu
hnoði andlausra manna?
Ein er sú tegund hins svo kall-
aða skáldskapar, sem alt annað
yfirgnæfir nú á dögum, að því er
ráöið verður af blöðunum. Það er
cftirmælakveðskapurinn.
Því var einu sinni haldiö fram
af gáfuöum manni, að eftirmæla-
lcveðskapurinn hefbi nokkura sér-
stöðu innan ljóSageröarinnar. —
Eftirmæli í ljóði væru stundum
gerð öðruni til liugarhægðar, og
mætti þá ekki gera háar kröfur,
er svo bæri undir. Eg get ekki
fallist á þessa skoðun. Þeir, sem
kunnugir eru eftirmælakveSskap
þeirra Bjarna Thorarensens, Jón-
asar Hallgrímssonar, Matthíasar
Jochumssonar og margra fleiri
góðskálda þjóSarinnar aá foniu og
nýju, eiga bátt meS að sætta sig
við þann eftirmælaskáldskap, sem
blöðin birta nú á dögum, jafnvel
vikulega. Eg held mér sé óhætt
að fullyrða, að langmestur hluti
j>ess eftirmælakveSskapar, sem nú
er birtur í blöðunum, sé algerlega
ósamboSinn minningu þess fólks,
sem eftir er mælt.
Þegar mikil slys ber að höndum
og sorgin lamar á'stvinina, sem
eítir lifa, er lítil liuggun í því,
aS fá yfir sig dembu af ómerki-
legum og andlausum kveSskap,
sem ef til vill liangir í því, aS vera
nokkurnveginn rétt rímaður, en er
gersneyddur allri andagift, snild
og mætti til þess, að lyfta hreld-
um sálum upp úr niSamyrkri sorga
og þjáninga, upp í viðsýni'S —
úpp að fótskör guödómsins. — En
eg held aS því fari liarla fjarri,
að eftirmælakveSskapurinn, eins
og hann birtist í blöSunum nú um
þessar mundir, geti flutt nokk
urri þjáSri sál huggun eða harma
bót. Hann er og oftast þannig, aö
enginn er neinu nær um þann, sem
eftir er mælt, svo að þaS er ekki
einu sinni sú myndin á, að nein
mannlýsing 'geymist síðari tímum
í þessum iönaöi.
Eg hirði ekki um, að nefna
neina sérstaka liöfunda, og væri
það þó innan handar. Hitt er ami-
að mál, að vel getur svo fariS, aS
ganga verði nokkurú fastara að,
eí ekki skipast til batnaSar.
Blöðunum er stundum ámælt
fyrir þaö, að þau skuli taka að sér
að birta hverskonar rímað mál.
Eg geri nú ráð fyrir, að minstur
hluti þess kveSskapar, sem þeim
berst, komi fyrir almenningssjón-
ir. ÞaS er auðvitaS leiöinlegt, aö
blöðin skuli taka að sér aS flytja
allskonar ómerkilegan kveSskap,
en mér er nær aS halda, aS þaS
sé annað en gaman fyrir þau að
losna við þetta kvæða-fargan.
Reglan mun vera sú, bæði hér á
landi og annarsstaðar, að því getu-
minni sem ljóSasmiSurinn er, þess
fastara sæki liann aö koma kvæð-
um sínum á prent. Góðskáldin
liirða ekki um að rjúka í blöðin
meS kvæði sín og gæti þó veriö
fengur í slíku. T. d. liefir sagt mér
vel metinn blaðamaður, að Þor-
steinn heitinn Erlingsson og Ein-
ar Benediktsson hafi veriS mjög
tregir til þess, að láta blöSin fá
Jcvæði sín til prentunar, jafnóöum
og þau uröu til. — Venjan mun
vera sú í öllum listgreinum, að
þeir sem minst geta, eru ákafast-
ír í þaö, aö láta sem mest bera á
sér.
Btlferðir
til Borgarfjarðar.
Frá Reykjavík alla fimtu-
daga, en til Reykjavíkur alla
miðvikudaga.
Viðkomustaðir: Hreðavatn,
Arnbjargarlækur, Norðtunga,
Reykholt o. fl. Ódýr fargjöld.
Upplýsingar og afgreiðsla i
Reykjavík lijá
Ferðaskrifstofn Islands
Ingólfshvoli.
Sími 2939.
GERI UPPDRÆTTI af aUskonar
húsum. — Þorleifur Erjólfuea,
húsameistari, Öldugötu 19.
Eg læt nú staöar numiö og biö
Vísi fyrir þessa ritsmíö mína. Eg
geng þess ekki dulinn, aÖ henni
muni allmjög ábótavant, en trey-sti
því hins vegar, aö blaSið lagi hana
i hendi sinni og birti síðan við
fyrstu hentugleika.
a.+b.
ísland
í erlendum blööum.
Grimsby Evening Telegraph,
Glasgow Herald, The Scotsman í
Edinborg, The Board of Trade
Journal, London, The Times,
London o. 111. fl. bresk blöð hafa
birt greinir um bresk-íslensku
samningana, flestar stuttar — aö
éins skýrt frá aðalefni sanming-
anna. — í The Northem Daily
Telegrapli þ. 1. júlí birtist grein,
sem lieitir „Heat in Harness", eft-
v E. R. Yarham, F. R. G. S. —
Höf. gerir þar nokkura grein
fyrir lielstu framförum hér á landi
á síðari árum. Getur þess 111. a.,
að memi (þ. e. Bretar) gleymi þvi
oft að ísland sé ekki lengur lijá-
lenda Danmerkur, lieldur sjálf-
stætt konungsríki. „Höfuðlxirg ís-
lands og aðsetur ríkisstjórnarinn-
ar.er Reykjavík, sem hefir 30,000
íbúa. Þar eru, auk dómkirkju,
helstu skólar, háskóli mentafélög
og fjöldi sölubúða, sem mundu
margar sóma sér vel i sjálfri
Lundúnaborg.“ Höf. getur einnig
um tvo höfuðatvinnuvegi íslend-
inga, fiskveiðar og landbúnað, en
aðalefni greinar hans er um beisl-
un jarðhitans liér á landi og ráða-
gerðir í því efni. Yfirleitt fer höf.
rétt með, en hann hefir þó — eins
og fleiri útlendingar, sem skrif-
að Jiafa um þetta efni, lagt trún-
að á það, að einn liðurinn í áform-
unum um aukna notkun jarðhit-
ans hér á landi, sé að „nota neðan-
jaröarhitann úr Ileklu, frægasta
eldfjalli á íslandi“ o. s. frv. Að
öSru leyti er rétt meS fariö og
komið viöa viS og greinin er skrif-
uö af nijög hlýjum hug til Iands
og þjóSar. (F.B)
Erlendar fréttir.
Moskwa, 29. júní.
United Press. - FB.
Astandið i borgunum hefir að
undanfömu batnað mikið að
því leyti, að fleiri matvælateg-
undir eru nú fáanlegar en áður
var og einnig gpta menn nú
fengið meira af flestum hinna
einstöku matvælategunda, Enn-
fremur er nú liægt að fá vefn-
aðarvöru til klæðagerðar, að
þvi er virðist eftir þörfum við-
ast, í rússneskum borgum.
Þessi framför, ásam t því, að
hagur manna batnar að jafnaði