Vísir - 25.09.1933, Page 2
V í S I R
Hin margeftirspurðu
Gipðinganet
68 og 98 cm., eru nú komin aftur.
Enn fremur GADDAVÍR, ca. 350 mtr. í rl.
Sléttur vír og Járnstólpar.
Sími: 1-2-3-4.
ímskeyii
—s--
London, 25. sept.
United Press. - FB.
Frá írum.
Roscommon, varaforseti
Sameinaða írlandsflokksins hélt
ræðu í gær og lýsti því yfir, að
þegar flókkurinn kæmist til
valda yrði það fyrsta hlutverk
hans að hefja samningaumleit-
anir við bresku stjórnina um
fjárhagsdeilumálin, en einnig
um endurskoðun annara samn-
inga, t. d. yrði lagt til, að feld
yrði úr samningum skuldbind-
ing um það, að írland skyldi
vera innan Bretaveldis, því að
írar ætti að velja sér stöðu inn-
an þess af frjálsum vilja.
Stokkhólmi i se]>t.
United Press. - FB.
Frá Svíþjóð.
Hagnaður af rekstri ríkisjárn-
brautanna sænsku varð í júnímán-
uði síðastl. 1.800.000 kr., en var
500.000 kr. á sama mánuði 1932.
Bókapfpegn,
Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi: í bygðum.
Kvæði. — Útg. Þ. M.
Jónsson. Akureyri 1933
Sennilega verbur ekki um það
cíeilt, að þau ljóðskáld íslensk, er
framkomu á ip.öld og í byrjun yf-
irstandi aldar, ihera yfirleitt höfuð
og herðar yfir nútíðarskáldin, að
undanteknum þeim, sem í rauninni
teljast til 19. aldar skáldanna að
nokkuru, svo sem Einar Benedikts-
son og fleiri. Með þessu er ekki
verið að gera tilraun til þess, að
gera gömlu skáldunum of hátt
undir höfði, né heldur rýra gildi
nútíðarskáldanna ungu. En það
verður að segja hverja sögu eins
og hún gengur. Nútíðarskáldin,
sem eg kalla, þau sem fram hafa
komið á þessari öld, hafa ekki eins
mikið til brunns að bera og gömlu
skáldin, en þar fyrir geta þau vit-
anlega mörg verið góð fyrir því.
En það er mikill munur á því, að
vera gott skáld og afburðaskáld,
eins og þeir voru t. d. Jónas,
Bjarni, Grímur, Matthías og Einar
Benediktsson, svo að nokkurir séu
nefndir af mörgum, sem að vísu
væri fyllilega jafn néttmætt að
nefna í þessu ■ sambandi.
Af nútíðar skáldunum er Davíð
Stefánsson langsamlega glæsileg-
astur allra, enda eru vinsældir. hans
með afbrigðum, og hann er sann-
ast að segja vel að þeirn kominn.
Menn eru á misjafnri skopun um
skáldin og verk þeirra, eins og
hvað annað, en eigi getur þeim er
þetta ritar, blandast hugur um, að
jafnvel Davíð Stefánsson, sem
menn munu efalaust alment telja
glæsilegastan nútíðarskáldanna,
fái ekki staðist samanburð við
gömlu skáldin. Kvæði Davíðs eru
létt, lipur mörg, og sum snildar
fögur, þýð og yljandi, en þess gæt-
ir mjög, að hann skortir þrótt. Þaö
er stundum eins og hann hirði
ekki um að kafa eins djúpt og
liann gæti. Hann á ekki alvöru-
þunga mikilmennisins, en hann á
hinsvegar flesta kosti góðskálds-
ins. Hann yrkir létt og lipurt oft-
ast og yrkisefnin eru fjölskrúðug.
Davíð gengur sínar götur og yrkir
um það, sem fyrir augun 'ber.
Hann er athugull og skilningsgóð-
ur, hann á ríka fegurðarþrá og
samúð og hann skilur meðbræður
sína og systur og alt þetta kemur
skýrt fram í ljóðum hans.
Þessi nýja bók Davíðs mun
vera 6. bókin, sern hann gef-
ur út. Hann hefir því ort mikið
og hann er enn ungur maður. Eigi
skal farið út í neinn samanburð hér
á þessari liók hans og hinum
fyrri, því að til þess skortir rúm.
En sennilega er það sanngjarn
dómur, að hún sómi sér vel við
hlið hinna, því að í henni eru mörg
góð kvæði, sem fyllilega jafnast á
við bestu kvæðin í hinum bókun-
um, en mjög vafasamt, að þessi
nýja bók geymi nokkurt kvæði,
sem skari fram úr bestu kvæðun-
um í eldri bókunum. Ljóðabók
þessari mun vafalaust verða tekið
fegins hendi af öllum sem ljóðum
unna, þvi að hún er þeim fengur,
þótt höfundurinn auki ekki við
landnám sitt í henni. Hin mörgu
góðu kvæði, sem í henni er að
finna, munu hinsvegar enn treysta
vinsældir skáldsins. Bókin hefst á
kvæðaflokkinutn „Að Þingvöllum
930—1930“. Það er snjalt kvæði á
köflum, en annars stenst það, né
önnur Þingvallakvæði 1930, engan
samanburð við kvæði þjóðskáld-
annn 1874.
„Bárnið í þorpinu“ er snildar-
kvæði og fyllilega sambærilegt
við bestu kvæðin, sem höf. hefir
áöur ort. Ljóð þetta um sveininn,
sem
„.... hefir alla auön og sorg
í augunum á sér“,
'ti
munu fáir lesa án þess að hrærast
tii meðaumkunar og vakna til
aukins skilnings á kjörum þeirra,
sem örlögin leika grátt. Það er
göfugt skáld, sem. skilur sál
auðnuleysingjans og kann að
draga upp skýra rtiynd í ljóði, sem
þannig yrkir:
„í gömlum tötrum gengur hann
um grjót og freðið hjarn.
Eg sé hann hrasa við og við
og velta um stein og skarn.
Hann einn piá læra allra synd,
en er ]>ó lítið barn.“
J
Kvæði höf. „Kirkja fyrirfinst
engin“ og „Sálin hans Jóns míns“
hafa tekist heldur vel, en þau
kvæði og mörg önnur hrifu mig
ekki. Kvæðin um olnbogabörn
mannlífsins, myndirnar, sem skáld-
ið dregur upp af þeim, sem við
lifum og hrærumst með, oft án
þess að finna til með þeim, eru
}>au, sem eru sonnust og best.
Tökutn t. d. kvæðið „Lofið þreytt-
um áð sota".
„Þú sást hann ganga i gömlum
flikum heim
og gamalt brauð í hliðarstræti
kaupa.
Þú sást hann láta blítt að börnum
þeim,
sem berfætt móti föður sínum
hlaupa.
Hann mælti fátt, en horfði á
hópinn sinn,
Sú höncl var snauö, sem vildi
miðla gjöfúm.
Tvö yngstu börnin bar hann
þreyttur inn
og þjálkahurðin gisna féll
að stöfum“.
Skáld, sem þannig yrkir, er gott
skáld, og við lesturinn kviknar von
og ósk um, að slikt skáld megi
enn stækka og þroskast og eigi
eftir að verða mikið skáld.
A.
Veðrið í morgun.
Hili í Reykjavík 11 slig, ísa-
firði 18, Akureyri 11, Seyðis-
firði 10, Vestmannaeyjum 10,
Grímsey 9, Stykkisliólmi 11,
Blönduósi 9, Raufarhöfn 10,
Hólum i Ilornafirði 9, Grinda-
vík 11, Færeyjum 9, Juliane-
haab 1, Jan Mayen 6, Tyne-
mouth 14, Kaupmannahöfn 14
stig. Mestur hiti hér í gær 11
stig, minstur 9 stig. Úrkoma
23.2 mm. Yfirlit: Lægð yfir
Grænlandsliafi á hreyfingu
norðaustur eftir. Horfur: Suð-
vesturland, Faxaflói, Breiða-
fjörður, Vestfirðir, Norðurland:
Sunnan kaldi og rigning, en
gengur í suðvestur með skúr-
um í nótt. — Norðausturland:
Sunnan g'ola. Sumstaðar dálítil
rigning. Austfirðir, suðaustur-
land: Sunnan og vestan kaldi.
Rigning.
FornritafélagiO.
Egils-saga Skalla-Grímssonar fæst nú í bandi.
Verðið er: heft kr. 9,00, í skinnbandi kr. 15,00, 17,50,
20,00.
Bökaverslnn Sigfnsar Eymnndssonar.
(og Bókabúð Austurbæjar BSE, Lv. 34).
Yerölækkun:
Matarstell, 7 leg. 6 m., frá 17.50
Matarstell, 6 teg. 12 m., frá 30.00
Ivaffistell, 28 teg. 6m., frá 10.00
Ivaffistell, 19teg. 12 m., frá 16.50
Ávaxtastell, 26 teg. 6 m., frá 3.75
Avaxtast., 18 teg. 12 m., frá 6.75
Mjólkurkönnur, ótal teg., frá
0.60
Sykursett, margar teg., frá 1.35
Diskar, afar margar teg.,
frá 0.30
Kökudiskar ýmiskonar, frá 0.50
Skálar margskonar, frá 0.25
Bollapör, 44 teg. postulín,
frá 0.50
Borðhnifar, rvðfríir frá 0.80
Skeiðar og Gafflar, 2ja turna,
1.85
Skeiðar og Gafflar, ryðfrítt, 1.00
Dömutöskur,ekta leður, frá 9.50
Vekjaraldukkur ágætar, frá 5.00
Aldrei liefir úrvalið hjá okkur
verið eins mikið og nú eða verð
ið eins lágt.
K. Einoo I ino.
Bankastræti 11.
sendiherrans o. fl„ var málað „Nið-
ur me'ð Hitler", „Ni'ður með naz-
ismann“ o. 's. frv. — Munu fáir
efast úm, hvaða „hetjur“ hafi ver-
ið hér a'ð verki.
Dórnur
Teofani
Cigarettur
20 stk. 1.25.
ÁLAFOSS-
REYKIR
Ferðir oft á dag
B. S. R.
Sími: 1720.
Áttræð
verður á morgun frú Guðr.ún
Teitsdóttir,móðir Júlíusar Júliníus-
sonar skipstjóra á Bráarfossi. Hún
dvelur á Elliheimilinu.
Dráttarvextir.
Athygli skal vakin á auglýsingu
bæjargjaldkera hér í blaðinu í dag
um dráttarvexti af útsvörum.
Hjónaefni.
Trúlofun sína opinberuðu í
Kaupmannahöfn í gær ungfrú
Bengta Andersson og Kristján
Grímsson, spítalalæknir í Odense.
Kommúnistar
hafa látið svo að undanförnu
sem nú ætti til skarar að skrí'ða í
baráttunni gegn „auðvaldinu“ og
„nazismanum", og stóð miki'ð til í
gær, en eins og fyrri daginn varð
ekki neitt úr neinu, nema aÖ for-
sprakkarnir héldu stórorðar ræður.
Þegar á átti að herða, þorðu þeir
eða liðsmenn þeirra ekki að fara í
kröfugöngu þá, sem áformuð var.
Hófst fundur kommúnista í Iðnó
kl. 4 e. h. í gær og stóð alllengi. A8
þeim fundi loknum stóð til, að far-
ið væri í kröfugöngn til bústaðar
þýska sendiherrans og víðar. En
lögreglan hafði viðbúnað til þess
að koma í veg fyrir, að kommún-
istar færi í heimsókn þessa, og er
]>að barst „rauða liðinu“ til eyrna
þorði enginn neitt! — í fyrri nótt,
kl. 4—6, áður en bjart var orðið,
voru þó ýms ,,arferk“ unnin hér í
bæ. Á nokkur hús, meðal annars
hús Ólafs Thors alþm., hús þýska
er nú fallinn í máli því, sem
hö'fðað var gegn Einari Einarssyni,
fyrrum skipstjóra á Ægi, út af ó-
nákvæmni í bókun o. fl„ er togar-
inn Belgaum var tekinn og sakað-
úr um landhelgisvei'Öar árið 1930.
Hefir Garðar Þorsteinsson hrm„
haft máíið til rannsóknar og dóms-
áleggingar. Geklc dónuir í því'
núna fyrir helgina og var Einar
dæmdur í 500 kr. sekt og til þess
að greiða kostna'ð sakarinnar. Voru
brot hans heimfærð undir 41. gr.
siglingalaganna og 144. sbr. 145.
gr. hegningarlaganna. Einar Ein-
arsson hefir óskað þess, aÖ málinu
verði skotið til hæstaréttar.
Skipafréttir.
Gullfoss er á leiÖ til Kaup-
mannahafnar frá Austfjörðum.
Goðafoss er væntanlegur hingað á
morgun a'Ö vestan og norðan. Brú-
arfoss er væntanlegur til Vest-
mannaeyja kl. 6—7 e. h. í dag.
Dettifoss er í Hull. Lagarfoss kom
til Leith í morgun. Selfoss er á leið
til Rotterdam. —- Færeysk skonn-
orta kom frá Grænlandi aðfaranótt
sunnudags. Hafði fengið 85.000
fiska. Skipið er fari'ð hé'ðan áleið-
is til Færeyja. Einn skipverja, sem
var veikur, var skilinn hér eftir.
— Enskur botnvörpungur kom inn
i morgun til þess að leita sér að-
gerðar. — Lyra kom í dag kl. 11
fyrir hádegi.
Hljómleikar og erindi.
Kirkjunefnd dómlcirkjusafnað-
arins gengst fyrir þvi, að haldnir
ver'ði hljómleikar og erindi flutt í
dómkirkjunni kl. 8Vh í kveld. Er-
indið flytur Ásmundur Guðmunds-
son docent, en hljómleikaná annast
Pétur Jónsson óperusöngvari, Þór-
hallur Arnason, Eggert Gilfer og
Þórarinn Gu'ðmundsson. Aðgöngu-
mi'ðar kosta að eins 1 krónu. Alt,
sem inn kemur, gengur til þess að
skrevta og fegra kirkjuna. — Mun
Nytt úpval af
Kvenvetrarkápnm
var teklð upp í gær.
Ennfremur míkið úrval af
Kvenregnkápum.