Vísir - 13.12.1933, Blaðsíða 6

Vísir - 13.12.1933, Blaðsíða 6
Mfðvikudaginn 13.: des. 1933. VlSIR eigi at5 heita „Vargakjaftar". ÞaS i sakar víst ekki, að menn fái að vita j þetta, og er þess a'ð vænta, a‘ð hann \ komi þessum verkum sínum á fram- færi bráðlega. Að lokum skal hér birt eitt er- indi, valið af handahófi, sem sýnis- horn af kveðskap höfundarins: Hefjum merkið hátt. Horfum vori mót. — Herði hugans rnátt harmsins öldurót. Ljómi lifsins borg. — Lýsi æfistig. — Jafnt í sælu og sorg sólin blessi þig. Erleniar fréttir. London í des. —- FB. Viðskiftabati í Lancashire. Hvergi á Bretlandseyjum hef- ir atvinnuleysi verið meira en í Lancasliire á undanförnum ár- um. Eftirspurnin eftir baðm- ullarvörum hafði minkað rnjög mikið, sumpart vegna harðn- andi samkepni frá öðrum þjóð- um, aðallega Japönum, en einn- ig vegna ókyrðarástands þess sem verið hefir á Indlandi og fleiri löndum. Fyrrum var mikill markaður fyrir breskar baðmullarvörur í Indlandi, en til allra þessara landa liefir út- flutningur á baðmullarvörum ininkað að miklum mun. Nú er þó svo komið, samkvæmt skýrslum sem nýlega voru birt- ar, að viðskiftaliorfurnar, að því er Lancashire snertir, liafa batnað að verulegum mun. Frá því í byrjun yfirstandandi árs hefir atvinnuleysingjum á iðn- aðarsvæði þvi, sem alt Lanca- shire telst til, fækkað um ná- lega 100,000. Mánuðina júní, júli og ágúst fækkaði atvinnu- leysingjum í baðmullariðnaðin- um um 35,000. Sérfróðir menn í þessum greinum fullyrða, að horfurnar í Lancashire séu nú betri en nokkuru sinni á und- anförnum árum. Viðskiftabata er eigi að eins um að ræðar í baðmullariðnaðinum, lieldur og í stál-, kola- og hyggingaiðnuð- unum. Eftii'spurn eftir ensku gervisilki er rnjög að aukast, en það er framleitt í Lancashire nú. Fjöldi verksmiðja hefir fengið svo miklar pantanir, að þær liafa vinnu lianda verka- fólki sínu um margra mánaða skeið. Þó er ótalið það, sem eigi er minst um vert, að í Lanca- shire og víðar í landinú eru nýjar iðngreinir stöðugt að koma til sögunnar. Jaffa appelsínup. VersL Visir. TIiop Jensen 70 ápa. Fagur hróöur fer ei látt fjörs um stundir þínar. HeiöursmaSur heyra mátt, hjartans þakkir mínar. Veröld þó að virðist körg, vinsemd einatt bíði, fyrir afrek fjölda mörg færðu þökk hjá lýði. Þráfalt yrði ei þraut til meins þungum lífs á hlyni, vér ef marga ættum eins íslands kæra vini. Uns fer þitt enda fagurt líf, firrist öllum hörmum, guð þig blessi, börn og víf, beri á sínum örmum. Jens J. Jensson. I Augnstine Birrel kunnur enskur stjórnmálamað- ur og ritliöfundur lést í nóvem- berlok. Hann var fæddur 1850 og stundaði lögfræðinám i Cambridge. Komst hann hrátt á þing og þótti snjall og fynd- inn ræðumaður. Hann var mentamálaráðherra 1905—1907 og níu árin þar á eftir hafði liann írlandsmálin með hönd- um, þegar mikill vandi og meiri en nokkuru sinni var með þau mál að fara. En Birrell er kunn- ari sem rithöfundur en stjórn- málamaður. Hann var hinn mesti ritsnillingur, eins og rit- gerðasafn lians „Obiter Dicta“ her vitni um og ekki síst sein- asta bók lians „Et cetera“, birt 1930. (Úr blaðatilk. Bretastjórnar). Gúmmístimplar eru búnir til í Félagsprentsmiðjunni. Vandaðir og ódýrir. iiiiHiinmnnininmiinmnnaim IWI'l'lÍII.-WWMgWBir^MIIIIII llllllllil ll■llll■ !■ Húsmæðor! Gleymið ekki, þegar þið kaup- ið í matinn, að biðja um 8VANA- vltaminsmjörlfki því að rannsóknir hafa sannað, að það inniheldur A-vitamín (fjörefni) i stórum stíl — og er þess vegna næringarríkara en annað smjörlíki. iimmiiiiimimiiiiiiiiiiiiimmii! Ný bók. Sögur handa börnum og unglingum. Sr. Friðrik Hallgrímsson safnaði, 3. hefti (1. hefti kom út árið 1931, — 2. hefti árið 1932). Verð ib. kr. 2,50. Fæst í bókabúðum Bókaverslnn Sigf Eymnndssonar og í Bókabúð Austurbæjar B. S. E. Laugavegi 34, Atbugið I Það færist meir og meir í vöxt, að hinir svo nefndu gler- augna „Expertar“ framkvæmi mælingar og rannsóknir á sjón- styrkleika augans og sjóngöll- um, sem orsakast af skökku ljósbroti í auganu. Svo er það í Danmörku, þar getur fólkið fengið augun rann- sökuð ókeypis. Til þess að geta sparað við- ] skiftavinum vorum mikil út- gjöld, framkvæmir gleraugna „Expert“ vor þessa ókeypis rannsókn, og segir yður hvort þér þurfið að nota gleraugu og af hvaða styrkleika þau eiga að vera. — Viðtalstími kl. 10-12 og 3-7. F. A. THIELE Austurstræti 20. */w>rvr vrsrvrvr vrvrvrvr srvrvrvr srsrsrsr srs rsrs rsr iwiwn rsrsrsrs rsisrsrs iwwwi rs/srsrs isr srsiSrs Allir, sem vilja gefa vandaðar jólagjafir, eiga fyrst og fremst erindi í Sportvöruhús Reykjavíkur BifreiðastOðin Hekla hefir ávalt til leigu 5 manna bifreiðir í bæjarkeyrslu frá kl. 8 f. h. til kl. 4 á miðnætti. — Ef ylckur vantar bíl þá hringið í Síma: 1515. MILLENNIUM mMjL HVEITI MÆjL þarf ekki meðmæli — talið við þá sem nota það. Fæst í ðlinm matvðrnverslnnnm. Höfum fyrirliggjandi í heildsölu nokkrar tegundir af ágætum og mjög ódýrum spilum. Jóh. Úlafsson & Co. Hverfisgötu1 18, Reykjavík. Sími 1630. fictaisk fáfaitftttiffttit og íihttt 34 Jb imi, t300 Jólin eru í nánd! Því er best að koma sem fyrst til okkar með þann fatn- að, sem þér þurfið að láta hreinsa, pressa eða lita fyr- ir jólin. Hreinsum fatnað á einum sólarhring. Hjá okkur er reynslan mest og skilyrðin best. Sækjum.-----Sendum. HERFERÐ SVÖRTU STJÖRNUNNAR. tíma til óþarfa. Því nú gat bófinn og fylgifiskar hans þegar veriö komnir alt í kringum Branninton-höllina. Ef til vill voru þeir þegar farnir að ræná skartgripunum af konunum, og deyfa mennina, sem þeir ætlu'Su sér að nerná á þrott og búa sig undin aö flytja þá burt meö sér. Muggs skreið fram með veggnum eins og skuggi, meö járnið reitt, og1 í áttina til varðmannsins. Hann átti ekki eftir nema tvo faðma að honum, þegar hann sá kvikna á eldspýtu. Muggs gat séð, að maðurinn hélt henni í lófa sínum og var að reyna að kveikja sér i vindli. Muggs tók undir sig stökk mikið, og járnstöng- in reið gegnum Ioftið og hitti þar sem henni var ætlað. Muggs heyrði aðeins kumra lítið eitt í manninum, en svo lá hann eins og dauður. Muggs hljóp nú gegnum húsagarðinn. Hann hafði ákveðið að eiga ekkert við hliðið, því að þar gat verið annar varðmaður. Hann stökk til, komst upp á girðing- una en átti það þó á hættu, að rafmagnsstraumur væri í henni, en fann þegar, að svo var ekki. Augnabliki síð'- ar var hann niðri' á götunni. Muggs hafði aldrei neinn hlaupari verið en nú hljóp hann. Hann þeyttist upp eftir götunni með olnhogana við síðurnar, höfuðið fram, hrasaði og hnaut yfir ósléttu götusteinana, en honmn miðaði vel áfram. Engin mann- skepna var á götunni og enginn vagn sýnilegur. Þetta var gamalt verksmiðjuhverfi langt niður með ánni, þar sem ekkert var til að hæna fólk að. Þar voru ekki nema fáein götuljós, mjög strjál. Muggs var yfir sig kominn af mæði, en hljóp samt áfram. Hjarta hans barðist, hann hafði hlaupasting og átti erfitt um andardrátt. En liann komst fyrir næsta götuhorn og hélt hlaupinu áfram. Skyldi hann nokkurntíma ná í símasamband ? Eða lög- regluþjón? Var enginn í þessum borgarhluta, sem gæti hjálpað honum? Hann hljóp fram hjá hverju húsinu á fætur öðru, og leitaði að einhverju ljósi, einhverri skugga- legri knæpu, eða yfirleitt einhverjum stað, þaðan sem hann gæti komist í samband við lögregluna. Hann var farinn að Örvænta og fann, að hann gat ekki haldið miklu lengur áfram. Alt í einu sá hann ljós íyrir framan sig, og fyltist nýrri von. Fyrir framan sig sá hann, aö voru dyrnar á einum vagnskúr strætisvagnafélagsins. Másandi og uppgefinn, slagaði Muggs inn um dyrnar og komst inn í skrifstofuna. Nokkrir vagnaverðir og ökumenn stukku upp úr sætum sínum og þutu til hans. — Símá — fljótir — lögregluna! — stundi Muggs. Hann sá símatól á veggnum og komst þangað. við ill- an leik. Hann reif heyrnartólið niður af króknum og fór að kalla á númerið. Einn vagnstjórinn reyndi að tala við hann og annar reyndi að koma i veg fyrir, að hann notaði áhaldið, fyrri en hann segði erindi sit. Muggs rétti út fótinn og sparkaði honum frá sér. — Lögreglustöðina, öskraði hann í símann. — Er þetta lögreglustöðin ? Gefið nu)r lögre'glustj órann dafarl,aust Þetta er Muggs. Já, Muggs. Eruð það þér, lögreglustjóri ? Er hr. Verbeck þarna? Það er Muggs. Já, eg var að sleppa út. Svarta stjaman og lið hans ætlar að ræna höll hr. Richard Brannintons í kveld — taka gimsteinana og ræna fínu mönnunum....... , Muggs seig hægt upp að veggnum. Orð hans höfðu eins og hleypt rafmagni í strætisvagna- mennina. Þeir reistu hann við og einn þeirra hélt sam- talinu áfram, og sagði hvað skeð hefði, en fann fljóttj að enginn var hinumegin. Lögreglustjórinn hafði þekt rödd Muggs og það nægði. Mennirnir skvettu nú vatni framan í Muggs og hann tók andköf og settist upp. Þeir hjálpuðu honum að belck til að sitja á, meðan hann var að ná andanum, og hann greip um brjóst sér þar sem hanu verkjaði, og reyndi eftir bestu, getu að hressa sig við aftur. — Eg verð að komast þangað, stundi hann. — Hvert? spurði einn maðurinn. — Hús Richard Brannintons í West End. — Bíllinn verkstjórans er þarna úti, sagði einn' maður- urinn, — hann lofar okkur að taka hann. Eg þarf ekki að vinna næsta klukkutímann, svo það dugár ef við flýtum okkur. Komið þið! Hann hljóp út á götuna ogMuggs slangraði á eftir hon- um. Hann steig upp í litla vagninn. Strætisvagnamaður- inn setti hann i gang og stökk upp við hlið Muggs.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.