Vísir - 04.01.1934, Page 3
VlSIR
Dobbelman
DErD
handsápan
er perla allra
notenda.
Heildsölubirgðir:
S. Árnason & Co.
Sími: 4452.
orð nornanna i upphafinu á
Macbeth:
Ljótt er fagurt og fagurt ljótt,
flögrum i sudda, jjolai og nótt.
IJrfellingarnar úr kvæðum J. H.
Svo sýnist sem mest af því,
sem felt hefir verið burtu, séu
kvæðin, sem vanalegum lesanda
þótti heldur lýta kvæði Jónasar
Hallgrimssonar. Ivvæði, sem
hann liefir gert að gamni sínu,
og aldrei liefir verið ætlað út
fyrir dyr lians. Líka eru látin
vera utan úrvalsljó'ðanna kvæoi
sem mætti kalla afbiýðiskvæði,
og sum kvæði um einstaka
menn. Anægjulcgt er, að felt er
úr Ijóðunum „Skraddaraþankar
um kaupmanninn“, sem Jón
Hjaltalín landlæknir sagði mér,
að væru eftir sig. „Þeir hafa
fundið það í blöðum Jónasar,
og haldið, að það væri eftir
hann“, sagði dr. Jón Hjaltalín.
Hver maður, sem les kvæðið,
finnur, að á þvi er alt annar
blær en kvæðum J. H., og að
kvæðið er frá eldri menningu
en Jónasar, og kveðið sterlct og
fast um einokunarholumann á
útkjálka, sem Jónas hefir tæp-
ast þekt.
Kváeðin ljúfu, þýðu.
Svo koma þau „kvæðin ljúfu
þýðu“, sem Hannes Hafsteinn
kallaði. Þau eru meira en'ljúf
og þýð, því að þau eru viðreisn
íslenskrar ljóðlistar. J. H. byrj- I
ar aftur ]>ar, sem Eddukvæðin
enduðu. Svo koma öll föður-
lands- og frelsiskvæði Jónasar,
eins og þau verða að eins gerð
meðan frelsið roðar fjöllin í
morgungeislum sínum, og ald- |
rei verða ort eins siðar. Svo
koma kvæðin, þar sem hann er
farinn að hallast að Heine, þá
þýðingarnar eftir Heine og
fleiri. Erfiljóðin.eftir þrjá bestu
vini hans, Tómas Sæmundsson, '
Bjarna Tliorarensen og Þor-
stcin Helgason. Það má segja
um mörg kvæði Jónasar, að þau
hafi fylt æskulýðinn með guð-
móði, fullorðna með aðdáun og
gamla menn með unun yfir öll-
um þeim gullmálmi, sem Jónas
gróf upp úr islenskri tungu fyr-
ír hundrað árum.
Frá þvi að Jónas orkti Ferða-
lok, nýorðinn stúdent, og þang-
að til hann yrkir síðustu vísuna
x Söknuður á síðustu Hafnarár-
um sínum, hefir æfi hans ver-
íð óslitinn ástarharmur, sem
gerði hann að ódauðlegu skáldi.
(
Baráttan við rímurnar.
í Hulduljóðum, þar sem Jón-
as situr hjá Huldu, sem býr
undir fossinum, hjá hinni sól-
fögru mey, sem annast gróður-
inn á jörðunni og dauðinn
aldrei sá, og Eggert ólafsson
stignr ungur og hetjulegur upp
úr liafinu til að lita eftir blóm-
gróðri, lands og búnaðar liátt-
um, þar getur Jónas ekki stilt
sig að tala um rimurnar, Egg-
ert Ólafsson var líka skáld, og
mun vilja sjá hvað landinu líð-
ur í þeim efnum, Jónas segir
þar:
Gleymd eru lýðnum landsins
fornu kvæði;
leirburðar stagl og holtaþoku
væl
fvllir nú breiða bvgð með aum-
legl þvaður;
bragðdaufa ríntu þylur vesæll
maður.
Áður hafði hann skrifað rit-
dóm um rírnur Sigurðar Breið-
fjörðs í Fjölni, og vakið andúð
á móti sér. En hann var að
hefja viðreisn íslenskrar ljóð-
listar og þoldi ekki að heyra
leirburðarstagl og holtaþoku
væl. En svo kemur það, sem er
lítt skiljanlegt. Rimnakveð-
skapurinn þagnar eins og
fuglasöngur um vornótt, en fer-
liendurnar hfa, livenær sem
þær eru vel kveðnar. Maður
gengur undir manns hönd til
að lífga við rimurnar.. Flest
stærstu skáld landsins gera sitt
til þess. Einar Benediktsson
gefur út úrval af rimurn Sig-
urðar Breiðfjörðs. Benedikt
Gröndal vrkir Göngu-Hrólfs
rímur, Grimur Thomsen yrkir
rimur af Búa Andríðssyni, en
rímurnar eru dauðar og verða
ekki vaktar upp aftur. Hvernig
stendur á þessu spurði eg út-
gefandann að Úrvalsljóðunum.
„Rímurnar eru þáttur úr gam-
alli menningu, nú eru reyfar-
amir komnir í staðinn“, sagði
hann. Það minti mig á eftir-
mæli Snorra eftir Hákon jarl.
En það bar mest til (að Há-
koni mishepnaðist), að þá var
sú tið komin, at fyrirdæmast
skyldi blótskapurinn og blót-
mennimir..........“
Snyrtileg útgáfa.
Útgáfan er snotur og vel frá
henni gengið. Hún er i skinn-
bandi með gyltri rós frarnan á.
Svo hefi eg séð útgáfu af kvæð-
um Edvards Lembcke. Letrið
skýrt og frágangur er hinn
besti. Prentvillur hefi eg fund-
ið í bókinni, en þær munu vera
mjög fáar. Á fyrra titilblaðinu
eru þetta kölluð „Úrvalsljóð I“,
enda er svo fyrir ætlað af út-
gefandanum, að úrvalsljóð
fleiri skálda fari á eftir. Brot-
ið er handliægt 12 blaða brot.
Þegar greindar- og gáfukona sá
bókina á borðinu hjá mér, sagði
hún alveg ósjálfrátt: „Þessa
bók væri gaman að eiga.“
Indr. Einarsson.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík i stig, íafirði
- 2, Akureyri o, Seyðisfirði o,
Vestmannaeyjum o, Stykkishólmi
o, Blönduósi — i, Raufarhöfn
Grindavík — i, Færeyjum 4,
Julianehaab — 14, Jan Mayen —
3, Angmagsalik — 11. Mestur hiti
hér í gær 3 stig, minstur — 2, Úr-
koma 0,2 mm. Yfirlit: Djúp lægð
fyrir suðaustan land á hægri
hreyfingu norðaustureftir. Horfur:
Suðvesturland, Faxaflói, Breiða-
fjörður: Norðan kaldi. Þurt og
víða bjart veður. Vestfirðir, Norð-
urland: Norðan og norðaustan
kaldi. Sumstaðar éljagangur.
Norðausturland, Austfiröir: Ail-
hvass norðaustan i dag, en hægari
i nótt. Snjókoma. Suðausturland:
Allhvass norðan og sumstaðar
snjókoma í dag, en hægari og létt-
ir til i nótt.
Leikfélagiö
sýnir „Mann og konu'' i kveld
kl, 8 í Iðnó. Aðsókn að leiknum
hin besta. Menn eru beðnir að»
sækja pantaða aðgöngumiða fyrir
kl. 4 dagimi sem leikið er. Annars
verða þeir seldir öðrum.
líeimdallur seldur.
Stjórn sambands ungra sjálf-
stæðismanna hefir nú selt SigurÖi
Kristjánssyni ritstjóra blaðið
„Heimdall," frá áramótum að telja.
Er ungum sjálfstæðismönnum þvi
rekstur og útgáfa blaðsins óvið-
komandi hér eftir.
Vatnsveitan.
Athygli skal vakin á augl.
hæjarverkfræ'ðings, sem birt er
í blaðinu í dag. Er tilkynt i aug-
lýsingu þessari, að framvegis
megi búast við, að lokað verði
fyrir vatnið frá kl. 2—5 e. h. i
þeim hluta austurbæjarins.
sunnan Laugavegar, sem venju-
lega verður ekki fyrir vatns-
skorti. Menn em ámintir um að
taka ekki frá rneira vatn en
nauðsynlegt er.
Pétur Sigurðsson,
Vesturgötu 51 A, verður sex-
tugur í dag.
50 ára
varð þ. 1. jan. ekkjan Jónína
Sigríður Jónsdóttir, til heimilis á
Frakkastíg 22.
„Imperialist,“
breski botnvörpunguriim, sem
áður var gerður út í finim ár frá
Iiafnarfirði, stundar saltfiskveið-
ar hér við land í vetur. Hefir Geir
Zoéga útgerðarmanni í Haínar-
firði verið falið að ráða á hann
íslenska skipshöfn. Hefir hann ráð-
iö ýrir skipstjóra Ólaf Ófeigsson,
bróöur Tryggva Ófeigssonar, sem
áður var með skipið, og ræður
Ólafur 27 íslendinga með sér.
Rangt er það
að vonum, sem Alþýðublaðið
segir í gær, að listi Sjálfstæðis-
flokksins við bæjarstjórnarkosn-
ingamar hljóti að verða E-listi.Uin
jiað hvaða bókstaf listinn skuli
hljóta hefir engin ákvörðun • verið
tekin að svo komnu.
Sjálfsmorðstilraun á Akureyri.
Frá því var sagt í blaðinu í
fyrradag, að stúlka nokkur, átján
ára að aldri, hefði drekt sér í Ák-
ureyrarhöfn. I blaðinu í dag er
birt skeyti um það að önnur stúlka
hefði gert tilraun til þess að
drekkja sér, en verið bjargað á
síðustu stundu. Blaðið heíir feng-
ið nokkru nánari fregnir af þessu
en sagt er frá í skeytinu. Sáu tveir
menn til stúlkunnar er þeir voru á
gangi á Oddeyrartanga. Var hún
þá á leið niður á bryggju. Þettavar
á þriðjudagskveld um kl. 10.
Gengu þeir nú á eftir stúlkunni, en
hún fleygði sér í sjóinn, er hún
koin fram á bryggjusporðinn.
Fengu þeir nú aðstoð manns, sem
var skamt frá á báti, og tókst þeim
að bjarga stúlkunni, eítir nokkra
stund, sennilega um 10 mínútum
eftir að hún varpaði sér í sjóinn.
Hafði hún niist meðvitund, er
henni var náð, en hrestist furöu
fljótt við. Stúlkan var vinstúlka
þeirrar, sem drekti sér.
Hjónaefni.
Þ. 23. des. opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Sigríður Þorvarðs-
dóttir, Framnesveg 4, og Tryggvi
Gunnsteinsson bifreiðarstjóri, Nesi
Seltjarnarneái.
Höfðingleg gjöf.
Danskur verksmiðj ueigandi
Thomas B. Thrige, heíir gefið all-
ar verksmiðjur sínar sjóði, sem á
að vera til styrktar iðju og iðnaði
i landinu. Eignir sjóðsins verða
um 8 miljónir króna.
(Sendiherrafregn).
Minning K. Rasmussens.
Stauning forsætisráðherra
liefir tilkynt, að til íhugunar sé
að skipa nefndir, er hafi með
sér saravinnu um, að minning
Knud Rasmussens landkönnuðs
verði í heiðri haldin. Er i ráði
að stofna sjó'ð í þessu skyni og
verður leitað samslcota til stofn-
unar lians í Danmörku, á ís-
landi og í Færeyjum, og meðal
Dana, sem búsettir eru utan
Danmerkur. Með þessu rnóti
ætti að vera unt að slofna öfl-
ugan sjó'ð, segir i tilkynning-
unni. Forsætisrá'ðherra telur,
að fullnaðaráætlun uni ]>etta
muni verða tilbúin fyrir lok
þessa mánaðar.
(SendilíeiTafrétt).
Trúlofonarhringar
altaf fyrirliggjondi.
Haraldup Hagan.
Simi: 3890. Austurstræti 3.
Kári Sölmundarson
kom frá Englandi í m’orgun.
Max Pemberton
kom af veiðum i morgun með
um 1700 körfur.
Earl Haig,
breskur botnvörpungur, kom
hingað í dág til þess að sækja
fiskilóðs.
G.s. ísland
fer frá Kaupmannahöfn í
áleiöis hiugað til lands.
dag
Fisktökuskip
fór héðan í morgun áleiöis til
Englands og Spánar.
Nýja rafstöðin
á Blönduósi tók til starfa una
áramótiu.
Línuveiðarinn Sigríður
býst á veiðar.
Námskeið Alliance Frangaise.
Kensla byrjar aftur i dag. —
Nokkrir nemendur geta komist að
í 2. og 3. deilcl.
Fimleikaæfingar
Glímufélagsins Ánnami
aftur mánudaginn 8. þ. m.
byrja
Þrettándabrennu
mikla og merkilega ætlar
Knattspyrnufél. Valur að halda
á tþróttavellinum n.k. laugar-
dag. Út af smágrein, sem birt-
ist í Morgunbl. í dag, skal það
tekið fram, að eldiviðargjafir
verða með þökkum þegnar.
Símatilkynningum um gjafir
veitir móttöku Frímann Helga-
son í síma 3905 (ísaga). íþ.
Innbrotsmál.
Tveir Danir, E. Kemp og Kn.
Busk, voru handsama'ðir
snemma i desember, vegna inn-
brots í sumarbústað frú Soffíu
Jacobsen, fyrir ofan Geitháls.
Þrættu þeir fyrir innbrotið og
hafa verið í haldi síðan. I gær
játuðu þeir það á sig og enn-
fremur, að þeir hefði skotið af
byssu, til þess að hræða menn
sem komu að, er þeir voru i eða
við sumarbústaðinn. — Þeir
sitja áfram í varðhaldi og biða
nú dóms.
Þjófnaðar og ábyrgðartrygging-
ar. Vátryggingarsla-ifstofa
Sigfúsar Siglivatssonar, sem
hefir aðalumboð á íslandi fyr
ir „Vátryggingarhlutafélagið
Nye Danske af 1864“ auglýsir.
þjófnaðar og ábyrgðartrygging-
ar i blaðinu í dag. Slíkar trygg-
ingar liafa á undanfömum ár-
um aukist mjög erlendis og eiga
vafalaust eftir að verða algeng-
ar hér.
Næturlæknir
er í nótt Daníel Fjeldsted, Aðal-
stræti 9. Simi 3272.
Næturvörður
verður þessa viku í Reykjavikur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni
Framfarafélag Seltirninga
heldur dansskemtun næstkom-
andi laugardag í Mýrarhúsaskóla
og hefst kl. 9. e. ly Sjá augl.
Bethanía.
Jólatréssamkoma fyrir aldrað
fólk verður suiínud. 7. janúar. kl.
3 e. h. Félagsfólk vitji aðgöngu-
miða fyrir gesti sína á föstud. eft-
ir kl. 4 e. h. í Bethaníu.
SL Dröfn.
Á'ður auglýstur fundur fellur
niður til næsta fimtudags.
K. F. U. M.
A. D. fundur í kveld kl. 8%,
Félagsmenn eru beðnir að fjöl-
menna á þennan fund, sem er
sá fyrsti á árinu.
Hríðarveður
var á Akureyri í morgun.
Útvarpið í dag'.
10,00 Veðurfi-egnir.
12,15 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
Endurtekning frétta o. fl.
19,00 Tónleikar.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Tilkynningar.
19,25 Lesin dagskrá næstu
viku.
Tónleikar.
19,50 Tilkynningar.
20,00 Klukkusláttur.
Fréttir.
20,30 Erindi: Sjálfsinentun og
námsflokkar, I. (Friðrik
Á. Brckkan).
21,00 Tónleikar.
(Útvarpstríóið).
Einsöngur.
(Einar Markan).
Danslög.
Úrkoman
liér á landi árið 1932 var 9% yfir
meðallag á ölln landinu, að því er
segir í ársyfirliti Veðurstofunnar.
Tiltölulega mest var úrkoman á
Vesturlandi og vestan til á Norð-
urlandi. Mest ársúrkoma mældist i
Hveradölum 2685 mm. og þar næst
i Vík í Mýrdal 1991 mm., en minst
365 mm. á Höfn í Bakkafirði. —