Vísir - 06.03.1934, Blaðsíða 3

Vísir - 06.03.1934, Blaðsíða 3
VlSIR Fiskilinur ódýrar og góðar frá Rendall & Coombs. Bridport, England. Aðalumboðsmenn á íslandi: s. Arnason & co. Simi 4452. — Lækjartorgi 1. nðallega var það undir þvi kom- ið, hvort tilraunin hepnaðist, að vindar yrði hagstæðir. Þegar loftfar þetta var komið 1(X)0 ■enskar milur á leið sinni yfir hafið varð það að nauðlenda og var áhöfninni hjargað ai' eim- skipinu Trent. — Wellman átti mikinn þátt í því, að dr. Cook, sem þóttist liafa komist til norð- airpólsins, var afhjúpaður sein svikari. Skrifaði hann bók i þessu skvni, sem vakti mikla at- •hygli. Wellman var m. a. höfundur bókanna „The Aeríal Age“ og „,Tlu: German Republic". Bæjarfréttir o<=>dc Kaupendur Vísis, sem verða fyrir vanskilpm á blaðinu, eru vinsamlegast beðn- ir að gera afgreiðslunni aðv"rt þegar í stað. — Símar 3400 og 4578. — V eðrið í morgun: Frost um land alt. 1 Reykja- vík 2 stig, ísafirSi 4, Akureyri 2, SeyðisfirSi 4, Vestmantiaeyjum 4, Stykkjshólmi 2, Blönduósi 2, Hól- nm í Hornafirði 3, Grindavík 3. Kæreyjum o, Julianehaab - 3, jan Mayen + 2, Angmaslalik —- 13, Hjaltland + 1, Tynemouth -f- 4. Mestur liiti hér í gær — o stig, minstur — 5 stig. Sólskin í gær 4,5 st. Yfirlit: LægS fyrir austan tsland og önnur viS vesturströnd Grænlands. Horfur: SuSvestur- iand, Faxaflói: Noröan kaldi. Bjartviöri. Breiðafjöröur, Vest- firöir: Ilæg noröanátt. Víðast hjartviöri. Norðurland, norðaust- urland, Austfirðir: Minkandi norð- anátt og batnandi v.eður. Suðaust- i.rland: Stinningskaldi á norðan. Bjartviðri. F östuguðsþjónusta i fríkirkjunni annað kveld kl. Sþz. Síra Árni Sigtirðsson. Starfsmenn Landsbankans. Nokkurar breytingar hafa verið gerðar á starfsmannahaldi Landshankans, og mun hér vera um hráðahirgðai*áðstafanir að ræða. Hilmar Stefánsson, úthús- stjóri á Selfossi, verður aðalfé- hirðir fyrst um sinn, en Guð- mundur Guðmundsson hefir fengið lausn frá aðalféhirðis- störfum um stundarsakir. Skift hefir og verið um starfsmenn í utbúinu á Klapparstig. Mun Haukur Vigfússon verða starfs- maður þar, en Ingvar Sigurðs- son tekur við starfi í aðalbank- anum. Þú hefir verið skift um aðstoðargjaldkera aðalféhirðis og gegna þeir öðrum störfum, á meðan rannsókn stendur yfir út af seðlalivarfinu. — Rann- sókn í því máli heldur enn á- fram, en ekkert hefir enn upp- iýst í þvi, sem leilt hafi grun að nokkurum einstökum starfs- manni eða orðið til upplýsingar um það með hverjuin hætti peningamir hafi horfið. Súgandafjarðarbáturinn, sem frá var sagt i gær, náði landi lieilu og höldnu. Skip Eimskipafélagsins. Gullíoss kom til Leith i gær. Goðafoss er í Hull. Brúarfoss var í morgun á leið til Patreksfjarðar frá Flatey. Dettifoss fer annað kveld áleiðis til Hull og Hamborg- ar. Lagarfoss cr í Leith. Selfoss fór frá Aberdeen í gær áleiöis til Hull og Andwerpen. H af narf jar ð ar-to gar amir. Sviði kom af veiðum á sunnu- dag með 52 smálestir af þorski. — Hafði verið að veiðum 15 ciaga. Surprise kom og af veið- unr eftir 9 daga útivist mcð 43 smál. upsa og 33 smál. af þorski. E.s. Esja •er væntanleg í kveld kl. 9. Suðurlandspóstur er væntanlegur i dag'. E.s. Lyra kom frá útlöndum í dag. Ctvarpstruiíanir. Engar útvarpsfréttir heyrðust i gær frá neinum erlendum út- varpsstöðvum, sem stöðin hérna er vön að hlusta á. Finnbogi Theodórs var meðal farþega á Brúarfossi norður á sunnudagskveld. Meyjaskemman verðúr leikin annað kveld i íjórtánda sinn. Þessari skemtilegu ójrerettu hcfir verið tekið fram- úrskarandi vel. enda altaf húsfyll- ir. Háskólafyrirlestur Henri Boissin verður kl. 8 í kveld stundvíslegá. Gengið í dag. Sterlingspund . Dollar ......... 100 ríkismörk þýsk — frankar, frakkn — belgur ...... — frankar, svissn — lírur........ — mörk, finsk — pesetar .... — gyllini ..... —■ tékkósl. kr. — sænskar kr. — norskar kr. — danskar kr. Kr. 22.15 4.37% 172.80 28.87 101.90 141.35 38.15 9.93 60.13 294.28 18.47 114.41 111.44 100.00 Gullverð ísl. krónu er nú 52.50, miðað viö frakkn. franka. Pétur Á. Jónsson heldur hljómleika í Gamla Bíó v kveld kl. yYz og hefir hann eins og ávalt vandað vel til söngskrár- innar. M. a. env á henni lög eftir Strauss, Schumann, Brahms og Puccini. — Aðsókn að hljómleik- um P. Á. J. í vetur var góð og' verður væntanlega fjölment á hljómleikum hans í kveld. Skriftarkensla. Þeir eru vafalaust orðnlr nokk- uð margjr, sem notið hafa skrift- arkenslu frú Guðrúnar Geirsdótt- ur. Hún hefir nú kent skrift í vet- ur og undanfarna vetur og árang- urinn hefir orðið ágætur. Til henn- ar hefir komið fólk, sem hefir niátt heita óskrifandi með öllu, en lag- ast mjög mikið og orðið sæmilega skrifandi á ótrúlega skömmum tima. Hér i bæ er fjöldi af ungu fólki, sem skrifar raunalega illa, þrátt fyrir alla skólamentunina, og ætti það vissulega að nota tæki- færið og láta bæta úr þessu eftir föngum. Góður skrifari gengur að öðru jöfnu fyrir þeim, sem ekki geta heitið skrifandi, en auk þess ætti það að vera metnaður hverj- um manni og hverri konu, að geta skrifað greinilega og læsilega hönd. Klæðaverslun og saumastofa Andersen og Lauth, Austurstræti 6, heíir ráðið til sín erlendan verkstjóra, G. Len- ander að nafni, og hefir hann góða reynslu í starfsgrein sinni, því að hann hefir unnið á 1. flokks saumastofum í ýmsum stórborgum. Sjá augl. i blaðinu i gær. Sendisveinadeild Merkúrs heldur fund í kveld í fundarsaln- um i Ingólfshvoli. Verða til um- ræðu ýms mikilsvarðandi mál og er skorað á alla félaga að mæta. Þeir sendisveinar, sem vilja gerast félagar SDM eru beðnir að koma laust fyrir fundarbyrjun. Fund- urinn hefst kl. 8J4>. Árnesirígamót verður haldið á föstudaginn kemur að Hótel Borg og liefst með horðlialdi kl. — Til skemtunar verða ræður, söng- ur og dans og mun þar verða fjölment og skemtilegt, svo sem venja cr á Árnesingamótum Aðgöngumiðar kosta 6 kr. og fást hjá Guðjóni á Hverfisgötu 50, i Matardeildinni á Laugaveg 42, í prentsm. Acta og á Ilvcrf- isgötu 85. Ér vissara að tryggja sér miða tímanlega, því aðsókn er að jafnaði mikil. A. S. B. (Félag afgreiðslustúlkna 1 hrauða- og mjólkursölubúðum) hefir afmælisskemtun sína i K.R.-húsinu, uppi, á miðviku daginn næstk. kl. 8Vfc. Verður þar margt til -skemtunar, svo sem kaffisamdrykkja, söngur og dans. Appolló-klúbburinn heldur dansleik n. k. laugardag, 10. mars. Nánara auglýst síðar hér í blaðinu. U. M. F. Velvakandi heldur fund á Barónsstíg 65 i kvöld. Útskurðarnámskeið verður á undan fundinum. Kvennadeild S. V. F. í. heldur fund í Oddfellow-húsinu annað kveld kl. 8J-4. ,Líkn.“ Aðalfundur verður haldinn í Hjúkmnarfélaginu Líkn í Odd- fellowhúsinu, annað kveld kl. 9. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Ráðleggingarstöð fyrir barnshafandi konur á Bárugötu 2 er opin fyrsta þriðju- dag í hverjum mánuði frá kl. 3—4. Næturiæknir er í nótt Bragi Ólafssou, Ljós- vallagötu 10. Sími 2274. Nætur- vörður er i Laugavegsapóteki og Ingólfsapóteki. Kvikmyndahúsin. Gamla Bió sýnir í fyrsta sinn í kvöld kvikmyndina „Erfða- skrá dr. Mabúse" og er það leynilögreglumynd í 15 þáttum, eftir Tlieu v. Harbou. — Töku ÚTSALA stendur nú yfir í útbúum okkar á Laugavegi og í Hafnarfirði. Eru þar allskonar vörur á boSstólum, bæði METRAVÖRUR og FATNAÐUR fyrir dömur, herra og börn. Alt með óheyrilega lágu verði. vfmnnm piiiiimniNiiiiiinniHiiiNiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiniHiHi [ Seinasti dagur | sj= útsölunnar er á morgun og því seinasta tæki- jE 55 færið til þess að fá sér karlmanna og unglinga- Es = föt o. fl. fyrir hálfvirði.----- | Ásg. G. Gonnlangsson & Co. | Austurstræti 1. liiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiniimiiiimiiiiiimmimiiiiii Fyrsta fl. sveskjur fást á Hverfisgötu 50 í Verslun Guðjdns Jonssonar. Úrralskartöflor í poknm og lansri vigt. Versi. Vísir. myndarinnar annaðist Fritz Long, en hann hefir séð um gerð ýmissa frægra kvikm., svo sem Völsunganna, „Metropolis“, „M“ o. fl. Aðalhlutverk leika Rud. Klein-Rogge, Gustav Diesel o. fl. •— Nýja Bió sýnir líka leyni- lögreglumynd. Er það frakk- nesk tal -og hljómmynd og ger- isl í skuggahverfum, skemti- stöðum og lögreglustöðvum Frakklands. Aðallilutverk leika André Luguet, Marcelle Romée og Jean Gabin. — Einnig er sýnd aukamynd: „Rirnir og bý- flugur“, Til Hallgrímskirkju í Saurbæ. Afhent af Jóh. Magnússyni: Áheit frá S. V. kr. 5,00. — Kærar þakkir. — 5. mars '34. Einar Thorlacius. Heimatrúboð leikmanna Vatnsstíg 3. Sarnkoi’fta í kveld ki. 8. —• Allir velkomnir. Útvarpið í kveld: 19,00 Tónleikar. 19.10 Veður- fregnir. —• Tilkynningar. 19,25 Tónleikar. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Erindi: Menningar- gildi blaða (Guðm. Finnbogason). 21,00 Tónleikar: Celló-sóló (Þór- hallur Árnason). 21.15 Yfirlit um fjárhag ríkissjóðs 1933. Ásgeir Ásgeirsson forsætisráðherra. Stúika óskast í vist, Að eins tvent í heimili. Upp- lýsingar á Njarðargötu 39, ldL 12—1. Agætis taða frá Svalbarðseyri við Eyjafjörð, fæst keypt, ef un) semst. Sími 4001. er suöusvikkulað- iö sem færustw matreiðslukonur þessa lands hafa gefið sín BESTU MEÐMÆLI. Hitt og þetta* Framleiðsla köfnunarefnis- áburðar í Frakklandi. Frakkar hafa að undanförnte lagl mikla áherslu á að draga úr innflutningi á tilbúnum áburtfi. og var skipuð sérstök nefnd, sem hafði með höndum að at- liuga hvernig auka mætti inn- lenda köfn u narefnisframleiðsl*. Samkvænil fyrstu niðurstöðum nefndarinnar var ráðgert, ai innflutningnr 65.000 smálesta S yfirstandandi ári mundi nægjít, en nú hefir komið í Ijós, vegna þess að innanlandsframleiðsla* hefir ekki aukist, eins og gert var ráð fyrir, að leyfa þarf in«- flutning 150.(X)0 smálesta. Inn- flutningnrinn var úður að mei- altali um 300.000 smál. á ári.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.