Vísir - 06.03.1934, Page 4
VISIR
MILDAR OG ILMANDl
TEOfANI
Ciaareltur
20stkI-25
Fast* hvarvel:
na
Alt vcrður spegilfagurt sent
tfgaU er með fægileginum „Fjallkonan*'.
Efnagerð Reykjavikut
hemlsh verksmiðja.
tJ tvarpsfrétti p.
London, kl. 22.15. 5 mars. FÚ.
Bretar og at'vopnunarmálin.
Enski utaríkismálaráðherr-
ann var spurður að því á þingi
i dag, hvað afvopnunarmálun-
tim liði. Hann svaraði því, að
ekki væri timabært að láta neitt
uppi um það, fyr en stjómin
hefði tekið til athugunar skýrsl-
nr Anthony Eden um för lians
til Parísar, Berlinar og Róma-
horgar, til þess að ræða við
stjórnarformenn Frakka, Þjóð-
verja og Itala um bresku tillög-
m'nar.
V erslunar-hrekkur.
Japanar hafa undanfarið gert
talsvert að þvi, að stimpla jap-
anskar vörur með breskum
vörumerkjum, og hefir enska
sendiherranum í Tokio verið
falið að mótmæla þessu athæfi
janpanskra framleiðenda.
Staviski-hneykslið.
1 Frakklandi er enn mikið
rætt um morð dómarans í Sta-
viski-málinu, og hefir nú kom-
ið fram ungur maður sem þyk-
ist geta gefið upplýsingar um
það, hvernig dómarinn hafi
verið drepinn, en maður þessi á
heima nálægt staðnum þar sem
líkið fanst. Þá á líka að hafa
komið í ljós, að samsæri hafi
verið gert um að drepa þennan
mann, og fleiri sem við rann-
sókn Stáviski-málsins eru riðn-
ir, og að dómarinn hefi verið
drepinn mcð eitri.
Fjöldi miðla í Frakklandi
hefir boðist til áð gefa mikils-
varðandi upplýsingar um morð-
ið og morðingjana.
Berlín, kl. 8. 6. mars. FÚ.
Þjóðverjar og utanríkismálin.
Dr. Goebbels hefir átt tal við
fréttarilara franska blaðsins
„Le Matin“ um stefnu þýsku
stjómarinnar i utanríkismál-
um, sér í lagi gagnvart Frakk-
landi. I viðtali þessu lagði dr.
Gofebbels mikla áherslu á það,
að það væri einlægur vilji nú-
verandi stjórnar í Þýskalandi,
að binda enda á hinn aldalanga
f jandskap milli Frakka og Þjóð-
verja. Ennfremur fullyrti hann,
að kviksögur, sem birtar hafa
verið í erlendum blöðum um
megnt ósamlyndi innan stjórn-
arinnar, væri á engum rökum
reistar.
Gyðingaofsóknir.
Dr. Goebbels hefir sent um-
burðarbréf til landsstjórnanna
innan Þýskalands, og kveðst
Pappírsvðror
og ritföng:
csm>-
liann hafa orðið var við, áð leik-
arar af Gyðingaættum, sem
reknir höfðu verið úr landi, eða
flúið land, séu nú aftur famir 1
að koma fram opinberlega á
leikhúsum og fjöllistahúsum.
Leggur Dr. Goebbels ríkt á við
landsstjórnirnar, að banna
þessum mönnum að koma fram
opinberlega.
ítalskir fjallgöngumenn klífa
hæsta tind Suður-Ameríku.
Flokkur ítalskra fjallgöngu-
manna úr „Italska Alpaklúbbn-
um“ eru komnir til Suður-Ame-
ríku. Ætla þeir að klífa Acon-
cagua, hæsta tind i Suður-Ame-
ríku. Tindurinn er 7035 m. liár.
Nýjar námur fundnar.
Miklar og auSugar málmæSar
hafa fundist í jörS nálægt Sverd-
lovsk í Uralfjöllum og nálægt
Askhabad, m. a. æSar auSugar af
kopar og zinki.
Ávextii*
Sveskjur, rúsinur, aprikósur,
eph, ný, appelsínur, frá 10 aura
stykkið.
PÁLL HALLBJÖRNS
Laugaveg 55. Sími 3448.
KSOOt >COOOO« GOOOÍÍOOÍÍOÍÍOOÍKX
Rakvéiar.
Verð kr.:
1.50.
1.75.
2.50 (ferðavélar í vestisvasa).
Sportvöruhús Reykjavíkur.
>0005ÍOOOOÍXÍOOOOÍ >004 KKÍOOOOt
| TAPAÐ - fundið^
Handvagn
hefir tapast. Verði einhver
hans var, óskast það tilkynt
Hf. Efnagerð Reykjavíkur.
Svört læða, mállaus, tapaðist
frá Grundarstíg 4 fyrir 1 Vi viku.
Vinsamlegast skilist þangað. —
(108
Lyklabudda hefir tapast fyr-
ir nokkrum dögum. A. v. á. (100
min er i Austurstræti 3.
Haraldup Hagan.
Simi: 3890.
P' TBhúsnæðí
Rúmgott forstofuherbergi
óskast til leigu. Tilboð, merkt:
„Starfsamur“, sendist Vísi. (98
Lítið forstofuherbergi til
leigu, með eða án húsgagna.
Verð 20 kr. Njálsgötu 54. (97
3 herbergi og eldliús óskast 14.
mai. — Tilboð seudist til afgr.
blaðsins, merkt: „Vélstjóri“. (94 j
Herbergi óskast með öllmn !
nútíma þægindum, helst i I
Garðastræti eða nágrenni. Mað- :
ur i fastri stöðu. Tilboð, merkt:
„Garðastræti“, sendist Vísi fyr-
ir fimtudagskvöld. (109
íbúð í Vesturbænum, 2—3
herbergi og eldliús, óskast 14.
mai. Þrent fullorðið í heimili.
Tilboð, merkt: „55“, sendist
Vísi fyrir 11. þ. m. (106
Tvibýlis ibúð vanlar 14. maí,
3—4 herbergi og eldhús. Fátt í
heimili. Ábyggileg greiðsla. Til-
boð um leigu og stað leggist inn
á afgreiðslu Vísis fyrir 20. þ. m.,
merkt: „Hentugt". (103
Herbergi til leigu á Stýri-
mannastíg 11, uppi. Uppl. í sima
2355. (102
KENSLA
Kenni að mála á silki, flauel
og klæði. — Sigríður Erlends,
Þingholtsstræti 5. (93
Brynjólfur Þorlákssön kennir á
Orgel-Hannonium og stillir píano.
Ljósvallagötu 18. Sími 2918. (297
I KAUPSKAPUR
3.50 — 3.75 — 4.00 — 4.50 —
5.00 — 5.50 og meira kosta nýj-
ustu peysurnar.
8.00 — 10.00 — 12.00 — 15.00
— 18.00 — 20.00 og meira kosta
kjólamir í
NINON
Austurstræti 12, H. Opið 2—7.
Fasteignir: Steinhús, 3 íhúð-
ir. Lág útborgun. 2 lítil timbur-
hús i Austurbænum með góð-
um kjörum. Nýviðgert timbur-
hús í Austurbænum. Nýtísku
steinhús á mjög góðum stað
með ágætum lánurn. — Fjöldi
annara húseigna, jarðir og býli,
Fasteignir teknar í umboðssöiu.
— Húsnæðisskrifstofa Reykja-
víkur, Aðalstræti 8. (96
Orgel, með sérstöku tækifær-
isverði, til sölu nú þegar. UppL
gefur afgr. Vísis. (90
I dag byrjar útsala lijá okk-
ur á öllum vörum. Mörg falleg
kjólatau og flauel. Tvistur frá
1 kr. metrinn, peysur og vesti,
fyrir dömur og herra. Gefinn
25—30% af öllu. — Prjóna- og
Saumastofan, Laugaveg 33. (82
Kolaofnar til sölu á Nönnu-
götu 4. (110
VÍNNA
Reglulega rösk og duglcg
stúlka, vön eldliúsverkum og
matartilbúningi, getur fengið
stöðu frá 15. þ. m. Umsókn, á-
samt meðmælum, leggist inn á
afgr. Vísis fyrir laugardags-
kvöld næstkomandi, merkt: ■—
„Ábyggileg“. (95
Stúlka óskast í vist. Uppl. á
Fríkirkjuvegi 3. Sími 3227. (92
Stúlka óskast á fáment heim-
ili. Uppl. á Laufásveg 35, neðri
hæð. (107
Stúlka óskast um tíma vegna
forfalla annarar. Fjölnisveg 6.
niðri. (105-
Tveir skrifstofumenn óska
eftir góðri þjónustu. — Tilboð,
merkt: „Eg hálfstífa", leggist
inn á afgr. Vísis. (104
Stúlka óskast strax, vegna
veikinda annarar. Jessen, Öldu-
götu 15. (99
Stúlka óskast nú þegar í vist.
végna veikinda annarar, á heim-
ili síra Friðriks Hallgrímsson-
ar, Skállioltsstig 2. (111
I TILKYNNING
I. O. G. T.
Stigstúka Reykjavíkur. Aðal-
fundur miðvikudag 7. mai's,
kl. 8y2. Erindi (stórtemplar
o. fl.). (101
FÉLAGSPRENTSMIÐJ AN„
MUNAÐARLEYSINGI.
nægja. Eg geymdi mér aö lesa bréfiS þangaö til eg var
gengin til sængur um kveldiö.
Bréfiö var á þessa leiö: „Ef J. E. er eins fær í starfi
sínu, eins og auglýsingin í — blaöinu segir, og getur
sýnt viðunandi meömæli, mun hún geta fengiö stööu, sem
kenslukona fyrir tíu ára gamla stúlku. Launin eru fimm-
hundruð krónur urn árið. Þess er óskað, að J. E. sendi
meðinæli og frekari upplýsingar til frú Fairfax, Thorn-
fíeld, Millcote."
Eg athugaði bréfiö nákvæmlega. Kona haföi ritað hréf-
iö og bar það þess vott, að hún væri aldurhnigin, því aö
hún var dálítið skjálfhend. En auösætt þótti mér, að hréf-
ið væri rítað af mentaðri konu og varð eg því mjög
fegin, því að mér hefði fallið það verst af öllu, að þurfa
að vinna hjá siðlausu og ómentuðufólki.Ogmérþóttimjög
vænt um, að kona sú, er ritað hafði bréfið, virtist vera
gömul. Frú Fairfax! ,Eg gat séð hana í anda. Eg hugs-
aði mér að hún væri fínleg kona í svörtum kjól, fremur
fálát en kurteis í viðmóti, og fyrirmynd að höfðings-
skap og prúðri framgöngu. — Thornfield! Eg gat þess
til, að það væri höll hennar, sem bæri þetta nafu. Mill-
cote! — Eghugsaðimigumog komst að þeirriniðurstöðu, ‘
að Millcote myndi vera rniklu nær Lundúnaborg, en
staður sá, er eg kallaði nú heimili rnitt. Mér þótti gott
að vita, að svo væri. Mig langaði til að dveljast þar, sem
mannkvæmt væri og nokkur umferð. Eg vissi að Mill-
cote var verksmiðjuhorg allstór og að hún væri bygð á
bökkunum á A. — „Ekki er nú æskilegt, að vera í nánd
við kolareyk og stærðar-reykháfa,“ hugsaði eg. „En
vonandi liggur Thornfield góðan spöl frá horginni".
Daginn eftir átti eg strax tal við forstöðukonu skól-
ans. Eg skýrði henni frá því, að eg ætti þess kost, að fá
góða stöðu, og bað hana að spyrja hr. Brocklehurst eða
einhvern af skólanefndarmönnunum, hvort þeir myndu
ekki vilja mæla með mér sem kenslukonu. Forstöðukona
skólans talaði degi síðar við hr. Brocklehurst, en hann
hélt því fram, að sjálfsagt væri að skrifa frú Reed, þar
sem hún væri mér nákomin, og leita samþykkis hennar
um það, hvort eg mætti taka við kennarastöðunni. Frú
Reed var þegar skrifað bréf í tilefni af þessu og hún
svaraði um hæl, „að eg mætti starfa hvað sem eg vildi.
Ilenni stæði alveg á sama hvað eg tæki mér fyrir hend-
ur.“ Skólanefndinni var aflient bréfið til athugunar og að
lokuin var eg leyst frá starfa mínum. Eg fékk jafnframt
meðmæli fyrir ágæta hegðun, hæði sem nemandi og
kennari.
Eg tók samrit af meðmælunum og sendi þau til frú
Fairfax. Eg fekk svar frá henni um hæl, og kvaðst hún
vænta min að fjórtán dögum liðnum.
Eg var önnum kafin næstu tvær vikurnar við að búa
mig til brottferðar. Eg átti ekki mikiö af fatnaði. Það
hæfði hvorki kröfum mínum né stöðu í mannfélaginu..
að berast mikiö á í klæðaburði. Siðasta daginn koin eg
því, sem eg átti, fyrir í ferðakoffortinu mínu. Það var
sama kofíortið, sem eg haði haft með mér frá Gates-
head.
Dagimi eftir var eg mjög snemma á fótum. Eg var
eirðarlaus og í mikilli geðshræringu. Eg var i þann
veginn að hyrja nýtt líf!
Eg gekk um gólf í skólastofunni, þvi að eg gat ekki
setið k}>r nokkura stund. Kom þá ein af þerpunum Inn í
stofuna til mín. „Ungfrú!“ mælti hún. „Það er einhver
frammi í fordyrinu, sem óskar að hafa tal af yður.“
„Það er liklega ökumaðurinn, sem er kominn til að
. sækja koffortið mitt,“ hugsaði eg með mér. Eg lagði
þegar á stað ofan í fordyrið, og hljóp niður stigann í
flýti. Mér kom ekki einu sinni til hugar, að spyrja þern-
una um þann, sem kominn væri. Jafnskjótt og eg kom
fram í fordyrið heyrði eg rödd sem sagði: „Þarna er
hún komin! Hún er sjálfri sér lík, blessunin! Það er
svei mér vandalaust að þekkja hana aftur.“ — Kona
nokkur stóð andspænis mér. Hún var snoturlega og’
þokkalega húin. Fremur holdug, svarteyg, svarthærð og
góðlátleg á svip.
„Þekki þér mig?“ mælti hún og brosti við, en inér
tanst, sem eg kannaðist viö þetta hros og hefði séð það
einhverntíma fyrir löngu.