Vísir - 20.04.1934, Qupperneq 4
VlSIR
og miklu minna um veikindi í sauð-
ié nú en í fyrra.
Prá Reykholti.
19. april. F.Ú.
Reykholtsskóla var slitiÖ í gær.
,Við þá athöfn voru auk skólanem-
anda nokkrir gestir, boðnir til
mannfagnaÖar.
Samkoman hófst me'Ö ]>ví, að
Kristleifur Þorsteinsson bóndi á
Stóra-Kroppi, flutti erindi sem
hann nefndi: Mannskaðinn rnikli
1884. Þvi næst sungu nemendur
skólans nokkur lög undir stjórn
söngkennara skólans, Bjarna bónda
á Skáney. Þá flutti skólastjóri er-
indi og sagði með því skólanum
slitið.
Heilbrigði var í besta lagi í skól-
anum í vetur.
Fljótastur sundmaður varð Guð-
jón Ingimundarson, synti hann á
bringusundi 2000 metra á 40 min.
Útvai»psfréttii».
—o---
LRP. í morgun. FÚ.
Járn- og stáliðnaður Breta.
Samband járn- og stálframieið-
anda hefir á f jölmennum aukafundi
sínum tekið ákvörðun um framtíð-
arskipúlag, sem formaður sam-
banidsins, James Henderson, telur
þá mikilverðustu, sem gerð hafi
verið í sögu þess. Fundurinn sam-
þykti sem sé að komið skyldi á sér-
stakri miðstjórn fyrir allan járn- og
stáliðnaðinn í Bretlandi og skuli
hún hafa vakl til þess að taka ýms-
ar mikilsverðar ályktanir um fratn-
leiðslu iðngreinanna og sölu afurð-
anna, til þess að efla framleiðsluna.
Hendetson sagði, að stáliðnaður
Breta væri nú orðinn hlutfallslega
meiri en samskonar iðnaður nokk-
urrar annarar þjóðar.
London í morgun. FÚ.
Fjárlög Canada.
Fjárlög Canada voru lögð fyrir
málstofu þingsins í Ottawa í dag.
Tekjuhallinn er nú að eins 29 milj.
dollara, en var 43 milj. i fyrra. Við-
skiftavelta síðastliðins árs var 130
miljónum meiri en velta ársins þar
á undan. Síðastliðið ár hefir verið
uppgangsár og endurreisnar, sagði
fjármálaráðherrann i framsögu-
ræðu sinni. „Batinn er ótviræður
og meiri en margir okkar héldu að
hann gæti orði'S.“
LRP. i morgun. FÚ.
Járnbrautir bera sig ekki.
Franska stjórnin samþykti í dag
einróma tillögu frá Flandin, ráð-
herra opinberra verka, um nýtt
skipulag í járnbrautarmálum Frakk-
lands. Samkvæmt þessunt nýju á-
20stk 1*25
MILDAR OG ILMANDI
TEOrANI
Qð
rett
ur
nvarvecna
t,
Mest úrval — lægst verð.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
! Altaf til:
ö
cs ísl. smjör.
90
rt Hnoðaður mör.
* og Tólg.
S
■S Páll Hallbjörns.
•gj, Laugaveg 55. Sími 3448.
ætlunum á að loka ýmsum járn-
brautarlínum á minniháttar sant-
gönguleiðum, alls um 1650 mílur.
Með þessu er gert ráð fyrir því, að
takast niuni að minka tekjuhalla
járnbrautarmálanna um helming.
Járnbrautarlínur ]jær, sem Iokaðar
verða, á að bæta upp með akbraut-
um.
London í morgun. FÚ.
Póstflug milli Englands og Ástralíu.
A næstkomandi hausti verður
komið á imstflugferðum milli Eng-
lands og Astralíu, þannig, að flug-
vélar verða látnar vera i förum milli
Ástraliu og Indlands, og mæta þær
póstflugvélum frá Englandi þar.
Umferðarslys.
í vikunni eftir páska fórust 117
manns af umferðarslysum i Eng-
landi, og tæplega 4000 meiddust
meira eða minna.
K.F.U.K.
Fundur í kvöld kl. 8%. Síra
Fr. Fr. talar. Alt kvenfólk vel-
komið. — Félagar, fjölmennið
á fyrsla fundinn á sumrinu. —
Pappírsvömr
op ritföng:
| LEIGA I
Húseign Efra-Langholt með landi
og útihúsum er til lelgu, um sölu,
gæti einnig verið að ræða. Uppl.
bjá Þorsteini Þorsteinssyni, Lauga-
veg 52. (736
Peningabudda tapaðist frá versl-
uninni Þingholt, niður að Lífs-
stykkjabúð. Skilist gegn fundar-
launum í verslunina Þingholt. —
(729
I gær tapaðist kvenreiðjakki um
Bergþórugötu að Þórsgötu. Skilist
á Þórsgötu 19, neðstu hæS. (742
Það ráð hefir fundist, og skal
almenningi gefið, að best og ör-
uggast sé að senda fatnað og
annað til hreinsunar og litunar
í Nýju Efnalaugina. Sími 4263.
(747
Stór kringlóttur, gagnsær
hnappur, með grænum steini,
tapaðist frá Túngötu 18 að Hó-
tel ísland í gær. Skilist vinsam-
legast í Hljóðfærahúsið. Sími
3656. (747
Tvær gæsir i óskihun. Uppl. í
sima 2442. (740
4 herbergi og eldhús til leigu.
Uppl. á Laugaveg 40, uppi. (734
Litla ibúS meS öllum þægindum
v.antar mig 14. maí. TilboS óskast
1 síma 2079. Eiríkur Stephensen.
(732
Sólrílc ibú'S 3—4 herbergi og'
eldhús er til leigu 14. maí. Uppl. i
Þingholtsstræti 15, steinhúsiS. —
(727
Nokkrar íbúð.ir til leigu meS öll-
úm þægindum, frá 14. maí. Uppl.
á Laugaveg 56. (726
2 sólrík herbergi og eldhús til
leigu. A. v. á. (724
2 stofur til leigu. Uppl. Grund-
arstíg 12, búSinni. Sími 3247. (723
Látil íbúS til leigu 14. maí, 3 her-
bergi og.eldhús með þægindum í
nýlegu steinhúsi. TilboS sendist
Vísi, merk: „101“ fyrir 22. þ. m.
(738
IbúS óskast, 2 herbergi og eld-
hús, fyrirframgreiSsla. TilboS
merkt: „Tvent í heimili“, sendist
Vísi fyrir laugardagskveld (737
Áður en þér flytjið í nýja
húsnæðið, skulu þér láta hreinsa
eða lita dyra- og gluggatjöld,
fatnað yðar eða annað, sem þarf
þess með, hjá Nýju Efnalaug-
inni. Sími 4263. (746
Sólrík og afar falleg sérinn-
gangs-forstofustofa á Freyju-
götu, með eða án liúsgagna, en
aðgang að baði og síma, fæst
leigð 14. maí. Uppl. gefur S. Ár-
mann. Símar 2400 og 3244. (746
Stórt kjallaraherbergi til leigu
frá 14. mai næstk. Bergstaða-
stræti 67. (745
Lítil íbúð óskast í vesturbæn-
um. Barnlaust fólk. Tilboð legg-
ist á afgr. Vísis fyrir 24. þ. m.,
merkt: „Nói“. (743
Lítið herbergi til leigu fyrir
einlileypa stúlku. Garðastræti 3.
(752
2 lierbergi með sérinngangi til
leigu fyrir einlileypa. Týsgötu 6,
niðri. (751
Sólríkt herbergi til leigu fyr-
ir stúlku. Freyjugötu 30, 3. hæð.
(748
FÉLAGSPRENTSMIÐ J AN.
. 10% afsláttur af öllurn vörum, ef
keypt er fyrir 2 krónur eða tneir,
og borgað um leið. Versl. Esja,
Grettisgötu 2. Sírni 4752. (722.
Vel verkuð taða til sölu í
Tungu á 12 aura kg. (750
Laugaveg 49 fáið þér nýja dí-
vana á 35 kr., 45 og 55 kr., ma-
dressur á 45 og 2ja manna á
65 kr. Dívanskúffur 7 kr. (749'
Haraldur Sveinbjarnarson
selur stimpla í Ford, Clievro-
let, Essex og Plymouth. Útveg-
ar fljótt í önnur merki. (705
Steypuhrærivél ásamt raf-
magnsmótor, er til sölu. Uppl.
Garðastræli 17. Sími 3619. (593
Trillubátur í góðu standi er
lil sölu. Dppl. Garðastræti 17.
Sími 3619. (594
VINNA I
Stúlku vantar nú þegar eða 14.
maí. Framnesveg 14, uppi. (735
Stúlku vantar um mánaðartima.
Uppl. í síma 4749. (731
Vil lána efnilega telpu á niunda
ári, ágæt þar sem eitt barn er. ■—
Uppl. í síma 4178. (73°
Góð stúlka óskast. Uppl. Lind-
árgötu 30. (728
Stúlka óskast strax til 14. maí.
Uppl. í sima 3472. (725
Stúlka sem er vön að sauma káp-
ur eða jakka óskast strax. Valgeir
Kristjánsson, Þingholtsstr. 1. —
(7U
Stúlka vön matartilbúningi ósk-
ast í vist 14. maí til nýgiftra hjóna.
Uppl. á Ljósvallagötu 32, milli
8—10 í kveld. Sími 2194. (739
Stúlka óskast strax i vist um
stuttan tíma. Uppl. lijá Ólafi H.
Jónssyni, Bergstaðastr. 67. (744
Abyggilegui' drengur óskast
til sendiferða. — Uppl. í síma
4988. (753
Leiknir, Hverfisgötu 34, gerir
við skrifstofuvélar allar, sauma-
vélar, grammófóna, reiðhjól og
fleira. — Sími 3459. (253
GBLlSMlBI ltSTAYfsí SILFÖRSMÍfil LETURGRÖFTUR UlflfiERfilR I
StokaÚSKAR GlSLASON s
MUNAÐARLEYSINGI.
um stund, er hr. Rochester kom þar að. Nam hann stað-
ar og settist á bekk hjá mér, en Adele lék sér við hund-
inn hans, Pilot þann, sem áður er nefndur.
Herra Rochester sagði mér þá, að móðir Adele hefði
verið frönsk að ætterni og söngmær á fjölleikahúsi.
Kvaðst hann hafa verið afskaplega ástfanginn af stúlk-
unni og haft ástæðu til að hakla, að hún elskaði sig
á móti.
„Eg var svo upp með mér af þvi, að hún skyldi unna
niér, að eg keypti handa henni húsbúnað og leigði dýra
íhúð handa henni,“ mælti hann ennfremur. „Eg gaf henni
alt, sem hjarta hennar girntist. Það er skemst af að segja.
að eg hegðaði mér eins og kjáni, ástfanginn og staur-
blindur kjáni, — og bar þau laun úr býtum, sem flón-
unum falla i skaut að jafnaði. Svo var það eitt kveld,
að eg ætlaði að leika mér að því, að komai henni á óvart.
Eg kom heim í íbúðina hennar, en hún var þá ekki
heima. Eg ákvað þá að bíða eftir henni. Það var heitt
í veðri þetta kveld og eg gekk út á veggsvalir íbúð-
arinnar. Tunglið skein glatt. Eg settist í hægindastót
þarna á svölunum, til þess að njóta veðurblíðunnar og'
kveikti mér í vindli, eins og eg geri núna.“
Hann þagnaði og kveikti í vindli.
Upp af vindlinum lagöi bláan reyk, sem ilmaði þægi-
lega.
„Vagn ók eftir götunni og’ nam staðar við húsið. Kon-
an, sem eg tignaði, kom út úr vagninum. Það var alveg
,að mér komið, að kalla til hennar og bjóða henni gott
kveld. En þá sá eg, að hún hafði ekki verið ein á ferð.
Og eg þarf líklega ekki að taka það frarn, að það var
karlmaður, sem var í fylgd með henni. Hafið ])ér nokk-
urntíma fundið til afbrýði, ungfrú Eyre? — Nei, vitan-
legá ekki. Mér hefði átt að vera það Ijóst, að eg þyrfti
ekki að spyrja slíks. — En þér eigið sjálísagt eftir að
reyna hitt og annað. Og sá dagur mun koma, að hið
volduga afl hrifur yður með sér og hugsanirnar þyrlast
í höfðinu á yður eins og laufblað í hringiðu. Þá er tvent
til: Annað það, að þér sogist niður og tortimist —- eða
þá hitt, að hin rnikla hringiða þyrli yður með einhverj-
um hætti úr háskanum og út í lygnan og jafnan straum-
inn. — Og þannig fór mér!“
Hann var svipþungur, er hann mælti þetta. líg kaus
að eyða þessum hugleiðingum hans og mælti hæglátlega:
„Fóruð þér á hurt af svölunum, þegar ungfrú Varens
kom heim?“
Eg bjóst við að eg mundi fá snuprur eða kuldalega
ofanígjöf fyrir dirfskuna, en svo var ekki. þlr. Rochester
vék sér að mér brosandi og mælti:
„Eg var alveg búinn að gleyma Celine! — Það er dá-
lítið undarlegt, að atvikin skuli reka mig til þess að
segja ungri og saklausri stúlku frá ævintýri, sem eg hefi
ratað í með söngmey á fjölleikahúsi! — Eg stóð kyr
úti á svölunum og afbrýðin logaði í hjarta mér. Herberg-
isþerna Celine fylgdi skötuhjúunum inn í stofuna og
kveikti á lampanum fyrir þau. Gat eg þá glögt séð, hver
meðbiðill minn var. Hann var ungur maður, foringi í
hernum, alræmdur fyrir ólifnað og hverskonar slark.
Afbrýði min varð að engu jafnskjótt og eg kendi mann-
inn — og' ást mín slokknaði á samri stundu. Mér varð
þegar ljóst, að kona, sem, gabbaði mig fyrir mann á hans
reki, verðskuldaði ekki ást mína. Og eg fekk megnustu
óbeit á stúlkunni".
Hann þagnaði andartak og mælti því næst:
„Eg stóð kyr þarna á svölunum og hlustaði á hiö
heimskulega og einskisverða léttúðarhjal, sem þeim fór á
niilli. Eg get ekki sagt, að tal þeirra hneykslaði mig, en
mér sárleiddist að hlusta á ])au. — Nafnspjald mitt lá á
borðinu og í tilefni af því beindist samtal þeirra að mér.:
Celine virtist ekki eiga nokkurt vingjarnlegt orð til i
eigu sinni, er nota mætti um mig. — Hún hafði mig að'
háði og sixitti. — Þá beið eg ekki boðanna. Eg gekk í
stofuna og' skipaði Celine að verða þegar á brott úr min-
um húsum, og jafnframt skoraði eg elskhuga hennar á
hólm. Celine tók þessu eins og vænta mátti af kvenmanni
á hennar reki. Hún grét eins og vitlaus óhemja, fleygði
sér á gólfið í uppgerðar krampaflogum og hegðaði
sér eins og versta flagð. En eg Iét mig það eng.u skifta.