Vísir - 22.04.1934, Page 3
VlSIR
nijóih
og
Mj ólkurafnrdir
Frá
#
Mjólkurtélagi Reykjavikur
er |)að aí' íslenskum fæðutegundum, sem bestar eru og fullkomnastar. Engar fæðutegundir eru hér íáan-
legar, hvorki innlendar né erlendar, sem jafnast á við
Stassanisernðu nýmjólkina
Mjólkurfélag'i Reykj avíknr.
Reykvikingar!
Byrjið á þyí um þessa helgi að drekka STASSANISEKAÐA NÝMJÚLK í stað kaffis og annara erlendra
drykkja. Drekkið stassaniseraða nýmjólk í heimahúsum og drekkið hana í veitingahúsum. Drekkið hana
kvölds og morgna og um miðjan daginn.
STASSANISERAÐA NÝMJÖLKIN á að vera þjóðardrykkur íslendinga. Hún á að vera sá drykkur, sem gef-
ur ungum og gömlum hreysti og vellíðan.
Byrjid í dag
að drekka STASSANISERAÐA NÝMJÓLK í stað annara drykkja. Athugið svo í vikulokin hver áhrif það
hefir liaft á vellíðan yðar og lundarfar.
Húsixi.ædiix*,
bjóðið gestum yðar þessa viku STASSANISERAÐA NÝMJÖLK — heita eða kalda — í stað annara drykkja
sem þér eruð vanar að bjóða gestum yðar. Gætið þess að hafa altaf STASSANISERAÐA NÝMJÖLK á heim
ilinu, því gestir yðar ætlast til þess að ÞER bjóðið þeim að drekka liana. ....
Gefið börnunumSTASSANISERAÐA NÝMJÓLK þegar þau eru þyrst og biðja um svaladrykk. Bjóðið þeim
þess utan STASSANISERAÐA NÝMJÓLK í hvert skifti sem þér viljið gera þeim eitthvað gott eða gleðja
þau. .. iJU&iAI
í þennan hátt verðnr íslenska vikan sæluvika Reykvíkinga.
Mjólkurfélag Reykjavíkur
Sími 1160.
liefir ráögert. Sá, er þessar línur
ritar, vildi hvetja söngvarann til
þess a'ð endurtaka söngskemtun
sína a. m. k. einu sinni, svo fram-
arlega sem hann getur því viö
komið. R.
Kestamannafélagið Fákur
heldur fund mánudaginn næst-
komandi í Oddfellowhöllinni uppi.
Til umræðu em næstu kappreiðaiv
iÞakkir.
Vér vottum hér með alúðar-
þakkir öllum, bæði félögum og
einstaklingum, sem studdu aö því,
að árangur hátíðáhalda bamadags-
ans varð svo góður, sem raun ber
vitni um.
Barnadagsnefndin.
Fundur í Hafnarfirði
er auglýstur í blaðinu í dag.
Tilkynning.
í gær, laugardag 21, apríl, var
•dregið í happdrætti fennisdeildar
Knattspyrnufélags Reykjavíkur.
Upp kom nr. 227, Vinningsins
óskast vitjað til Sveinbjarnar
Árnasonar hjá Haraldi Árnasyni.
Innflutningurinn í mars.
Fjármálaráðuneytið tilkynnir
FB. 21. apríl: Innflutningurinn í
marsmánuði s. 1. nam kr. 2.979.-
591.00.
Farsóttir og manndauði
i Reykjavik vikuna 1.—7.
april. (I svigum tölur næstu
viku á undan): Hálsbólga 34
(16). Kvefsólt 97 (106). Kvef-
lungnabólga 11 (0). Gigtsótt 1
(0). Iðrakvef 14 (1). Inflú-
ensa 13 (11). Taksótt 2 (0).
Skax-latssótt 6 (3). Hlaupabóla
0 (1). Munnangur 0 (1). Kossa-
geit 7 (0). Stingsótt 2 (0).
Mannslát 12 (6).
Landlæknisski’ifstofan. (FB).
Næturlæknir
er í nótt Bragi Ólafsson. Ljós-
vallagötu 10. Sírni 2274. — Nætur-
vörður í Reykjavíkttr apoteki og
Lyfjabúðinni Iðunni.
Betanía.
Smámeyjadeildin hefir fund í
dag kl. 4 síðdegis, Almenn sant-
koma í kveld kl. 8)4. Páll Sigttrðs-
son talar. Allir velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna
Vatnsstíg 3. Samkomur i dag:
Bænasamkoma ki. 10 f. h. Barna-
samkoma kl. 2 e. h. Almenn sam-
kotna kl. 8 e. h. Allir velkomnir.
Útvarpið í dag:
io,4oVeðurfregmr. n,oo Messa
i Dómkirkjunni (sr. Friðrik Hall-
grímsson. — Ferming). 14,00 ís-
lenska vikan opnuð: — a) Hljóð-
færaleikar á Austurvelli (Lúðra-
sveit Reykjavíkur). — b) Ræða
af svölum Alþingishússins (síra
Þorsteinn Briem, atvinnumálaráð-
herra). — c) Hljóðfæraleikar
Lúðrasveitar Reykjavíkur. 15,00
Miðdcgisútvarp: — a) Erindi:
Hættan við prédikanir (Ragnar E.
Kvaran). —• b) Tónleikar. 18,45
Barnatímí (Helgi Hjörvar). 19,10
Veðurfregnir. — Tónleikar. 19,25
Grammófónn: íslensk lög. 19,50
Tónleikar. 20,00 Klukkusláttur.
Fréttir. 20,30 Upplestur (Guð-
mundur Kamban). 21,00 Grammó-
fóntónleikar: Berlioz: Symphonie
Fantastique. Danslög til kl. 24.
N o r s k a r
loftskeytafregnir.
Oslo 20. apríl. FB.
Tjón af vatnavöxtum.
Flóð hafa valdið miklu tjóni á
ýmsum stöðum í Austur-Noregi.
Þremur brúm hefir flóðið sópað
með sér. en hætt er við að miklu
íleiri brýr eyðileggist. — Við Hör-
sand eyöilagðist járnbrautin á
kafla og er þar stór flokkur verka-
manna við endurlagningu járn-
brautarinnar.
Fjall að klofna?
Héraðsstjórnin í Sogni og
Fjörðum hefir sent ríkisstjórninni
beiðni um að senda rannsókna-
leiðangur upp á fjallið Hornelen.
Hefir myndast stór sprunga ofar-
lega í fjallinu. Telja menn, að
sprungan verði stærri og stærri,
og óttast afleiðingarnar.
Vinna stöðvu'ð.
Hafnarverkamenn i Bergen tóku
þá ákvörðun í gær, er g.s. Bergen-
hus, eign Sameinaða gufuskipa-
félagsins kom til Bergen, að stöðva
upp og útskipun. Skipið kom írá
Kaupmannahöfn. Nefnd frá verka-
mönnum, sem kom á vettvang, var
flutt á lögreglustöðina, og safnað-
ist mikill mannfjöldi fyrir utan
stöðina. Lögreglan ruddi götuna.
ískaikaf mfr
C'
Of ístefllk ski|. <T
í
TILKYNNING
1
Patent Supplement feed ap-
paratus, 4. bls. (10 kröfur). P.
Jóhannsson. (85S
I. O. G. T.
VÍKINGS-FUNDUR anna*
kveld. Fulltrúakosning. Kaffi-
drykkja. Hinn spennandi
Eáningar-sjónleikur og dans
á eftir. (854