Vísir - 22.05.1934, Qupperneq 3
VISIR
Lágmarkshraði 24 sek. Met-
laun 50 kr. — Met: 22,4 sek.,
Móðnir (5. júni 1927).
1. flokkur: — 1. verðl., 40 kr.,
Stjcirni, eigandi Páll Pálssoir,
Hafnarfirði. Tími 24,3 sek. —
2. verðl., 25 kr., lírummi, eig-
andi Björn Hjaltested. Tínii:
24,5 sek.
2. flokkur: —71. verðl., 40 kr.,
Hrollur, eigandi Sigurg. Guð-
varðsson. Tími: 24,8 sek. — 2.
verðl., 25 kr., Léttfeti, eigandi
Jón Þorsteinsson. Tími: 25 sek.
- 3. flokkur: — 1. verðl., 40 kr.,
Neisti, eigandi Sigurb. .í. Jak-
obsson, Kolbeinsstöðum. Tími:
24,5 sek. — 2. verðl., 25 kr.,
Jarpur, eigandi Óli M. ísaks-
:son. Tími: 24,5 sek.
4. flokkur: — 1. verðl., 40 kr.,
Eldur, eigandi Magnús Andrés-
son. Timi: 24,4 sek. — 2. verðl.
skiftust jafnt, þannig: Glói,
eigandi Þorgeir Jónsson. Tími:
24,5 sek., kr. 12,50, og Faxi, eig-
andi Kjartan Ólafsson. Tími:
24,5 sek., kr. 12,50.
5. flokkur: — 1. og 2. verðl.
skiftust jafnt, þannig: Græn-
lendingur, eigandi Jón B. Jóns-
son. Tími: 25,3 sek., kr. 32,50,
og Rauður, eigandi Árni Gunn-
laugsson. Timi: 25,3 sek., kr.
32,50.
Hr'yssuhlaup.
1. og 2. verðlaun skiftust
jianig: Tgra, eigandi Kristján
Pétursson. Tími 25,6 sek. Kr.
32,50. — Rauðka, eigandi .Tón
A. Pétursson. Tími: 25,6 sek.
Kr. 32,50.
Samkvæmt kappreiðaregl-
iinum ber að varpa hlutkesti
uin það, þegar tveir liestar eru
fyrstir og jafnir að marki,
hvor þeirra hljóti veðféð.
Hlaut Rauður veðféð í 5. fl. og
'Týra í hryssuhlaupinu.
Stökkliestar II:
(Hlaupvöllur 350 metrar.
Verðlaun: 1. v'erðl. 50 kr. og
2. verðl. 30 kr. Þó fær enginn
hestur verðlaun, sem er yfir 30
sek. að renna sprettinn. Verð-
laun fyrir ljestan tíma 100 kr.,
lágmarkshraði 28 sek. Metlaun
50 kr. — Met: 26,2 sek., Reykur
20. ágúst 1933).
1. flokkur: — 1. verðl., 50 kr.,
Stjarni, eigandi Páll Pálsson,
Hafnarfirði: Thni: 28,7 sek. —
2. vcrðl., 30 kr., Rrúnn, eigandi
Metúsalem Jóhannsson. Tími:
28,8 sek.
2. flokkur: — 1. verðl., 50 kr.,
Reykur, eigandi Ólafur Þórar-
insson. Thni: 27,3 sek. Þessi
liestur lilaut einnig 100 kr.
verðlaun fyrir bestan thna í
þessu hlaupi. — 2* verðl., 30
kr., Háleggur, eigandi, Ólafur
Þórarinsson. Tími: 28,1 sek.
Dómnefnd skipuðu: Ludvig
C. Magnússon endurskoðandi,
Þorgrímur Guðmundsson kaup-
maður og Guðjón Teiísson full-
trúi.
Eins og áður var getið, fóru
kappreiðarnar vel fram og
skemlu meun sér hið besta.
Frá Norðfirði.
Norðfirði, 18. maí. — FÚ.
Niðurjöfnunarnefnd Norð-
fjarðar liefir lokið störfum.
Tæplega 73 þús. var jafnað nið-
ur á 367 gjaldendur. Hæst út-
svar bera Sigfús Sveinsson,
7500 kr. og Konráð Hjálmars-
son, verslun, 6500 kr.
Afli var tregur hér á Norð-
firði á vetrarverlíðinni, enda
Tslæmar gæftir.
Bæjarfréttir
Veðrið í morgun:
í Reykjavilí 5 stig. ísafirði 3.
Akureyri 5, Skálanesi 6, Vest-
mannaeyjum 4, Sandi 3, Kvígind-
isdal 6, Hesteyri 3, Blönduósi 2,
Siglunesi 3, Grímsey 1, Raufar-
höfn 3, Fagradal 2, Hólum i
Komafirði 4, Reykjanesvita 6.
Mestur hiti hér í gær 9 stig, minst-
ur 1 stig. Sólskin í gær 14,0 st.
Yfirlit: Smálægð við Suðvestur-
land. — Horfur: Suðvesturland,
Faxaflói: Austan og suöaustan-
gola. Skýjað og sumstaðar lítils-
háttar rigning. Breiðafjörður,
Vestfirðir. Norðurland, norðaust-
urland, Austfiröir, suðausturland:
Breytileg átt og hægviðri. Úr-
komulaust og sumstaðar bjartviðri.
Hjúskapur.
Síðast liðinn laugardag voru
gefin saman í hjónaband af síra
Árna Sigurðssyni ungfrú Krist-
jansína Sigriður Sæmundsdóttir
og Páll Magnússon verkamaður.
Heimili þeirra er á Bergstaða-
stræti 33.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss er á leið til landsins.
Væntanlegur hingað annað kveld.
Goöafoss fer vestur og norður ann-
ao kveld. Brúarfoss er á útleið.
Dettifoss kom1 til Hull í gær. Lag-
arfoss er í Kaupmannahöfn. Sel-
foss er á leið frá Leith. Sigrid fór
frá ísafirði í gær áleiðis hingaö.
Höfnin.
Gullfoss kom af veiðum í fyrra-
dag' með lítinn afla. Vöruflutninga-
skip kom hingað í gær. Fer héðan
til Borgarness. Cementsskip kom
i gær.
E.s. Esja
var i rnorgun á leiö til Stykkis-
hólms frá Flatey. Væntanleg hing-
aö í fyrramálið.
Hjónaefni.
N)dega hafa birt trúlofun sína
ungfrú Rannveig Ingimundardótt-
ir, Framnesvegi 16B, og Sigfús
Bjarnason, verslunarmaður, Lauf-
ásvegi 6.
Trúlofun
sína hafa opinberað ungfrú
Torfhildur Baldvinsdóttir og Ól-
afur Björnsson húsgagnasmiður.
Heimdallur,
félag ungra sjálfstæðismanna fór í
gær til Borgarness. Var þar hald-
inn almennur stjórnmálafundur,
þar sem frambjóðandi sjálfstseSis-
manna í Mýrasýslu, Gunnar Thor-
oddsen, hóf umræður, með snjöllu
erindi. ' Aðrir ræðumenn voru
Bjarni Benedikstsson, Sigurður
Jóhannsson, - Guðmundur Bene-
diktsson og Thor Thors. Á fundin-
um voru sjálfstæðismenn í yfir-
gnæfandi meiri hluta. Förin tókst
að öllu hið besta.
68 ára
varð í g-ær Daniel Daníelsson,
dyravörður i stjórnarráðinu. —-
Færðu nokkrir vinir hans honum
málverk að gjöf, af honum sjálfum
á Háfeta sinum.
Vöröur og Heimdallur
halda skmeiginlegan fund í
Varðarhúsinu í kveld oghefsthann
kl. 8y2. I'undarefni: I. Kjörnefnd-
ir félaganna skila af sér störfum.
2. Thor Thors alþm. flytur erindi
um Jijóðfélagsmál. — Félagar sýni
skirteini við- innganginn.
Af veiöuni
kom s. 1. laugardag (til Hafn-
arfjarðar) Andri með 55 lifrarföt,
Júní með 48 og Rán með 40.
Kári Sigurjónsson
alþm. var meðal ’farþega á g.s.
Islandi norður, s. 1. laugardag.
E.s. Goðafoss
kom hingað i fyrradag frá út-
löndum. Á meðal farjiega var Jón
Þorláksson borgarstjóri.
Bruggun að Selalæk. . .
Guðmundur Þorvarðsson frá
Vindási í Rangárvallasýslu hefir
meðgengið að hafa í félagi við
Helga Jónsson bónda á Selalæk
bruggað áfengi til sölu. — Fór
logreglan tvívegis i rannsókna-
skyni að Selalæk og fann í siðara
skiftið jarðhús í lækjarbakka
og mun það hafa verið notað til
bruggunar. í siki skamt frá fund-
ust tunnur, sem notaðar voru við
gerjun áfengis.
E.s. Katla
kom hingað á Hvítasunnudag.
Er það nýkeypt skip og er eign
Eimskipafélags Reykjavíkur, sem
á fyrir e.s. Heklu.— E.s. Katla.
cr stórt og vandað skip.
Vörubifreiðinni R.E. 208
var ekið á fólksflutningsbifreið
(R.E. 533) á Hverfisgötu í morg-
un, en engin meiðsli urðu af. Vöru-
bifreiðin skemdist talsvert. Þegar
áreksturinn varð var vörubifreiðin
að koma niður Hverfisgötu, en hin
bifreiðin stóð fyrir neðan Traðar-
kotssund. ’Drengur hafði hangið
utan á vörubifreiðinni og kallaði
bifreiðarstjórinn til hans og varð
áreksturinn í þeim svifum.
Konungsboðskapur
um Alþingiskosningar. Forsæt-
isráðherra tilkynnir, að konungur
íslands hafi ákveðið að alménnar
kosningar til Alþingis skuli fara
fram sunpudag 24. júní n. k.
Germanía
helt fund síðastliðinn föstudag
í Oddfellowhúsinu. Þar hélt
Jón Gissurarson mjög fróðlegt er-
indi um Þýskaland. Síðan var
dansað til kl. 1.
Síðasti dansleikur
tónlistaskólans verður haldinn í
Oddfellowhúsinu í kveld kl. 9. —
Nemendur vitji aðgöngumiða í
Oddfellowhúsið kl. 5—7.
Útsvarsskrá Reykjavíkur
er seld á götunum i dag.
Glímufélagið Árrnann
heldur skemtifund í Iðnó (upþi)
annað kvöld kl. 9. Ekki er að efa
aú. fundurinn verður fjörugur og
fjölmennur að vanda. Einungis
félögum er heimill aðgangur.
Næturlæknir
er í nótt Berg-sveinn Ólafsson,
Suðurgötu 4. Sími 3677. Nætur-
vprður í Reykjavíkur apoteki og
lyfjabúðinni Iðunni.
Gengið í dag.
Slerlingspund ...... lcr. 22.15
Dollar ............. — 4.34Í/2
100 ríkismörk.......— 171.76
— frakkn. frankar — 28.87
— belgur ............— 101.70
— svissn. frankar . — 141.60
— lírur..............— 37.50
— mörk finsk .... — 9.93
— pesetar ...........— 60.32
— gyllini ...........— 295.27
— tékkósl. kr.....— 18.43
— sænskar kr......— 114.31
— norskar kr......— 11L39
— danskar kr. ... — 100.00
Útvarpið í kveld:
19,00 Tónleikar. 19,10 Veður-
fregnir. — Tilkynningar. 19,25
Ávarp: Um „mæðradag“ (síra
Friðrik Hallgrímsson). 19,50 Tón-
leikar. 20,00 Klukkusláttur. Frétt-
ir. 20,30 Frá útlöndum (síra Sig-
urður Einarsson). 21,00 Tónleikar:
Píanó-sóló (Emil Thoroddsen).
LæknisstaOan
við sjúkrahús Vestmannaeyja er laus til umsóknar. Umsókn-
ar frestur er lil 15. ágúst n.k.
Upplýsingar um launakjör og starfssvið gefur bæjarstjóri.
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum, 19. maí 1934.
Jðh. Gnnnar Úlafsson.
OrOsending
til Smjðrlfkisgerðarinnar Smári h f.
Þar sem við undirritaðir, sem seljum Bláa borðann,
höfum oft orðið varir við rengingar um, að Blái borð-
inn innihaldi þau fjörefni, sem auglýst er, þá vænt-
um vér þess, að hin liáttvirta smjörlíkisgerð auglýsi
i dagblöðunum óhrekjandi sannanir fvrir fjörefna-
innihaldi smjörlíkisins, áður en 2 dagar líða.
Virðingarfylst,
Dagbjartnr Signrðsson.
Kristján Gnðmnnásson.
Á enn eftir nokkra sekki af hinum ágætu
„MAJESTIC“
Árni Einarsson.
Nánari upplýsingar lijá:
I. Gnðmnndsson & Co.
Laufásveg 19. Sími 1999.
Svona
hvítar
tennur
getiðþér
haft með
þvi að
n o t a
á v a 11
Rósól-tannkremið i þessum
túbum:
GELLIN
BORGSTROM
BJARNIBJORNSSON
Ennfremur skemtir
Helene Jónsson og
Egild Carlsen.
IAðgm. á 2.00, 2.50, 3.00
,i Hljóðfærahúsinu, Atla-
búð, Eymundsen og Penn-
anum.
Grammófónn: Beethoven: Kvartet
í F-dúr, Op. 18 No. 1. Danslög.
Verðskrá.
Mátarslell 6 m. nýt. post. 26.50
Kaffistell 6 m., sama .12.80
Skálastt 6 stk., nýtísku 5.00
Ávaxtasett 12 m., postul. 6.75
Ávaxtasett 6 manna, postl. 3.75
Skálar, ekta kristall, frá 6.50
Blómavasar postulín frá 1.50
Mjólkurkönnur 1 1., postl. 1.90
Dömutöskur ekta leður frá 6.50
Vekjaraklukkur, ágætar 5.50
Vasaúr, 2 tegundir 12.50
Sjálfhlekungar með glerp. 1.50
með 14 k. gullp. 5.00
Barnadiskar ni. myndum 0.75
Barnamál með myndum 0.50
Barnafötur og skóflur 0.25
og ótal margt fallegt en þó ódýrt
L [\mm i mim
Bankastræti 11.
Siðm & Ávextir
Hafnarstræti 5. — Sími 2717.
Daglega margar tegundir af-
skorinna blóma. Brúðarblóm-
vendir og hrúðarkransar bundn-
ir. Nýjar, vandaðar og fallegar
kristallsvörur og margt fleira
hentugt til tækifærisgjafa.
Hænsnafóðup
og Ungafóðup
fáið þér í mestu úrvali og best
•hjá
Páli Hailbjöpns.
Laugaveg 55. Sími 3448.