Vísir - 22.05.1934, Side 4
VISIR
Ötan af landL
—o----
Sýslufundur Norð-Mýlinga, afla-
brögð o. fl.
SeyÖisfir'ÍSi 21. maí. FÚ.
A sýslufundi NorSur-Múlasýslu,
sem haldinn var i fyrri viku. var
ráðgert aÖ vinna fyrir 126 þús.krón-
ur samtals að vegagerðum, á Aust-
' urlandsvegi, Fjarðarheiði, úthéraðs-
Vegi, Brekkuvegi, F'ossvalla- og
Sleðbrjótsvegi, og i sýsluvegum.
Ráðgert er að Austurlands- og
Fjarðarheiðarvegir verði fullgerðir
síðla surnars. Múlasýslur og Séyð-
isfjarðarkauþstaðúr ætla að afla
lána til þeirra, að fjárhæð 80—95
þús. krónur.
Eignir Norður-Múlasýslu teljast
544.307 kr. Skuldir eru engar og
ábyrgðir tæpar 82 þús. krónur.
Tekjur sýslusjóðs voru á síðasta ári
kr. 22089.54.
Meðlag óskilgetinna iiarna í næstu
3 ár var ákveðið 300 kr. til fjögra
ára aldurs, 200 krónur frá fjögra
tíl 9 ára aldurs, 100 kr. frá 9 til
14 ára, og 50 kr. frá 14 til 16 ára.
Sýslunefndin skoráði á ríkisstjórn
og alþingi, að reisa síldarbræðslu-
stöð hér á Seyðisfirði.
Á Austfjörðum hefir verið kulda-
tíð og snjóað daglega. Afli verið
tregur, enda gæftaleysi. Beitusíld
hefir veiðst á Mjóafirði. Atvinnu-
lítið er hér á Seyðisfirði, en þó
kominn nokkur fiskur til verkunar.
Frá sýslufundi Mýrasýslu.
> Borgarnesi 19. mai. FÚ.
Sýslufundi Mýrasýslu er nýlega.
lokið. Þetta gerðist m. a.: Reglur
um einkasíma í Álftaneshreppi,
Hraunhreppi og Hvítársíðuhreppi
voru samþyktar.
Til vegagerða var jafnað niður
2/co af landverði og 1 %o af húsa-
verði, eða samtals kr. 4048.30.
Vinnukaup i vegavinnu sýsluvega-
sjóðs var ákveðið 60 aurar um klst.
Áætlun um tekjur og gjöld sýslu-
sjóðs næsta ár nam kr. I33oi-53’
en áætl.un sýsluvegasjóðs nam kr.
4506.34.
Frá Norðfirði.
Norðfirði 19. mai. FÚ.
Skattanefnd Neskaupstaðar hef-
ir lokið störfum. Skattgreiðendur
eru alls 338, jiar af greiða 42 eigna-
skatt, samtals kr. 1815.32 kr. af
1.020.000 kr. skuldlausri eign.
Tekjuskattur er samtals kr. 4660.45
af 331.703 kr. skattskyldum tekjum.
Nokkrir hátar eru á sjó í dag
N og hafa veitt ágætlega.
Al'Iabrögð.
Hornafirði 19. mai. FÚ.
Bátarnir hér hafa róið stöðugt
þessa viku, þótt stormar hafi mjög
spilt veiðum. Afli er góður. í dag
höfðu aflahæstu hátar 20 skpd.
Akureýri 21. mai. FÚ.
Nýtt fiskiskip.
Fiskigufuháturinn ,,01af“ kom
hingað tii Akureyrar frá Álasundi
á laugardagskvöldið var. Skipstjóri
var Guðmundur Guðmundsson, sem
keypti bátinn í Álasundi, í félagi
við Jón Guðmundsson bæjarfulltrúa
hér á Akureyri.
Báturinn er um 80 smálestir að
stærð, vandaður og vel búinn að
öllu leyti. Hann á að ganga frá
Akureyri til liuuveiða og síldveiða.
Kuldar og- gróðurleysi.
Kuldar og gróðurleysi norðan-
lands er orðið mönnurn áhyggju-
efni, samfara slæmum sjógæftum
og tregum aflabrögðum.
Stóra-Kro])pi 21. mai. FÚ.
Kornrækt.
Fjörutíu dagsláttur hafa verið af-
girtar i Reykholti til kornræktar.
Á að sá i 15 dagsláttur í vor, og
lokiíY við. að sá i 12.
Er sjðnin að dofna?
Hafið þér tekið eftir því, að
sjónin dofnar með aldrinum.
Þegar þeim aldri er náð (42—
45 ára) þurfið þér að fara að
nota gleraugu.
Látið Expert vorn rannsaka
sjónstyrkleika hjá yður, það
kostar ekkert, og þér getið verið
örugg með að ofreyna ekki aug-
un.
Viðtalstími frá 10—12 og
3—7.
F. A. ThieJe.
Austurstræti 20.
Veidlmenffi.
Laxalínur, silki, frá kr.
9.00 pr. 100 yards.
Silunga- og laxastangir,
frá kr. 3.85.
Silunga- og laxahjól, frá
Itr. 3.00
Laxa- og silungaflugur,
á 0.50 og 1.50.
Fjölbreyttasta úrval af
allskonar gerfibeitu.
Stálkassar undir veiði-
tæki, stórt úrval.
Margar nýjungar.
Lægst rerð.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
Bestn
rakhlöðin.
Þunn, flug-
bíta. Raka
hina skegg-
sáru tilfinn-
ingarlaust. —
Kosta að eins
25 aura..
Fást í nær öllum verslunum
bæjarins. Lagersími 2628. Póst-
hólf 373.
Heföarfpúp
og meyjar nota altaí’ hið
ekta
Austur-
landa-
ilmvatn:
()rlana.
Útbreitt
um allan
heim.
Þúsundir
kvenna
nota það eingöngu. Fæst í
sínáglösum með skrúf-
tappa. Verð að eins 1 kr.
LangavegsApotelf.
Refaeldi.
Refabúið á Þorgaursstöðum í
Hvítársíðö hefir nú io pör refa.
Frá þeim hafa fæðst á þessu vori
53 yrðlingar. Ein grenlægjan var
sú órækja, að eta afkvæmi sín, en
fjórum yrðlingum varð bjargað frá
henni. Nýgotinn köttur á næsta hæ
var fenginn til þess að fóstra yrð-
lingana, og sýnir kisa þeim hina
mestu rækt, sem væru þeir hennar
eigin afkvæmi, og dafna þeir vel.
Tíðarfar og' fénaðarhöld.
Tíð hefir verið óvenju köld, frost
á hverri nóttu, og gróður ekki telj-
andi. Sauðburður er byrjaður. Lifa
lömb vel undir heilbrigðum ám, en
talsvert hefir borið á vanheilsu í
fullorðnu fé. Sauðfé hefir verið á
gjöf til þessa, og ■ hafa hey því
gengið mjög til þurðar sumstaðar.
Vörugæðin
altaf jafn-
góð, bragð-
ið best, og
í notkun
drýgstar
eru Lillu-
kryddvörur
i þessum
umbúðum
frá
er suðusúkkulað-
ið sem færustu
matreiðslukonur
þessa lands iiafa
gefið sín BESTU
MEÐMÆLI.
Jaffa
appelsínnr
nýkomnar.
Yersl. Yisir.
HÚSNÆÍDy |
Herbergi og eldhús til leigu.
Einnig ódýr stofa, lientug fyrir
2. Uppl. í síma 4035. (1257
Óska eftir húsplássi strax,
einni stofu og eldhúsi. — Uppl.
í sima 4091, frá 6%—8. (1251
Vantar góða íbúð, 2—3 her-
bergi, eldhús og öll þægindi
fyrsta október. Gerið tilbofT.
merkt: „A. A.“ fyrir 10. næsla
mánaðar. Eldri hjón. greiða
fyrirfram mánaðarlega. Sem
næst miðbænum. (1248
Loftskeytamaður óskar eftir
Iierbergi, helst með aðgangi að
síma. Uppl. í síma 3768, kl.
8—9 í kveld. (1246
Barnlaus hjón óska eftir einu
stóru eða iveimur litlum lier-
bergjum og eldhúsi nú þegay.
Uppl. í síma 3696. (1242
2 samliggjandi herbergi fyrir
einhleypa til leigu Laugavegi
40. (1238
2 herbergi stór og eitt lítið
og aðgangur að eldliúsi, til leigu
hjá Siggeir Torfasvni, Lauga-
vegi 13. (1237
Til leigu 2 herbergi, hálft
eldhús fyrir fáment. Má vera
einlileypl fólk. Bergstaðastíg 41.
(1236
Lítið Iicrhergi með húsgögn-
um, óskast nú þegar. Uppl. í
síma 1200, milli 8—9 i kvöld.
(1276
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.
Áður en þér flytjið í nýja
húsnæðið, skulu þér láta hreinsa
eða lita dyra- og gluggatjöld,
fatnað yðar eða annað, sem þarf
þess með, hjá Nýju Efnalaug-
inni. Sími 4263. (746
Stórt sólríkt herbergi til leigu.
Gott fyrir tvo einhleypa. Theo-
dór Jolinson, Oddfellowhúsinu.
(1271
Ódýrt herbergi óskasl lengri
eða skemri tíma. Skilvís
greiðsla. Sími 1444. (1261
1 góð stofa til lcigu nú þegar.
Uppl. á Laugavegi 28. (1259
MmWM—M'
¥INNA |
Skalta og útsvarskærur skrif-
ar Þorst. Bjarnason, Freyju-
götu 16. Sími 3513. (1254
1 góða stúlku vantar í kaupa-
vinnu í sumar sem kann að
mjólka. Gott kaup. Ennfremur
vantar okkur góðan sendisvein
hálfan daginn. 1 góðan vagnlies!
ófælinn viljum við kaupa nú
slrax. A. v. á. (1253
Stúlka óskast á gott heimili
í sveit. Uppl. lijá Guðjóni Jóns-
syni, Hverfisgötu 50. (1250
Maður óskast i sveit. Uppl. i
síma 3931, kl. 7—8 í kveld.
(1249
Ú tsvarskærur, skattakærur,
skrifar Jón Kristgeirsson, Loka-
stíg 5. (1247
Teikna og skipulegg garða.
Tek einnig að mér öll garð-
yrkjustörf. Alfred Schneider.
Sími 3736. (1241
Stúlka, góð og ábyggileg,
óskasl í vist hálfan daginn nú
þegar, til barnlausra lijóna. —
Uppl. í síma 3696. (1243
Stúlka óskast í vist á harn-
laust heimili hálfan daginn.
A. v. á. (1240
Morgunstúlka óskast um
tima. Uppl. Laugavegi 40. (1239
Loftþvottar
og hreingerningar. Sími 3183.
(36
GULLSMÍfll MraíL
SILH1RSMÍ8I LETUR5RÖFTUR UIOOEROIrI
ft™ÖSKARGjSL^ON|
Telpa óskast til að gæta barns
á Vesturgötu 12. (1273
í Þrastalund vantar herberg-
isstúlku og stúlku til eldliús-
verka. Uppl. milli 7—8 í Odd-
fellowhúsinu. Tlieodór Johnson.
(1272
Vormann vantar i grend við
Reykjavík. Uppl. í síma 4370.
(1270
Stúlka óskast strax. Þorhjörg
Sveins, Vesturgötu 16. (1269
Vanur drengur óskast i sveit.
Uppl. i síma 4150 kl. 7—8. (1268
Maður, vanur sveitavinnu,
getur fengið atvinnu. — Uppl.
Vesturg. 44. Sími 4426. (1263
Reykjavíkur elsta kemiska
fatahreinsunar og viðgerðar-
verkstæði breytir öllum fötum.
Buxur pressaðar fyrir 1 kr. Föt
pressuð fyrir 3 kr. Föt kemiskt
hreinsuð og pressuð á 7 kr.
Pressunarvélar eru ekki notað-
ar. Komið til fagmannsins Ry-
delsborg klæðskera, Laufásvegi
25. Sími 3510. (1260
KAUPSKAPUR
n
, Haraldur Sveinbjarnarson
selur allskonar varahluti í Ford
og Chevrolet. (1256
Barnavagn til sölu á Lauga-
vegi 30 B, uppi. (1252
I Til sölu nokkurir hænuung-
ar. Hverfisg. 119. (1245
Hvanneyrarskyr og íslensk
egg fást daglega í Matarverslun
Tómasar Jónssonar. (1159
Hænuungar til sölu. Uppl.
lijá Arndal. Sími 1471 og 2507.
(1211
MINNISBLAÐ I. Sumarvertíð
liefst. Kaup til haustsins byrjuð.
Hús, jarðir, býli og byggingar-
lóðir jafnan til sölu, l. d.: 1. Tví-
lyft steinsteypuhús, nálægt mið-
bænum, þrjár íbúðir. 2. Stein-
hús og timburliús í niiðbænum.
Góðar vel haldnar ibúðir. Öll
þægindi. 3. Einbýlishús í suð-
austurhænum. 4. Býli með
hænsnabúi, hæfilega stórt og vel
liirt. Tækifærisverð, væg út-
borgun. 5. Spánýtt liús, 4 ibúð-
ir, öll þægindi. 6. Villa í vestur-
bænuni o. m. fl. Fasteignir tekn-
ar í umboðssölu. Býtti á eign-
um möguleg. Gerið svo vel að
spyrjast fyrir. Fasteignasölu-
skrifstofan, Austurstræti 14, 3.
hæð, opin kl. 11—12 og 5—7.
Sími 4180 og 3518 (heima). —-
Notið lyftuna. Helgi Sveinsson,
Munið Austurstræti 14, 3. hæð.
(1274
Barnavagn lil sölu. Freyju-
götu 30, niðri. , (126/
ís-frystivél óskast keypt. —
Uþpl. i síma 3383. (1266
Bill, 5 manna drossía, í ágætu
standi, til sölu. — Uppl. í símu
4470, 9093 og 9094. (1265
Vil kaupa litla og stóra elda-
vél. Uppl. í síma 4264 í dag og á
morgun. (1262
J^APAÐ^FUNmÐni
Pakki með lierraslifsum heí'->
ir verið tekinn í misgripum í
Hatla- og skermabúðinni, Ausl-
urstraeti 8. Skilist þangað. Enn-
fremur er í óskilum á sama
stað pakki með dömuhlússum.
(1255
Tapast hefir Conklin lindar-
penni siðastliðinn laugardag.
Góð fundarlaun. Gestur Gnð-
mundsson, Hafnarfirði. (1241
Það ráð hefir fundist og skal
almenningi gefið, að best og ör-
uggást sé að senda fatnað og
annað til hreinsunar og litunar
í Nýju Eínalaugina.- Sími 4263.
(747
Sjálfblekungur fundinn. Vitj-
ist í Matarverslun Tómasat*
Jónssonar, Laugavegi 2. (1258
Sjálfblekungur týndist í morg-
un á Laufásveginum. Finnandi
er vinsamlega beðinn að skila
honum á afgr. Vísis. (1275
TILKYNNING
Mann vantar pláss fyrir sig
og hestinn sinn um tíma á ró-
legu heimili i sveit. Vill taka
að sér snúninga. A. v. á. (1264