Vísir - 29.05.1934, Side 3
VISIR
Jiöð rœðumanna (eftir hlutkesti) :
i. Frámsóknarflokkur; 2. Þjóð-
■ernissinnar; 3. Sjálfstæðisflokkur;
4. Kommúnistaflokkur; 5. Bænda-
flokkur; 6. Alþýðuflokkur, — og
ær röðin hin sama bæði kvöldin.
Ræðutími má ekki fara yfir hið
setta mark. Umræðustjóra er rétt
að jafna ræðutíma eins og venja
hefir verið, svo, að timi, sem af-
-gangs var eða umfram tekinn i
fyrri umferð, bætist við eða drag-
'ist frá í siðari umferð. Þennan
jöfnuð má aðeins gera hvort kvöld-
áð um sig, en ekki má færa tima
anilli daga. — Hver flokkur um sig
afhendi útvarpsráðinu i tæka tið
skrá yfir ræðumenn sína, ásamt
skilrikjum fyrir þvi, að þeir komi
fram með samþykk i yfirstjórnar
flokksins.
Sjálfstæðiskjósendur,
sem fara úr bænum fyrir
kosningar, eru ámintir um að
kjósa áður en þeir fara. Kosið
er á kosningaskrifstofu lög-
manns í Póstliússtræti 3 (gömlu
símastöðinni) og er skrifstofan
npin kl. 10—12 og 1—4. Sjálf-
stæðiskjósendur utan af landi,
sem staddir eru í bænum, eru
ámintir um að greiða þar at-
kvæði sitt sem fyrst, ef þeir sjá
fram á, að þeir verði ekki
komnir heim til sín fyrir kosn-
ingar. Allar nánari upplýsingar
í Yarðarhúsinu.
Kosningaskrifstofa
Sjálfstæðismanna er í Varð-
ítrhúsinu. Opin kl. 10—12 og 1
—7 daglega. Siniar 2339 og
3760. Kjörskrá er þar til sýnis
og allar upplýsingar gefnar við-
víkjandi kosningunum.
Sjálfstæðisk jósendur!
Athugið hvort þér eruð á
kjörslcrá. — Kjörskrá liggur
frammi í kosningaskrifstofu
flokksins í Varðarhúsinu.
Kærufrestur er til 3. júni.
50 ára
er i dag frú Gróa Helgadóttir,
'i jarnargötu 8.
Til Búðardals
fór UifreiíS í gær frá bifreiSa-
stööinni Heklu. Vegurinn er orS-
inn góöur og gekk ferðin ágætlega.
Hermóður
kom i morgun.
Suðurland
fór til Borgarness í dag.
Af veiðum
komu í nótt Gulltoppur með 115
lifrarföt og Gyllir með 100.
E.s. Lyra
kom frá útlöndum í morgun.
Skip Eimskipafélagsins
Gullfoss fór héðan. í gærkveldi
áieiöis vestur og norður meö
fjölda farþega. Goðafoss fer til út-
landa annað kveld. Brúarfoss er i
Kaupmannahöfn. Dettifoss fer frá
Hull í dag* áleiðis hingað. Lagar-
foss er í Leith. Selfoss fór héðan í
gærkveldi áleiðis til Antwerpen.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sina ungfrú Jónina Guðrún Lárus-
•dóttir frá Stykkishólmi og Ingólf-
tir Guðmundsson bakari, Lauga-
vegi 149.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Sigurjóna Jóhanns-
dóttir, Lindargötu 21B og Axel
Bjarnason, Stýrimannastíg 5-
Útvarpið í kveld:
19,00 Tónleikar. 19,10 Veöur-
fregnir. — Tilkynningar. 19,25
Grammófónn: Tartini: Djöfla-
trillusónatan. ' 19,50 Tónleikar.
20.00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30
Erindi: Enskir skólar, III (Bjarni
„Goöaíoss"
her annað kvöld (30. maí), kl.
8, um Vestmannaeyjar, til
Hull og Hamborgar.
Farseðlar óskast sóttir fyrir
hádegi sama dag.
M. Jónsson). 21,00 Tónleikar:
Celló-sóló (Þórhallur Árnason).
Grammófónn : íslensk lög. Dans-
lög.
N æturvörður
er í nótt Halldór Stefánsson,
Lækjargötu 4. Sími 2234. — Næt-
urvörður í Laugavegsapóteki og
Ingólfsapóteki.
Ithygli
skal vakin á augl. lögreglu-
itjóra, sem birt er i blaðinu i dag,
tm flutningstilkynningar.
Gengið í dag.
Slerlingspund kr. 22.15
Dollar — 4.361/4
100 ríkismörk — 170.82
— frakkn. frankar — 28.87
—• belgur — 101.95
— svissn. frankar . — 141.90
— lírur — 37.55
— mörk finsk .... — 9.93
— pesetar — 60.32
— gyllini — 295.66
— tékkósl. kr — 18.48
— sænskar kr — 114.31
— norskar kr — 111.39
— dansltar kr. ... — 100.00
C-ullverð
ísl. krónu er i dag 5°-64> miðað
við frakkneskan franka.
CJtan af landL
Úr Hrútafirði.
Borðeyri, 28. inaí. — F.Ú.
Hér er nú besta veður, en þó
liefir verið frost á liverri nóttu.
Undanfarna tvo daga hefir
rignt, og er jörð farin að litkast.
Stjórnmálafundur, sem byrj-
aði um nónbilið í gær í Árnesi,
stóð þar til kl. 5 í morgun, eða
uni 15 klukkustundir. — F.Ú.
Níðið nm Breta.
Ársfundur
borgfirskra kvenna.
28. maí. — FÚ,
Fjórði ársfundur borgfirskra
kvenna var lialdinn i Borgar-
nesi dagana 26. og 27. þ. m
Stjórn sambandsins skipa:
ungfrú Svafa Þorleifsdóttir,
Akranesi, formaður, frú Sigur-
björg Björnsdóttir, Deildar-
tungu, gjaklkeri, og frú Ragn-
hildur Björnsson, Borgarnesi,
ritari.
I sambandinu eru 7 félög
með 270 meðiimum. Samband-
ið nýtur styrks frá Mýrasýslu
og Borgarfjarðarsýslu, 80 kr:
frá hverri sýslu og 300 lcr. rík-
isstyrks.
Sambandið lvefir styrkt
saumanámskeið og matreiðslu-
námskeið á Akranesi og sauma-
námskeið í Borgarnesi. Sam-
bandið liefir einnig styrlct garð
yrkju og ráðið stúlkur til garð-
yrkjustarfa í 5 mánuði á sam-
liandssvæðinu innan Skarðs-
lieiðar og styrkt skrúðgarð í
Borgarnesi. Það hefir og styrlct
spunavélakaup í Borgarlireppi.
Aflabrögð.
Norðfirði, 28. mai. — F.Ú.
Síðastliðna viku hefir verið
mjög góður þorskafli lxér. Afli
á bát var um 100 skippund.
Fiskurinn er óvenjulega jafn-
stór. Síldarveiði glæðist nú á
Mjóafirði og Reyðarfirði.
Greinarstúf, sem eg skrifaöi um
þetta efni og birtur var hér í blað-
inu 25. þ. m., hefir i dag veriö
svaraö úr tveimur áttum: af hálfú
útvarpsins og Morgunblaösins.
Að „svörunum" vildi eg mega
víkja nokkrum orÖum.
Útvarpsstjórinn svarar í Visi.
Hann víkur þar aö „fregninnL
sælu sem „öfgum hlaðamanna".
Það er hófsamlegt orðalag aö
kalla þaö öfgar, jiegar sannleikan-
um er ranghverft. Viö slíkri hóf-
semi mundi maður stundum varla
hafa búist af útvarpsstjóránum, en
hvort sem hún stafar af því, að
hugarfariö sé aö veröa fágaðra,
eöa hinu, aö málið er honum ná-
komið, þá mun verða að telja
hana fagra. Fallegt er það lika, aö
milda yfirsjón Morgunblaðsins
með því að telja aö það hafi birt
fregnina „meðal annara útvarps-
fregna“. En leiðinlega ónákvæmt
er þetta, því það geröi blaðið ekki,
heldur næst á eftir forustugrein,
fjarri öörum útvarpsfregnum og
meö stórkarlalegri fyrirsögn, svo
aö eigi skyldi sjást yfir hana.
Báðir aðiljar réttlæta verknað
sinn meö sömu rökum: — að
breska útvarpið hafi gert hiö sama.
Þaö liggur viö að manni fallist
bæði orð og hendur fyrir slíkri
röksemd, svo fáránlega fátækleg
er hún, svo aö eg kveði ekki sterk-
ara aö orði. Ekkert var eölilegra
en aö útvarp Breta sjálfra skýrði
þjóöinni frá þessu níöi um hana,
og vissulega mundi enginn hafa
átalið þótt íslenska útvarpið hefði
sagt frá samskonar dómi um okk-
ur. En ennþá sjálfsagðara var fyr-
ir íslenskt útvarp og íslensk blöö,
að þegja um þessa illgirnis firru
þcgar erlend þjóð átti i hlut —
nema ef ástæða hefði þótt til þess
að mótmæla henni, sem alls ekki
var gert hér. Og sé þaö tilfellið,
eins og liggja virðist í oröum út-
varpsstjórans, að sýna hafi átt hve
svartar álygar mætti búa til, þá
var miklu nær að nota til þess inn-
anlandsiðnaö, þvi af nógu var hér
að taka. Þaö er eg sánnfærður um
að báðir aðiljar viðurkenna.
Ef hlustendur og lesendur áttu
að skilja þaö af hyggjuviti sínu,
að hér var veriö að fara með blá-
köld ósannindi, hvenær eiga þeir
þá að vefa vissir um, aö hið gagn-
stæða eigi sér staö? Og ef þeir
vissu aö hér var um ósannindi aö
ræöa (eins og margir þeirra vitan-
lega hlutu að vita), mundi þeim þá
ekki hafa þótt fróðlegt að vita,
hver tilgangurinn var? Jú, alveg
áreiöanlega. Sú spurning heyröist
hvarvetna og eg tvitók hana i
greinarstúf mínum. Hvers vegna er
henni ekki svarað?
í báðum svörunum til mín er á
það minst, aö eg hafi verið tungu-
hvass. Ekki skal eg ásaka þá, er
þau hafa skrifað, fyrir hið sama,
þvi þeir fara i kringum aöalatriði
málsins eins og kettir í kringum
heitt soð. Þá list kánn eg elcki, og
mundi telja skaðlaust, þótt þeir
kynnu hana ekki heldur. Og nú
vildi eg að útvarpið, eftir að hafa
svarað mér á þann hátt, sem les-
endur Visis hafa séð, vildi fræða
hlustendur sína á því, hvernig
þeim beri að skilja hina umræddu
Smjðrllkisfferðin Smári hl.
Þann 22. þ. m. sendi eg og kaupm. Kristján Guðmundsson yð-
ur svo hljóðandi orðsendingu:
Orðsending til Smjörlíkisgerðarinnar Smári h.f.
Þar sem við undirritaðir, sem seljum Bláa borðann.^höfum oft
orðið varir við rengingar um, að Blái borðinn innihaldi þau fjör-
efni, sem auglýst er, þá væntum vér þess, að hin háttvirta smjör-
líkisgerð auglýsi i dagblöðunum óhrekjandi sannánir fyrir fjörefna-
innihaldi smjörlikisins, áður en 2 dagar liða.
f Virðingarfylst,
Dagbjartur Sigurðsson. Kristján Guðmundsson.
Við Kristján Guðmundsson, sem kaupum af yður Bláa borð-
ann, sem þér auglýsið svo sterklega og við eigum að trúa, að
sé besta smjörlikið, litum svo á, að okkur væri leyfilegt að
biðja yður um ólirekjandi sannanir.
Ilið heiðraða svar yðar til mín og bendingar, sem eg er yður
mjög þalcklátur fyrir, þó að svolílið væri það öðruvísi en um
var beðið, hljóðar svo:
Svar til hr. Dagbjarts Sigurðssonar, kaupm.
Út af áskorun yðar í Vísi 22. þ. m. höfum við spurst fyrir urn
það hjá flestum kaupmönnum bæjarins, hvort þeir hafi orðið varir
við „rengingar“ um, að Blái borðinn innihaldi þau fjörefni sem
auglýst hefir verið, en ekki getað fundið neinn sem kannast við
að hafa heyrt það. Bendir það til þess, að „orðsendingin“ sé að
eins komin fram vegna sérstakrar umhyggju yðar fyrir þessari vin-
sælu vöru, og er það sist ineira en við höfum búist við af yður.
Okkur er vitanlega bæði ljúft og skylt að þakka opinberlega svo
sjaldgæfa vinsemd.
En vegna þess að við vitum að þér munið hafa í huga að sýna
okkur frekari vinsemd, viljum við benda yður á, að í flestum lönd-
um Evrópu eru viðurkenndar vísindastofnanir sem annast vítamín-
rannsóknir, og getið þér sjálfur sent einhverri þeirra smjörlíkið til
rannsóknar. Væri vinsemd yðár fullkomin, ef þér legðuð árangur
þeirra rannsókna fyrir yðar efagjörnu viðskiftamenn.
H4. Smjörlíkisgerðin.
Þar sem þér voruð svo velviljaðir í minn garð, að benda mér
á hina réttu leið með smjörlíki yðar, vildi eg mega benda yð-
ur á, að lesa eina eða tvær auglýsingar yðar í Morgunblaðinu
árin 1931 og 1932, og rannsóknir próf. E. Poulsson í Osló:
„Margariner fra Island paa vitamin A.“ í Læknablaðinu, maí
og júní-hefti 1932, hls. 51 og 52. Þá munuð þér sannfærast
ennþá betur um, hvað þér hafið bent mér rétt.
Virðingarfylst,
Dagbjartor Sigarðsson.
Á að fræða börn og unglinga um kynferðileg efni?
Fyrirlestur Aðalsteins Sigmundssonar
um þettá efni er kominn út, með teikningum þeim, er blaða-
umtal varð um í vetur.
Seldar á afgreiðslu Nýja dagblaðsins, á götunum og í
bókabúðum.
Skpifiegai* umsóknir
fyrir fátæk og veikluð börn, á aldrinum 5 til 12 ára — dreng-
ir þó eigi eldri en 10 ára — er óskast komið fyrir í barna-
hæli Odd-Fellowa við Silungapoll í sumar, séu komnar til Jóns
Pálssonar fyrv. bankaféli., Laufásveg 59, fyrir 11. júní næstk.
t umsóknum þessum þarf að tilgreina nöfn barnanna,
aldur og heimilisfang.
Stjórn barnahælis Odd-Fello’wa,
Glaðheimum við Silungapoll.
freg-n, því þess er áreiðanlega fnll
þörf.
Báðir hafa fundið ástæðu til
þess að hrósa mér fyrir umhyggju
fyrir Bretum. Eg þakka að sjálf-
sögðu fyrir þetta lof, enda þótt
eg finni tæpast að það sé verð-
skuldað. Hitt væri sannleikur og
ekkert oflof, að fyrir okkur íslend-
ingum hefi eg i þessu rnáli borið
umhyggju, enda verður því varla
neitað, að það standi mér ennþá
nær.
Þetta virðast æði margir af les-
endum Vísis hafa skilið. Þó að það
hafi (sem út af fyrir sig er ekki j
frásagnar vert) oft borið við, að |
mér hafi verið þakkað fyrir blaða- i
greinar, sem eg hefi skrifað, hafa
þó fleiri tjáð íliér þakkir fyrir
þessa „gífuryrtu“ Vísisgrein rnína,
en nokkra aðra grein, sem eftir
mig hefir verið birt.
27. maí 1934.
Snæbjörn Jónsson.
Hitt og þetta.
Suður-Ameríkulýðveldið Columbia
keypti fyrir skömmu tvo tundur-
spilla í Bretlandi. Stjómin í Col-
umbia réði breska menn á skipin
til tveggja ára og eru þeir allir
fyrverandi sjóliðsmenn. Á hvoru
skipinu um sig er 50 manna áhöfn.
Flugslysum í Bre’tlandi fer
fækkandi.
Árið 1930 urðu 15 flugslys í
Bretlandi, sem menn biðu bana af,
10 1933. Alls voru flugslys þar 31
talsins 1930, en 26 í fyrra.
I
James B. Duke,
amerískur auðmaður, sem lést fyrir
nokkuru, lét eftir fsig eignir, sem
námu 89 miljónum dollara.