Vísir - 22.08.1934, Síða 3
VISIR
C>CKSL»*00<SSN»NgS^^
Bæjarfréttir 1
X3 cxs>e§
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 11 stig', Isa-
firði 11, Akureyri 11, Skálanesi
!), Vestmannaeyjiím 10, Ivvíg-
indisdal 12, Hesteyri 8, Gjögri
8, Blönduósi 10, Siglunesi 10,
Grímsejr 9, Raufarliöfn 10,
Fagradal 10, Papey 10, Hólum í
Hornafirði 11, Fagurhólsmýri
12, Reykjanesvita 10. Mestur
hiti hér í gær 18 stig, minstur
10. Úrkoma 6.6 nun. Sólskin
2.8 stundir. Yfirlit: Alldjúp lægð
milli Færeyja og Skotlands á
liægri hrcyfingu norðaustur eft-
ir. Horfur: Suðvesturland,
Faxaflói: Breytileg átt og Iiæg-
viðri. Dálitil rigning. Breiða-
fjörður, Vestfirðir, Norðurland,
norðausturland: Norðaustan
gola. Víðast úrkomulaust og
bjartviðri. Austfirðir, suðaust-
urland: Norðaustan kaldi. Sum-
staðar dálítil.rigning.
Jacob Texiére,
hinn góðkunni leikari, sem
um langt skeið hefir starfað að
Því að kynna æfintýri H. C.
Andersens i ýmsum löndum,
með því að lesa upp úrval úr
þeim, hefir framsagnarkveld á
nokkurum þeirra í Iðnó n. k.
föstudagskveld kl. 9 e. h. —
Texiére hefir áður verið hér
þessara erinda og þótti mönn-
um mikið til frásagnarlistar
hans koma.
Magnús Pétursson
héraðslæknir er kominn
heim.
M.s. Dronning- Alexandrine
fór laust eftir miðnælti frá*
Færeyjum áleiðis hingað.
Jóhannes Indriðason
skósmiður, Bergstaðaslræti
12, verður 71 árs i dag'.
<G.s. Botnia
kom í dag frá Leith með
fjölda erlendra ferðamanna.
Hjónaefni.
Nýlega liafa opinherað trú-
lofun sína, ungfrú Aðalheiður
Ólafsdóttir og Sigurður Waage,
trésmiður.
Næturlæknir
er í nótt Kristín Ólafsdóttir,
Tjaniargötu 10 B. Sími 2161. —
Næturvörður í Laugavegsapó-
teki.
Gullverð
ísl. krónu er nú 50.04, miðað
við frakkn. franka.
Sig'. Skagfield
heldur söngskemtun í frí-
kirkjunni, mcð aðstoð Páls
tsólfssonar, næstkomandi föstu-
dagskveld kl. 8V2- A söng-
skránni eru bæði útlend og ís-
lensk lög.
Belgaum
kom frá Englandi í morgun.
Valur, 3. flokkur.
Æfing í kvöld kl. 7%.
Geir
kom af veiðum í morgun
með 1600 körfur isfiskjar og
fer i dag áleiðis til Englands.
Bráðabirgðalög
urii viðauka við bráðabirgða-
lög 25. maí 1934 um heimild
fyrir ríkisstjórnina til íhlutunar
um sölu og útflutning á salt-
fiski eru birt i Lögbirtingabl. í
gær. I 1. gr. laganna segir:
Við 1. gr. bráðabirgðalaganna
hætist tvær nýjar málsgreinar:
Nú er beitt heimild undanfar-
andi málsgreinar og skal þá við
útflutning fiskjarins greiða
sjóðgjald, er nemi 5 kr. á skip-
pund til jafnaðar af öllum
verkuðum fiski nema af upsa,
keilu og úrgangsfiski (nr. 3 og
4), en af þeim fislci greiðist 2
kr. á skpd. Af óverkuðum fiski,
þar með talinn þveginn og
pressaður fiskur, nemi sjóð-
gjaldið kr. 20.00 á smálest
nema af upsa, keilu og úrgangs-
fiski greiðist 5 kr. á smálest.“
I 2. gr. segir, að tekjum þess
sjóðs, cr þannig kann að mynd-
asl skuli varið, eftir þvi sem
með þurfi, „til þess að efla,
tryggja og auka fiskmarkaði, 6!
verðjöfnunar, og til annara
nauðsynja, i þágu saltfiskversl-
unar landsmanna á þann liátt,
er ríkisstjórnin ákveður.“ „Nú
verður afgangur af tekj. sjóðs-
ins eftir að þeim liefir verið
variö samkvæmt 2. gr., og skal
þá skifta þvi fé, sem ónotað er
milli saltfiskútflytjenda, í réttu
hlutfalli við grelðslur þeirra i
sjóðinn.“
Úrslitakappleiknum
milli Fram og Vals er frestað
þar til annað kveld, vegna þcss
hve völlurinn er blautur.
E.s. Súðin
kom úr strandferð í gær-
kveldi.
Dr. Karl Lenzen
hélt liljómleika i Iðnó í gær
og fékk ágætar viðtökur. Nánar
í blaðinu á inorgun.
Útvarpið í kveld.
Kl. 19.10: Veðurfregnir. Til-
kynningar. — 19.25: Grammó-
fóntónleikar. — 19.50: Tónleik-
ar. — 20.00: Klukkusláttur.
Fiðlu-sóló. (Þór. Guðmunds-
son). — 20.30: Erindi: Síldveiði
og síldarsala, III (Jón Berg-
sveinsson). — 21.00: Fréttir. —
21.30: Grammófónn: Dvorák:
Kvartet, op. 95, í F-dúr.
Knattspjnan í gær.
K. R. vinnur Víking með 5:0.
--o--
Pyrri hálfleikur.
\’íkingar byrja me'ð knöttinn og
hefja þegar þróttlausa sókri á Iv.R.
Eftir nokkurt þóf ná K.R.-ingar
knettinum og gera þegar upphlaup
á Víkirigsmarkið, en það fór út um
þúfur vegna fríspyrnu, sem þeir
íá dæmda á sig. Gera Víkingar þá
upphlaup um hæl. Fær hægri út-
framherji þeirra knöttinn og spyrn-
ir honum mjög fallega á mark, en
markvörður K.Ri ver með prý'ði.
Hefja nú K.R.-inngar harða
sókn, en Vikingar verjast drengi-
lega. Fá K. R.-ingar dæmda á sig
frispyrnu fyrir hrindingu og verð-
ur við það nokkurt lát á sókninni.
En K.R.-ingar hefja sóknina
brátt aftur, en tekst ekki að skora
mark.
Víkingar gera nú upphlaup og
verður úr því hornspyrna á K.R.
Eir hún fallega tekin, en kemur
þeim ekki að neinu li'ði.
Gera nú K.R.-ingar allsnarpt
upphlaup. Fær miðframherji þeirra
knöttinn rétt við vitateig og spyrn-
ir honum í mark svo fast, að mark-
vör'ðurinn getur ekki náð honúm.
— 1:0.
Víkingar hafa nú knöttinn, en fá
dæmda á sig fríspyrnu og verður
úr henni upphlaup á mark þeirra.
Fær miðframherji K.R.-inga knött-
inn aftur og spyrnir honum í mark.
2 :o. — Það sem eftir var hálfleiks-
ins var þóf fram og aftur um völl-
inn, en þó voru gerð skæð upp-
hlaup á báðar hli'ðar og mörg skot
á mörkin, en ekki voru fleiri mörk
skoruð. — Lauk hálfleiknum því
með 2 á móti o.
Stðari hálf lcikur.
K.R.-ingar byrja með knöttinn
og gera upphlaup. Þegar 2 mínút-
ur eru af leik, fær vinstri innfram-
herji þeirra knöttinn og spyrnir
honurii í mark. 3: o.
Halda K. R.-ingar sókninni á-
fram. Skömmu si'ðar gerðu Víking-
ar gott upphlaup og þegar 6 mín.
eru af leik fær v. innnframherji
Vikings náð knettinum og spyrnir
honum fast ofarlega i annáð horn
marksins, en Eiríkur bregst ekki
frekar en fyrri daginn.
Hefja K.R.-ingar nú allharða
sókn. Miðframvörður þeirra fær
knöttinn og spyrnir honum íast á
marlc, en markvörður ver.
Hefja nú Víkingar allhar'ða
gagnsókn og þegar 8 mín. eru af
leik, er dæmd hornspyrna á K.R.
Úr henni verður önnur hornspyrna.
Liggur knötturinn nú um stund alt-
af við K.R.-markið. Fá þeir enn
dæmda á sig hornspyrnu, en húri
nýtist ekki Víkingum frekar en
hinar fyrri. En samt liggur knött-
urinn ennþá nokkra stund við K.R.-
markið. Þegar 15 mín. eru af leik
gera K.R.-ingar samt upphlaup, en
það v.erður að engu. Gera Víking-
ar um hæl stór-hættulegt upphlaup
á K.R.-markið. Það eina, sem
bjarga'ði K.R., var flýtir hægra bak-
varðar þeirra.
Gera nú bæ'ði liðin upphlaup á
víxl, en ekkert skeður. Þegar 20
mín. eru af leik gera K.R.-ingar
upphlaup. Fær vinstri innframherji
knöttinn og spyrnir honum fast á
markið, en markvörður ver. Síðan
er þóf um knöttinn fram og aftur
á vellinum.
Þegar 24 mín. eru af leik, gera
K.R.-ingar cnn upphlaup. Fær
vinstri innframherji þeirra knött-
inn og skorar mark með föstu skoti.
4:0. ■—^Sækja liðin nú af kappi, en
knötturinn liggur þó heldur á vall-
arhelmingi Víkings, enda eru Vík-
ingar teknir að þreytast, cn verjast
þó drengilega. Þegar 10 mín. eru
eftir, fær miðframherji K.R. knött-
inn og spyrnir á markið, en skoti'ð
mishepnast. Þegar 2 mín. eru éftir
af leik, verður mark hjá Víkingum,
fyrir mistök markvarðar þeirra. —
Litlu seinna var leiktími útrunninn.*
Lauk því kappleiknum með sigri
K.R. me'ð 5 :o.
Segja má um flesta leiki, sem
Víkingar hafa teki'Ö þátt í á þessu
móti, að liðin hafi v.erið jafnari en
markafjöldinn bendir á. Svo var og
um þennan leik, jafnvel ennþá frek-
ar en um hina. Sýndu Víkingar
töluverða leikni og góðan samleik,
og margt, sem þeir gerðu, var vel
hugsað. Sérstaklega sýndi miðfram-
herji þeirra mikla „teknik“ og
leikni. Víkingsliðið hefir nú sýnt á
þessu móti, að það er á miklu frarn-
faraskeiði. Haldið si'ona áifram,
Víkingar!
K.R.-ingar lélm vel og drengilega
að vanda.. Á dómi Friðþjófs Thor-
steinssonar var ekki hægt a'Ö sjá
ágalla, svo nokkru næmi.
V.
Kvikmyndir af Alaska
teknar úr loftinu.,
Níu herflugvélar flugu í yfir-
standandi mánu'Si frá Washington
til Alaska. Tilgangurinn með flug-
ferðinni var m. a. aö taka ljós-
myndir af Alaska úr loftinu og
voru flugvélarnar búnar aö fljúga
yfir 18.000 ferh. m. lands í því
skyni, er síðast fréttist. Flestar
ljósmyndanna'voru teknar úr 15.-
000 feta hæð.
k leiði Sveinbjörns
Sveinbjörnssonar tón-
skálds að tfnast ?
Rétt fyrir norðan austurhornið
á likhúsinu í gamla kirkjugarðin-
um er leiöi Sveinbjörns Svein-
björnssonar, tónskálds. I kringum
það er grasblettur, sem á sumuin ,
stöðum er að troöast niður. Og á
þvi vaxa i viltri breiðu nokkur
kornblóm. Ekkert er, sem minnir
á hver þarna hvílir, og þó liggur
þarna konungur í íslensku tóna-
riki. Þjóðverjar myndu vilja gefa
stórfé til þess, ef þeir vissu hvar
leiði Mozarts er. Eigu.m við ís-
lendingar að láta leiði Sveinbjörns
Sveinbjörnssonar, höfundar þjóð-
söngsins, „Ó guð vors lands“, týn-
ast, og eftirkomendur okkar
harma það, að þeir ekki viti hvar
það er? Nei, það vill enginn ís-
lendingur. Of lengi hefir það dreg-
i.st, að vel væri steypt í kringutn
leiði Sveinbjörns Sveinbjörnsson-
ar og á því reistur veglegur minn-
isvarði honum til dýrðar en þjóð-
inni allri til sóma, og má vi'ö svo
búið ekki lengur standa. Ættu nú
áhrifamenn innan hljóm- og söng-
sveita þessa bæjar, að bæta úr
þessu, og gangast fyrir því, að nú
þegar yrði steypt í kringum leiði
Sveinbjörns Sveinbjörnssonar og
því forðað frá að verða troðið nið-
ur frekar en orðið er, og svo að
á því yrði reistur nú bráðlega hon-
um samboðinn minnisvarði. Það
er áreiðanlegt, að til þessa verks
mun létt að afla fjár og liðsmanna
og þeir, sem fyrir því gangast,
munu hljóta lof og þakkir, því að
þeir eru í þjónustu fórnandi kær-
leika að inna af höndum nokkuð
af mikilli þakkarskuld íslensku
þjóðarinnar til hins látna tón-
skálds.
Kjartan ólafsson.
Floglð yfir Atlantshaf.
Oanadiskir flugmenn
fljúga yfir Atlantshaf.
/Frá London er símað til Parisar-
blaða þ. 9. þ. m.: Flogið heíir
verið í fyrsta skifti frá Canada til
Englánds. Flugmennirnir J. R.
Ayling kapteinn og Leonard Reid
kapt. lögðu af stað frá Wassaga
Beach, Ontario 8. ágúst (miðviku-
dag) að morgni og lentu í Heston-
flugstöðinni í Middlesex kl. 6 e. h.
þ. 9. ágúst. Áform flugmannanna
var að fljúga í einum áfanga til
Bagdad, |en urðu að hætta við það
vegna bensínskorts. Flugvél þeirra,
„Trail of the Caribou“ hét áóur
„Seafarer" og var þá eign Molli-
sons og konu hans. Er það flug-
vélin, sem þau hjón notuðu, er þau
flugu yfir Atlantshaf í júli 1933
og meiddust í lendingu viö Bridge-
port, Connecticut, Bandaríkjum. —
Flugmennirnir höfðu margsinnis
orðið að fresta brottför sinni frá
On(ario, vegna óhagstæðs veðurs.
Flug þetta þykir frækilegt.
„Trail of the Caribou“
eyðilegst í lendingu.
Samkvæmt símfregn frá London
þ. 12. ágúst fór Reid kapteinn í
ílugferð laugardaginn 10. ágúst og
gaf hann e.kkert upp um það, er
hann lagði af stað, hvert hann ætl-
aði. Ayling' var ekki með honum
og vissi ekkert um þetta, fyrr en
eftir á. Hinsvegar hafði Reid
stúlku með sér, og mun hann hafa
ætlað aö fara í stutta skemtiflug-
ferð með henni, en svo illa tókst
til, að hann eyðilagði að mestu
leyti flugvélina í lendingu, en hann
og stúlkan sluppu litt meidd. —
Ráögert hafði verið, að þeir félag
ar, Ayling og Reid, gerði aðra til-
raun til þess að setja met i lang-
flugi í þessari sömu flugvél, en
sennilega verður nú ekki hægt aö
gera við hana.
Grierson
hlekkíst á.
Fregnir bárust um það liing-
að í gærkveldi, að Grierson
fiugmaöur liefði sést fara fram
bjá Angmagsalik kl. 4,30 (isl.
tími), en héðan fór bann, eins
og sagt var í blaðinu i gær, kl-
11,15 f. b. og bjóst Grierson
frekar við, að hann myndi
koma við í Angmagsalik. Senni-
lega hefir hann ekki séð stað-
inn, eða áttað sig á, að um
hann væri að ræða, liafi hann
séð hann, og haldið áfram.
Varð hann loks að nauð-
lenda, sennilega eigi mjög
langl þar frá. Grierson sendi út
skeyti þess efnis, að hann hefði
lent á íslausum firði og kvaðst
liann liafa matvæli til tíu daga.
Vísir átti í morgun tal við Geir
Zoega útgerðarmann i Hafnar-
firði, sem annaðist móttöku
Griersons hér, og kvað hann
leit að flugmanninum hafa
byrjað í gærkveldi. Alt verð-
ur gert, sem hægt er, til þess
að koma flugmanninum til að-
stoðar, og óttast menn eigi um
hann að svo stöddu.
Grierson
fnndinn.
Samkvæmt skcyli, er liingað
barst frá Grænlandi laust fyrir
kl. 2 í dag, var Grierson fund-
inn og er hann væntanlegur til
Angmagsalik i dag. Flugvélin
er óskemd og flýgur Grierson til
Ang'magsalik frá staðnum sem
liann lenti.
litvappsfréttir.
—o—
Leitin að bresku vísindamönn-
unum.
Londou 20. ágúst. FÚ.
Enn er haldið áfratn að leitá
'að bresku vísindamönnunum tveim-
ur, þeim Dr. Dyson og Mr. Martin,
sem saknaö hefir verið síðan 28.
júlí, er þeir voru að rannsóknum
við Lake Rudolf í Uganda. Flug-
.vél, sem fór frá Nairobi á föstu-
clag, er komin aftur, án þess að
hafa orðið nokkurs visari, og önn-
ur flugvél fór af stað i morgun i
nýja leit. Innfæddur maður er
sagður hafa fundið muni, sem til-
heyrðu hinum horfnu mönnum,
fljótandi á vatninu. Menn eru
mjög hræddir um, að þessir tveir
vísindamenn hafi farist, og að
frekari leit verði árangurslaus.
Heimsblöðin og þjóðaratkvæðið í
Þýskalandi.
Berlin 22. ágúst. FÚ.
Heimsblöðin ræða enn um þjóð-
aratkvæÖið i Þýskalandi, þ. á m.
ensku blöðin. Blaðið Times finnur
að því, meðal annars, hve allir Naz-
istaforingjarnir hafi ráðist hart að
nágrannalöndunum i opinberum
ræðum i síðustu viku, og telur það,
hve Þjóðverjar fjandskapast nú við
erlend ríki, bera vott um hernað-
arhug.