Vísir - 03.09.1934, Blaðsíða 3

Vísir - 03.09.1934, Blaðsíða 3
nýju, varS þaS úr, aö ákvörðunin var tekin. — MeSan Kharkov var höfuSborg landsins váh variS 35 miljónum rúblna til þess aS fegra borgina á margan hátt. Nú verSur komið á ýmsum umbótum í Kiev, en þar er mikilla umbóta þörf, því a‘S vanrækt hefir veriS aö sinna umbótamálunum j)ar fram aS þessu. (United Press). Bókapfregn. —o— Barnavers úr Passíusálmunum ValiS hefir Árni SigurSsson fríkirkjuprestur. Útgefándi: ísafoldarprentsmiSja h. f. Reykjavík 1934. Passiusálmar Hallgríms Péturs- sonar munu ætiS ljóma sem dýr- indis perla meSal íslenskra bók- menta. Sú perla mun aldrei missa ljóma sinn frá trúarlegu og list- rænu sjónarmiöi þeirra, er meS kunna aö fara. En því er sist aS leyna, aS kynni yngri kynslóSar- innar af Passiusálmunum eru or'S- in mikiS minni en þau voru hjá eldra fólkinu. Mun hér mest um valda ýms breytt viShorf. SkeSur og margt á skemri tima. LiSin eru nú 320 ár síSan fæSingarár Hall- errims, en 260 ár frá dánarári hans. Engin bók heíir jafn oft veriS út- gefin hér á landi og Passíusálm- arnir. 45 sinnum á 254 árum, þaS er 5.—6. hvert ár aS jafnaSi. F}'rsta útgáfan kom út 1666, 8 ár- um fyrir dauöa höfundarins, og sú 45., sem veröur áreiöanlega ekki sú síSasta, var gefin út 1920. Þess- ar tíöu útgáfur sömu bókarinnar sýna best, hve ósegjanlega dýr- mætir Passíusálmarnir hafa veriö andlegu lífi þjóSarinnar öll þessi ár og munu verSa. YfirburSamaS- urinn Hallgrimur Pétursson, hug- sjónamaSurinn, listamaSurinn, trú maSurinn og skáldiS gnæfir þó hæst þégar hann er borinn saman viö samtiS sína>. Þegar tímarnir voru þeir, aö hvergi stóS hæS né tindur upp úr rænuleysis- og deyfö- arauSnum hins islenska þjóölifs, sem verulega gæti hvílt auga húg sjónamannsins — aS örfáum mönnum undanteknum. íslensk tunga var i hinni mestu niSurlæg ingu. Galdratrú, ýms hjátrú og hindurvitni voru i sínum algleym- ingi. Svo segja má aS Hallgrím- ur hafi veriS uppi á hinni mestu hindurvitna- og hjátrúaröld. Mann- dáö og hreysti voru horfin úr landi. í Vestmannaeyjum og víSar haf^i fólkiS veriS brytjaS niöur af Tyrkjanum varnarlaust eins og hráviSi. ÞjóSin lá í móki af lang- varandi baráttu viS örbirgS og margskonar áþján. Þannig var á- statt meS þjóöinni er Hallgrímur var uppi. En því meiri furöa er hve fagurt ljósiS er, sem af hon- um skín. AS kynni yngra fólksins af Passiusálmunum hafi fariö dvín andi, einkurn uú hin síöari ár, tel eg'að stafi mikiS af breyttum viö horfum til hinna andlegu mála, fræSslumála og jafnvel trúmála. ÁSur fyr áttu börn og unglingar alment ekki kost á annari fræöslu eniþeirri, er heimilin veittu og oft var mjög af skornum skamti FræSslubækur voru sem engar aSrar en kveriö og svo nokkrar guSsorSabækur. ÞaS var því ekki um auöugan garS aö gresja. En sjálfsagt var þó aS veita börn- um sínum þaS besta, sem völ var á, og þaö var auövitaS hiS lifandi orö Passíusálmanna. ÞaS var líka fariS meS þá á föstunni og ung- lingarnir læröu þá þannig næstum ósjálfrátt. En hvaS ungur nemur gamall tenmr. Þessi fagri siSur er nú, því miður, óöum aS leggjast niSur, og þegar svo er komiö, er hætt viö aS Passíusálmarnir liföu ekki lengi sem lifandi orö á vörum þjóSarinnar, ef eigi væri úr bætt á annan hátt. Landsnefnd Hallgrímskirkju liefir nú hlutast til um, aö bót yrSi ráSin á þessu meS því að. gang- ast fyrir aö gefin veröi út vers úr Passíusálmunum, sem börnum er sérstaklega ætlaS aS læra. Kver þetta er komiö á markaSinn. ísa- íoldarprentsmiSja h. f. hefir kost- aö útgáfuna og leyst vel af hendi. En valiS hefir Árni Sigurösson fríkirkjuprestur annast. Þarf ekki aS efast um aS hónum hafi vel tekist. Bókin er snoturlega inn- bundin í pappaspjöld meS sérting á kjöl og kostar aSeins 2 krónur, aö frádregnum 20% ef fengin er gegnum Hallgrimsnefndirnar miö- að viö minst 10 eintök i senn. Um leiS og eg óska aS þessr litla barnabók nái sem best til- gangi þeirra, er aS henni hafa unn- iS, get eg ekki stilt mig um aS taka hér upp þáu orö úr formálanum, cftir sira Árna SigurSsson, er sýna Ijest eftir hvaöa mælisnúru hann hefir fariS viS val versanna: . . „Hefi eg reynt aö vinna verkiö meS þaS í huga fyrst og fremst, hvaöa vers úr Passíusálmunum eg mundi kjósa handa mínum eigin börnum. Svo hefi eg ætíS haft þaS í minni, hvaSa vers í Passíusálm- unum hrifu huga minn mest á barnsaldri“. Ásm. Gestsson. Karoly Szénassy ungverski fiðlnleikarinn, efnir lil hljónileika i Gamla Bió annað kveld. Utan af landi —o— Frá Siglufirði. 2. sept. FÚ. Frá SiglufirSi símar fréttaritari útvarpsins, aS þar hafi veriö i dag fyrsti bjartviSrisdagurinn, sem komið hafi um langan tíma. Allmikil síld er sögS á Grímseyj- arsundi og víöar og nokkur skip voru á leiS til SiglufjarSa'r meS síld til söltunar. Miklar úrkomur á Vopnafirði. VopnafirSi 2. sept. FÚ. Af 39 dögum næstliSnum hefir [ sólarhringur veriS rigningarlaus hér í VopnafirSi, en eitthvaS fleiri dagar þurrir í úthéraöi. Allmiklar töSur liggja enn úti stórskemdar. ÞaS sem hirt er af heyjum er meira og minna skemt. Grasvöxtur er ó- venjulega mikill og fiskafli nokkur en gæftir stopular. Veðrið í morgun. í Reykjavík 8 stig-, Isafiröi 8, Akureyri 8, Skálanesi 10, Vest- mannaeyjum 9, Sandi 9, Kvígindis- aal 10, Hesteyri 8, Gjögri 6, Blönd- uósi 8, Siglunesi ó, Grímsey 8, Raufarhöfn 8, Skálum 8, Fagra- dal 9, Papey 11, Hólum í Horna- firSi 10, Fagurhólsmýri 10, Reykj- anesvita 9, Færeyjum 10 stig. Mestur hiti hér i gær 16 stig, minstur 5 stig. Úrkoma 0,4 mm. Sólskin 0,7 st. — Yfirlit: Djúp lægö viS vesturströnd Skotlands á hreyfingu noröur eftir. Onnur lægö milli Islands og Noregs á hreyfingu vestur eftir. — Horfur: SuSvesturland: Hvass norSan. Úrkomulaust. Faxaflói: Hvass norSan. Sumstaöar lítils háttar rigning. BreiSafjörSur, VestfirSir, NorSurland, norSaust- urland, Austfiröir : Noröanátt, viöa hvassviSri eöa stormur. Rigning. SuSausturland: Hvass norSan. \7iöast úrkonmlaust. Bílslys. Fólksflutningabílnum RE ‘ 835 var ekiö út af vegimun í Svína- hrauni í gærkveldi. Auk bilstjórans voru 4 farþegar í bilnum. Einn þeirra, stúlka, fór úr liði á öxl. Annar farþegi skrámaSist eitthvaS. SlysiÖ varö þar sem sumar- og vétrarvegurinn mætast. Sextug er í dag frú GuSrún GuSmúnds- dóttir, Bræðraborgarstíg 21 B, kona Runólfs Magnússonar fiski- matsmanns. Dr. Ligh't, ameríski flugmaöurinn, sem hingaS kom í síSastliSinni viku lagöi af staS héöan í morgun kl. 8,15, og mun liaía ætlaS til Bret- landseyja en sneri aftur veðurs vegna og var væntanlegur kl. 3—4. Kveldúlfstogararnir eru nú allir komnir af veiðum og öfluSu þeir sem hér segir: Þór- ólfur 12.529, Skallagrímur 10.801, Snorri goöi 11.866 og Arinbjörn hersir 10.149 mál. í fyrra sumar stunduöu allir 7 Kveldúlfstogar- arnir síldveiöar og byrjuSu fyrr en í ár og hættu 9. og 10. sept. Þá var mestur afli á togara 20.100 mál. — Seinasta hálfa mánuöinn í sumar hefir ekkert aflast. Telja sjómenn, aö síld hafi veriö næg, en gæftaleysi hefir hamlaS veiö- um. Skip Eimskipafélagsins. Gullfoss er í Kaupmannahöfn og fer þaSan 8. sept. GoSaíoss er á leiö til Hull frá Hamborg. Brúar- foss er í Reykjavík. Dettifoss var á Siglufiröi í morgun. Lagarfoss fór héöan á laugardagskveld áleiö- is til Leith og Antvverpen. Selfoss er á Akureyri. E.s. Súðin var á SeySisfirSi í morgun og er væn.tanleg hingaö um miöbik y firstandandi viku. E.s. Katla er væntanleg hingaS í dag. Togararnir. Ver kom frá Englandi i morgun en Geir í gær. Sjómannakveðja. FB. — 2. sept. Farnir til Þýskalands, VelliSan allra. Kærar kveSjur til vina og vandamanna. Skipverjar á Walpole. E.s. Lyra kom hingaS í dag. aniiiiiiiriið!iEi§iiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiifiiiiiiiiffiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiii!!i 1 Hessian. | Ávalt fyrirliggjandi birgðir af veggfóðrunarstriga 55 ^ (olíulausum) við lægsta heildsöluverði. EE Ennfremur þéttur strigi til húgagnafóðrunar. I MÁLARINN. | rifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiíiiiiiimiiiiiiimiiiiHiiiiiiiiiiiimiiiiiiiinl fer annað kveld vestur og norður. — Aukahafnir: T ál kn af jörðr/r, Þingeyri, Bolungarvík. og Sauðár- krókur. Farseðlav óskast sóttir fyrir hádegi á morgun. l’er á mi.ðvikudagskveld um Vestmannaeyjar til Hull og Hamborgar. F'uglafræ fyrir canarifugla, páfagauka og sel- skabs-páfagauka l'æst i Gengið í dag: Sterlingspund kr. 22.15 Dollar — 4-45 100 ríkismörk — 177.10 — franskir frankar . — 29.91 — belgur — 106.00 — svissn. frankar .. — 147.44 — lírur — 39'15 — finsk mörk — 9-93 — pesetar — 62.42 — gyllini — 305.80 — tékkósl. krónur . . — 19.08 — sænskar krónur .. — 114.36 — norskar krónur .. — 111.44 — danskar krónur — 100.00 Gullverð ísl. krónu er nú 48,90, miSaS viS frakkneskan franka. Knattspyrnan í gær í 3. flokki fór þannig' aö Frani vann Viking' meS 2:0 og Valur vann K.R. meS 1 :o. MótiS held- ur áfram á fimtudag. Næturlæknir er í nótt Guöm. Karl Pétursson. Simi 1774. — Næturvöröur í Laugavegs og Ingólfs apóteki. 2. flokks mótið. Vikingur vann K.R. meS 2:0. Á morgun kl. 6,45 keppa Fram og K.R. NæstsiSasti leikur mótsins. Útvarpið í dag. 19,10 VeSurfregnir. Tilkynning- ar. — 19,25 Grammófóntónleikar. — 19,50 Tónleikar. — 20,00 Klukkusláttur. Tónleikar: AlþýSu- lög (Útvarpshljómsveitin). — 20,30 Fréttir. — 21,00 Frá útlönd- um: „Drottins útvalda þjóö“ (Vilhj. Þ. Gíslason). — 21,30 Tón- leikar: a) Einsöngur (Daníel Þor- kelsson). b) Grammófónn: Stra- vinsky: Eldfug'linn; sami: Suite. 65 aura kosta ágætar Rafmagnsperur 15—25—40 og 60 vvatt hjá okkur. Vasaljós með batteríi 1.00 Batíeri einslök 0.35 Vasaljósaperur 0.15 Rakvélar í nikkel kassa 1.50 Tannburstar í hulstri 0.50 Herraveski, leður 3.00 Dömutöskur, leður 6.50 Do. ýmsar teg'. 4.00 Sjálfblekungar 14 karat. 5.00 Do. með glerpenna 1.50 Litarkassar fyrir börn 0.25 Vaskaföt emailleruð 1.00 Borðhnífar, ryðfríir 0.75 Matskeiðar, ryðfríar 0.75 Malgafflar rvðfríir 0.75 Teskeiðar, ryðfríar 0.25 Ivaffistell, 6 manna 10.00 Do. 12 manwa 16.00 Ávaxtastell, 6 manna 3.75 Do. 12 manna 6.75 Sykursett 1.00 Reykelsið, pakkinn 0.50 l Einan ft Bjðrna Bankastræti 11. Járnbrautarslys í París. Berlín, 3. sept. — FÚ. Alvarlegt járnbrautarslys varð um bádegi í gær á Austur-jám- brautarstöðinni i París. Eim- vagn, sem á einhvern liátt liafði komist af slað mannlaus, ók á fullri ferð á farþegalest, sem stóð á teinunum. 30 vagnar-voru *i lestinni, flestir úr tré, og möl- brotnuðu þeir því flestir. Yfir 50 manns lilntn alvarleg meiðsl, en margir smærri áverka. Rann- sókn liefir þegar verið liafin út af slysinu, en ekkert liefir enn upplýst um það, hvernig það vildi til, að eimvagninn fór mannlaus af stað. Réttarhöld í Wien út af byltingartilrauninni. Berlín, 3. sept. — FÚ. Enn halda áfram réttarhöld í Wien út af nasistauppreistinni 25. júlí s. 1. og' eru daglega einn eða fleiri dæmdir í hegningar- hússvinnu. Það er haft orð á þvi, að dómar þeir sem nú eru feldir séu mun strangari en þeir, sem jafnaðarmenn lilntu fyrir samskonar afbrot eftir felirúar- uppreistina.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.