Vísir - 21.09.1934, Blaðsíða 2
V I S I B
J une-Munktell.
Kér undirritu6im .SIGUHJÖNI J<ÍN33101I .ulcipetjára á Telsklplnu
"HJÆLL" G.íC. 23 er ánitja e6 votta.aó JUKE-UUMiCTELL mótor aá,80-90
he atafla .aem l aklplnu er ,he fur reynot í alla etaðl örufíííur Ojí ganfc-
vibb ,8erle &a sparneytlnn og okilar ágætum kraftl.
Ko.-nu hinlr át,“tu ko»tir niótorelne aérotaklega í ljóe í CrÆii-
landa leiöangri pelia.með hina ítólaku víaindnmann ,er eg er nýkorainn
haim úr.an í peirrl ftrð gekk ve'lirt í aamfleytt 30 eólarhringa.án
pe so nokturntíma aö v»ra etóövuó.en reyndiet eino og áóur aebir hin
áhyggilega8ta í hvívDtoa uera og mjöt einfold í allri meöferö.
p.t . Keykj av ík,lff.oep teraber 1934.
f
Sklpotjóri á‘ mtb ."NJÁLL'V.
Veitið þvi athygli livað þeir segja um
JUNE-MUNKTELL mótorinn, skipstjórinn á m.b.
„Njáll“ og fararstjóri ítalska vísindaleiðangursins til
Grænlands, Leonardi Bonzi, greifi. —
Þeir, sem vilja tryggja sér traustan, olíusparan
og gangvissan mótor, kaupa June-Munktell.
Upplýsingar um verð og skilmála hjá
Gísla J. Johnsen
Símar 2747 og 3752.
Barnsræningi
handtekinn.
Maður sá, sem tók við
lausnarfénu, þá er
barni Lindberghs haf ði
verið rænt, handtek-
inn í New York. —
Talið víst, að hið
sanna í málinu komi
nú í ljós.
New York 21. sept — FB.
Lögregan hefir tilkynt, aS hún
hafi handtekiö mann aö nafni
Bruno Richard Hauptmann og er
hann sakaöur um aö hafa tekiö við
50,000 dollurum þeim, sem Lind-
bergh greiddi, í von um að fá barn
sitt aftur. Hauptmann er þýskur að
ætt, en hefir verið búsettur í Band-
0f
aríkjunum 11 ár. Þegar hann var
handtekinn var hann að afhenda
tiu dollara seðil. Lögreglan hefir
haft upp á um 13,000 dollurum af
fénu. Yfirvöldin segja, að fullyrða
megi, að allar ráðgátur í sambandi
við barnsmorðið, séu í þann veg-
inn að verða ráðnar. (United
Press).
Ftá Vladivostock
til Murmansk.
Rússneski ísbrjóturinn
Litke hefir lokið ferð
sinni, frá Vladivostock
meðfram Síbiríuströndum
til Murmansk, á 83 dögum.
Moskwa 20. sept. FB.
ísbrjóturinn Litke er kominn til
Murmansk frá Vladivostock og
hefir hann farið þessa leið á einu
sumri eða samtals 83 dögum. Er
það í fyrsta skifti í sögunni, sem
þessi leið hefir verið farin á jafn-
skömmum tíma. Blöðunum verð-
ur mjög tiðrætt um þetta afrek og
telja ferðina munu verða upphaf
þess, að unt verði að hafa flutn-
ingaskip, sérstaklega útbúin til
fei'ðalaga á þessum slóðum, að
sumarlagi í framtíðinni. (United
Press).
Madur
verður úti.
20. sept. FÚ.
Guðmundur Magnússon bóndi í
Koti í Vatnsdal í Húnavatnssýslu
varð úti í norðan hríð á Sauðadal
síðastliðna nótt. — Fréttaritari út-
varpsins á Blönduósi skýrir þannig
frá atburði þessum:
Með birtingu í gærmorgun lögðu
af stað nteð stóðrekstur úr Auð-
kúlurétt Guðmundur Magnússon
bóndi í Koti og Ingvar Steingríms-
son, 12 ára drengur, báðir úr
Vatnsdal, og ætluðu vestur i
Vatnsdal, yfir framanvert Vatns-
dalsfjall, sem liggur milli Vatns-
dals og Svinadals. Bleytuhríð var
og- norðan stórviðri, er þeir lögðu
af stað, en frosthrið á fjöllum.
Þegar upp á fjallið kom viltust
þeir og hugði Guðmundur að láta
hest sinn ráða ferðinni. Héldu þeir
nú áfram allan daginn, en þegar
leið að kveldi veiktist Guðmundur,
að menn ætla af kulda. Koma þeir
nú að á og stíga þar af hestunum,
og fór Guðmundur þá niður að
ánni til þess að sjá hvert hún
’rynni. Ætlaði hann síðan að snúa
aftur til hestanna, en komst ekki
nema í brekku við ána og- lagðist
þar fyrir. Vildi nú drengurinn
halda áfram og reyna að ná til
bæja, en Guðmundur bað hann að
yfirgefa sig ekki. Lagðist drengur-
inn-þá niður hjá honum, og létu
þeir skefla yfir sig. Talaði Guð-
mundur við drenginn öðru hvoru
alla nóttina, en undir morgun var
hann farinn að tala óráð. Þegar
birta tók hætti að heyrast til Guð-
mundar. Fer drengurinn þá að at-
huga hann og finnur að hann er
orðinn kaldur, og þykist hann þess
fullviss, að hann muni vera dáinn.
Brýst þá drengurinn út úr skaflin-
um og nær í hest skamt þar frá
og lagði af stað til bygða og kom
niður að Stóru-Giljá kl. 8 í morg-
un. Var nú símað eftir héraðslækn-
inum á Blönduósi, og fór hann á-
samt mönnum frá Stóru-Giljá, þá
lcið sem drengurihn vísaði þeim,
og fundu þeir Guðmund, er var
þá orðinn stirðnaður. Var lík hans
fiutt niður að Stóru-Giljá.
Staður sá er ]>eir höfðu látið
fyrirlærast á um nóttina er í mynni
Sauðadals, en það er óbygður dal-'*
ur, sem liggur fram á Ásum og
klýfur Vatnsdalsfjall. Hafa þeir
komist vestur á mitt fjallið og far-
ið síðan niður þann dal.
Drengurinn er á Stóru-Giljá og
líður vel.
Guðmundur heitinn var 57 ára
að aldri, kvongaður maður og átti
7 börn, flest uppkomin.
Ætlar ríkisstjörnin
að stððva
atvinnnbætnrnar?
Svo sem menn muna sam-
þykti bæjarstjórn um mánaða-
mótin ágúst—september, að
verja til atvinnubóta á árinu
samtals um 620 þúsund krón-
um, enda komi til framlag rík-
issjóðs og aðstoð við lántöku í
sömu hlutföllum sem gert er ráð
fyrir í fjárhagsáætlun bæjar-
sjóðs og fjárlögum ársins 1934.
Jafnframt var smám saman
fjölgað í vinnunni upp í 200
manns og ákveðið að halda
þeirri tölu þar til séð yrði livern-
ig áætlað fé entist.
Á bæjarstjórnarfundi í gær
upplýsti borgarstjóri það, að
þrátt fyrir margítrekaðar áskor-
anir, bæði munnlegar og skrif-
legar, þá hefði ríkisstjórnin
ekki fengist til að inna af hendi
þann hlula fjárframlagsins,
sem henni væri ællaður, hvorki
styrkinn né lánveitinguna. M. a.
s. ætti hún enn eftir, að leggja
fram sinn hluta þess fjár, sem
ákveðið var í þessu skyni á
fjárhagsáætlun. Um þenna
hluta ríkisframlagsins lægju að
vísu fyrir óákveðin loforð um
að inna hann af hendi fyrir árs-
lok. En um það, hvort hún vildi
greiða sinn hluta af liinú aukna
framlagi, hefði ríkisstjórnin enn
ekki fengist lil að svara neinu.
Nú væri auðvitað sjálfsagt, að
bæjarstjórn héldi fast við að
leggja fram sinn hluta af at-
vinnubótafénu, hvað sem tillagi
ríkissjóðs liði. En ef ríkisstjórn-
in fengist ekki til að greiða sinn
hluta mjög bráðlega, hlyti það
að verða til þess, að mjög yrði
úr atvinnubótavinnunni dregið
eða hún stöðvaðist algerlega.
Borgarstjóri kvað öll úrræði til
að koma í veg fyrir þetta,
mundu verða reynd. En ef ríkis-
stjórnin tæki sig ekki á, hlyti
framferði Iiennar, eða rétara
sagt atliafnaleysi, að verða til
þess að stöðva áframhald at-
vinnubótanna. Loks sýndi borg-
arstjóri fram á, að aðfinningar
Haraldar Gðmundssonar um
að dregið liefði verið úr venju-
legum verklegum framkvæmd-
um eftir að atvinnuhótavinnan
kom til, væri gersamlega lir
Iausu lofti gripnar. Á síðari ár-
um liefði, að vísu, minna verið
varið til gatnagerðar en stund-
um áður, en á sama tíma hefði
vatnsveitan stórlega verið auk-
in án nokkurrar lántöku eða
framlags ríkisins.
I umræðunum sýndu horgar-
stjóri og Jakob Möller fram á,
að socialislar væru nú að blanda
þessu síðarnefnda inn í umræð-
urnar vegna þess, að þeir væru
að hörfa frá því að heimta úr
ríkissjóði hið lögákveðna tillag
og viídu með öllum ráðum
dylja það uiidanliald. Stefán Jó-
hann lét þetta og ásannast, og
reyndi liann sem mest að koma
umræðum á þenna gi’imdvöll og
mælti marga staðleysu stafi í
því sambandi. Þá reyndi liann
og að láta líta svo út sem það
væri einhver uppgjöf af hálfu
Reykjavíkur, að bæjarstjórnin
krefst þess, að ríkisstjórnin
leggi fram sama atvinnuhótatil-
lag lil Reykvíkinga og annara
landsmanna. Jakob Möller
sýndi fram á, hversu fjarri lagi
þetta væri, þar sem Reykjavík
væri búin að leggja fram sinn
hluta, en rikisstjórnin hefði ekki
einu sinni fengist til að greiða
þann liluta, sem ákveðinn væri
í fjárhagsáætlun.
Hér er um mjög alvarlegt
mál að ræða. Sjálfstæðismenn
og socialistar komu sér í ágúst
saman um, að fjöígun í atvinnu-
bótavinnunni og framhald
hennar væri algerlega lcomið
undir áskildu tillagi úr rikis-
sjóði. Lofuðu socialistar þá að
beita álirifum sinum á rikis-
stjórnina til að ríkið greiddi
viðstöðulaust sitt tillag. En nú
þegar ríkisstjórnin virðist ekki
vilja standa við loforð socialista,
þá sýnast þeir ekki þora að beita
áhrifúm sínum til að knýja
efndirnar fram. Vonandi sjá
þeir þó að sér i tíma og hindra
stjórnina í því að stöðva hinar
nauðsynlegu atvinnubætur.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 4 stig, Bolung-
avík 4, Akureyri 3, Skálanesi 4,
Yestmannaeyjum 5, Sandi 6, Kvíg-
indisdal 4, Hesteyri 3, Blönduósi
5, Siglunesi 2, Grímsey 2, Rauf-
arhöfn 3, Skálum 3, Fagradal 4,
Papey 6, Hólum í Hornafiröi 5»
Fagurhólsmýri 5, Reykjanesi 7.
Mestur hiti hér i gær 8 stig, minst-
ur 3. Sólskin 10,4 st. — Yfirlit:
Lægð fyrir austan Islancl og önn-
ur yfir Grænlandshafi. — Horfur:
SuSvesturland, Faxaflói, Breiða-
fjörður, VestfirSir: Flægviðri.
SkýjaS og víöa smáskúrir. Norö-
urland: Hægviöri. Úrkomulaust að
mestu. NorSausturland: NorSan-
kaldi og skúrir fram eftir degin-
um, en lygnir og léttir til í kveld.
AustfirSir, suSausturland: NorSan
■gola i dag, en breytileg átt í nótt.
Úrkomulaust.
Hæstiréttur
tók til starfa i dag.
Bjarni Þórðarson,
Laugav. 26, varS sjötugur laug-
ardaginn 15. þ. m.
50 ára
er í dág Jónína GuSmundsdóttir,
Hverfisgötu 100.
65 ára
er í dag húsfrú Sigrún Oddsdótt-
ir, Vesturvallagötu 6.
Sextugur
verSur á morgun GuSmundur
Matthíasson, Lindargötu 7.
• u. “í..
Mentaskólinn
var settur í gær. í skólasetning-
arræSu sinni talaSi rektor m. a. um
nemendaskifti þau, er áttu sér staS
í sumar. Komu hingaS, sem kunn-
ugt er, 22 danskir1 mentaskólanem-
endur, en jafnniargir nemendur úr
mentaskólanum hér fóru til Dan-
merkur. Ennfremur gerSi hann aS
umtalsefni sumaratvinnu nemenda
og breytingar ákennaraliSi skólans.
I.ætur mag. art. J. J. Smári af
kenslustörfum í vetur, sökum
heilsubilunar, en viS störfum hans
taka Sveinbjörn Sigurjónsson ma-
gíster, tveir norrænustúdentar,
Björn GuSfinnsson og Steingrím-
ur Pálsson, og Einar Magnússon
(i 1. bekk). — Kensla i skólanum
hefst ekki fyrr en í næstu viku,
því aö próf standa yfir næstu daga.
Gullverð
ísl. krónu er nú 49,13 miðaS viS
frakkneskan franka.
Vetrarstarfsemi K. R.
byrjar nú um mánaSamótin.
Aukning mikil og kraftur er nú í
starfi K. R. 4—5 nýja flokka er nú
_veriö aö stofna. Ennfremur hefir
félagiö ráöiö til sin nýjan iþrótta-
kennara hr. fimleikastj. Benedikt
Jakobsson. Veröur hann fastur
starfsmaöur félagsins yfir áriö,
kennir fimleika i öllum flokkum,
útiiþróttir konum og körlum yfir
sumariS, og hefir margskonar
fleiri íþróttakenslu á hendi fyrir
félagiö, eftir ]iví sem þörf gerist.
Iv. R. auglýsti eftir kennara í vor,
og 7 íþróttakennarar sóttu um
starfiö. AS hr. Benedikt Jakobsson
var valinn er engin tilviljun, því
hann hefir reynslu sem ágætur í-
þróttakennari, og auk þess ment-
aSusti kennari í sinni grein, sem
hér er völ á. lv. R.-ingar eru braut-
íyöjendur nú sem oftar áöur, meS
því aS ráöa til sín fastan kennara
yfir alt áriS. ÞaS er sýnilegt, aS
meiri fi-amfara er aS vænta af
mönnum, þegar kennarinn fylgir
þeim og leiöbeinir í íþróttum, úti
sem inni, alt áriS. (Frá K. R.)
Áheit á Viðeyjarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá S. G. Á.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 6 kr. frá M. U., ö
kr. frá E. M., 2 kr. frá N. N., 2 kr.
frá LI. K., 5 kr. frá ónefndum, 5
kr. frá konu, 2 kr. frá H. J., 1 kr.
frá S. S.
Næturlæknir
er í nótt GuSm. Karl Pétursson.
Sími 1774- — Næturvöröur í Laug-
avegs apóteki og Ingólfs apóteki.
Skip Eimskipafélagsins.
GuIIfoss er á Akureyri. GoSafoss
fór héöan í gærkveldi. Brúarfoss
fcr frá Kaupmannahöfn annaS
kveld. Dettifoss er væntanlegur til
Vestmannaeyja í kveld eöa nótt.
Lagarfóss er væntanlegur til Leith
í dag. Selfoss er á leiö til Ant-
werpen.
Innanfélagsmót K.R.
Á sunnudag veröur kept í síö-
ustu greinum mótsins, sem eru:
Stangarstökk, 200 m. hlaup, spjót-
kast og 110 m. grindahlaup. Einn-
ig veröur þá kept í 3000 m. hlaupi
fyrir drengi. — FjölmenniS stund-
víslega. íþ.
Kveikt 1 vélbát.
Vestmannaeyjum 20. sept. FÚ.
í gærmorgun um kl. 7 varö vart
viö, aö eldur haföi kviknaö i vél-
bátnum Loka VE 281, sem stóö
uppi í Skipasmáöastöö Magnúsar
Guðmundssonar hér í Vestmanna-
eyjum aö lokinni viðgerð. — Viö
athugun kom í ljós, aö 8 fjölum
úr skilrúmi bátsins hafði verið rað-
aö i bunka yfir rúm, sem afþiljaö
var að nokkru Ieyti ööru megin í
lestinni, og var ‘hálfbrunniö bréfa-
rusl og spítnarusl og aska undir
fjölunum. Voru fjalirnar allar
meira og minna brunnar og eldur
í þrem þeirra er komið var aö. Þar
hékk og á öxulenda rétt yfir eldin-
um vatnsfata milli hálfs og fulls
af steinolíu.
Augljóst þykir að um íkveikju