Vísir - 22.09.1934, Page 2
I
Tómatsósan
er altal'
-E-S-T.
Hvirfilbylur i Japan
veldur feikna tj óni.
Tokio 22. sept FB.
Feikna mikill hvirfilbylur hefir
farið ^rfir suðurhluta Japan og mið-
hluta landsins. Kunnugt er, að
1280 manns hafi farist, en 368
vantar. Samkvæmt seinustu skýrsl-
um hafa 3839 meiðst. í Osaka hef-
ir flætt yfir svæði, sem á standa
67,000 hús. — Tjónið nemur mörg-
um miljónum dollara. — (United
Press).
Hafa þjóðverjar haft í
hótuoum vlð Saarbúa?
Genf 22. sept. FB.
Þjóðabandalagið hefir birt skil-
ríki til sönnunar því, að einn af
embættismönnum Prússlands hafi
bréflega hótað því, að Saar yrði
lagt í auðn, ef Saarbúar greiddi
atkvæði gegn Þjóöverjum. United
Press).
Úr Dýrafirði.
21. sept. FÚ.
Heyskapartíð.
Sumarið hefir verið fremur vot-
viðrasamt, einkum seinni hlutann.
Slætti er lokið fyrir einni til tveim-
ur vikum, en flestir eiga meiri eða
minni hey úti. Töður og nokkuð
af útheyjum náðist víðast hér í
,sýslu með sæmilegri verkun, og
heyfengur mun verða allgóður,
enda var grasspretta í besta lagi.
Margir verka vothey og hefir það
míikið hjálpað. Þá hafa og hærurn-
ar, sem Vestfirðingar hafa notað
frá ómunatíð, til þess að verja
uppsætt hey á túni og engjum fyr-
ir regni og hvassviðri, komið í
góðar þarfir í sumar. Spretta i
görðum hefir verið tæplega í með-
allagi.
Nýtt slátrunarhús.
Kaupfélag Dýrfirðinga hefir i
Sumar látið reisa slátrunarhús á
Þingeyri.
Afli.
Línuskipin af Þingeyri eru ný-
komin af síldveiðum. Fróði hefir
aflað 11,600 tunnur. Fjölnir og
Venus um 10,000 tunnur hvor.
Frá Þórshðfo
Þórshöfn 21. sept. FÚ.
Síðastliðna miðvikudagsnótt var
hér aftaka norðanveður. Rak þá á
land vélbát og skemdist hann
nokkuð, en ekki urðu aðrir skaðar.
Hey hirtust að mestu um miðj-
an mánuðinn, en mikið skemmd,
og heyskapur er víðast rýr.
Nýlátinn er Hjörtur Daníels-
son bóndi að Hlíð á Langanesi
62ja ára að aldri. Hann hefir leg-
ið rítmfastur í sumar.
CangnamenQ Yillast.
Húsavík 21. sept. FÚ.
I fjallgöngum í fyrradag viltust
tveir gangnamenn úr Aðaldal og
urðu fráskila félögum sínum. Af
tilviljun rakst annar á bil Páls
Stefánssonar, nóttina sem Páll var
á Reykjaheiði, og náði réttum átt-
um, eftir tilvísun þeirra Páls og
Steingríms, og komst til bygða.
Hinn maðurinn var tvo sólarhringa
að villast á heiðinni og kom loks
í morguri að Geitafelli. Var hann
þá svo viltur að hann þekti ekki
bæinn. í gær var hafin leit að hon-
um af mörgum mönnum, en vegna
dimmviðris var leitin árangurs-
laus.
Bílar B. S. A. náðust í gærkveldi
af Reykjaheiði. Snjódýpið vaú 2þ)
alin þar sem þeir vora.
Grafið f dys
Friðriks og Agnesar.
21. sépt. FÚ.
Nokkrir vegavinnumenn úr
Húnavatnssýslu og Skagafirði, er
komu saman 18. þ. m. í Vatnsdals-
hólum sér til skemtunar, fundu við.
dys Friðriks og Agnesar 3 steypt-
ar silfurmillur af upphlut. Lágu
þær í mold er hafði verið grafin
upp úr dysinni. Auk þessa fundu
þeir nokkur bein er virtust hafa
orðið eftir er grafið var í d)'sina
fyr í sumar.
Frá Anstorríki.
Nýír líílátsdómar.
Salzburg 21. sept. — FB.
Undirréttur hefir dæmt til líf-
láts verkamennina Hermann Has-
linger, Albert Sonnerer og Kaspar
Moser, fyrir að hafa sprengiefni
í fórum sínum. Dóminum verður
fullnægt innan hálfs mánaðar,
nema honum verði breytt. Her-
jrét'tur í Löben hefir dæmt Max
Kalcher og Karl Stromberger til
lífláts fyrir að gera tilraunir til
að vinna henndarverk með
sprengikúlum. (United Press).
VISIR
frð bæjarstjörnarímdi
í fyrradag.
—o—
Veikluð skólabörn. I umræð-
urn, sem spunnusd út af veikl-
uðum skólabörrium upplýsti
borgarstjóri, a?T þegar væru
gerðar ráðstafanir til að lieima-
vist fyrir veikluð skólabörn úr
bænum verði komið fyrir i hin-
um nýja skóla, sem nú er verið
að reisa í laugahverfinu.
Hótel Borg. Bæjarráð lagði til
að samþykt væri að taka bak-
ábyrgð á 20 þús. sterlingspunda
láni, sem Jóliannes Jósefsson
ætlar að taka í Englandi. Lánið
verður trygt með 1. veðrétti í
Hótel Borg og ábyrgð ríkissjóðs
og samþykki bæjarráð láns-
kjörin, og sé lánsuppliæðinni
varið til að greiða lán, sem
hvíla á 1. og 2. veðrétti eignar-
innar og bærinn er i ábyrgð
fyrir. Jólianna Egilsdóttir mót-
mælti því eindregið, að bærinn
gengi í ábyrgð fyrir „brenni-
vínskompu" eins og Hótel Borg.
Borgarstjóri upplýsti, að þar
sem þetta nýja lán væri mun
hagkvæmara en það eldra sem
bærinn stæði í ábyrgð fyrir, þá
væri beinn hagur fyrir bæinn að
samþykkja breytinguna. En
miðað við nýja virðingargerð á
eigninni, ])á yrði að telja þetta
lán sæmilega trygt með eign-
inni sjálfri, þar sem lánið næmi
aðeins rúmum helmingi virð-
ingarverðs.
Viðgerð á Miðbæjarskólanum.
Borgarstjóri gerði grein fyrir,
að ekki væri hægt að láta fara
fram breytingu á efri leikvell-
inum við Miðbæjarskólann fyrr
en ákveðið væri skipulag á þess-
um slóðum. í ráði væri að
breyta Laufásveginum og fyrr
en það mál væri útldjáð, væri
ekki fært að gera þarna endur-
bæfur til frambúðar.
í skólanefnd Gagnfræðaskóla
Reykjavíkur var kosinn Guðni
magister Jónsson.
Varnir gegn skarlatssótt. —
Borgarstjóri gat þess, að bærinn
hefði gengist fyrir vörnum gegn
útbreiðslu skarlatssóttar hér
innanbæjar, látið einangra
sjúklinga o. s. frv. Væri það
viðurkent af héraðslækni, að
þessar varnir hér í bæ hefðu
komið i veg fyrir, að veikin
hefði breiðst út um Iand alt. En
til þess að gagn gæti orðið að
þessum vörnum væri nauðsyn-
legt, að þeim yrði einnig haldið
uppi í nágrannahéruðum
Reykjavíkur, þar sem veikin
gengi og bærist svo þaðan bing-
að. Samþykti bæjarstjórn því i
einu hjóði að tillögum borgar-
stjóra, að skora á ríkisstjórnina
að fyrirskipa nú þegar opinber-
at’ varnir gegn skarlatssólt.
Jafnframt lýsti bæjarstjórnin
sig fúsa til að bera kostnaðinn
af þessum sóttvörnum í Reykja-
vík, að þvi leyti, sem farsóttar-
liús bæjarins geti tekið við
sjúklingum eins og hingað til.
Pólverjar vilja afnám samninga
um þjóðernislega minnihluta
Genf 21. sept. FB.
Samkvæmt áréiðanlegum heim-
ildum áforma Pólverjar að leggja
fram tillögur um afnám samninga
um réttindi þjóðernislegra minni-
hluta, en stefna Pólverja í þessu
máli varð sem kunnugt er orsök
deilu nýlega á fundi þjóðabanda-
; lagsins. (United Press).
i
a/b. B. A, Hjortli & €0.
Stoekliolm.
Prímnsar.
Skrnflyklar og tengnr.
Lngtir.
Aðalumboö fyi»ip ísland
Þðrður Sveinsson & Co.
Reykjavík.
æ
Skipsbrnninn mikli.
I erlendum blöðum eru birtar
ítarlegar frásagnir af réttar-
rannsókninni út af skipsbrun-
anum mikla. Var skip það, sem
hér um ræðir, e.s. Morro Castle,
á leið til New York úr skemti-
ferð fil Havana með margt far-
þega, er kviknaði í því undan
strön^um New Jersey, og fórust
162 af farþegum og skipsböfn.
Ýmislegt þótti ákaflega grun-
samlegt í sambandi við þennan
skipsbrna, eins og getið hefir
verið í skeytum og útvarps-
fregnum, t. d. fráfall skipstjór-
ans, hin öra útbreiðsla eldsins,
dráttur á útsendingu neyðar-
merkja o. m. fl. Samkvæmt er-
lendum blöðum 11. sept. bar
William Warms, sem tók við
skipstjórn, er skipstjórinn var
látinn, það fyrir rétti, að allar
líkur benti til, að um íkveikju
væri að ræða. M. a. gat hann
þess, að í ferð skipsins næst á
undan liefði kviknað í því, en
tekist að slökva i tæka tíð.
.
Astæðuna fyrir því, að tiltölu-
lega fleiri skipsmenn en farþeg-
ar liefði bjargast taldi hann þá,
að farþegum befði mörgum
verið seint um vik að komast
upjlÞ og sumir ekki ferðafærir,
þar eð skömmu áður en eldsins
varð vart, hefði flestir farþegar
verið þáíttakendur í gleðihófi í
skipssölunum, og margir þeirra
verið mjög druknir. Kvað
Warms gleðskapinn liafa keyrt
úr bófi fram, og hefði sumar
konur þær, er í bófinu voru,
verið bornar út úr druknar í
káetur þeirra. Warms taldi eng-
ar líkur benda til, að eldingu
liefði lostið niður í skipið.
Arnold Fðldesy.
Ungverski cellosnillingurinn
Arnold Földesj’ liélt fyrstu
liljómleika sína í Gamla Bíó
síðastl. þriðjudag og vakti ;
mikla hifningu. Hann er heims- j
frægur maður, oft nefndur um
leið og spánski cellosnillingur-
inn Casals. 1 Einsteins „Das
neue Musiklexikon" stendur
þelta: „Arnold Földesy, cello-
leikari, fæddur 1882 í Budapest,
nemandi David Popper, er ein-
hver besti og glæsilegasti full-
trúi sinnar listar vegna frábærra
tónlistagáfna, litsamannslundar
og meistararlegrar leikni“. Það
leyndi sér ekki á hljómleikun-
um 18. þ. m., að hér var sjald-
gæfur snililngur á ferðinni.
Tónninn er mikill og fagur,
leiknin undraverð og meðferðin
með einkennum meistarans.
Hann spilaði gömul klassisk
lög, „Adagio“ eftir Tartini og
g-dúr sónötu eftir Breval o. fl,
og einnig nýrri tónsmíðar cins
Ánægja
er að drekka
Irma kaffl,
með Mokka og Java.
Bæjarins besta og ódýr-
asta.
Gott morgunkaffi 160 au.
Hafið pdr reynt
okkar góðu Cerenagrjón,
44 aura pakkinn.
Sendum heim.
Irma,
Hafnarstræti 22.
og „Danse Espagnole“ eftir
Granadas og „Spinnlied“ eftir
Popper, kennai’a lians og Casals,
og enda þótt lögin hafi verið
flestum áheyrendum ókunn áð-
ur, þá var þeim tekið með mikl-
um fögnuði og varð listamaður-
inn að leika aukalag.
Hr. Emil Tlioroddsen lék und-
ir á slaghörpnna vel og smekk-
lega að vanda.
B. A.
Knattspyrna
til ágóöa fyrir Slysavarnafélagið.
Á morgun kl. 5 e. h. veröur liáöur
kuattspyruukappleikur til ágóða
fyrir Slysavaruafélag íslauds, á
íþróttavelliuum. Er þetta í fyrsta
sinn er knattspyrnumenn vorir
sýna Slysavarnafélaginu slika vin-
semd og hugulsemi. Hefir knatt-
spyrnufélagiö Valur gengist fyrir
þessu og mun sjá um leikinn aö
öllu leyti, en allur ágóði rennur til
Slysavarnafélagsins. MeS þessum
kappleik hefst nýtt og nýstárlegt
knattspyrnumót fyrir Reykjavík-
urfélögin, sem standa mun mestan
hluta vetrarins, þar sem aöeins
veröur keppt á sunnudögum, þeg-
ar veöur og færö leyfa. Á þessum
leik keppa þaií tvö félög, sem best
stóöu sig í Reykjavíkurkepninni
í haust, Fram og Valur. Munu bæði
vera vel undir þetta búin og tefla
fram nýjum mönnum, aö einhverju
leyti. Annars mun nánara aö þessu
vikiö í blööunum í fyrramáliö.
Ó.
«