Vísir - 10.10.1934, Blaðsíða 2
VISIR
Q
^Biðjið kaupmann yðar um
J^né<ÍQi*p
BUSSUM - HOLLAND
Það er drýgst og best og því ódýrast.
Fæst í pökkum með 1/8 og 1/4 kg.
oe pokum meS 5 kg. Heildsölubirgðir.
Sími 1234.
Alexander konnogar I Jogoslavío og
Barthoo, ntanrIkismálaráðherra
Frakklands, vorn myrtir í gær.
Alexander konungur var á leið til Parísar í
opinbera heimsókn. — Múgurinn drap bana-
mann hans, sem var Króati. — Pétur, 11 ára
drengur, sonur Alexanders, verður konungur
Júgóslaviu.
Marseilles 9. okt. FB.
Alexander konimgur í Jugósla-
v.íu og Barthou, utanríkismálaráö-
herra Frakklands, voru myr.tir í
dag. Alexander konungur var á
leitSinni til Parísarborgar, í opin-
bera heimsókn, og er hann steig
af skipsfjöl, bauS Barthou hann
velkominn, fyrir hönd frakknesku
ríkisstjórnarinnar og hinnar frakk-
nesku þjóiSar. Voru háttsettir
embættismenn frakkneskir í fylgd
með Barthou. Margt manna var
viðstatt viö höfnina, þar sem kon-
ungurinn steig á land, til þess að
fagna honum, og meöfram götum
þeim, sem ákveöiö haföi veriö aö
konungsliöiö reki um, var margt
manna. Konungsbíllinn var eigi
kominn langa leiö frá höfninni
inn í borgina, er morðinginn
skyndilega stökk upp á konungs-
bílinn og skaut á Alexander kon-
ung, senr sat viö hliö Barthou. Um
leið hóf félagi konungsmoröingj-
ans er stóð á gangstéttinni skamt
frá, skothríð á bílinn. Konungur-
inn beiö ]>egar bana, en Barthou
var fluttur meö lífsmarki í sjúkra-
hús. Var reynt aö bjarga lífi hans
með blóðtilfærslu, en hann lést eft-
ir skamma stund. Tveir embættis-
menn, er i konungsfylgdinni voru,
hafa látist af sárum. Undir eins
og skothríðin hófst geröi lögregl-
an árás á mannfjöldann til þess
að dreifa honum. Tveir menn úr
herliöi því, sem á vettvangi var,
særöust, og þrjár konur, sem voru
rneðal áhorfenda. Tilræðismenn-
irnir eru taldir vera Jugoslavar.
(Uinted Press).
Marseille 10. okt. FB.
Þegar fólkið, sem statt var í
nánd, þar sem Alexander konung-
ur var myrtur, hafði áttað sig á
hvað gerst hafði, réöist múgurinn
af mikilli æsingu á banamann
konungs, Petrus Kalemen, og drap
hann. Hann var Króati.
Látinn er af sárum, er hann
fékk í skothríðinni á konungsbíl-
inn, Alexander Dimitriejevitch,
marskálkur viö hirðina í Belgrade,
er var förunautur konungs. Enn-
fremur lögreglumaöur og kona ein,
úr hópi áhorfenda. Frakkneski
hershöf öinginn Georges er að dauöa
kominn. Liggur hann i sjúkrahúsi,
að fram kominn, af sárum þeim,
er hann hlaut.
Doumergue hefir tekið að sér
störf utanríkismálaráðherra til
bráðabirgða. Ríkisstjórnin hefir á-
kveðið, að útför Barthou skuli fara
fram skömmu eftir. að lik Alex-
anders konungs hefir verið flutt
frá Marseille. Veröur þaö flutt
þaðan á herskipi. (United Press).
Lyons 10. okt. FB.
Maria, drotning Jugoslava, var
hér stödd, er henni var flutt fregn-
in um konungsmorðið. Hneig hún
þegar í yfirlið, en hrestist svo viö
.síðar, aö hún gat haldiö áfram til
Marseille. (United Press).
Belgrad 10. okt. FB.
Tilkynt hefir verið opinberlega,
aö Pétur ríkiserfingi, n ára að
aldri, sé konungur Jugoslavíu. —
Búist er við tilkynningu um skip-
un ríkisstjórnanda innan skamms.
(United Press).
Alexander, konungur Júgóslavíu.
Alexander, konungur Júgóslava,
í Serbíu, sem í gær féll fyrir morö-
ingja hendi, í Marseillle á Frakk-
landi, var fæddur árið 1888. Var
hann sonur Péturs konungs I. og
varö ríkiserfingi árið 1909, er
bróöir hans, Georg ríkiserfingi, var
til neyddur að afsala sér ríkiserfö-
um. Alexander geröist hermaöur á
unga aldri og tók þátt i Balkan-
styrjöldunum 1912—1913 og gat
sér góðan orðstír. Þegar faöir
hans varð að láta af ríkisstjórn
sökum vanheilsu varö Alexander
ríkisstjórnandi. í heimsstyrjöld-
inni hafði hann á hendi yfirstjórn
Serbíuhers og þótti dugandi hers-
höfðingi. Hann átti mikinn þátt í,
að myndaö var júgó-slavneskt ríki.
Alexander tók við konungdómi
árið 1921 og gekk aö eiga Maríu
Rúmeníuprinsessu, en hún er syst-
ir Karls, sem nú er konungur
Rúmena. Alexander gerðist raun-
verulega einvaldskonungur, en
hann vildi sætta þær þjóðir, er
byggja Jugoslavíu, Serba, Slóvena
og Króata, en það var erfiöleikum
bundið, enda náði konungur ekki
þvi marki, að sameina þessar aö
mörgu ólíku þjóðir og fá þær til
þess að sætta sig við sambúðina
í hinu nýja ríki. Á síðari árum
vann Alexander konungur talsvert
að því,|að bæta sambúð Júgóslava
við hinar Balkanþjóðirnar, en sam-
komulag milli Júgóslava og ítala
hefir hinsvegar verið miður gott
alt frá því, er styrjöldinni lauk.
Hverjar afleiðingar fráfall
Alexanders konungs kann að hafa
verður engum getum að leitt aö
svo stöddu, en þær getá orðið víð-
tækar og alvarlegar.
Louis Barthou
var fæddur árið 1862 og var einn
af kunnustu stjórnmálamönnum
Frakklands. Hann átti fyrst sæti
á þingi áriö 1889, en ráðherra varö
hann 1895. Gegndi hann oft ráö-
herrastörfum og var m. a. forsæt-
isráðherra um skeiö. Þegar Dou-
mergue myndaði samsteypustjórn
sína varð Barthou utanríkismála-
ráðherra. M. a. vakti hann mikla
eftirtekt á sér fyrir tillöguna um
Austur-Evrópusáttmálann. Ferö-
aðist hann í stjórnmálaerindum til
Austurríkis, Ungverjalands, Rúm-
eníu og íleiri landa i austurhluta
álfunnar, og vakti þaö ferðalag'
feikna athygli.
Frá Alþing!
Neðri deild.
Umræður um hið nýja tekju-
og eignarskattsfrv. stjórnarinn-
ar hófust á ný á fundi neðri
deildar kl. 1. —- Fjármálaráð-
herra kvað niðurjöfnunarnefnd-
ina í Reykjavík ekki liafa
liorfið að því ráði að leggja
útsvar á viðskiftaveltu og
laprekslui’ af þvi, að ekki
hefði þótt fært að leggja
meira á eignir og tekjur, lieldur
af því, að sanngjarnt þætti, að
fyrirtæki, sem Iiefði mikil við-
skifti eða rekstur, en skiluðu
ekki arði, greiddu gjöld i bæj-
arsjóð og yrði það þá að ganga
jafnt yfir alla. Ekki neitaði
Iiann því þó, að takmörk væri
fyrir því, live mikið væri fært
að leggja á eign og tekjur, en
neitaði þvi hinsvegar fastlega,
að sú hækkun tekju- og eignar-
skalls, sem fælisL í frv. tak-
markaði nokkuð möguleika lil
að leggja á útsvör. — Jakob
Möller sagði að þessi staðhæfing
ráðherrans væri svo vitlaus, að
engum þingmanni öðrum væri
trúandi til að hera slikt fram á
Alþingi. Ráðlierrann mundi
vafalaust gela aflað sér upplýs-
ing'a um það, að alhnikil van-
höld væri á innheimtu tekju- og
eignarskatts sem og útsvörum,
en það lægi þá í augum uppi, að
100% hækkun á skattinum
mundi auka þau vanhöld til
slórra muna, Það væri að vísu
liægt að „leggja á“, en það
kæmi bara að litlu gagni, ef
inuheimtan bilaði. Það væri
líka undarlegt, að ráðlierrann,
sem skattstjóri í Reykjavík og
form. niðurjöfnunarnefndar,
skyldi í stað beinna skatta vilja
láta innlieimta neysluskatt til
þarfa bæjarsjóðs, en úlsvör,
sem lögð væri á veslunarvið-
skifli væri alveg sama eðlis eins
og tollar á neysluvörur almenn-
ings. Væri þó dæmi til þess í
bæjum, þar sem skoðanabræður
ráðherrans færi með völdin, að
slík viðskiflaútsvör næmi alt að
6% af veltunni. Væri af því auð-
sætt,* að ókleift þætti að ná
nægilegum tekjum með útsvör-
um á eignir og tekjur, og þó
héldi ráðherrann að 100%
liækkun á þessum skatti til rík-
issjóðs gerði hvorki til né frá.
— Enn töluðu á móti frv. Jón
Pálmason, Sig. Kristjánsson og
Hannes Jónsson, en ráðherrann
tók ekki til máls á ný, og var
frv. við svo búið vísað lil 2.
umr. og fjárhagsnefndar.
Atvmrh. gerði grein fyrir frv.
um breytingu á lögum um
verkamannabústaði, en Thor
Thors mótmælti því ákvæði, að
að eins eitt byggingarfélag í
hverjum kaupstað skyldi geta
fengið lán úr byggingarsjóði,
því að það mundi draga mjög
úr framkvæmdum. Einnig and-
mælti hann því, að öll stjóm
byggingarsjóðs yrði skipuð af
ráðherra eins og frv. ætlast til,
og vildi að hún yrði kosin af
sameinuðu þingi. Ráðherra liélt
fast við það, að að eins eitt
byggingarfélag á hverjum stað
ætti að geta fengið lán úr sjóðn-
um, en um skipun sjóðstjórnar-
innar kvaðst hann fús að ræða.
—- Málinu var vísað til 2. umr.
og allsherjarnefndar.
Um bráðabirgðahreytingu á
fátækralögunum urðu allmiklaí
umræður og skarst mjög í odda
með atvinnumálaráðlierra og
Bergi Jónssyni út af því máli.
Sagði Bergur, að frv. þetta væri
gagnlaust kák, en ráðlierrann
sagði að ræða Bergs liefði verið
kákræða og að liann hefði farið
með haugalýgi o. s. frv. Skömm-
uðust þeir þannig langa hrið
og sagði Bergnr m. a., að ráðh.
hefði setið skamma stund að
•völdum og ætli ef til vill ekki
el'tir að setja lengi. Jak. Möller
varaði við því, að af breyting-
unni mundi sennilega stafa
veruleg aukning á fátækrafram-
færinu, en Magnús Torfason og
Hannes Jónsson töldu að of
skamt væri farið í því, að velta
framfærslukostnaði ulansveitar-
þurfalinga yfir á dvalarsveitirn-
ar. — Frv. var visað til alls-
herjarnefndar.
Um frv. um vinnumiðlun hóf-
ust umræður rétl um venjuleg-
an fundarslitatíma og varð þeim
ekki’ lokið.
Efri deild.
Fyrst var tekið fyrir 7. mál á
dagskrá frv. lil 1. um meðf. og
sölu mjólkur og rjóma. Herm.
J. mælti fyrir frv, Magnús J.
ámælti stjórninni fyrir hráða-
birgðalögin, sem hér er farið
fram á að Alþingi samþykki,
sérslaklega þar sem þan ættu
ekki einu sinni að ganga í gildi
í'yr en um áramót, þ. e. a. s.
þrem mán. eflir að þing kemur
saman. Viðhára Hermanns um
að þetla væri gert til þess að
hægt væri að liefja undirbúning
á framkvæmd frumv. væri slað-
leysa, þar sem það væri hægð-
arleikur að gera það, án þess
að grípa til nokkurrar lagasetn-
ingar. M. J. mótmælli einnig
hinni dulbúnu árás á mjólkur-
famleiðendurna í lögsagnarum-
dæmi Rvík. Aulc þess benti hann
á, að þegar lalað væri um
mjólkurmarkaðinn i Reykja-
vik, bæri að telja aðeins mjólk-
urneyslu Reykvíkinga umfram
þeirra eigin framleiðslu, sem
nú næmi 2 milj. litra af 6 milj.
1. neyslu þ. e. % af allri mjólk-
urneyslu bæjarbúa. Að umr.
loknum var málinu visað til 2.
umr. og landbúnaðarnefndar.
1. mál á dagskrá, frv. til I.
um gengisviðauka, var vísað til
2. umr. og fjárh.nefndar. Var
fundi síðan frestað til kl. 5.
Þá var tekið fyrir 6. mál á
dagskrá frv. til 1. um gjaldeyris-
verslun. Eyst. J. sagði brýna
nauðsyn bera til að lierða nú
Síðustn hljómleikar
Sardly Szenássy
í kveld kl. S1/ i Iðnó.
Aðgöngumiðar kr. 2.00,
1.50 og 1.00. Hverju sæli
fylgir ljósmýnd af snill-
ingnum.
rækilega á höftunum og' gera
allan innflutning ófrjálsan.
Magnús J. sagðist aldrei liafa
haft trú á höftunum sem lækn-
ingameðah, þau gætu gert eitl-
hvað gagn rélt i svip, meðan
vörubirgðir væru að tæmast, en
þegar þær væru tæmdar leitaði
kaupgetan sér útrásar með því
að menn snéru sér að vöruteg-
undum, sem þeir næsthelsl
vildu fá. En hér væri nú svo
ástatt, að að ekki einu sinni
þelta þyrfti, því kaupgetan fengi
útrás um miklu þægilegri dyr,
þar sem allur innflutningur frá
Spáni væri frjáls.
Jón A. Jónsson kvartaði yfir
þvi að ekki væri tekið nægilegt
lillit til þarl'a útvegsmanna úti
á landi í nefndinni og þyrfti að
bæta úr þvi.
Að umr. loknum var málinu
vísað til 2. umr. og fjárliags-
nefndar.
Þá var tekið fyrir 2. mál á
dagskrá, frv. til 1. um br. á I.
um bifreiðaslcatt (þ. e. bensín-
skatt), Eyst. .1. fylgdi fr\r. úr
hlaði og var lielst á lionum að
skilja að vegaviðhald hefði nú
alt í einu vaxið svo mikið að
liækka þyrfti bensínskalt um
100%. Magnús J. og P. Magn.
mótmæltu hækkuninni og sögðu
það ekki 'rétllæta þessa skatt-
hækkun, að bensínskatlurinn
væri enn hærri í öðrum löndum,
hann kæmi jafnhart niður fyrir
því. P. Magn. sagði að bensín-
skatturinn kæmi verst niður á
hafnlausu liéruðunum á Suður-
landi, sem notuðu svo að segja
eingöngu bifreiðar til flutninga
og hefðu af því mikinn kostnað.
J. Bald. gerði samkv. áskorun
Magn.v J. grein fyrir afstöðu
Alþ.fl. til málsins, og hún var i
stuttu máli sú, að það væri
reyndar hálf-bölvað að liækka
skattinn, en stjórnin þyrfti nú
einu sinni sínar tekjur og alls-
engar refjar og þess vegna væri
bara hreint ckkert við þessu að
gera.
Að umr. loknum var málinu
visað til 2. umr. og fjárli.nefnd-
ar. 3. máli á dagskrá um bráða-
birgðaverðtoll, 4. máli um
framl. á verðtolli og 5. mál um
breyt. á tolllögum, var um-
ræðulaust vísaði til 2. umr. og
fjárliagsnefndar, 8. og siðasta
máli á dagskrá um breyt. á
jarðræktarlögum var vísað lil
2. umr. og landbúnaðarnefndar.
Ný bök:
Ensk verzlunarbréf
með skýringum og orðasafni.
Tekið liafa saman
Eiríkur Benedikz og Þórarinn Benedikz —
kom á markaðinn í dag.
Ómissandi liandliók fyrir alla er við kaup-
sýslu fást.
Nauðsynleg við kenslu í verslunarbréfaskrift-
um.
Fæst hjá bóksölum.