Vísir - 14.10.1934, Page 3
VlSIR
Kaupum :
Kreppulánasj óðsbréf
Veðtíeildarbpéf
Mlutabpéf í Eimskip
Höfum til sölu:
Veðskuldabréf, vel trygg.
Ktuphöllin
Lækjargötu 2. — Opið kl. 4—6. — Sími 3780.
• • » ^4
• • Sel ágæta sjálfblekunga og alla með fullri át • með prentletri eða eiginhandarskrift og í • allskonar sjálfblekunga til viðgerðar: • Glerangnabúðtn. K. Brnni • yrgð. Gref nafn á þá O ögrum liturn. — Tek 6 • 1, langaveg 2. í
Hnsmæðnr og hfiseigendur!
I sýmngarglugga Versl.
Vaðnes, Laugavegi 28,
gefst yður að líta útstill-
ingu á
„Original“ 4 tíma gólf-
lakkinu með klukkuskífu-
merkinu.
Að dómi hinna mörgu, er
reynt hafa þetta lakk í
undanfarin 7 ár, er það
tvímælalaust best þeirra
gólflakktegunda, er hér
hafa þekst. Skoðið —
kaupið og reynið! Þér
munuð sannfærast.
Húsmæður! Prýðið heimili
yðar og léttið störf yðar
með því að nota gólflakkið með klukkuskífumerkinu í stað
þess að bóna gólfin.
Gólfin verða spegil-gljáandi, og lielst gljáinn i fleiri mánuði.
Sfmaskráin
Handrit að simaskránni fyrir næsta ár liggur frammi
i afgreiðslusal landssimastöðvarinnar frá og með 15. til
20. þessa mánaðar. Þeir, sem óska breytinga á skrásetn-
ingum í skrána og eigi hafa þegar tilkynt það, eru mintir á
að segja til á þessu tímabili.
Ennfremur skal vakin athygli á þvi að þeir sem eigi
tilkynna um breytingar á skrásetningum i atvinnu- og
viðskiftaskrá símaskrárinnar verða skráðir þar i næstu
litgáfu á sama liátt og áður.
ÓI. Kvaran.
Hatta- og skermabúðm
Austurstræti 8.
Nýkomnir kvenlianskar, kjóíkragar, töskur, enn-
fremur stórt úrval af allskonar hufum.
Nýir hattar koma daglega.
Ingibjöpg Bjapnadóttip.
Saumastofan
er Sott á Grundarstfg 4, aðra hæð.
1. flokks vinnustofa, fyrir allskonar kvenfatasaum, svo
Isem: kápur, samkvæmis- og hversdagskjóla. Vinnuna annast
lærðar saumastúlkur. Saumum einnig allskonar kvenundir-
fatnað, eftir máli. Sníðum og mátum, fyrir þær sem óska að
sauma föt sín heima. — Námskeið i kjólasaum, heldur áfram,
eins og áður.
Hildur Sivertsen
Grundarstíg 4, annari liæð. — Sími 3085.
Hergagnaframleiðslan.
Ameríska rannsóknarnefnd-
in tekur af'tur til starfa í
byrjun desembermánaðar.
Eins og áður hefir veriö getiö
hér í blaöinu var skipuö nefnd
manna í Bandaríkjunum til þess
.aö rannsaka ýmislegt, er grunsam-
legt ])ótti, í sambandi viö her-
gagnaframleiöslu þar i landi og
s.ölu hergagna til annara landa.
Kom margt fram viö fyrstu yfir-
heyrslur nefndarinnar eins og
.skýrt var frá i grein, sem birtist
i Vísi. Þegar yfirheyrslurnar
höföu staöið yfir nokkra daga var
frá því skýrt í erlendum blöðum,
aö ýmsir fulltrúar erlendra ríkja
hefði kvartaö yfir því við stjórn-
ina í Washington, aö þessar yfir-
heyrslur væri opinberar, og þegar
nefndin frestaöi yfirheyrslunum
héldu söm blöð, að þeim mundi
ekki verða haldiö áfram, vegna
mótmæla frá erlendum ríkisstjórn-
um. Sá grunur hefir ekki reynst
réttur, því að sairikvæmt skeyti frá
Washington þ. 28. f. m. hefjast
vfirheyrslurnar á ný þ. 3. des.
næstkomandi. í sömu fregn er þess
getið, aö Gerald P. Nye öldunga-
d ei 1 dar þ ingm aö ur, forseti rann-
sóknarnefndarinnar, heföi skýrt
frá því, aö afstöönu viðtali viö
Rossevelt foi*eta, aö hann hefði
veitt störfum nefndarinnar mikla
athygli og væri hann alls eigi mót-
fallinn því, að nefndin héldi áfram
rannsóknum sínum og yfirheýrsl-
mn.
Gerald P. Nye lét þess og getiö,
aö ýmsir breskir þingmenn heföi
simaö nefndinni og beðiö um ít-
arlegar upplýsingar um alt, er máli
skifti, er fram kæmi viö yfir-
beyrslurnar. Taldi Nye líklegt, aö
Bretar myrfdi skipa samskonar
rannsóknarnefnd og Bandaríkja-
menn. Auk þess lét Nye þess get-
ið, aö óhætt væri að fullyrða, að
enn mundi margt koma í ljós er
nefndin tæki til starfa á ný, sem
eigi mundi vekja minni athygli en
þaö, sem þegar heföi vitnast. Öll-
vitni, sem búiö er að yfirheyra,
veröa leidd fyrir nefndina á ný, til
írekari yfirheyrslu.
Manchester Guardian legg-
ur til, að Bre'tastjóm fyrir-
skipi samskonar rannsókn
og Bandaríkjastjórn á sölu
og framleiðslu hergagna.
Hið víðkunna breska blaö,
Manchester Guardian, hefir fariö
þeim oröum um rannsóknirnar
vestra, aö þaö sé eitt með því
djarflegasta, sem Rooseveltstjórn-
in hafi tekiö sér fyrir hendur, aö
fyrirskipa rannsókn á þessum mál-
um. Telur blaðið og mikilvægt, að
almenniugur fær fulla vitneskju
um alt, sem rannsóknirnar leiöa
í ljós, og leggur til aö Bretastjórn
fari aö dæmi Bandaríkjastjórnar
og skipi nefnd manna til rann-
sókna á þessum málum í Bret-
landi.
Safn af lögum. Samið hefir
ísólfur Pálsson. Kostnað-
armaður Jón Pálsson. Rvík
1934. Félagsprentsm.
Þetta sönglagahefti kemur
mpnnum ekþi á óvart. Höfundur-
inn er áður kunur sem tónskáld.
Hann hefir samið lag, sem öll
þjóðin syngur og mun lifa á vör-
um þjóðarinnar um langan tíma,
en þaö er lagið ,,í birkilaut hvíldi
eg bakkanum á“. Það birtist fyrst
í „íslenzku söngvasafni“, og það
ei í þessu sönglagasafni. Með
þessp lagi hefir höfundurinn hitt
naglann á höfuðið.
Sönglagaheftið, sem hér er gert
að umtalsefni, inniheldur 31 frupi-
samin lög við íslenska texta. Höf-
undurinn er ljóðelskur og velur
sér fallega texta. Mörg kvæðin
hefir hann sjálfur ort.
Lögin í bókinni eru ljúf og þýð.
Fjólu nefnir höf. líka bókina, eftir
bláa blóminu, sem skáldunum er
hugþekt yrkisefni. Lögin eru lát-
laus og fögur, alþýðleg, eins og
lagið hans alkunna, sem minst er
á hér að framan, raddsetningin er
vönduð. Lögin eru af sama anda
og gömlu lögin, sem suiigin hafa
verið hér á landi síðan á dögum
Jónasar Helgasonar tónskálds, og
enn eru í fullu gildi. Þau eru traust
og kjarngóð, og þannig virðist
mér lögin í þessari bók vera. Þyk-
ir mér ekki ólíklegt, að sum þeirra
verði mikið sungin, eins og lagið
hans alþekta. B. A.
I O.O.F. 3 = 11610158 = 9-0
Byggingarfélag
sjálfstæðra verkamanna heldur
fund í Varðarhúsinu kl. 8 e. h.
á mánudaginn. Félagsmenn sýni
skírteini sín við innganginn. Til
umræðu verður lagafrv. ríkis-
stjórnarinnar um verkamannabú-
staði, sem nánara er sagt frá ann-
aisstaðar í blaðinu.
E.s. Brúarfoss
fór héðan í gærkveldi áleiðis til
Englands með viðkomu í Vest-
mannaeyjum og á Reyðarfirði.
Meðal farþega voru: Þórður Þor-
bjarnarson, Thor G. Hallgrímsson,
Magnús Geirsson, Þuríður Jóns-
dóttir, Anna Hjaltested, Jóhanna
Reiðhjðialogtir.
LUCAS,
BOSCH,
MELAS,
BERKO og fleiri teg.
Nýjustu gerðir fyrirliggj-
andi í mestu úrvali hér á
landi.
Dynamólugtir kr. 3,25.
Battari og vasaljós í
feikna miklu úrvali ávalt
fyrirliggjandi.
Heildsala. Smásala.
Fálkinn,
Laugaveg 24.
SílðeipÉ.
Látið endurnýja mótora
yðar með liinum lieims-
frægu Specialloid stimpl-
um. Fræsum (borum),
alt unnið af þaulvönum
mönnum með bestu fáan-
legum verkfærum.
I Alt á sama stað.
Laugavegi 418.
Sími: 1717.
'
Heilsnfræðissýniog
Læknafélags Reykjavíkur
með aðstoð Deutsclie Hygiene
Museum, Dresden, og Univer-
sitátsinstitut fúr Berufskrank-
heiteií, Berlin.
Opin fyrir almenning i nýja
Landakotsspítalanum kl. 10—
10 daglega. Aðgrn. fyrir full-
orðna 1 kr., börn 25 aura. —
Aðgm. að allri sýningunni 2 kr.
1 dag, sunnudag: KI. 2. Fund-
ur i L. R. í Gamla Bíó. Fyrir-
lestur beldur dr. Pernice um
Rassenliygiene, 2 kvikmyndir.
Fyrir lækna og læknanema. Kl.
3J/2 flytur prófessor Guðm.
Hannesson erindi um skipulag
bæja. Á sýningunni í Landakoti
flytur dr. H. Tómasson stutt
crindi kl. 4y2 um andlega beil-
brigði og dr. Halldór Hansen kl.
6’ erindi um meltinguna.
Á morgun, mánudag: kl. 8Y2
flytur próf. N. Dungal stult er-
indi um krabbamein.
Sigurjónsdóttir, Þórunn Ólafsdótt-
ir, Jóhanna Guðmundsdóttir og
nokkrir útlendingar.
Fiskbirgðir
námu þ. 1. okt. s. 1. samkvæmt
reikningi Gengisnefndar, 31,710
þurrum smálestum, en á sama tíma
í fyrra 30,481 þ. smál.
Aflinn
var þ. 1. þ. m., samkvæmt
skýrslu Fiskifélagsins, 61,162
þurrar smálestir, en á sama tima
i fyrra 67,576 þurrar smálestir.
Útflutningurinn
í septembermánuði s. 1. nam kr.
6,686,270, en á tímabilinu jan,—
sept. kr. 31,644,600 (innflutt á
sama tíma fyrir kr. 36,465,440). í
fyrra nam útflutningurinn frá ára-
mótum til septemberloka þr.
32,277,600, en innflutningurinn kr.
33,565,440,
Jóhann Briem
frá Stóra-Núpi hefir málverka-
sýningu í Goodtemplarahúsinu
þessa viku. Er hún opin kl. 10—
12 og x—5 daglega. — Jóh. vBr,
mun einkum hafa lagt stund á að
mála xmannamyndir.
Farsóttatilfelli
á öllu landinu í september voru
1014 talsins, þar af 306 í Reykja-
vík, 242 á Suðurlandi, 138 á Vest-
urlandi, 271 á Norðurlandi og 57
á Austurlandi. Flest voru kvef-
ísóttartilfellin eða 465 (136 í Rvík),
þá kverkabólgutilfellin 250 (105 í
Rvík) o. s. frv. Taugaveikistilfell-
in voru 5 á öllu landinu í mánuð-
inum, þar af 4 á Suðurlandi, en 1
á Norðurlandi. Kveflungnabólgti-
tilfellin voru 18 á öllu landinu (6
í Rvik) og skarlatssóttar 51 (15
í Rvík), 22 á Suðurlandi, 13 á
Vesturlandi og 1 á Norðurlandi.
Landlæknisskrifstofan. (>FB.).
K. F. U. K.
í Y. D. verður fyrsti fundur
haustsins haldinn kl. 5í dag.
Allar ungar stúlkur 12—16 ára
velkomnar.
Hlutavelta.
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík efnir til hlutaveltu í
K.R.-husinu í clag og hefst hún kl.
5 e. h. — Þarna verður fjöldi
g'óðra drátta og geta menn eign-
ast þar fyrir fáa aura, ef lieppnin
er með, ýmsar nauðsynjar, svo sem
kol, saltfisk, hveiti, kjöt í kropp-
um, niðursuðuvörur, glervarning
o. m. fl. —- Kvenfélag Fríkirkju-
safnaðarins hefir þarfa starfsemí
með höndum og rennur allur á-
góðinn af hlutaveltunni til hennar.
Næturlæknir
er í nótt G. Fr. Petersen, sími
2675. — Næturvörður í Laugavegs
apóteki og Ingólfs apóteki.