Vísir - 21.11.1934, Page 3
VISIK
Frá Englandi
hafa komið Belgaum, Otur og
(iulltoppur.
E.s. Varild
kom i morguii með cements-
farm.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson.
Lækjargötu 4. Sími 2234. —
Næturvörður i Reykjavíkui-
apóteki og Laugavegs apóteki.
E.s. Súðin
fór í strandferö í dag'. Skipiö átti
aö fara héðan í gærkveldi, en brott-
förinni var fre'staö.
M.s. Dronning Alexandrine
fór kl. lojý í morgun frá Kaup-
mannahöfn áleiðis hingað, með
viðkonm í Færeyjum.
Gengið í dag:
Sterlingspund .......... kr. 22.15
iÐóllar................. — 4.46
sioo ríkismörk ........... — 178.49
franskir frankar . — 29.47
— belgur .............. —- 103.98
---svissn. frankar . . —• 144.67
lírur ............... — 38.50
— finsk mörk .......... —- 9.93
— pesetar .............. — 61.67
— gyllini .............. — 301-35
— tékkósl. krónur .. — 18.98
— sænskar krónur .. — 114.36
— norskar krónur .. — 111.44
— danskar krónur . — 100.00
‘Gullverð
íslenskrar krónu er nú 49,61,
miðað við frakkneskan franka.
Aðalfundur -
Verslunarmannafélags Reykja-
-víkur verður haldinn annað kveld
kl. 8í Oddfellowhúsinu.
Háskólafyrirlestur.
Þýski sendikennarinn, dr. Will,
flytur erindi í Háskólanum kl. 8
í kveld.
Tilkynning
frá ráðuneyti forsætisráðherra:
Samskotin vegna landskjálftanna:
Frá heimilisfólkinu í Sauðlauksdal
í Rauðasandshreppi kr. 25.00. —
<FB.).
Eél. ísl. hjúkrunarkvenna
efnir til 15 ára afmælisfagnað-
ar n. k. laugardag á Hótel Borg
kl. 9 síðdegis. Sjá augl.
Betanía.
. Samkoma í kveld kl. 8y2. Zions-
kórinn syngur. Allir velkomnir.'
Útvarpið í kveld.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veð-urfr.
10,20 Þingfréttir. 20,00 Klukku-
.■sláttur. Fréttir. 20,30 Erindi:
Krossferöir og múgæði (Þórberg-
ur Þórðarson rithöfundur). 21,00
'Tónleikar: a) Fiðlusóló (Þórarinn
■Guðmundsson) ; b) Grammófónn :
Létt lög fyrir hljómsveit.
Liestöl
ráðherra segir ekki af sér.
Osló, 19. nóv. FB.
Vegna orðróms í liægriblöð-
unum um að Liestöl kirkju-
málaráðherra ætli að biðjast
lausnar innan skamms hefir
hann látið svo um mælt í Dag-
bladet, að orðrómur þessi hafi
ekki við neitt að styðjast.
Utanríkisverslun Norðmanna.
Osló, 19. nóv. FB.
Iimflutningurinn i Noregi i
októbermánuði s. 1. nam liðlega
67 inilj. króna og hefir aldrei
verið meiri á einum mánuði
undanfarin þrjú ár. Otflutning-
urinn nam 53 milj. kr. og hefir
:aldrei verið meirí undanfaritt
;tvö ár.
Minningarorð.
Benjamín Jón Gíslason fyrr-
um skipstjóri lóst í okt. síðastl.
að heimili sínu, Baugsve'gi 5 við
Skerjafjörð, efir langa van-
heilsu.
Hann var fæddur að Grenivík
í Höfðahverfi, við Eyjafjörð, ö.
júlí 1889, og var því ekki nemu
rúmlega 45 ára að aldri. Voru
loreldrar lians Gísli Magnús-
son, múrarameistari i Reykja-
vik og fyrri kona lnms, Þórunn
Benjamínsdóttir, systir Magnús-
ar úrsmiðs Benjamínssonar og
þeirra systkina. En er Benjamin
sál. var 2ja ára fluttust fpreldr-
ar lians hingað til Reykjavikur
og ólst hann því hér upp.
Snemma komu i ljós þeir eigin-
leikar, sem æ síðan einkendu
#
hann, er var dugnaður og lip-
urð í öllum störfum lians, prúð-
menska, alúð og glaðværð, svo
að hann ávann sér vinsema
allra þeirra, er kyntust honum.
En samfara hinu glaðlega og
alúðlega viðmóti hans var sam-
viskusemi hans, áreiðanleiki og
festa. Og í engu vildi hanu
vamm sitt vita. Hann nam sjó-
mannafræði, og stýrði urn skeið
þilskipi og siðan vélbát, og
sýndi þá bæði kjark og karl-
mensku i ýmsum svaðilförum.
Benjamín var einkar vinsæll
og vel látinn, alstaðar þar sem
liann var þektur, eins og eðli-
legt var, eftir allri framkomu
hans, og mun hann fáa eða
enga óvildarmcnn hafa átt um
dagana. Var hann og einnig laus
við að gjöra á liluta annara að
fyi-ra bragði, til þess var hann
of góðviljaður og sanngjarn.
Kvæntur var Benjamín Mar-
grétu Sveinbjarnardóttur, bróð-
urdóttur Þorvarðar , prent-
smiðjustjóra, Þorvarðssonar
heppstjóra á Kalastöðum Ól-
afssonar. Var lijónaband þeirra
hið ástúðlegasla. Varð þeim 5
barna auðið, sem öll eru á lífi.
Fráfall Benjamíns sál. vekur
því mikinn söknuð, eigi einung-
is lijá konu hans og hörnum,
heldur einnig hjá öldruðum
föður og stjiipmóðub hans, er
jafnan reyndist honum, sem
besta móðir, eltki síst í hinum
langa og erfiða sjúkdómi lians;
hjá systkinum hans, tengamóð-
ur og mörgu vensla- og vina-
fólki. Hjá öllum þessum og
mörgum fleiri gevmist minn-
ing um mætan og dugandi
dreng.
Kunnugur.
Uallgrftnskveld
27. október
og Hallgrímskirkja.
F.ins pg' útvarpshlustendum er
kunnugt, var Hallgríms Péturs-
sonar minst i tveimur útvarpsræfi-
um og með söng aiS kveldi þess 27.
f. m. En þá voru HMn rétt 260 ár
frá því er Hallgrímur lést (27. okt.
1674). — Minningarathöfnin hófst
á því, aö formaöur Hallgrims-
nefndar, hr. Olafur B. Björnsson,
skýröi frá fjársöfnuninni til Hall-
grímskirkju. Kvaö hann kirkju-
byggingarsjóðinn nú oröinn um
70 þúsund krónur, en áætlaöan
1; kostnað við kirkjubygginguna 100
þúsund krónur. Þar af skyldi þó
leggja 10 þúsund krónur i sjóð til
viðhalds kirkjunni á eftirkotnandi
: tima, Ensnfremur lét ræðumaSur
j| þess g'etið, að gengið væri út frá
því áb k-irkján rúmáðr eigi yfir jqo
Snjðkeðjor!
Þverhlekkir, keðjustrekkjar-
ar og lásar, nýkomið, þar á
meðal ný gerð af þverhlekkj-
um fyrir vörnbila, miklu
heppilegri en gamla gerðin.
Haraidup
S veinbj arnapson.
Laugavegi 84.
Sími: 1909. Sími: 1909.
Tek að mðr
öll Iij úkrunarstörf, þó sérstak-
lega barnahjúkrun.
Anna Guðmundsdóttir.
Sími; 3254.
manns í sæti. Og eftir því að dæma
verður Hallgrímskirkja lítil að
grunnmáli. — Við ]>etta atriði vildi
eg leyfa mér að gera dálitla at-
hugasemd: Kirkja, sem rúmar
,.eigi yfir" 200 manns í sæti. mun
að visu vera fullnægjandi eða jafn-
vel .fullstór handa söfnuði þeim,
sem á kirkjusókn að Saurbæ
Hvalfjarðarströnd. En hér er Jiess
að gæta, að Hallgrímskirkja á að
taka vénjulegum smásóknarkirkj-
um fram að stærð og fegurð, þar
sem henni er ætlað að vera minn-
ingarkirkja, er þjóðin öll hefir
reisa látið. Og einmitt þess vegna
ber eigi að miða stærð slíkrar
kirkju eingöngu við kirkjuþörf
eins fámenns safnaðar. — Eg vil
hins vegar gera ráð fyrir, að ])að
geti oft borið við, að fjölment
verði að Hallgrimskirkju að Saur-
bæ, þar sem nú eru orðnir greiðir
bílvegir á alla vegu að kirkjunni,
auk ]iess sem sjóleið þangað írá
höfuðstað landsins er fremur stutt.
Finst mér að taka megi allmikið
tillit til þessa, er taka skal ákvörð-
un um stærð (sætarúm) Hallgrims-
kirkju. — Mig skortir þekkingu til
þess að ræða mál þetta frá bygg'-
ingarfræðilegu sjónarmiði. En þó
verö eg að segja, að mér finst sem
fagur og tilkomumikill byggingar-
stíll fái eigi notið sin til fulls nerna
á nokkuð stóru húsi, — og er þetta
þó vafalaust mest áberandi, er um
háhýsi — svo sem kirkju — er
að ræða. — Eg þykist þess full-
yiss, að vegleg kirkjubygging
mimi kosta meira en 70—100 þús-
undir króna. — E11 eftir því að
dæma, hve vel hefir tekist hingað
til með fjársöfnun til Hallgríms-
kirkju. þá ætti að mega vænta
þess. að almenningur, og að sjálf-
sögðu einnig ríkið — mundi vilja
leggja það af mörkum. er kynni
enn að vanta til þessarar býgging-
ar. til ]iess að kirkjan megi sem
best svara tilgangi sínum, að verða
landi og lýð til sóma.
Auðsætt er að sönnu, að það
mundi dragast einu eða tveimur
ó.rum lengur að byrjað verði að
byggja kirkjuna, ef horfið yrði aö
því ráði aö halda áfram fjársöfn-
un, og gengið út frá ])ví, að bygg-
ingarkostnaður nemi 170—200 þús.
krónurn. — Eg hefi hugsað mér
1 lallgrímskirkju það stóra, að
hún rúmi a. m. k. 7^-8 hundruð
manns i sæti, og turnbyggingu svo
háa, sem frekast má verða í hlut-
falli við flatarmálsstærð kirkjunn-
ar. —
Læt eg hér staðar numið, og
vona, að þessi athugasemd mín
verði íhuguð af réttum hlutaðeig-
cndum. —
n. 11. 1934.
P. P.
Kjólatau
•3 ææææææææ
> ææææææææ 0
5 ææææææææ ©
Zææææææææ s
* ææææææææ <
5 ææææææææ s
51 ææææææææ ®
ææææææææ
Vöpuliúsid
Otan af landi,
—x—
Hornafjarðarbíllinn kominn heim.
Hornafirði 20. nóv. FÚ.
Helgi Guðmundsson og félpgar “
hans komu í gær hingað til Horna-
fjarðar á bílnum er þeir fóru með
til Reykjavikur. Voru þeir 4 daga
á leiðinni austur. Fengu ])eir stór-
rigningu á Breiöamerkursandi, en
sluppu yfir árnar áður en þær urðu
úfærar.
Aðalfundup
félagsins verður haldinn á
morgun, fimtudag, kl. Sþá e. li.
i Oddfellowliúsinu.
Líkfundur.
20. nóv. FÚ.
Samkvæint símskeyti frá frétta-
ritara útvarpsins að Ystafelli hefir
nú eftir rnikla leit fundist lík Sig-
tryggs Friðrikssonar bónda aö
Sellandi í Fnjóskadal, en hann
fórst i veturnáttahriöinni aðfara-
nótt fyrsta vetrardags. Þegar lík
Sigtryggs fanst, kom í ljós að liann
hafði farist i snjóflóði.
Skemdir af völdum hrims
í Borgamesi.
Borgarnesi 20. nóv. FÚ.
I gær var mjög mikiö brim hér
1 Borgarnesi, og l)rotnaði, öídu-
brjóturinn sem er framan á bryggj-
unni, á átta og hálfs meters kafla.
Brim var óvenjulega mikið, ekki
hvassara en var.
í dag hefir veðrinu slotað, og
er þegar byrjað að gera við
bryggjuna, en hún er úr stein-
steypu.
Ekki hefir frésú um aðrar
skemdir af völdum brimsins í
Borgarfirði.
Ú tvarpsfréttip.
Japanar smíða stöðvarskip fyrir
flugvélar.
Berlín í morgun.
A japanskri skipasmíðastöð var
í gær lagður kjölur að fyrsta flug-
vélastöðvarskiin japanska flotans.
Róstur í Austurríki.
London í gærkveldi, — FÚ.
Róstur urðu í gærkveldi i Inns-
bruck milli stuðningsmanna
Schussnigg kanslara og Heim-
wehrmanna. Þær byrjuðu á þann
hátt, að Heimwehrmenn hrójmðu :
„Heil Starhemberg", en Schuss-
niggsmenn hrópuðu þá á móti
„Niöur með Starhemberg". Síðan '
lenti i bardaga og- skakkaði lög-
íeglan loks leikinnn, en ekki þó
fyr en nokkur meiðsl höfðu hlotist
af. Nokkrir Heimwehrmenn voru
handteknir.
Schussnigg er væntanlegur til
Wien á morgun írá Rómaborg.
1
\
Endurskoðun frakknesku stjórnar-
skrárinnar.
Berlin í morgun. — FÚ.
Tardieu hefir gefið út bækling'
Dagskrá samkvæmt lögum
félagsins.
STJÓRNIN.
Verndið sjðnina
og látiö ekki Ijósið hafa skaðleg
áhrif á augu yðar, þegar hægt
er að forðast það, með því að
nota
THIELE
GLERAUGU.
Austurstræti 20
um endurskoðun frönsku stjórnar-
skrárinnar. Telur hann nauðsyn-
legt að breyta henni, og stingur
upp á ])vi, aö kallað verði til þjóð-
fundar í Versailles um málið.
Skoðanir manna í Frakklandi
eru mjög skiftar um þetta mál. Til
dæmis leggur Cailleaux. íyrver-
andi ráðherra, eindregið á móti
breytingu stjórnarskrárinnar í
íilaðagrein sem hann ritar í gær.
Frakkar takmarka notkun erlends
vinnumagns.
Berlín í morgun. — FÚ.
A ráðherrafundi i París í gær
voru samþykt ný ákvæði gegn
notkun erlends vinnukraftar í
frönskum atvinnufyrirtækjum. —
Meðal annars var fyrirtækjum, sem
selja af framleiðslu sinni til hins
o|)inbera bannað að nota erlendan
vinnukraft. Alls starfa nú rúm-
lega 800,000 erlendir verkamenn í
Frakklandi, en árið 1932 voru þeir
1 y2 miljón.
„Aulestad“.
Osló, 19. nóv. FB.
Norska ríkið tók i gær við
Aulestad, sem verður varðveitt-
ur til minningar um Björn-
stjerne Björnson. Hátíðleg at-
liöfn fór fram. Einar Björnson,
sonur skáldsins, og kona hans,
Dagny Sautreau, fluttu ræður.
Sunde ráðherra tók við staðn-
um fyrir hönd idkisins og fól
stjórn „Sandvigske samlinger“
að vernda staðinn og varðVeita
fyrir komandi kynslððir.