Vísir - 21.12.1934, Qupperneq 2
VlSIR
)) fferrraH & Qlsem f
úsmæðar!
Aldrei mistekst
jölabaksturinn ef notað er í hann
BACKIN-gerdufl.
Gerduft | fæsl i ttipiiii yöar.
FaUeg efni
í kjóla og kápur.
allskonar.
Silkinærfatnaður
Ódýr slifsi.
Manecurekassar.
Púðurdósir.
Burstasett.
Regnhlífar.
Ullar- og Silkikjólar.
Kvenkápur.
Kvenfrakkar
og margt fleira til
jólagjafa.
Verslun
Kristínar SiMttnr
Laugaveg 20A.
Simi 3571.
Jólaávexti
Eplí, 3 tegi
Áppelsínur.
Banana.
Sítrónur.
Melónur,
mjög góðar,
Vínber
er best að kaupa í
,.Goðafoss“
fer annan jóladag (26. des-
ember) að kvöldi, um Vest-
mannaeyjar, beint til Ham-
borgar.
Vörur afhendist fyrir
hádegi á mánudag (24.
des.) og farseðlar óskast
sóttir. /
„Gullfoss“
fér 2. janúar að kvöldi, um
Vestmannaeyjar, beint til
Kaupmannahafnar.
Frá Alþingi
1 gœr.
Neðri deild.
Þar var fyrst tekiS fyrir frv. um
heimild fyrir sýslu- og bæjarfélög
til aS starfrækja lýöskóla meö
skylduvinnu nemenda gegn skóla-
réttindum. Það er Björgvin sýslu-
maður Vigfússon, sem hefir beitt
sér fyrir því, að slík löggjöf yrði
sett, og er mál þetta orðið kunn-
ugt almenningi, því að frumvarpið
hefir verið flutt á mörgum þingum
undanfarið, en aldrei náð því að
verða að lögum. Frv. hafði verið
vísað til mentamálanefndar
snemma á þessu þingi og kom nú
til deildarinnar dagskrártillaga frá
nefndinni um að vísa frumvarpinu
til stjórnarinnar til athugunar
„fyrir næsta þing“. — Stefán Jóh.
Stefánsson flutti þá breytingartil-
lögu við tillögu nefndarinnar, að
feld skyldu niður orðín „fyrir
næsta þing“, og vildi hann þann-
ig, að stjórninni væri ætlaður óá-
kveðinn tími til að athuga máljS,
Pétur Ottesen vildi ekkprt ann-
að en ganga af frumvarpinu dauðu
J.-egar í stað og kvað Jjað aldrei
hafa verið flutt á þingi af heilum
hug. — Var um skeið útlit fyrir
að í allhart mundi slást milli þing-
manna út af Jiessu. En þegar P. O.
kvaddi sér hljóðs i Jiriðja sinn,
kvað forseti sig bresta heimild til
að leyfa honum að tala, því að
engar sakir hefðu verið á hann
bornar og enginn þm. hefði leyfi
til að taka til máls í Jiriðja sinn,
samkv. þingsköpum, nema til „að
bera af sér sakir“, og fékk Pétur
því ekki að tala. Var nú gengið
til atkvæða og feld breytingartil-
laga Stef. Jóh., en dagskrártillaga
nefndarinnar samþykt óbreytt.
Er frv. því úr sögunni — að ]>essu
sinni.
Þá var gengið til atkvæða um
frv. um aldurshámark embættis-
manna og var J>að sam]>ykt með
i-6 atkvæðum socialista og fram-
sóknarmanna gegn atkv. sjálf-
stæðismanna, Á. Á. og H. J. —
M. T. greiddi ekki atkvæði en
tveir þm. voru fjarverandi.
Um frv. um skipulag á fólksr
flutningum með bifreiðum urðu
alllangar umræður og yfirleitt all-
strangar. — Gerði H. V. grein fyr-
ir Jjví hverjum breytingum frurn-
varpið hefði tekið í e. d. og mælti
með þvi að J>að yrði samj>ykt.
Garðar Þorsteinsson bar fram br,-
till. við frv. m. a. um ]>að, að skylt
skyldi að veita sérleyfi]>eimmönn-
um eða félögum sem haldið hefðu
uppi ferðum á ákveðnum leiðum.
Kvað hann það í almæli, að höfuð-
tilgangur frv. væri sá, að veita
Héðni Valdimarssyni aðstöðu til
}>ess að ná undir Olíuverslun ís-
lands bensínsölu til bifreiða, með
því að veita þeim einum sérleyfi,
sem skuldbyndu sig til að kaupa
bensín af þeirri verslun. — Út af
J>essu urðu hróp mikil og gefek nú
atvinnumálaráðherra fast fram til
varnar Héðni og krafðist þess að
Garðar endurtæki þessa aðdróttun
sína utan þings, svo að H. V. gæf-
ist tækifæri til að höfða mál gegn
honum. Annars lýsti ráðh. J>ví yfir,
að hann mundi veita sérleyfi eftir
sömu reglum eins og veitt væri út-
flutnings- og innflutningsleyfi, þ.
e. }>eim Umsækjendum sem atvinnu
hefði haft af þessari starfsemi að
undanfömu og kvaðst ráðh. hafa
gefið þá yfirlýsingu undir umr.
um J>etta mál i e. d. og hefði J>á
samskonar tillaga og Garðar flutti
verið tekin aftur af flutningsmönn-
um. Þess láðist ráðherra að geta,
iað tillagan var síðan tekin upp og
feld af stjómarliðum með því að
þeir neituðu að greiða atkvæði um
hana. Héðinn tók nú til máls og
krafðist þess líka af Garðari, að
hann endurtæki ummæli sin um
hann utan þings og gæti hann þá
fengið atvinnu við að verja mál
sitt! Síðan þurfti Hermann eitt-
hvað að leggja orð í belg. — Jak.
M. tók í streng með Garðari og
sagði Héðni og ráðherrunum til
syndanna. Slikt hið sama gerði
Ólafur Thors og bar fram breyt-
ingartillögu við tillögu Garðars, til
samkomulags. —- Stóðu þessar um-
ræður yfir mikinn hluta fundar-
tímans fyrir kl. 4 og svo kl. 5—7.
En að tokum var atkvæðagreiðslu
frestað.
frá bælarstiðrnarlundl
í gær. ,
Fulltrúi kommúnista flutti till.
um jólaglaðning til atvinnulausra
verkamann.a 9, fl. till., er öllum
hafði áður verið vísað til bæjar-
ráðs. Ólafur Friðriksson sýndi
fram á, að till. þessar væru nú
. gagnslausar, ]>ar sem um þær
þyrftu tvær umr. 0g því væri von-
'i&ust, að þær yrðu áfgreiddar fyrir
jól, enda mundi verða erfitt að út-
vega fé til að standast kostnaðinn
af þeim, en hann taldi kommún-
istinn mundu verða alt að 150 þús.
kr. Bjarni Benediktsson benti á,
að kommúnistar vissu mæta vel, að
þessar till. yrðu ekki samþyktar,og
þeir ætluðust heldur ekki til þess,
því að þær yæru einungis bornar
fram í samkepnisskyni við socia-
listana. Erí hitt færist kommúnist-
um ekki, að þykjast vera fulltrúar
verkalýðsins og vera stöðugt að
hóta því, að hann mundi beita
bæjarstjórnina ofbeldi, ef hún
samþykti ekki fjarstæður þeirra.
Því að vitanlegt væri, að þeir
hefðu hvað eftir annað nú í sumar
og haust ætlað að gera aðför að
bæjarstjórninni, en aldrei fengið
nóg lið, enda fækkaði nú óðum
þeim, er nentu að hlusta á skvald-
ur þeirra, hvort sem það væri bor-
ið fram i bæjarstjórn eða Bratta-
götu.
Frú -Aðalbjörg Sigurðardóttir
bar fram till. um að veita 2000 kr.
til einstæðra mæðra nú fyrjr jólin
og skyldi mæðrastyrksnefnd og
Vetrarhjálpin úthluta þeim. Á það
var bent, að þegar væri búið að
ákveða að verja alt að 5000 kr. af
fé Vetrarhjálparinnar í þessu skyni
og sýndi frú Ragnhildur Péturs-
dóttir fram á, að mjög óheppilegt
væri að fara nú að skifta þessari
styrktarstarfsemi. Lang heppileg-
ast væri að Vetrarhjálpin hefði
yfirstjórn hennar, enda væri Vetr-
arhjálpin í ágætra manna höndum
og nyti fulls trausts bæjarbúa, sem
sýndi sig á gjöfum þeim, er hún
daglega fengi, og þyrfti enginn að
fyrirverða sig fyrir að leita til
hennar. Guðmundur Oddsson fór
ýmsum óvirðulegum orðum um
það, að hér væri vitnað í Vetrar-
hjálpina, þar sem forstöðumaður
hennar væri út um borg og bý að
Tömar tannur,
störar,
1 krðna stykkið,
„Málarinn“.
7
Er bæriim
eplalaos?
Epli í kössum og
lausri vigt seljum
við ódýrt.
Versl. Bristol.
biðja henni gjafa hjá borgurunum
og væri því bæjarfélaginu ekki
mikið að þakka í þessu efni. Þá
fann G. O. að því, að bæjarfull-
trúum hefði ekki verið jafnóðum
send skýrsla forstöðumanns Vetr-
arhjálparinnar. Borgarritari las þá
skýrsluna þegar í stað upp og kom
í ljós að hún hafði legið fyrir bæj-
aráði og flokksbræður G. O. þar
enga ósk borið fram um að senda
hana öllum bæjarfulltrúunum,
enda væri slíkt ekki venja. Bjarni
Benediktsson minti á það, að Vetr-
arhjálpin hefði hafist fyrir frjálst
samskotafé þpejarbúa, en bæjar-
stjórn síðan lagt fram töluvert fé
henni til styrktar og nú ráðið að
henni forstöðumann. Þrátt fyrir
þetta væri auðvitað ekki meining-
in, að eðli starfseminnar ætti að
breytast þannig að ekki skyldi hér
eftir henni til styrktar _ leitað
frjálsra framlaga borgaranna. Til-
ætlunin væri einmitt sú, að for-
staða bæjarins veitti borgurunum
aukna tryggingu fyrir því að fénu
yrði vel varið og þeir gæfu þess
vegna enn meira en ella. Slíkt tíðk-
aðist víða urn heim og þætti eng-
um athugavert nema Guðmundi
Oddssyni einum. Borgarritari gat
þess, að sýnt væri, að kostnaður
við atvinnubætur mundi fara tölu-
vert fram úr áætlun, en þrátt fyrir
það hefði nú í þessari viku enn
verið fjölgað í atvinnubótavinn-
unni til að létta undir með mönn-
um um jólin.
Atkv.gr. fór svo, að till. komm-
únista voru feldar með 8 atkv.
gegn 1 og till. Aðalbj. Sig. með S
gegn 4 eða 5.
Skólanefnd hafði heimilað 2
barnakennurum að ráða aðra kenn-
ara skólans til að kenna fyrir þá,
upp á þeirra kostnað, fyrir annan
6 tíma í viku óg hinn 2 tíma. Út
af umr., sem um þetta urðu, gat
forseti bæjarstjórnar, Guðmundur
Ásbjörnsson, ]>ess, að hann hefði
verið þessu mótfallinn í skóla-
nefnd. Enda væri það mjög var-
hugavert að leyfa kennurum að
setja þannig aðra menn í sinn stað
til þess, að þeir gætu sjálfir gegnt
aukastörfum út i bæ, og mætti
nærri geta, að það mundi ekki
hafa holl áhrif á kensluna, að hafa
oft slík kennaraskifti.
Auk þess voru nokkrar fundar-
gerðir samþyktar.
10 °/„ afslátt
af öllum vörum til jóla.
Ódýrar og fallegar
jólagjafir.
Gefum 10% af öllum vörum verslunarinnar til jóla,
Púður og Cream ódýrast í bænum.
Hárgreiðslustofa Reykjavíkur
J. A. HOBBS.
Aðalstræti 10. Sími: 4045.
eru jólaspilin er þér skuluð biðja um hjá kaupmanni
yðar.
Heildversl. Garðars Gíslasonar
Sími: 1500.
Allir vilja þekkja
Dætur Reykjavíkur I-II.
Fæst hjá bóksölum.
Hand-
fdkupna? í
Þýskalandi.
Berlin 21. des. FB.
Sókninni á hendur homosexual-
istunum er nú lokið að mestu, að
því er United Press hefir fregnað.
í Berlín einni voru handteknir um
300 menn úr flokki nazista og ut-
anflokksmenn. Margir hinna hand-
teknu hafa verið sendir í fanga-
búðir. (United Press).
Stjórnar-
myndunin í
Júgóslavín.
Belgrad 20. des. FB.
Samkomulagsumleitanir Jevtitch
um myndun nýrrar stjórnar hafa
enn ekki tekist. Jevtitch hafði í
raun og veru sett radikölum úr-
slitakosti, en þeir neitað að ganga
að þeim. Frestaði Jevtitch því
flokki Króata. (United Press).
Belgrad 21. des. FB.
Jevtitch hélt áfram samkomu-
lagsumleitunum sínum i morgun
og hefir nú afhent ríkisstjórríend-
unum ráðherralista. Á honum. eru
nöfn fyrrverandi hermálaráðherra
Zivkowitch og Kojic landbúnaðar-
ráðherra. Einn ráðherranna 'er úr
flokki Króara. (United Press).
Sænska deildin í alþjóðalögregl-
unni lögð af stað.
Stokkhólmi 20. des. FB.
Sænska deildin, sem verður í al-
þjóðalögreglunni í Saar, er lögð
a’f stað héðan. Áður en hún lagði
af stað, fór Gústav konungur á
fund sveitarinríar og kvaddi hana
og óskaði henni góðs gengis.
(United Press).
Pétnr L Jónsson
óperusöngvarþ
er fimtugur í dag.
Hann hefir um mörg undanfaf-
in ár starfað við helstu söngleika-
hús við ágætan orðstír og gat hann
landi sínu mikinn hróður á þeim
árum. Nú er hann fluttur hingað
alkominn og hefir hann við og við
haldið hér hljómleika og sungið í
útvarpið. Af tilefni afmælisins
heldur Pétur hljómleika á sunnu-
daginn milli jóla og nýjárs fel. 3
í Gamla Bíó,
I0.0.F. 1=1162U28Ví=E.K.
Veðrið í morgun.
Hiti um land alt. I Reykjavík
3 stig, ísafirði 5, Akureyri 1,
Skálanesi 7, Vestmannaeyjum 4,
Sandi 2, Kvígindisdal 3, Blöndu-
ósi 2, Siglunesi 5, Hólurn í Homa-
firði 5, Fagurhólsmýri 4, Færeyj-
um 7 stig. Mestur hiti hér í gær
6 stig, minstur 1 stig. Úrkoma 5,3
mm. Yfirlit: Grunn lægð við vest-
urströnd íslands á hægri hreyf-
ingu nörður eftir. Horfur: Suð-
vesturland, Faxaflói, Breiðafjörð-
ur: Sunnan og suðvestan kaldi.
Skúrir, en bjart á milli. Vestfirð-
ir, Norðurland: Suðaustan og síð-
an suðvestan.kaldi. Þíðviðri. Sum-
staðar skúrir. Norðausturland,
Austfirðir: Suðvestan gola. Þíð-
viðri. Úrkomulaust. Suðaustur-
land: Sunnan og suðvestan gola.
Skúrir.
Jarðarför
Brynjólfs FI. Bjarnason kaup-
manns fer fram á morgun og hefst
kl. iJ4 e. h.