Vísir - 10.01.1935, Page 2
VÍSIR
Bylting yfirvofandi
i Portðgal og á SpánL
Lissahon 10. jan. FB.
Sá orðrómur gaus upp fyrir
nokkurum dögum, að kommún-
islar undirbyggi stjórnarbylt-
ingu. Rikisstjórnin liefir liti'ö
svo- á, að nokkur hætta væri á
ferðum, því að herlið licfir verið
Iiaft til laks í öllum hermanna-
skálum undanfarna 4 daga. —
Samkvæmt opinberri tilkynn-
ingu hafa víðtækar varúðarráð-
stafanir verið gerðar, vegna
Jiess, að þingið kemur saman á
föstudag. Hinsvegar ætla marg-
ir, að kommúnistar, hæði í
Portúgal og á Spáni, undirbúi
byltingarlilraun, og muni liún
hefjast samtímis i báðum lönd-
unum. (United Press).
Bæjarútprðin.
Undanhald
Það er lægra risið á lillögu
sócialista uni bæjarútgerð í
sambandi við fjárliagsáætlun
bæjarins núna, lieldur en i
fyrra.
I fyrra voru það 5—10 togar-
ar, sem þeir vildu láta bæinn
semja um smíði og kaup á,
þegar í stað, og auðvitað áttu
þeir að vcra af fullkomnustu
nýtísku gerð. — Og meðan þeir
væri í smíðum, mun liafa átt
að taka togara á leigu, svo að
bæjarútgerðin gæti byrjað þeg-
ar í stað.
Nú hanga þeir ekki í lægri
tölunni — 5. Þeir ætla að láta
sér nægja 3. Og þeir eru nú
jafnvel ekki svo stórhuga, að
þeir geri ákveðna tillögu um
kaup á þessum 3 togurunum,
lieldur vilja þeir láta rannsaka,
livernig þeir ætti að vera gerð-
ir, með þau fyrir augum, að
bærinn kaupi slíka togara!
Það er ánnars réttast að birta
tillöguna orðrétta. Hún er á
þessa leið:
„Bæjarstjórnin ákveður, að
bæjarráð velji 5 kunnáttu-
menn, er sérstaklega sé falið
að atliuga (uiri) heppilega gerð
3—5 nýtísku togara, og sé þcim
(kunnáttumönnunum, en ekki
togurunum) einnig falið að
leita liiboða í byggingu þeirra,
ásamt greiðluskilmálum á and-
virði þeirra, með það fyrir aug-
um, að Reykjavíkurbær, ef til
vill með aðstoð rikisins, kaupi
slíka togara og geri þá út til
aukinnar atvinnu fyrir bæjar-
búa. Niðurstöðu rannsókna
sinna og atiiugana leggi nefnd-
in fyrir bæjarstjórn fyrir 1.
júní 1935.“
Tillagan er að öllu leyti hin
furðulegasta.
Hún lætur fyrst og fremst
alt óákveðið um það, hvort
nokkuð eigi að verða úr þess-
um togarakaupum. Af því leið-
ir, að það eru ákaflega litlar
likur til þess, að nokkurt til-
hoð yrði unt að fá uni bygg-
ingu togaranna eða úm sölu-
skilmála. 1 Nefndin þarf ekki
að leggja fram „niðurstöður
rannsókna sinna“ fyrr en „fyr-
ir 1. júní“, eða eftir. að þingi
er slilið, en .þó er gert ráð fyr-
ir „ef til viir, að kaupin verði
gerð með aðstoð ríkisins. Þing-
inu virðist þannig vera ætlað
að taka ákvörðun um málið,
áður en nokkrar tillögur liggja
fyrir um það, hvernig þessir
nýtísku togarar eigi að vera,
áður en nokkuð er vitað um,
hvað þeir muni kosta, og áð- j
ur en bæjarstjórn hefir tekið
endanlega ákvörðun um kaup-
in fyrir sitt leyti.
socialista.
Það eina, sem ákveðið er í
lillögunni, er skipun þessarar
nefndar 5 „kunnáttumanna“.
— En hvað eiga þeir þá að
kunna, þessir kunnáttumenn?
— Það væri nógu gaman að
sjá það, hvernig socialistar færi
að þvi að velja kunnáttumenn
í þessa nefnd. Af vali þeirra
á mönnum til ýmissa nefndar-
slarfa, mætti helst álykta, að
þeir teldi lieppilegast, að slíkir
„kunnáttumenn“ kynnu sem
allra minst til þeirra hluta, sem
þeim er ætlað að fjalla um.
Tillagan ber það ljóslega
írieð sér, að hún er ekki fram
borin í alvöru. Hún er sýyilega
borin fram í fullu trausti þess,
að hún verði feld. Og er þó slík-
ur leikaraskapur lítt sæmandi
í sliku máli. Það gæti vissulega
verið ástæða til þess, að láta
fara fram athugun á því, livaða
kröfur bæri að gera til nýtísku
útbúnaðar togara, sem fengn-
ir yrðu til endurnýjunar á tog-
araflotanum. En það eitt, að
þessi tillaga socialista er ein-
skorðuð við það, að rannsókn-
in skuli gerð með það fyrir
augum, að stofna til bæjarút-
gerðar, gerir það að verkum,
að hún verður ekki tekin al-
varlega. — Hitt gæti vel kom-
ið til mála, að bærinn styddi
á einhvern háttt að þvi, að tog-
araflotinn yrði endurnýjaður
með kaupum á nýjum skipum
af nýjustu og fullkomnustu
gerð.
Það hefði nú mátt ætla, að
reynsla socialista, i sambandi
við samvinnuútgerðina á ísa-
firði, hefði fært þeim heim
sanninn um .það, að opinber
rekstur útgerðar er ekki lík-
legur til þess að bæta hag al-
mennings. Sú reynsla var á þá
leið, að sjómennirnir á sain-
vinnuhátunum hafa fengið
minna fyrir fisk sinn en allir
aðrir, þrátt fyrir margvísleg
lriunnindi, af því að rekstur
eða stjórn útgerðarinnar var í
höndum manna, sem ekki voru
starfi sínu vaxnir. Og ef til vill
liafa nú socialistar látið sér
þetta að kenningu verða. Ef
til vill er þessi tillaga þeirra
einmitt þannig fram borin,
vegna þess að þeir eru búnir
að missa trúna á bæjarútgerð,
þó að þeir hafi ekki siðferði-
legt þrek til þess að viðurkenna
það berum orðum, eða með því
að falla þegar í stað frá öll-
um tillögum í þá átt.
Undanhald þeirra í þeSsu
efni frá því í fyrra, er að minsta
kosti augljóst.
Breskur
togari ferst.
Fjórtán menn drukkna, en
tveir komast af.
Hull io jan. FB.
Botnvorpungurinn Edger Wal-
lace strandaði á sandrifi viS inn-
siglinguna til Hull og rétt á eftir
hvolfdi skipinu. Fjórtán - menn
druknuðu, en 2 komust af. (United
Press).
Laval liyltur,
París 9. jan. FB.
Við komu Lavals til Parísar í
dag hafði múgur manns safnast
saman á járnbrautarstöðinni til
þess að hylla hann'. Voru þar og
mættir frakknesku ráðherrarnir,
fulltrúar erlendra ríkja og margt
annað stórmenni. Laval flutti ræðu
á stöðinni og kvað það vera sér
mikið gleðiefni, að árangurinn af
för sinni væri sá, að ítalir
Frakkar hefði bundist traustari
vináttuböndum. Kvaðst hann þess
fullviss, að vináttutengsl þeirra
myndu ekki slitna héðan af, og
báðar þjóðirnar myndi framvegis
vinna einhuga að því að byggja
áfram á þeim grundvelli, sem lagð-
ur var með samkomulaginu i
Kómaborg, til þess að varðveita
friðinn i álfunni og tryggja í fram-
tíðinni. Því næst gaf Laval stjórn-
inni skýrslu um árangurinn af
ferð sinni og sömuleiðis skýrði
hann vara-sendiherra Breta,
Campbel!, ítarlega frá viðræðun-
um. (United Press).
Magnús
Gíslason
strýkur frá Kleppi.
Magnús Gíslason, sem fyrir
nokkuru braust út úr fangcls-
inu liér í Reýkjavík, en náðist
aftur suður með sjó, var sendur
á Iílepp til rannsóknar. Hefir
liann verið þar að undanförnu,
en í nótt strauk liann þaðan, um
kl. 1, í náttfötum einum og
inniskóm. Hafði liann komist
út um salernisglugga. — KI. 4
í nólt hafði Magnús komið að
húsi einu í Laugarásliolti og
vakið þar upp, en húseigandi
vildi ekki sleppa honum inn. Dr.
Helgi Tómasson gerði lögregl-
unni aðvart um hvarf Magnús-
ar þegar er lians var saknað í
nótt. Leit að honum hefir eng-
an árangur borið enn þá.
Norskur merkismaður látinn.
Osló 9. jan. FB.
Riddervold Jensen rektor í
Tönsberg, fyrrverandi Stórþings-
rnaður og kirkjumálaráðherra,
lést í gær 72 ára að aldri.
Þjððaratkvaeðið
í Saar.
Til viðbótar því, sem áður hefir
verið vikið að um Saarmálin i
greinum, sem birst hafa hér í blað-
inu að undanförnu, þykir rétt að
taka eftirfarandi fram, og verður
stuðst við sömu heimildir og í
fyrri greinum um þessi mál.
Ef mikill mejri hluti Saarbúa
greiðir atkvæði með sameiningu
Saarhéraðs og Þýskalands — og
ráð þjóðabandalagsins felst á sam-
eininguna, sem því er ekki skylt að
gera — verður alþjóðaeftirlitið þar
ekki lagt niður og nazistum feng-
in stjórn i hendur, fyrr en afhend-
ing námanna hefir farið fram, en
sú afhending getur hæglega dreg-
ist mánuðum, ef ekki árum saman.
Verður eigi annað séð en að
Frakkar geti dregið þessi mál á
langinn ófyrirsjáanlega langan
tima, og jafnvel sent herlið inn í
héraðið, ef þeir teldi námurnar í ;
nokkurri hættu vegna yfirvofandi
óeirða.
Þegar tekið er tillit til alls þess,
sem að hefir verið vikið í tímarits-
gréin þeirri, sem hér hefir verið
r-tuðst við, gengur lésandinn þess
ekki dulinn, að. það sé að talsverðu
leyti undir úrslitum þjóðaratkvæð-
isins komið hvort takast muni að
varðveita friðinn í álfunni. Verði
úrslitin nazistum ekki í vil er mjög
hætt við, að það verði til hins
mesta ógagns og álitshnekkis Hitl-
er og stjórn hans, ofan á fylgis-
rýrnun hans (sbr. seinustu kosn-
ingar) og ýmiskonar andstreymi í
sambandi við undirróðurinn í
Austurríki og kirkjumálin heima
fyrir. Ymsir eru jafnvel þeirrar
skoðunar, að ef úrslitin verði
Þýskalandi ekki í vil verði það
upphaf þess, að nazistar inissi
völdin í Þýskalandi. — F.f hins-
vegar Þýskaland fær Saarhérað
horfir þessu þannig við frá Frakk-
landi: Saarhérað er nú óvíg-
girt og fái Þjóðverjar það munu
Frakkar telja sér nauðsynlegt að
víggirða betur landamæri Saar-
liéraðs og Frakklands, en það
hefði útgjöld, sem nema myndu
biljónum franka í för með sér. —-
Frakkar myndi tapa miklum mark-
aði fyrir afurðir sinar og senni-
legt er, að alt að því 100,000
manns myndi flytjast frá Saar til
Frakklands, en þar er nú mikið
atvinnuleysi. — Hlutskifti Saar-
búans myndi hinsvegar versna,
hvort sem Þýskaland fengi héraðið
eða Frakkland. Saarbúinn' hefir
eins og stendur eins mikið per-
sónufrelsi og íbúar nokkurs ann-
ars Iands í álfunni. Eftir samein-
inguna yrði Saarbúinn að búa við
járnharðan nazistaaga og erfið-
leikarnir í Þýskalandi — fjárhags-
legs, stjórnmálalegs og trúarlegs
eðlis — myndi einnig bitna á Saar-
búum sem öðrum borgurum
Þýskalands. Og það verður heldur
ekki annað sagt en að hlutskifti
Saarbúa, eins og sakir standa, sé
að ýmsu leyti betra, en frakk-
neskra borgara yfirleitt.
Það er gengið út frá því sem
Alþjóðalögregla var skipuð, eins
og kunnugt er, til þess að gæta
reglu í Saarhéraði, uns ]>jóðarat-
kvæðið er um garð gengið. í lög-
reglu Jiessari eru breskir, ítalskir,
gefnu, að um aðeins tvent geti
verið að ræða. Annað hvort verði
meiri hluti kjósendanna í hérað-
inu með sameiningu við Þýskaland
eða því, að héraðið búi áfram við
stjórn og vemd þjóðabandalagsins.
En hvað ofan á verður er mjög
óvíst, þótt fleiri spár hafi komið
fram um það, að meiri hlutinn
greiði atkvæði með sameiningunni
við Þýskaland.
Talning atkvæða fer fram að-
faranótt mánudags og mánudag og
úrslitin verða birt samtímis í Saar-
brucken, höfuðstað héraðsins, og i
Genf.
LJtan- af landi,
—o--
Norðfirði 9. jan. FÚ.
Mannslát. Togari sektaður 0. fl.
Grímsbytogarinn „Fifinella“
kom hingað til Norðfjarðar í fyrra
kveld, með dáinn stýrimann sinn.
Hann hafði orðið bráðkvaddur út
af (Irímsey, aðfaranótt mánudags-
Norðfirði, og sent út með skipinu
í fyrrinótt.
Síðastliðinn laugardag leitaði
togarinn Welbach 165, skipstjóri
George Smith, hér hafnar, en þeg-
ar hann lagðist að hafnarbryggj-
unni tókst svo til að hann laskaði
bryggjuna talsvert.
Þar sem togari þessi lá undir
ákæru fyrir landhelgisbrot á Fá-
skrúðsfirði frá 7. október síðast-
liðnum, lagði lögreglustjóri þar
bann á togarann, og tók mál hans
fyrir. Réttarhöldum er lokið og
var ^cipstjóri dæmdur í 7 þús. kr.
sekt (hlerasekt).
hollenskir og sænskir hermenn. Er
lögreglan búin nútíma hernaðar-
tækjum. — Hér sést ítölsk deild
úr lögreglunni á ferð um götumar
í Saarbruckcn í skriðdrekum.
Blönduósi 9. jan. FÚ.
Ofsaveður. Þak fýkur af húsi.
í dag fauk þak af íbúðarhúsi á
Skag-aströnd. Húsið var bygt úr
steinsteypu með skúrþaki. Tók
];akið af í heilu lagi ásamt ölluni
boltum og kom niður 15—20 metra
frá húsinu. Enginn meiðsl eða
aðrar skemdir urðu. Panel vair
slegið neðán á loftið og sérstaka
bita, og er það hið eina er skýlir.
Búist er við að flytja verði úr
húsinu. Ofsaveður af vestri var í
dag með hríðaréljum en snjókoma
lítil.
Ritfrep.
Bjarni Thorarensen: Úrvals-
Ijóð. íslenzk úrvalsljóð II. —
Kristján Albertson valdi
kvæðin. — E. P. Briem birti.
Eg veit að margir mtinu vilja
eignast úrvalsljóð íslenskra skálda.
Eleildarsöfn era oft og einatt svo
dýr, að þau verða almenningi of-
viða, enda stundum ekki óblandin
ánægja að eiga þau. I þau hefir
oft verið liirt ýmislegt, sem höf-
undum er til óþurftar en lesönd-
um til lítillar ununar. Þessa gætir
ekki í úrvalsljóðum. í úrvalsljóð
góðskálda kemur ekkert nema það,
sem er gott, og sjaldnast annað en
það, sem oss þykir vænt um.
Eggert P. Briem á því þakkir.
skildar fyrir birtingu þessara
safna. Áður hafði birst úrval
kvæða Jónasar Hallgrímssonar og
ætlun Eggerts mun vera að birta
úrvalskvæði allra meiri háttar
skálda á íslenska tungu. Allur hinn
Félagsprentsmiðjan
Ingólfsstræti
Símí 1640
(2 línur)
Leysir alla prentun fljótt og - vel af lienili.
Strikar skrifstofuhækur og alls konar eyðnbiðð.
Býrtn gúmmístimpla og sigli.
REYNIÐ VIÐSKIFTIN I