Vísir - 18.09.1935, Síða 3
VlSIR
1. Að gefa út nýja útgáfu af
bók Landsbankans, „Iceland“.
2. Áð gefa Slysavarnafélagi
íslands kr. 50.000 — fimtíu þús-
und krónur — og sé með þeim
stofnaður sjóður og vöxturn af
sjóðnum eða hluta af þeim var-
ið til rekstrar björgunarskipa
eftir nánari fyrirmælum skipu-
lagsskrár sjóðsins, sem sé sam-
þykt af stjórn bankans. Sjóð-
urinn ávaxtist i Landsbankan-
um eða verðbréfum lians.
3. Að stofna sjóð með kr.
25.000 — tuttugu og finim þús-
und krónum — sem sé eign
slarfsmanna bankans og undir
stjórn starfsmannafélags, sem
viðurkent er af stjórn bankans.
Tilgangur sjóðsins sé að
styrkja efnilega starfsmenn
bánkans til aukinnar mentunar
í starfsgrein þeirra eftir nánari
fyrirmælum skipulagsskrár,
sem samin sé af starfsmanna-
félagi bankans og staðfest sé af
stjórn lians. Sjóðurinn ávaxtist
i Landsbankanum eða verðbréf-
um hans. ' J||
Auðmýkt
og ðstjdrn.
ÞolinmætSi, auSmýkt og undir-
gefni þykja víst mörgum nú á
dögum fagrar dygðir og kristi-
legar. En í Asatrúnni og lengi síð-
ar í eðlisfari hinna mestu og göf-
ugustu Norðurlandabúa og íslend-
inga, voru a'Srar dygðir hafðar í
meiri hávegum. Má þar á meðal
nefna réttlæti, hreinlyndi, orð-
heldni og skilvísi. Og þar með þau
skilyrði: frelsi og sjálfstæði, sem
þessar dygðir ala.
Mætustu rnenn þeirra tíma þoldu
ekki annað ver en það, að yfir-
menn þe'irra og leiðtogar beittu
barðneskju og hroka, sérdrægni
og heimtufrekju um nýja eyðslu-
skatta, ineð allskonar ofríki og
ófrelsi.
Nú er öldin önnur. Nú eiga
Norðurlönd engan Þorgný lög-
mann, sem þorir að segja við sjálf-
an „konunginn“ (þ. e. þá, sem
leggja á ráðin og fyrirskipa ofrík-
ið), með fullri festu og föstum
ásetningi þeirra að baki, sem undir
á að oka: Vér skulum ganga að
þér, svo að þú látir annað hvort
laust, tífið eða ofríkið. „Og kjóstu
nú skjótt hvorn kostinn þú vilt
heldur upp taka.“
Vort hrjáða föðurland á nú ekki
heldur neinn Jón Loptsson, sem
lækkar dramb ofbeldismanna og
heldur þeim í skefjum. Engan Jón
Sigurðsson, sem með djörfung og
sjálfsfórn, lipurð og vitsmunum,
leiði hagsbætur og hamingju yfir
þjóð vora.
iFlestir leggjast nú líka flatir —
eins og gæfir hvolpar — og láta
lemja sig til óbóta fyrir engar
sakir. Sannleikur er það — þó
sorglegt sé frá því að segja —
að mikill hluti þjóðar vorrar skríð-
ur nú flatur fyrir ráðríkum, á-
gjörnum og valdaþyrstum flokks-
foringjum og hlaupatíkum þeirra,
íyrir flokksjiingi og flokksstjórn,
í stað þess að standa hnarreistir
og eindregnir að baki drenglyndra
nianna, er skyldur sínar mættu
rekja á Alþingi, og skipað gætu
alþjóðarstjórn. Nei, svo upplits-
djörf, hyggin og sjálfstæð er þjóð-
in ekki orðin. Heldur láta bændur
kúga sig og svifta umráðarétti
eigna sinna og afurða. Útgerðar-
menn láta möglunarlítið, og svo
að segja mótþróalaust flá sig inn
að skyrtunni. Og kaupmenn og
iðnaðarmenn láta taka frá sér at-
vinnu og athafnafrelsi. Með öllu
þessu láta verkamenn og verka-
konur svifta sig atvinnu, og bíöa
þess að missa alt atvinnufrelsi,
kaupkröfufrelsi og atkvæðisrétt.,
Tómlæti Reykvíkinga.
Hér vil eg beina nokkrum orð-
um til Reykvíkinga sérstaklega og
þó aðeins í örfáum atriðum.
Fyrir 2—3 árum var hér stofnað
Skattþegnafélag með dálitlum
kjarki í fyrstu. En félagið varð
brátt svo óheppiö með formann
sinn, að hann svæfði þáð þegar,
svo að segja í fæðingunni. Síðan
þegja allir.
Niðurjöfnunarnefndir hér eru
einvaldar um þann skattinn, út-
svörin, sem flestum gjaldendum
er tilfinnanlegastur. Meiri hlutinn
virðist hafa sérstaka löngun til
þess að taka af tekjulitíum mönn-
um þann ellistyrk, sem þeir hafa
sjálfir reynt að safna sér, með sér-
stakri sparneytni á öllum sviðum.
Og hlífa þeim mest, sem hafa há-
ar tekjur og sóa þeim öllum ár-
lega.
Með því móti er sparsemi sekt-
uð, en eyðslusemi verðlaunuð, og
er afleiðingin augljós. Flestir, sem
enn eiga eittthvað eftir, munu
keppast við að njóta einhvers af
því sjálfir, áður en alt er reytt og
rúið inn að gangven..
En hvar á að taka útsvörin og
skattana, þegar enginn vill eiga
neitt, og allir eru orðnir öreigar?
Á hverju eiga sífjölgandi atvinnu-
leysingjar þá að lifa?
Svo er talið, að á nálægt- 3000
karla og konur hér í bænum sé
lagt 10 kr. útsvar, og að alt að
því annar hver þeirra greiði þær
ekki. Það væri nú fróðlegt að vita
hversu margir af þeim eyða IO kr.
og tugum kr. árlega á bíóum,
kaffihúsum, iþróttavelli o. s. frv.
fram yfir marga hina, sem greiða
hundruð og þúsundir kr. í útsvar
árlega.
Auðvitað má gera ráð fyrir, að
sumir geti ekki greitt útsvar sitt,
hvort sem það er mikið eða lítið,
ef að höndum bera óhöpp, atvinnu-
leysi eða veikindi, og er ekki nema
sjálfsagður hlutur að gefa það þá
eftir, ef jafnframt hefir verið
sparlega farið með efni og afla.
Hitt er eigi síður vitanlegt, að
ýmsir leika nú orðið þá list, að
svíkjast um útsvarsgreiðsluna, þó
hægara eigi um vik, en aðrir, sein
leggja hart að sér til þess að gera
full skil. Og svo fá þeir skilvísu
ekkert að vita um þetta. Þeir eru
jafnvel hundsaðir og atyrtir ef þeir
vilja forvitnast eitthvað um það.
Þeir eiga bara þegjandi að bæta
því á sig að borga fyrir svikar-
ana, þó þ>eir ekki aðeins eyði,
heldur líka feli muni sína til þess
að koma þeim undan lögtaki.
Þá hefir og annað hneyksli
lengi verið þegjandi þolað hér í
bænurn, sem ekki mun vanrækt
eða liðið í nokkurri sveit á ís-
landi, að gjaldendur fá ekkert að
vita um það, hverjum þeir leggja
ómagaframfæri, eða hversu mikið
hverjum þeirra. Hér ætti vissulega
við —■ eigi síður en gert er í sum-
um minni háttar kauptúnum — að
prenta fullan og nákvæman ó-
magalista, ásamt reikningum bæj-
arins, og afhenda hann hverjum
skilvísum gjaldanda, sem þess ósk-
,ar.
Löngunin hlýtur ávalt að vekja
grun og tortrygni um það, að
dylja þurfi ýmislega ósvífni. Enda
hggur nær að segja vissu en kvis
um það, að nokkrir menn muni
nota sér þögnina og skálkaskjólið.
Nota sér það, þó verkfærir séu
eða eigi þá að, sem fyrir þeim
geta séð, að gera stærri kröfur,
eyða meiru og lifa betur en marg-
ir hinna, sem eru pressaðir til að
gefa með þeim.
á hröðu skeiði til fjárhagslegrar
glötunar.
Og fast eru þeir menn sofandi,
sem ekki vilja krefjast breytinga
til bóta, krefja og knýja ráðsmenn
til reikningsskapar á öllum svið-
um. Þar á meðal bæjarstjórnina,
um ómagalistann og útsvarsskuld-
ir manna. Litlu þyrfti til þess að
kosta, og ekki vil eg efa, að sá
kostnaður fengist marg-endurgold-
inn og með drjúgum hagnaði fyrir
bæjarsjóðinn. Kostnaðarlaust fyrir
bæinn, mætti setja vanskilatölur
manna aftan við nöfn þeirra í út-
svarsskránni. Og enn vil eg gera
ráð fyrir þeirri sómatilfinningu
hjá sumum kærulitlum mönnum,
að þessi auglýsing verkaði ekki
síður á þá og hag bæjarsjóðS, en
miðlungs innheimtumaður.
Þurfamannaskrána mætti selja
lágu verði, ásamt reikningum bæj-
arins. Gæti það vel haft samskon-
ar verkanir á nokkra rnénn. Auk
þess sem þá mundi koma í Ijós
og verða sannað, til hagsbóta fyrir
bæjarfélagið.
Vilji bæjarstjórnin ekki verða
góðfúslega við þessum sanngjörnu
kröfum — og eg leyfi mér að
segja, þessari skyldu sinni við
slcilvísa gjaldendur — þá er það
óhjákvæmilegt úrræði, að endur-
reisa skattþegnafélagið, búa sig
undir næsta árið og neyta þá sam-
takamáttar: greiða ekki útsvörin,
fyr en kröfunum er fullnægt.
Framh.
V. G.
Abessiníndeilan
og dfribarhættan.
Breska stjómin hélt ráðu-
neytisfund í gær til þess að
ræða varúðarráðstafanir í
nýlendunum og á Miðjarð-
arhafi, ef til ófriðar kemur
milli Itala og Abessiniu-
manna. — Frakkar kref jast
þess, að Bretar fallist á, að
refsiákvæðum verði beitt
gegn Þjóðverjum, ef þeir
rjúfa friðinn. — ítalir
munu hafna tillögum fimm
manna nefndarinnar. —
London, 18. sept.
Ráðuneytið kom saman á
fund í gær og sóttu liann yfir-
menn allra greina landvarn-
anna, til þess að hlýða á Hoare
gefa skýrslu um það, sem gerst
liefði í Genf, og hvernig horfði
út af Abessiniudeilunni. Auk
þess var á fundinum rætt um
varúðarráðstafanir þær, sem
Bretar eru að gera í nýlendum
sínum og flotastöðvum í Mið-
jarðarhafi, ef til ófriðar kemur
milli Itala og Abessiniumanna.
Einnig er talið víst, að'tekin
hafi verið til athugunar á fund-
inum krafa frá frakknesku
stjórninni þess efnis, að Bretar
gangist undir að styðja Frakk-
land innan vébanda Þjóða-
bandalagsins, ef í framtíðinni
væri liætt við ófriði vegna þess,
að einhver þjóð í Mið-Evrópu
gerðist friðrofi. Munu Frakkar
vilja tryggja sér það, að refsi-
ákvæðum sáttmála bandalags-
ins verði beitt gegn Þjóðverjum,
ef þeir gerðust friðrofar. —
Um þetta mál fara nú
fram stjórnmálalegar umræður
milli rikisstjórna Bretlands og
Frakldands og er fullyrt, að
samkomulagsumleitanir í þessu
efni gangi að óskum. Frá Genf
er símað, að fimm manna
nefndin leggi fram tillögur sín-
ar í dag, og að Ítalía muni hafna
þeim. (United Press — FB.).
1 NÁND VIÐ ADDIS ABEBA Á RIGNINGARTÍMANUM
í fréttalnæfum og skeytum hefir
veriö aö því vikiö hversu erfitt er
um alla flutninga í Abessiniu, þeg-
ar rigningatímabiliö stendur þar
yfir. Mýndin hér aö ofan er tekin
i nánd viö Addis Abelia í sumar.
Þar verða menn aö vaða aurinn
upp í miðja kálfa meðan rigninga-
tíminn helst.
Flokksþingi oasista
lokið.
Niirnberg 17. sept.
Flokksþing nazista, sem hér hef-
ir staðið yfir, er nú lokið. Var
klykt út með mikilli hersýningu og
ræðuhöldum. í ræðu þeirri, sem
Iiitler flutti, lýsti hann yíir því, að
framvegis stæði herinn og nazista-
ílokkurinn á sama grundvelli.
Þýska ríkið, sagði hann, gerði
kröfur um blinda hlýðni bæði til
ílokksins og hersins.
(United Press—FB)
Blindir mega þeir menn teljast,
sem ekki sjá það, að þetta er ,eg
liefi nú lauslega drepið á, stefnir
alt í eina og sömu átt, Það er alt
m „He!gafell“- 59359197-
VI.-2
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 9 stig, Bolungarvík
5, Akureyri 4, Skálanesi 5, Vest-
mannaeyjum 8, Sandi 6, Kvígind-
isdal 6, Hesteyri 3, Gjögri 4,
Blönduósi 5, Siglunesi 3, Grímsey
4, Raufarhöfn 5, Skálum 4, Fagra-
dal 4, Papey 5, Hólum í Horna-
firði 6, Fagurhólsmýri 8, Reykja-
nesi 7, Færeyjum 10 stig. Mestur
hiti hér í gær 11 stig, minstur 6.
Yfirlit: Djúp lægð yfir Suður-
Noregi og önnur um 1200 km.
suðvestur af Reykjanesi. — Horf-
ur: Suðvesturland: Austan og
norðaustan kaldi. Sumstaðar lítils-
háttar rigning. Faxaflói, Breiða-
fjörður: Stinnings kaldi á norð-
austan í dag, en lygnir með kveld-
inu. Úrkomulaust. Vestfirðir,
Norðurland, norðausturland, Aust-
íirðir: Allhvass norðaustan í dag,
en lygnir í nótt. Rigning. Suð-
austurland: Norðaustan kaldi. Úr-
komulítið.
Árás.
Laust fyrir miðnætti á sunnu-
dagskveld, er Albert I>órðarson
vitavörður í Gróttu var á heim-
leið, vissi hann ekki fyrri til en
steini var kastað til hans og fór
hann rétt fyrir framan andlit hans.
Var þetta skamt frá Ráðagerði.
Steinninn var um 2 kg. og lenti
hann í grjóthrúgu. Hefði Albert
vafalaust getað meiðst illa, ef
steinninn hefði hæft hann.Lögregl-
an hefir nú náð í árásarmanninn.
Játaði hann brot sitt ogkvaðsthafa
gert þétta til þess að hræða Albert.
Landsbanki íslands
er 50 ára í dag og eru af því
tilefni dregin flögg á stöng víða
um bæinn. — Bankanum var lok-
að kl. 1. e. h. í dag og kl. 8.30
flytur Magnús Jónsson prófessor
erindi um bankann í útvarpiö.
Bankablaðið, sem er gefið út af
Sambandi isl. bankamanna, rninn-
ist bankans ítarlega, sem vænta
mátti þseptemberblaði sinu, í grein
sem nefnist: „Landsbanki íslands
50 ára, nokkrir þættir úr sögu
bankans", eftir A. J. Johnson.
Greininni fylgja myndir af þeim,
sem helst koma við sögu bankans,
og mynd af húsinu nr. 3 við
Bankastræti, þar sem bankinn
fyrst var til húsa, og svo myndir
af eldra Landsbankahúsinu og
hinu nýja.
Eldur
kviknaði árdegis í dag í kjallara
hússins Túngötu 2. Er þar tré-
smíðaverkstæði í kjallaranum og
hafði kviknað í spónum undir hefl-
ingarvél. Slökkviliðið var kvatt á
vettvang og slökti eldinn fljótlega.
Jón Sigurðsson
hefir verið settúr skólastjóri við
barnaskólann í Laugarneshverfi.
Skrásetning
nýrra háskólaborgara fer fram
á skrifstofu háskólans daglega kl.
10—-12. Stúdentar sýni prófskír-
teini og greiði um leið skrásetn-
ingargjaldið, 15 krónur.
60 ára
er í dag Brynjólfur Guðbrands-
son, sýslunefndarmaður og bóndi
að Hlöðutúni í Stafholtstungum.
Haustfenningarböm
dómkirkjusafnaðarins eru beðin
að koma til viðtals í kirkjuna: Jil
síra Friðriks Hallgrímssonar í
dag kl. 5 og til sira Bjarna Jóns-
sonar á rnorgun kl. 5.
Aflasala.
Bragi hefir selt ísfisk, eigin
afla og bátafisk, 996 vættir, fyrir
1424 stpd. Salan fór fram í Grims-
by.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss fór héðan í gærkveldi
áleiðis vestur og norður. Goðafoss
er á leið til Vestmannaeyja frá
Hull. Dettifoss er væntanlegur að
vestan og norðan í kveld. Selfoss
er á leið til Antwerpen. Lagarfoss
og Brúarfoss eru í Kaupmanna-
höfn.
70 áxa
er í dag Þórunn Brandsdóttir,
Njarðargötu 41.
E.s. Primula
kom hingað í morgun frá Leith.
E.s. Edda
kom hingað í dag úr fisktökuer-
indum á höfnum út um land.
Gengið í dag:
Sterlingspund ....... kr. 22.15
Dollar............... — 4-49?4
100 ríkismörk.......... — 180.46
— franskir frankar'. — 29.71
— belgur ........... — 75.94
— svissn. frankar .. — 146.00
— lírur.............. — 37-20
— finsk mörk.... — 9.93
— pesetar ........... — 62.17
— gyllini............ — 303.23
— tékkósl. krónur .. — 18.93
—: sænskar krónur .,. — 114.36
— norskar krónur .. — 111.44
— danskar krónur ,. —. 100.00
Upplýsingar
um húsnæði eru ekki gefnar í
prentsmiðjunni. Þetta eru les-
endur blaðsins góðfúslega beðn-
ir að athuga.
Hjúskapur.
í gær voru gefin saman í hjóna-
band af síra Garðari Þorsteinssyni
ungfrú Ólöf Helgadóttir og Símon
S. Marionsson, Hafnarfirði.
Athygli
skal vakin á auglýsingu í blað-
inu í dag frá Elliheimilinu Grund.
Þar eð eftirspurn eftir vistarver-
um er að jafnaði mest á haustin,
mun tryggast að tala við forstjóra
Elliheimilisins sem fyrst.
Næturlaeknir
er í nótt Jón Norjand, Skóla-
vörðustíg 6 B„ Sími 4348. Nætur-
vörður í Laugavegs apóteki og.
Ingólfs apóteki.
(tilk/nningaki
Enginn kaupmaðar skyldi
hafa vörur sínar óvátrygðar
deginum lengur. „Eagle Star“.
— Sími 1500. (706
1500 - - 2000
Sá sem getur útvegað manni fasta atvinnu, getur fengið lán-
aðar ,1500—2000 kr. gegn góðri tryggingu. Tilboð, merkt:
„Slabil“, sendist afgreiðslu Vísis. —
Vísis kaffið gerip alla glaða.