Vísir - 16.10.1935, Blaðsíða 3
Fátt n
I 9
útvarp.
Nú er iilvarpið nýtekið úpp á
á þvi að leika i dagskrárlok á
kveldin einskonar þjóðlag. Þetta
er meinlaust fikt, apað eftir út-
lendingum, Hitl er lakara, að
fyrir valinu hefir orðið kvæðis-
brot, sem enga stoð á í íslenzku
lunderni, auk þess sem það er
í upphafi mjög áherandi stæling
á „Ja, vi elsker dette landet“.
íslendingar eiga það sammerkt
við Breta, að vilja ekki hampa
tilfinningum sínum að óþörfu.
I ensku kvæði stendur:
If you love me tell me not. En
liér þarf útvarpið að velja ro]>
um tilfinningar. Þar við bætist,
að lagið er einstaklega litið vin-
sælt. Er það illa gert við hinn
ágæta höfund, að hampa því
mikið. i
Margauglýst hafði verið, að
hádegisútvarp byrjaði í dag
(sunnudag 13.) kl. 12. Ekki gat
útvarpið staðið við þetta, eða
hirti ekki um að gera það. Hófst
loks 15—20 mínútum síðar. Á
meðan var kirkjuútvarp, sem
ekki var þó lokið við. Svona
prettir duga ekki.
Nýtt tungumál hefir útvarpið
lengi verið að burðast við að
búa til. Til skamms tíma liafa
íslendingar sagt: Á sunnudag-
inn var, á sunnudaginn kemur,
í fyrra, á komanda ári, í gær, á
inorgun. Þetta er á tungumáli
útvarpsins: Síðasta sunnudag,
næsta sunnudag, siðastá ár,
næstá ár, síðastliðinn dag,
næsta dag (!), eða eitthvað i
þessa átt.
Enn ber útvarpsráð hausnum
yið steininn i tímatalinu. Tekið
eftir Dönum og þeir eftir Þjóð-
verjum. Það er boðleiðin.
Reyndar er þetta alt á reiki,
þvi að í veðurfregnum og ýms-
um öðrum frásögnum er ýmist
miðað við 2x12 slundir eða 24
„danska“ tima. Svo fylgislaust
er þetta tímatal, að eftir að hafa
umgengist tugi þúsunda lands-
manna hin síðustu missiri, á
Suðurlandi, Norðurlandi og
Vestfjörðum, hefi eg heyrt einn
einasta mann vitna í 24 stunda
klukku, og frétt um annan
norður á Akureyri, mann sem
var þar á ferð (frá Austfjörð-
um?), finn og pússaður, svo að
lionum hefir fundist þessi
menning ein á skorta fullkomna
glæsimensku. ,
Til skamms tíma liefir
klukkusláttur verið fastur dag-
skrárliður á kveldin, og talinn
vera „kl. 20“. Það er bara sá
galli á, að klukkan gerir stöðugt
verkfall á liverju kvöldi, og
fæst ekki úr henni eitt einasta
„bofs“ umfram 8. En jietta varð
henni líka dýrt spaug. Hún hefir
verið sett af embætti.
13. okt. 1935.
Hlustandi á Kárastíg1.
ÞiDgkosningar í
Canada.
Seinustu fréttir. —
Ottawa ió. okt.
Samkvæmt seinustu tilkynning-
um um úrslit almennu þingkosn-
inganna, sem fram fóru í Canada
s. I. mánudag hafa frjálslyndu
flokkarnir („Liberals", „Indepen-
dent Liberals“ og „Progressive
Liberals“) fengib 171 þingsæti,
íhaklsmenn 41, social-kreditflokk-
urinn 17 og aiSrir flokkar 10 þing-
sæti. (United Press—PB).
Italir senda aukinn
herafla og flugvéla-
flokka
til Libyu, af ótta við, að til styrjaldar komi
milli ítalíu og Bretlands.
Frá Alþingl
—0—
Deildafundir í gær voru ör-
stuttir o,g að eins eitt mál á
dagskrá í hvorri deild.
Neðri deild.
Þar kom til umræðu breyting
á kjötmatslögunum. Segir svo í
greinargerðinni að með lögum
frá 1933 hafi verið ákveðið að
yfirkjötmatsmaður yrði einn, en
hefði sér til aðstoðar þrjá menn.
vn reynslan hafi sýnt, að of-
vaxið væri einum manni að vera
yfirkjötmatsmaður yfir öllu
landinu og þvi er nú lagt til að
ieim sé fjölgað. Eiga þeir skv.
áreytingunni, að verða 3 með
600 kr. árslaunum og ferða-
kostnaði og fæðispeningum að
auki, þegar þeir eru utan heim-
ila. Segir að kostnaðarauki verði
enginn að þessu. — Málið var
afgreitt til næstu umr.
Efri deild.
Þar var til umræðu frv. um
breyting á lögum um gagn-
færðaskóla og var það afgreitt
til 2. umræðu.
Eldsvoöiá
Siglufipöi.
Siglufirði 15. okt. FÚ.
Um kl. 13 í dag braust út eldur
í íbúðarhúsi Guðmundar Sigurðs-
sonar Efri-Höfn x Siglufirði.
Heimilisfólk' sat að máltíð er elds-
ins varð vart. Breiddist hann mjög
fljótt út og varð húsið á svip-
stundu næstum alelda. Slökkviliðið
kom fljótt á vettvang og tókst að
slökkva áður en húsið hrundi. —
Húsið var timburhús, jámvarið, á
steinsteyptum kjallara. Næstum
engum innanstokksmunum var
bjargað og húsið er gjörónýtt, en
gamalt timburhús, áfast því, tókst
að verja. Húsið var vátrygt fyrir
9000 kr. og innanstokksmunir fyr-
ir 5000 kr., hvorttveggja hjá
Brunabótafélagi íslands. Ekki er
• fréttaritara útvarpsins á SiglufirSi
kunnugt um eldsupptök.
Stúlka finst Orend.
Stykkishólmi. — FÚ.
SíðastliSiS sunnudagskveld fór
stúlka frá heimili sínu, Gröf í
GrundarfirSi, og kvaSst ætla til
næsta bæjar. Hún kom ekki heim
um kveldið en fanst örend um
morguninn í flæðarmáli skamt frá
Brygrgfjunni i Grafarnesi. Stúlkan
hét Metta Magnúsdóttir, 44 ára að
aldri, ógift, en á aldraða móður
á lífi á Bryggju í Eyrarsveit. —
Enn er ókunnugt um nánari atvik
að þessu slysi.
Síldveiðarnar.
Hafnarfjörður 15. okt. FÚ.
1 dag kom til Hafnarfjarðar af
síldveiðum vélskipið Haraldur
meS unt 30 tunnur síldar. Var! afli
þess aSeins úr 10 netum, en meg-
inhlutann af netum sínum misti
skipiS vegna mikillar síldar. Auk
þess kom Geir goSi meS um 60—
70 tunnur, Jarlinn meS 20 tunn-
ur og Grótta meS lítinn afla.
Akranesi. — FÚ.
Til Akraness komu af síldveiS-
um nokkrir bátar í dag. Ver hafSi
40 tunnur, sem vóru frystar. —
Hrefna hafSi 10 tunnur, Frigg 4,
Alda 5, og línuveiSaidnn Sæborg
8. Nokkrir fleiri bátar komu inn,
en höfSu enga síld.
Barni bjargað frá druknun.
í dag datt 4 ára stúlkubarn x sjó-
inn af bryggju g Akranesi. Guðjón
Árnas. steypti sér fram af bryggj-
unni og náði barninu. Stúlkan er
dóttir S. Hallbjömssonar útgerð-
armanns. Henni leið vel, þegar
fréttaritari útvarpsins á Akranesi
talaði við fi'éttastofuna um kl. 18
í kveld.
Veðrið í morgtm:
í Reykjavík 2 stig, Bolungarvík
4, Akureyri 1, Skálanesi 1, Vest-
mannaeyjum 4, Sandi 3, Kvígindis-
dal 3, Hesteyri 2, Gjögri 4,
Blönduósi 5, Siglunesi 2, Grímsey
3, Fagradal 2, Hólum í Hornafirði
4, Fagurhólsmýri 4, Reykjanesi 3,
Færeyjum 7 stig. Mestur hiti hér í
gær 7 stig, minstur 1. Úrkoma 22.0
mm. Yfirlit: Alldjúp lægð yfir
sunnanverðu íslandi. Hreyfist hún
mjög hægt norðaustur eftir. Horf-
ur: Suðvesturland : Minkandi vest-
an eða norðvestan átt. Skúrir.
Faxaflói: Breytileg átt í dag, en
norðvestangola í nótt. Rigning eða
slýdda. Breiðafjörður: Norðaust-
ankaldi. Dálítil rigning. Vestfirð-
ir : Norðaustanátt. Stormur úti fyr-
ir. Slydduél norðantil. Norðurland,
norðausturland, Austf irðir: All-
hvass austan eða norðaustan.
Rigning eða slydda. Suðaustur-
land: Minkandi vestan átt. Skúrir.
Mentaskólinn
var settur í gær. Nemendur
munu vera um 200.
Kvennaskólinn.
Þar fór fram skólasetning í gær.
Aðsókn er svo mikil að skólanum,
að þar er hvert sæti skipað. —
Kennaraskólinn
var settur í gær. Inntökupróf
hefjast í dag. Aðsókn að skólanum
er mikil. ísak Jónsson hefir verið
ráðinn fastur kennari skólans
Hjólreiðamenn
allmargir vom teknir í gær fyrir
að aka á reiðhjólum sínum ljós-
lausum um bæinn. Voru reiðhjólin
tekin af þeim, uns þeir kippa þessu
í lag. Strangt eftirlit veröur haft
með því framvegis, að menn hrjóti
ekki af sér í þessum efnum. Eru
menn ámintir um að hafa lögskip-
aðan ljósaútbúnað á reiðhjótúm
sínum, til þess að komast hjá ó-
þægindum! og fjárútlátum. Menn
ættu að hafa hugfast, að eftirlit
er haft með þessu til aukins um-
ferðaröryggis.
Einar Benediktsson
skáld hefir gefið háskólanum
eignarjörð sína Herdisaiwík, og
ennfremur bókasafn sitt, en það er
talið ágætt og mjög. verðmætt. —
Þessi höfðinglega gjöf er til minn-
ingar um föður skáldsins, Bene-
dikt sýslumann Sveinsson (1826
—1899), hinn þjóðkunna skörung.
Þórður Eyjólfsson
hæstaréttardómari hefir verið
settur til þess að annast kenslu-
störf í lagadeild háskólans fyrst
urn sinn, meður því að ekki er
fenginn kennari í sæti það, sem
autt varð, er hann gerðist dómari
í hæstarétti.
Bamaguðsþjónustur
verða haldnar á sunnudögum í
skólahúsum Laugarness- og Skild-
inganesshverfa í vetur, undir um-
sjón dómkirkjuprestanna.
Kennarar við baraaskólana
hafa verið settir um eitt ár frá
1. þ. m. að telja: Svanhvít Guð-
mundsdóttir og Þorbjörg Bene-
diktsdóttir. Ráðin til timakenslu í
vetur eru: Dagmar Bjarnason,
Elísabet Helgadóttir (handav.)
Guðm. Þorláksson, Lúðvík Krist-
jánsson, Ólöf Guðmundsdóttir
(handav.), Ólöf Jónsdóttir (mat-
í-eiðslá), Srgmundur Gúðmundsson
(leikf.), Soffía Benjamínsdóttir,
Soffía Þorsteinsdóttir, Þorbjörg
Jónsdóttir (leikf.), og Þorhjörg
Kristjánsdóttir (handav.). Enn-
fremur hafa verið ráðnir 9 för-
fallakennai'ar.
Aflasölur.
Egill Skallagrimsson hefir selt
1297 vættir isfiskjar í Hull fyrir
1155 stpd., en Ólafur í Grimsby,
1133 vættir, fyxdr 748 stpd. — Ver
hefir og selt í Grimsby, 1278' vætt-
ir, fyrir 1282 stpd.
Mxisikklúbburinn.
8. hljómleikar klúbbsins eru á
Hotel Island í kveld (miðvikudag)
kl. 9. Félagsmenn tilkynni Jxátt-
töku í sima 1450. Rauðu kortin
gilda.
Kristín Thoroddsen
hefir verið sett til þess að vera
kennari í matreíðslu við bamaskól-
ana um eitt ár, frá 1. þ. m. að telja.
Brynj. Þorláksson
hefir verið settur söngkennari
við barnaskólana frá 1. þ. m., þar
til öðru vísi verður ákveðið.
Verslunarmannafél. Reykjavíkur
hefir bókaútlán og spilakveld í
Kaupþingssalnum kl. 8)4 í kveld.
Leikfélag Reykjavíkur.
„Skugga-Sveinn“, hið gamal-
kunna leikrit síra Matthíasar Joc-
humssonar, verður sýnt i Iðnó í
kveld. Er talið að mjög sé til sýn-
ingarinnar vandað. Skugga-Sveinn
hefir verið leikinn fjölmörgum
sinnum hér í Reykjavík og einatt
átt miklum vinsældum að fagna.
Kvæðin í leikritinu eru dásamleg-
ar perlur, sem eiga fá sína líka.
Kjarval.
Þorsteinn skáld Gíslason orti
kvæði um Kjarval í surnar, í það
mund er málaverkasýningin hófst
í Mentaskólanum. Nú hefir Sig-
valdi Kaldalóns sett lag við kvæð-
ið, en Steindórsprent h.f. gefið út.
Er þetta gert til heiðurs listamann-
inum á fimtugsafmæli hans.
V er slunarskólinn.
Skólasetning fór fram í gær í
Kaupþingssalnum. í fyrravetur
voru nemendur í skólanum 280, en
verða miklu fleiri nú, líklega um
320 alls. Kensla lxefst næstu daga.
Kristniboðsfélag kvenna
heldur fund á morgun.
E.s. Súðin
kom til Búðardals um hádegis-
bil i dag.
E.s. Esja
fer í strandferð austur um Íand
á föstudagskveld.
Hjónaefni.
Opinberað hafa trúlofun sína
ungfrú Guðrún Páls, Klapparstíg
25, og Gunnar Smith, verslunar-
maður.
Bragi
kom frá Englandi í gærkveldi.
Max Pemberton
kom af veiðum i gær með um
1400 körfur ísfiskjar og er lagð-
ur af stað áleiðis til Englands.
Skip Eimsldpafélagsins.
Gullfoss er væntanlegur frá út-
löndum kl. 8 í kveld. Goðafoss er
í HuII. Selfoss kom til Gautaborg-
ar síðdegis í gær. Lagaríoss var
á Akureyri í morgun. Dettifoss
kom til ísafjarðar síðdegis í dag.
Brúarfoss er á leið til London.
Leiðrétting.
í greininni um Kjarval hér í
blaðinu í gær hafði 21. lína í 6.
dálki brjálast í próförk þannig, að
þar stóð „islensk ljóðlist“, en átti
að vera: ljóðlistin.
Háskólasetning
fór fram í gær. — 32 nýir stúd-
entar voru skráðir. Eru háskóla-
stúdentar þá alls 162.
London xó. okt.
.. Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum hefir United Press fregnað,
að ítalska hermálastjómin hefir
með leynd sent eitt herfylki til við-
bótar til Libyu: eða 17.000 menn
og talsvert marga flúgvélaflokka
Fimieikaæfingar
íþróttafélags Reykjavíkur.
hefjast á morgun, fimtudag 17.
okt. i húsl felagsins við Tún-
götu.
STUNDASKRÁ:
Mánudaga:
Old Boys ..... 6—7 e. m.
Evarlaflokkur . 7J4—8J4. —
Kvennaflokkur 8%—9x/2 —
Þriðjudaga og föstudaga:
Frúaflokkur . . kl. 5—6 e. li.
Fimtudaga:
Old Boys ..... 6—7 e. m.
Kvennaflokkur lx/<i—8% —
Karlaflokkur 8%—9 ¥2 —
Æfingalími fyrir drengi og
lelpur verður nánar auglýslur
síðar. .
Stjómin.
Anna Líndal,
ung stúlka héðan úr bænum,-
lauk á síðastliðnu sumri prófi
með ágætum vitnisburði í Pitt-
man’s verslunarskóla i London,
og hefir síðan dvalist í Eng-
landi og Danmörku. — Ungfrú-
in er meðal fárþega á Gullfossi
frá útlöndum.
Vinninga
í hlutaveltuhappdi'ætti íþrótta-
félags Reykjavíkur hlutu þessir
menn: Sigurður Jónsson, Berg-
staðastræti 21B kr. 500.00 Ingólfur
Sveinsson, Bergstaðastræti 20 kr.
100.00, Sígurgeir Steinsson, Rán-
argötu 3, kr. 100.00. Sigurður
Hallgrímsson, Ægisgötu 26, kr.
100.00. Magnús Þórarinsson, Há-
vallagötu 13, kr. 100.00. Vinningur
nr. 1378, kr. 100.00 hefir ekki verið
sóttur enn.
Síldaraflinn
nam í lok s. 1. viku 114.617 tn.,
þar af vora grófsaltaðar 70.258 tn ,
matjesaltaðar 7-452, kryddaðar
25.942, sykursaltaðar 4,162 og sér-
verkaðar 6.803. — Síldaraflinn í
fyi'ra nam 216. 760 tn.
Heilbrigðisskýrslur 1933
eru nú komnar út fyrir skömmu.
Hefir landlæknir tekið þær saman
eftir skýrslum héraöslækna og
öðrum gögnum. Enx skýrslur þess-
ar allmikil hók og mun þangað
talsverðan fróðleik að sækja. I.
kafli: „Yfirlit yfir heilsufar og
heilbrigðismál“. (Árferði og al-
menn afkoma. — Fólksf jöldi,
hamkoma og manndauði. Sóttar-
far: A. Farsóttir. B. Aðrir næmir
sjúkdómar. Krahbamein. Drykkju-
æðí. C. Aðrir sjúkdómar. D. Kvill-
ar skólabarna. E. Aðsókn að lækn-
um og sjúkrahúsum. — Barnsfar-
ir. — Slysfarir. — Geðveikir, fá-
vitar, daufdumbir, málhaltir,
heyrnai'lausir, blindir og deyfi-
lyfjaneytendur. — Ýms heilbrigð-
ismál — í mörg-um liðum). — II.
kafli: Töflur. III. kafli: Berkla-
rannsóknir á Raufarhöfn. Skýrsla
(squadrons). Eru ílugvélarnar út-
búnar til þess að varpa niður
sprengikúlum. Þessar ráðstafanir
hafa verið gerðar vegna óttans um,
að til styrjaldar komi milli ítala
og Breta. (United Press—FB).
írás Abessiniu-
manna mishepnast,
að þv£ er sagt er, 1 tilkynn-
ingum frá Rómaborg. —
Rómaborg 16. okt.
Tilkynt hefir verið opinberlega,
samkvæmt fregnum sem hermála-
ráðuneytinu hafa borist frá As-
mara, að herdeildir Abessiniu-
manna við Setett-fljót hafi gert til-
raun til þess að brjótast í ,gegnum
herlínu ítala og komast yfir ána,
en árásinni hafi verið hrundið og
hafi verið mikið mannfall í liði
Ahessiniumanna. (United Press—
FB).
F j ápfiagslegu
refsiadgerð—
irnap
munu fljótlega verða til-
finnanlegar fyrir Itali. —
Oslo 15. okt.
Það hefir vakið mikla eftirtekt,
aö 52 atkvæði voru greidd meí) til-
lögumundimefndar þeirrar, sem
hafði með höndum að samræma
hinar fjárhagslegu refsiaðgerðir
gegn Ítalíu og koma fram með tit-
lögur i þeim efnum. Fulltrúar
Austurríkis og Ungverjalands
greiddu ekki atkvæði. — Ráðstaf-
animar, sem miða að því, að ítalir
og xtalska ríkið geti hvergi feng-
ið lán erlendis, ganga í gildi þeg-
ar í stað, og er búist við, að afleið-
ingar þessara ráðstafana muni
mjög fljótlega verða tilfinnanlegar
fyrir ítali. (NRP—FB).
ABflntningnr kola,
olín og kopars
til ítaliu verður ekki stöðv-
aður í bili.
(United. Press—FB).
Genf 15. okt.
Fjárhagsmála-undirnefndin hef-
ir komist að þeirri niðurstöðu, að
eins og sakir standi sé óráðlegt að
korna í veg fyrir flutning kola,
olíu og kopars til Ítalíu, þar eð
framannefndar framleiðslutegund-
ir fái ítalir aðallega frá Bandaríkj-
unum. (United Press—FB).
til landlæknis frá Sigurði Sigurðs-
syni lækni. — Skýrslurnar eru að-
gengilegar og hefir verið allmikið
verk að taka þær saman. Athugan-
ir héraðslækna og frásagnir af
heilsufari og kvillum í héruðun-
um og ýmsu öðru, er snertir heil-
brigðismál, eru til mikilla bóta,
fróðleiks og glöggvunar.
Hjálpræðisherinn.
Vakningarvikan. í kveld kl. 8J4
verður fagnaðarsamkoma fyrir en-
sain Lauritsen. Allir velkomnir.